Helgarpósturinn - 23.04.1986, Síða 30
I*
HELGARDAGSKRÁVEIFAN
Föstudagurinn
25. apríl
19.15 Döf.
19.25 Finnskt Djalagojala fyrir börn. . .
19.50 Tákn.
20.00 Mál.
20.40 Gamlingjarnir í auðninni. Jón Gústafs-
son hressir þá við með snakki og
sniffi ef ekki vill betur.
21.10 Júróvísjón. Þorgeir 2 Ástvaldsson
kynnir nokkra slagara sem koma til
með aö klúðrast í Bergen, þrátt fyrir
góðan málstað.
21.25 Þingsjá.
21.40 Kastljós.
22.15 Sá gamli. Elliær þáttur, svoldið kalk-
aður söguþráður, en ern að öðru
leyti. . .
23.15 Seinni fréttirnar vinsælu.
23.20 Að losna við lík (Dödspolare). ★★★
Sænsk bíómynd frá því í fyrra í leik-
stjórn Mats Arehn. Aðalleikarar Gösta
Ekman og Sten Ljunggren. Á köflum
fantavel skrifaður díalógur um tvo fé-
laga sem sitja uppi með konulík að af-
stöðnu partýi á heimili annars þeirra!
Leikur Gösta og Stens með dásemd-
um. Úrræðaleysi í endann.
00.50 Háttatími.
Laugardagurinn
26. apríl
16.00 Iþróttin mín. Bjarni Felixson velur og
kynnir uppáhaldssportið sitt.
19.20 Búrabyggð. Þáttur úr svampi.
19.50 Fréttir af fingrum fram. . .
20.00 Fréttir að fótum komnar. . .
20.35 Dagbók Dadda.
21.05 Ævintýri í Austurlandahraðlestinni
(Minder on the Orient Express). Ný
bresk sjónvarpsmynd um söguhetjur
vinsælla sjónvarpsþátta sem býðst
óvænt tækifæri til að ferðast með
nefndum farskjóta með furðulegum
afleiðingum. . . Leikstjóri Francis
Megahy. Aðalleikarar Dennis Water-
man og George Cole.
22.50 Innrásin frá Mars (The War of the
Worlds). ★★★ Bandarísk bíómynd
frá '53 eftir sögu H.G. Wells. Leikstjóri
Byron Haskin. Aðalleikarar Gene
Barry og Ann Robinsson. Augngæti
fyrir fantasíuunnendur. Sígild saga á
því sviði, sem óþarft er að rekja hér.
Brellur af bestu gerð (miðað við aldur)
en allt að því asnalegur leikur í sumum
tilfellum (maður nefnir engin nöfn...)
00.25 Stillimynd af fjalli með fullt af snjó í.
Og getiðinú hvar það er á landinu, þið
þarna þumbararnir með ferhyrndu
augun sem hafið legiö í keng fyrir
framan kassann allt þetta kvöld. Huh!
Sunnudagurinn
27. apríl
18.00 Mariníseruð bæn Orly.
18.10 Stundin okkar? „Ja, það er nú það,"
eins og maöurinn sagði nánast varla.
18.45 Úr safni sjónvarpsins. Diddú og pabbi
Hjálmtýr plús mamma Margrét.
19.30 Hlé.
19.50 Hlénu lokið hvað myndina snertir en
ekki hljóðið!
20.00 Fréttir fluttar af Páli Magnússyni (án
gleraugna) og Eddu Andrésdóttur (án
nælu). Efni: Eitthvað sem til fellur og
allavega eitthvað með börnum í lokin.
Svo sætt, finnst fólki.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Guðmundi Inga
býöur viö, en lætur sig samt hafaða.
20.50 Verk Jökuls Jakobssonar endursýnd.
öll sjónvarpsleikrit eftir meistarann
flutt aftur til að sem minnst beri á end-
ursýningu þess síðasta, Vandarhöggi,
sem ,,ja, það er nú það" leik-
stýrði. . .
21.35 Söngvakeppnin. Toggi Lovepower
gerir gys að nokkrum ekki næstum
því eins góðum lögum og því sem við
sendum (ef pósturinn klikkar ekki).
22.00 Kristófer Kólumbus. Nýr flokkur
um þann fundvísa fír. ítalsk-þýsk-
fransk-bandarískur íleikstjórn Alberto
Lattuada. Aðalleikendur Gabriel
Byrne sem Krissi, Fay Dunaway,
Rossano Brazzi, Oliver Reed, Max von
Sydow, Raf Vallone, Virna Lisi og
Nicole Williamsson.
