Helgarpósturinn - 23.04.1986, Blaðsíða 25
Stuðmennirnir Egill Ólafsson, Jakob Magnússon og Valgeir Guðjónsson; hvernig
skyldi nú kínversk músík hljóma í íslenskri túlkun?
Menningarsendinefndin
Stuðmenn
flytur vestrænan skarkala
til alþýðulýðveldisins Kína
Bergþóra
aftur á
leiö í
víking
Bergþóra Árnadóttir, lagasmiöur
og vísnasöngkona, hefur í vetur
skemmt frœndum okkar í Noregi,
Svíþjód og Finnlandi med tónlistar-
flutningi. Hún er nú stödd hér á
landi og mun halda tónleika í
Norrœna húsinu ad kvöldi sumar-
dagsins fyrsta, ádur en hún heldur
enn á ný til Skandinavtu.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.45 og mun Bergþóra koma þar
fram ásamt nokkrum gestum sín-
um. Þeirra á meðal verða m.a. for-
eldrar hennar, Aðalbjörg Jóhanns-
dóttir og Árni „gítar" Jónsson, sem
kunn eru fyrir flutning sinn á göml-
um lagasyrpum. Aðalbjörg leikur á
munnhörpu, en Árni mundar gítar-
inn. Búast má við því að Bergþóra
muni leggja foreldrum sínum lið og
prufukeyra harmónikkuna þarna í
Norræna húsinu.
Á efnisskrá tónleikanna er mikið
af nýju efni, sem Bergþóra mun gefa
út á hljómplötu síðar á árinu. Hún
mun líka kynna væntanlega útgáfu
sína á Skólaljóðunum, en um þessar
mundir er einmitt að koma á mark-
aðinn snælda með 16 lögum við ljóð
úr Skólaljóðunum alþekktu.
JL
— Jakob Magnússon?
Jamm, þaö er hann.
— Ég er bara að hnýsast, skal ég
segja þér. Hvað eruð þið Stuðmenn-
irnir að gera þarna úti í London?
Við erum bara að vinna að plötu,
setja fáein ný lög inná band, jafn-
sáraómerkileg frétt og það þykir
sennilega heima á Fróni.
— Tólf laga plötu?
Jú, það hét það víst hér á velmekt-
arárum Svavars Gests. Aðalástæðan
fyrir því að við erum hérna úti er sú
að við erum að vinna með hérlend-
um upptökustjóra, náunga sem heit-
ir Stuart Colman, snjöllum manni
sem hefur meðal annars unnið sér
það til frægðar að hafa pródúserað
lagið sem er hér alls staðar í eyrna-
máli þessa dagana — Living Doll
með gamla hjartaknúsaranum Cliff
Richard. Við erum að vinna hér í
hans prívathljóðveri — í friði fyrir
öllu harkinu og símhringingunum
heima.
— Og hvenær er svo von á afurð-
inni?
Með hækkandi sól og sumri.
— Hér heima eru uppi miklar
vangaveltur um ævintýraferð Stuð-
manna til Kína. Hvenær leggið þið
af stað?
Sjöunda maí. Við verðum á ferð
og flugi um alþýðulýðveldið í einar
þrjár vikur, höldum þetta tíu-ellefu
tónleika í sjö borgum. Það er ráð-
gert að við byrjum í Kanton og end-
um í Peking. Við spilum líka í Sjang-
hæ, en ekki kann ég að nefna allar
borgirnar sjö svona á augabragði.
— Hvað ætlið þið að leika fyrir
Kínverja?
Við verðum með ýmis sýnishorn
af okkar tónlistarafurðum og -arf-
leifð. Svo verðum við líka með okk-
ar versjón af þeirra músík, nokkur
dæmi um það hvernig kínversk
músík hljómar í okkar íslensku túlk-
un.
— Kínverjar eru býsna fjölmenn
þjóð; þið komið líklega til með að
spila fyrir múg og margmenni í al-
þýðuhöllunum?
Þeir tjá okkur að þetta séu fjöl-
mennir staðir og vel sóttir, en ann-
ars vitum við ekki mikið um það
hvernig þetta verður allt í laginu.
Það eru kínverska sendiráðið á ís-
landi og Kínversk-íslenska menn-
ingarfélagið sem hafa borið hitann
og þungann af undirbúningnum.
