Helgarpósturinn - 23.04.1986, Page 29
HP KANNAR EÐLIOG ÚTBREIÐSLU KOSSA
fullnæging. Fæstir karlmannanna
sem blaðið spjallaði við gátu hugsað
sér að sýna kynbræðrum sínum
blíðuhót með kossi, sumir af
hræðslu við að verða stimplaðir
hommar, en fyrir konur er slíkt yfir-
leitt ekkert tiltökumál. Þá sann-
reyndi blaðið að rafstraumurinn og
sviminn sem talað er um í lækna-
rómönunum á fyllilega við rök að
styðjast!
En hér gefum við nokkrum við-
mælendum blaðsins orðið og birt-
um jafnframt kafla úr tveimur gagn-
legum handbókum um fyrirbærið.
Annar kaflinn er úr Listin að kyssa
eftir Hugh Morris sem er „handbók
fyrir ungt fólk, á aldrinum frá ferm-
ingu til fimmtugs!" og Prentver gaf
út 1968. Þar er fjallað um ýmsar teg-
undir kossa eins og ,,sog-kossinn,
„andlega'-kossinn, augnahárakoss-
inn, „kvala-kossinn, „nart-kossinn,
rafmagnskossinn, danskossinn,
óvænta kossinn og kossinn undir
mistilteininum. En kaflinn sem við
birtum hér lýsir þvi hvernig karl-
macjurinn getur borið sig að vilji
hann fá konu til kossaleikja. Hinn
kaflinn er úr bókinni Kynlíf kvenna,
bandarískri bók eftir „J“, sem Örn
og Örlygur gáfu út í íslenskri þýð-
ingu 1973. Við grípum niður þar
sem höfundur er að lýsa því hvernig
konan getur gert karlmanninn ær-
an af hrifningu. Njótið heil!
Kossinn í „Kynlíf kvenna"
„Leyndardómurinn við Ijáfan
koss er alger slökun ú munnvöðv-
unum. Láttu það því aldrei henda
þig að kipra varirnar eða kyssa
lokuðum munni og samanbitnum
tönnum. Hvernig mundi þér þykja
að kyssa þann, sem vœri að verða
klumsa? Og ekki mundi honum
þykja mikið til þess koma heldur!
Varirnar eiga að vera því sem nœst
máttvana. Slakaðu samtímis á
vangavöðvunum. Þá kemur það
afsjálfu sér að munnurinn opnast
nœgilega til þess að glettin tunga
þín geti smeygt sér út á milli tann-
garðanna og inn á milli vara hans
þegar kossinn gerist heitur og ástr-
íðan eykst.
Að sjálfsögðu lœturðujiann urn
frumkvœðið. En það er svo ótal-
margt sem þú getur tekið þér fram
um án þess að verða sökuð um að
þú takir ,,fram í" fyrir honum. Til
dœmis í hléinu, þegar þið eruð að
ná andanum eftir einn af þessum
löngu, heitu og einlœgu kossum,
að þú snertir þá hvarma hans, nef,
enni, hár og vanga létt og hratt
með vörum þínum. Staðnœmist
svo aftur við munn hans, sjúgir
hœgri hluta efri varar mjúklega í
munni þér, þvi næst alla efri vör-
ina, gefir eflir aftur og rennir
tungubroddinum Ijúflega um
framtennur hans og góma og var-
irnar innanverðar — og gefðu þér
svo aftur lausan tauminn í heitum,
djúpum kossi. Uhmmmm! En
unaðslegt."
„Listin að kyssa"
,,Þegar þér œtlið að kyssa
stúlku, sem hefur litla reynslu á
því sviði, er rétt að hafa nokkurn
undirbúning áður en þér kyssið
hana á munninn. Engum nema
hreinrœktuðum asna myndi detta
í hug aö grípa utan um slíka
stúlku, jafnskjótt og þau vœri
þœgilega sezt í sófa, og láta svo
kossunum rigna á andlit hennar
og varir. Vitanlega á að koma því
þannig fyrir fyrst, að stúlkan sitji
við brík sófans og setjast síðan við
hlið hennar. Þá getur hún síður
skotið sér undan, þegar hann fer
að fjara í fjörurnar við hana. Þeg-
ar þessu hefur verið komið svona
fyrir, með einum eða öðrum ráð-
um, má með hœgu móti hagrœða
púðunum við bakið á henni og
lœða um leið handleggnum aftur
fyrir sófann, og síðan smátt og
smátt um herðar henni. Látið ykk-
ur ekki bregða, þótt hún víki sér
undan; ogjafnvel þótt hún víkisér
undan og œpi, þá skuluð þér ekki
kippa yður upp við það. Þér skul-
uð meira aö segja vera rólegir, þótt
hún víki sér undan, œpi og reyni
að standa upp. Haldið henni hóg-
vœrlega, en þéttingsfast, og sefið
ótta hennar með sannfœrandi
orðum. Munið eftir því, sem
Shakespeare sagði um „nei kon-
unnar". En efhún víkursér undan,
œpir hátt eða rekur upp öskur, þá
skuluð þér fara aö gá að yður; og
ef hún fer að klóra framan í yður,
þá megið þér fara að hugsa ráð
yðar og reyna að losa yður úr
þessu vandrœðaástandi. Slíkar
stúlkur eru engin lömb að leika
sér við. . . og þœr láta ekki kyssa
sig. Þœr eru oftast nœr úr þeim
flokki kvenna, sem trúir því enn,
aö árangur kossanna verði sá, að
storkurinn komi einn góðan veð-
urdag fljúgandi með barn til
þeirra.
Þegar þér hafið komið hand-
leggnum þœgilega fyrir um herð-
ar stúlkunnar, og,,allt virðist vera
í himna lagi", er nœsta skrefiö að
skjalla hana á einhvern hátt. Öll-
um konum þykir lofiö gott. Þeim
þykir vœnt um aö heyra að þœr
séu fallegar, jafnvel þótt spegUlinn
á móti þeim endurvarpi lýginni
beint framan í ófrítt smettiö á
þeim.
Blessaðir hœliö þér henni!
Segið henni að hún sé falleg!"
HELGAFSPÓSTURINN 29