Helgarpósturinn - 23.04.1986, Page 27
l^ri
I yrirtækið Japis i Brautarhoiti
auglýsti í síðustu viku ódýrar vídeó-
spólur „með upptökubónus". Þetta
þýðir með öðrum orðum, að um-
ræddar spólur eru ekki í umbúðum,
heldur hefur verið tekið upp á þær
eitt lag í Skonrokk-stíl. Þar með eru
spólurnar „áteknar" og losnar
kaupandinn þannig við að borga
svonefndan kassettuskatt, sem
lagður er á óáteknar spólur. Svona
er hægt að fara í kringum reglur í
þjóðfélaginu með alls kyns lögleg-
um hundakúnstum. . .
c
^^amkvæmt óstaðfestum
heimildum höfðum við á HP fregnir
af því, að hvorki meira né minna en
1400 manns hefðu sótt um hin ýmis-
legustu störf hjá hinu nýja hóteli
Helga Þórs Jónssonar, Hótel Örk,
þegar auglýst var eftir starfsfólki.
Hætt er við, að margir hafi orðið fyr-
ir vonbrigðum, því ,,aðeins“ 100
störf voru auglýst. Annars heyrðum
við, að bæði hjá elliheimilinu í
Hveragerði og Náttúrulækninga-
hælinu hefðu menn óttast stórfelld-
an flótta þaðan yfir á nýja hótelið. . .
| gærmorgun, þriðjudag, var rík-
isstjórnarfundur, þar sem eina mál-
ið á dagskrá voru málefni Arnar-
flugs og þá einkum og aðallega
hvort veita ætti félaginu ríkis-
ábyrgð. Það var samþykkt að því til-
skildu að hlutafjáraukning í Arnar-
flugi verði eins og fyrirhugað var.
Annars vakti það að sjálfsögðu tals-
verða athygli ráðherranna, að Al-
bert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra var ekki mættur á fundinn og
spyrja menn sig nú hvort Albert sé
í raun og veru að láta verða af þvi að
mæta ekki á ríkisstjórnarfundi, eins ^
og hann lét í veðri vaka að hann
hygöist gera. Eins og menn muna
lentu þeir í opinberri rimmu, Albert
og Steingrímur, vegna þess að í Tím-
anum var Albert sagður hafa gengið
út af ríkisstjórnarfundi og skellt
hurðum. Steingrímur setti ofan í við
Albert opinberlega, en Albert neit-
aði frásögn Tímans og sagði dag-
skrá ríkisstjórnarfundarins tæmda
þegar hann gekk út. Við sjáum hvað
setur. . .
25. apríl
26. aprll
30. apríl
2. maí
3. mal
4. maí
7. maí
9. maí
10. maí
11. maí
16. maí
17. mal
19. maí
23. maí
24. maí
T~iim
ISLENSKA OPERAN
__mn
KORT
Enginn
korta-
kostnaður
Opið til kl. 4 laugardagf
ijtt**'*0*’ -J L
Jli
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
HELGARPÓSTURINN 27