23.10 Fundi slitið.
©
Fimmtudagskvöldið
24. apríl
19.00 Fréttir af sprungnum blöðrum á fyrsta
sumardagshátíðarhöldum á Höfn í
Hornafirði og nágrenni.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson
les nokkur tugþúsund atkvæði á mín-
útu.
20.00 Leikritið „Brunnur dýrlinganna"
eftir John M. Synge í leikstjórn Þor-
steins Gunnarssonar.
21.35 Michael John Clarke Ijóðar að
norðan við undirleik Soffíu Guð-
mundsdóttir sem kann svoldiö á
pjanó.
22.20 Grætur með öðru, hlær með hinu.
Þáttur um og með Árna Tryggvasyni í
umsjón Stefáns Jökulssonar.
23.00 Túlkun í tónlist.
24.00 Búkalú.
Föstudagurinn
25. apríl
07.00 Og vakna þú mín Islands þjóð, íslands
þjóð.. .
07.15 ...íslands þjóð!
09.05 Barnatími.
*
Eg mœli meö
Rás 1, Iaugardaginn26. apríl klukk-
an 9.30: Óskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir slöppustu
lögin um þessar mundir.
09.45 Þingfrétt.
10.40 „Ljáðu mér eyra". Málmfríður Sigurð-
ardóttir tekur á móti framlögum
nyrðra. Rúvak.
11.10 Fáein orð í einiægni. Þórir S. Guð-
bergsson talar eins og sannur sjar-
mör af Suðurnesjum.
11.30 Morguntónleikar að hætti hússins.
12.20 Hádegissólin og frétt um hana.
14.00 Miðdegissagan eins og mamma vill
hafa hana.
14.30 Upptaktur. Gvendur Ben og Big Ben
í takti. ..
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
17.40 Úr atvinnulífinu.
19.00 Fréttir.
19.45 Þingmál.
19.55 Daglegt mál.
20.00 Allt annað mól, þ.e.a.s. Lög unga
fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Frá tónskáldum.
22.20 Kvöldtónleikar.
23.00 Heyrðu mig — eitt orð.
00.05 Djassþáttur til dagskrárloka...
Laugardagurinn
26. apríl
07.00 Veður, fréttir, bæn og hósti (þular).
07.30 Islenskir einsöngvarar og kórar kyrja!
09.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir slöppustu
lögin um þessar mundir.
11.00 Á tólfta tímanum.
12.20 Hádegisfréttir.
13.50 Hér og nú. Fréttamenn útvarpsins
viðraðir undir eftirliti útvarps-
ráðs!
15.00 Miðdegistónleikar af sjálfu sér.
15.50 íslenskt mál.
16.20 Listagrip.
17.00 Stígvélaða kattasagan lesin upphátt
(vonandi).
17.40 Síðdegistónleikar í hljóöi (vonandi).
19.00 Kvöldfrétt af feitum fressköttum sem
herja á Hlíðahverfi. . .
19.35 „Sama og þegið," sagði hlustand-
inn og slökkti.
20.00 Nikkan dregin sundur og saman með
og án hávaða.
20.30 Atvinnusaga frá kreppuárunum.
21.05 Óperettutónlist. (Loksins)
21.35 „Lögregla og fólk". Steingrímur Sig-
urðsson les hátt þátt úr bók sinni
„Spegill samtíðar".
22.20 í hnotskurn.
23.00 Danslög.
00.05 Miðnæturmúsík með Marinós-
syni. Jón örn kynnir.
01.00 Samtenging rásanna.
Sunnudagurinn
27. apríl
08.00 Morgunandakt. Séra Þórarinn Þór
grípur andann á lofti.
08.35 Létt morgunlög.
09.05 Þung klassík.
10.25 Út og suður. Friðrik F*áll stjórnar
sigldu fólki.
11.00 Messa. Séra Geir Waage stjórnar
villtum sauðum.
12.20 Frétt og frétt.
13.30 Snorri Hjartarson áttræður.
14.30 Að ferðast um sitt eigið land. Páll
Heiðar Jónsson startar tímabærum
þætti um þarft málefni.
16.20 Vísindi og fræði.
17.00 Síðdegistónleikarnir.
19.00 Frétt.
19.35 Stefán Jónsson gasprar um stund.. .
20.00 . .. en bregður sér svo á Stefnumót,
kallinn.
21.00 Ljóð og lag. Hermann Ragnar hjalar
á milli.
21.30 Útvarpssagan.
22.20 Iþróttir.
23.20 Kvöldtónleikar.
00.05 Milli svefns og vöku. Magnús Einars-
son talar mjúklega til hlustenda milli
þess sem hann leikur graöhestatón-
list.