Nú, það stendur til að festa ferðalag-
ið á filmu, svo fólk heima fær að sjá
hvernig þetta æxlast.
— Kínverjar hafa ekki verið neitt
sérstaklega ginnkeyptir fyrir vest-
rænni dægurlagamúsík hingað til —
hafið þið ekki mætt einhverjum
ljónum í veginum?
Það sem við höfum haft af Kín-
verjum að segja hefur flest verið
gott og blessað. Það er reyndar ekki
hægt að neita því að þeir hafa svolít-
ið annað tjámunstur en við Vestur-
landabúar; það er til dæmis býsna
erfitt að fá þá til að segja þvert nei
og líkast því að orðið ,,nei“ sé ekki
til í orðaforða þeirra. Svonalagað
getur auðvitað valdið smávægileg-
um misskilningi.
— Er þetta ekki dýrt fyrirtæki og
glannalegt?
Náttúrlega er þetta dýrt spaug,
en okkur finnst það þess virði. Það
er eftir ýmsu að slægjast þarna aust-
urfrá, ekki síst núna á því mikla
breytingaskeiði sem þar er að
ganga yfir. Þeir virðast loksins vera
orðnir móttækilegir fyrir einhverri
blöndu af austrænni og vestrænni
menningu eftir langt einangrunar-
tímabil. Kína getur orðið ágætur
markaður fyrir íslendinga í ýmsum
skilningi og okkur þykir talsverð
upphefð að því að vera í þessari
menningarsendinefnd.
— Áttu von á þvi að ferðin veki at-
hygli í erlendum fjölmiðlum? Held-
urðu að þið leggið undir ykkur for-
síðuna á Njúsvík og Tæm?
Mér þykir ekki ólíklegt að eitt-
hvað verði um þetta fjallað hér í
Evrópu. í ljósi sögunnar og gamal-
gróinnar andúðar Kínverja á vest-
rænum skarkala þykir þetta nátt-
úrlega dálítið sérstök uppákoma.
Ég geri ráð fyrir því að gestgjafar
okkar í Kína skýri frá þessu á þann
hátt sem þeim þykir heppilegastur.
En hins er líka að gæta að það eru
Stuðmenn sem eru að fara til Kína
— ekki Rolling Stones. . .
— Nú fengu Kínverjar forsmekk-
inn af vestrænum poppurum í hitt-
eðfyrra þegar tvímenningarnir
frægu í Wham héldu þar hljómleika
og þóttu hegða sér einsog óþekkir
krakkar. Ætlið þið að hegða ykkur
vel. . .?
Ég get auðvitað ekki talað fyrir
hina piltana, en ég ætla að reyna að
stilla mig. . . -EH.
Forréttir
2. Gratineraöir sjávarréttir með hrísgrjónum
og hvítlauksbrauöi kr. 380,-
Fiskréttir
5. Rjómasoðinn skötuselur, sinneps-
kryddaður, með hrísgrjónum og hvítlauks-
brauði kr. 460,-
8. Pönnusteiktur karfi með fylltum tómat,
gratinkartöflum og hvítlauksbrauði kr. 440,-
Kjötréttir
10. Villikryddaðar lambalundir með villi-
sósu, grœnmeti og bakaðri kartöflu kr. 620,-
12. Hreindýrabuff með ristaðri peru, bacon-
baunum, rjómasósu, grœnmeti og sykur-
brúnuðum kartöflum kr. 720,-
13. Kjúklingalifur steikt með sveppum, stein-
selju, svörtum pipar og rauðvíns-
sósu kr. 580,-
Desert
14. ís með gljáðum ávöxtum
Nýtt andlit á A. Hansen
IMýr matseðil!
Breyttur matsalur
Kvedjið veturinn á A. Hansen
Fagnið sumri á A. Hansen
IMjótið góðra veitinga í sögulegu
umhverfi.
Opið allan daginn á A. Hansen frá
11.30-23.30.
Föstudaga og laugardaga til
kl. 00.30.
P.s. Kaffi og meðlæti frá
kl. 2.30 til 18.00.
Vesturgötu 4 - Halnarfirði
Slmar 651130 - 651693
HELGARPÖSTURINN 25