00.55 Graðhesta góð nótt.
eftir Sigfinn Schiöth
£
Fimmtudagskvöldið
24. apríl
20.00 Listi.
21.00 Losti.
22.00 Leisti.
23.00 Last. ..
24.00 „Hárrétt, það var einmitt svarið,
James Last fæddist ári
seinna. . /'
Föstudagurinn
25. apríl
10.00 Morgunþáttur. Ásgeir og Páll hreyta
ónotum í Georg tæknimann sem ullar
á móti (án þess þó að það heyrist
nú...l)
12.00 Tveggja tíma hádegisverðarhlé að
hætti hússins.
14.00 Pósthólfið.
16.00 Léttir sprettir.
18.00 Tveggja tíma kvöldverðarhlé að
hætti hússins.
20.00 Músíktilraunir rásar tvö og Tónabæjar
1986. Bein útsending frá lokakvöldi
þessa húllumhæs. Sonur minn spilar
þarna í einni grúppunni sem vinnur,
spái ég.
24.00 Á næturvakt með Vigni og Togga.
03.00 Á næturvakt án Vigga og Togna.
Laugardagurinn
26. apríi
10.00 Morgunþáttur dýranna í Hálsaskógi.
12.00 Mikki refur fær sér löns.
14.00 Laugardagur til lukku með Svabba
klifurmús.
16.00 Listapopp. Gunni Sal með pipar-
kökusöngvana sína.
17.00 Hringborð bangsamömmu.
18.00 Baddi broddgöltur fær sér dinner.
20.00 Bylgjur í skóginum.
21.00 Venni Linn dillar sér með Héraðs-
stubbi bakara.
22.00 Bárujárn fyrir litlu bangsabörnin.
23.00 Svifflugur. Amma komin langleiðina
á regnhlífinni.
24.00 Á næturvakt með hundinum Habba-
gú. . .
03.00 .. .en allt fer (svo) vel að lokum.
Sunnudagurinn
27. apríl
13.30 Salt í samtíðina.
15.00 Jón krossgátufari.
16.00 Vesældarlistinn.
18.00 Tími til aö skafa utan af hryggnum frá
í gær og hita upp í illa þefjandi sós-
onnh
Svæðisútvarp virka daga
17.03-18.00 Reykjavík og nágranni — FM
90,1 MHz.
17.03-18.30 Akureyri og nágrannar — FM
96,5 MHz.
ÚTVARP
Helgarhryllingurinn
eftir Jónínu Leósdóttur
SJÖNVARP
Nú klikkaöi sjónvarpið ekki
Ungt fólk, sem ekki hefur enn hellt sér út
í barneignir, er oft algjörlega ómeðvitað
um það hvort yfirleitt er útvarpað á morgn-
ana um helgar. Þessir lukkunnar pamfílar
sofa þá svefni hinna ballþreyttu og lái þeim
hver sem vill. Við hin, sem annað hvort þjá-
umst sökum elli eða ómegðar, vitum hins
vegar allt of vel hvernig útvarpsdagskráin
er á laugardags- og sunnudagsmorgnum.
Til skamms tíma var ekki boðið upp á
annað snemma á laugardögum en „létt
lög“ að smekk þulsins, sem var svo óhepp-
inn að vera á vakt. Síðan tóku óskalög
sjúklinganna við, en vistmenn slíkra stofn-
ana virðast með eindæmum íhaldssamir
og andlausir, ef lagavalið telst marktækur
mælikvarði. A hinum síðri tímum má hins
vegar stilla á rás 2 á milli tíu og tólf á iaug-
ardagsmorgnum. Þar hefur Sigurður
Blöndal verið við stjórnvölinn að undan-
förnu og hann er að minnsta kosti nær nú-
tímanum og hugmyndaríkari en fyrrnefnd-
ir sjúklingar. Hins vegar finnst mér að Sig-
urður mætti alveg að ósekju hætta að
rabba símleiðis við unga áheyrendur í þess-
um þáttum. Þetta er oft svo innilega and-
og tilgangslaust hjal, sem umsjónarmaður-
inn virðist kreista fram með svita og erfið-
ismunum. Mikið er um endurteknar spurn-
ingar, þagnir, misskilning og alls kyns
vandræðagang. Dauðpínlegt oft á tíðum!
Það syrtir hins vegar í álinn, þegar
sunnudagsmorgunn rennur upp. Þá er fátt,
sem maður gæfi ekki fyrir að hlusta á Sig-
urð Blöndal rekja garnirnar úr dauðfeimn-
um krökkum úti á landi. Eftir morgun-
andakt, fréttir og „Þetta er Veðurstofa Is-
lands", byrja ,,léttu“ morgunlögin. Nú síð-
ast voru þau leikin af útvarpshljómsveit-
inni í Berlín og Fílharmoníusveitinni í Var-
sjá. Þarf frekari vitnanna við? Eftir fimm
mínútna fréttir, tóku morguntónleikar við:
Frá alþjóðlegu orgelvikunni í Nurnberg,
hvorki meira né minna. Það má vel vera að
einhver hafi enn haft kveikt, þegar næsti
skammtur af fréttum og veðri var látinn
flakka. Viðkomandi hefur þá kannski
einnig hlustað á ferðasögu í umsjón Frið-
riks Páls Jónssonar, en síðan var spólan með
messunni sett í gang. Persónulega náði ég
ekki Iengra en í alþjóðlegu orgelvikuna,
áður en tilvistarkreppan heltók mig. Ætlar
enginn að stofna þrýstihóp um léttara út-
varpsfóður á sunnudagsmorgnum? Það er
nánast sáluhjálparatriði, finnst mér.
Það sem bar hæst í sjónvarpsdagskrá síð-
ustu viku var að sjálfsögðu íslenska lagið í
Eurovision, Gleðibankinn, sem var miklu
betra en hin lögin. Sérstaklega bar mynd-
bandið af, en það var mjög vel unnið. Það
var eins og keppinautar okkar hefðu alveg
látið vera að vinna myndband. En þetta
segir meira um keppnina en hæfileika ís-
lendinga. Alveg frá upphafi fannst mér
Gleðibankinn hreinlega lélegt lag og mér
finnst svo enn. Það yrði því til að kóróna
allt að ísland ynni keppnina. Það vekur síð-
an ýmsar spurningar um Eurovision og
dægurlagatónlist í Evrópu að lélegt ís-
lenskt lag skuli bera höfuð og herðar yfir
lög annarra þjóða.
Sjónvarpið stóð sig vel um síðustu helgi.
Kvikmyndavalið var alveg frábært. Á
föstudagskvöld naut maður þess fyrst að
sjá Skakkt númer frá 1948. Barbara Stan-
wyck átti fullkomlega skilið að fá Óskarinn
fyrir frábæran leik. Myndin er frá því tíma-
bili í sögu Hollywood þegar menn gerðu
bestar myndir þar. Síðan hefur þeim farið
aftur, Könunum. Skiptir þá ekki máli hvort
myndin heitir Innrás í Ameríku eða Jörd í
Afríku.
Þættirnir um Adrian Mole eru hreint út
sagt frábærir. Virkilega vel unnir þættir
sem koma sögunni mjög vel til skila. Þætt-
irnir eru mjög gott dæmi um hvernig á að
færa efni af bók yfir á myndband. Og hafi
sjónvarpið þökk fyrir að fá til sýninga svo
gott efni og glóðvolgt. Þannig á það að
vera. Á laugardaginn kom svo strax á eftir
Adrian Mole annað glóðvolgt sjónvarps-
efni, einnig breskt: Monsjör Kíkóti. Þessi
mynd var gerð í fyrra eftir bók Grahams
Greenes sem kom út einu eða tveimur ár-
um áður. Sjónvarpið virðist því hafa lagt af
þá stefnu sem stundum hefur verið ríkjandi
að sýna einungis tíu ára gamlar myndir.
Sem sagt gott.
Á sunnudagskvöldi lauk síðan mjög
ágætum þætti um kjarnakonuna Emmu
Harte. Enn einn sjónvarpsmyndaflokkur-
inn sem sannar yfirburði Breta í gerð slíkra
þátta. Sjónvarpið kórónaði síðan þessa
öndvegis sjónvarpshelgi með austurrísk-
um/ítölskum þætti í tveimur hlutum. Bréf
med bláu bleki hét hann. Enn eitt skiptið
frábært efni á ferðinni. Dálítið langdreginn
þáttur en yfir seinni hlutanum sat ég límd-
ur við kassann. Það er einnig rétt stefna að
sýna svona þætti tvö kvöld í röð í stað þess
að láta líða viku á milli sýninga á fyrri og
seinni hluta. Sem sagt allt gott og yfir fáu
að kvarta.
En í öllum bænum, ágæta sjónvarpsfólk,
hættið að láta veðurfræðingana okkar
standa einsog hálfvita fyrir framan veður-
kort sem þeir sjá ekki. Hættið að láta þá
benda á auðan hvítan vegginn. Þar að auki
standa þeir alltaf fyrir hálfu kortinu, sem
hefur ekki stækkað þó manni finnist það ef
til vill. Nei, leyfið þeim að benda á lægðirn-
ar og allar sólirnar sem verða á lofti í sum-
ar í stað hvíta veggsins.
30 HELGARPÓSTURINN