Helgarpósturinn - 23.04.1986, Qupperneq 31
FRÉTTAPÖSTUR
Starfsmenn Flugleiða ákærðir í okurmálinu
Átta starfsmenn Flugleiða hafa verið ákærðir í Sakadómi
Keykjavíkur í okurmálinu. Sverrir Jónsson, Karl Friðrik
Schiöth, Einar Helgason, Steindór Beynir Jónsson, Viggó
Einarsson, Ásgeir Guðmundur Samúelsson, Birgir Ólafsson
og Páll Þorsteinsson eru ákærðir fyrir að hafa lánað Her-
manni Björgvinssyni alls 22 sinnum og tekið 75,5% vexti í
stað lögleyfðra 18,5%. Samtals fengu þeir 663 þúsund krón-
ur umfram það sem lög leyfa. Mennirnir veittu lánin úr
sameiginlegum sjóði og deildu hagnaðinum. Þetta er fyrsta
opinbera birtingin fyrir Sakadómi Beykjavíkur, þar sem
samtals 55 mál 65 einstaklinga í okurmálinu verða tekin
fyrir. Fram hefur komið að Hermann Björgvinsson snúi til
landsins á ný í júní, en skyndileg brottför hans til Banda-
ríkjanna olli úlfaþyt.
Rainbow-málið í Herald Tribune
í ítarlegri grein eftir John Ausland í Herald Tribune um
síðustu helgi er greint frá því að íslendingar séu að missa
þolinmæðina í Rainbow-málinu svokallaða. Ausland segir
svartan skýjabólstur hafa varþað skugga á varnarsam-
skipti íslands og Bandaríkjanna vegna umræðunnar um
hverjir skuli annast farmflutninga fyrir herstöðina á Kefla-
víkurflugvelli. Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra
hefur staðfest að hann hafi tilkynnt bandarískum yfirvöld-
um að þolinmæði íslendinga í máli þessu væri á þrotum, en
allar lagalegar tilraunir til að koma flutningunum aftur i
hendur íslendinga hafa farið út um þúfur.
Flugleiðabréfin í Arnarflugi seld
44% hlutur Flugleiða í Arnarflugi var óvænt seldur fyrir
3 milljónir króna í síðustu viku, en kaupandinn staðgreiddi
kaupverðið, sem er 14% af nafnvirði. Kaupandinn er Helgi
Þór Jónsson, eigandi hins veglega Hótels Arkar, sem nú er
í byggingu í Hveragerði. Helgi bauð betur en ýmsir sterkir
aðilar í viðskiptalífinu, þeir höfðu boðið 10% nafnvirðis og
höfðu í hyggju 60 milljón króna hlutafjáraukningu. í fyrstu
kom fram að þessir aðilar myndu hætta við hlutafjáraukn-
inguna, en þó standa enn yfir viðræður milli viðkomandi
aðila um að af hlutaf járaukningunni verði og skýrast þau
mál á næstunni.
Skattsvikin áætluð 6,5 milljarðar króna
í niðurstöðum sk. skattsvikanefndar, sem starfað hefur
frá árslokum 1984, kemur fram það mat, að á sl. ári hafi 6,5
milljörðum króna verið skotið undan skatti, sem þýðir um
4 milljarða króna tap fyrir ríkissjóð. Talið er að skattsvik
séu óvenjulega mikil hér á landi og töluvert um dulda at-
vinnustarfsemi. Svarta atvinnustarfsemin er þannig talin
samsvara um 5—7% af vergri landsframleiðslu. Helst er tal-
að um svarta atvinnustarfsemi í byggingariðnaði, ýmsum
þjónustugreinum, verslun og veitingarekstri. Ef einungis er
litið til söluskattssvika er áætlað tekjutap ríkissjóðs á sl. ári
um 1,2 milljarðar króna. Því er svo við þetta að bæta að sér-
stök könnun Hagvangs á vegum þessarar nefndar hefur
leitt í ljós að drjúgur meirihluti íslendinga er reiðubúinn til
að skjóta tekjum undan skatti (hærra hlutfall hjá körlum og
yngra fólki), þó drjúgur meirihluti sé neikvæður út í skatt-
svikin og telji þung viðurlög eiga að gilda.
Fréttapunktar
• Á tímabilinu 12. nóvember til 7. mars sl. voru 19 íbúðir
seldar á nauðungaruppboðum i Reykjavik — eða að meðal-
tali 4 á mánuði. 7 af þessum íbúðum voru verkamannabú-
staðaíbúðir.
• Kvikmyndafyrirtækið Nýtt lif hefur auglýst öll sin tæki
til sölu og er hætt kvikmyndagerð. Skuldir hafa hlaðist upp
hjá fyrirtækinu vegna kvikmyndarinnar Skammdegi.
• Ein krafa röntgentækna i sérkjarasamningum við Borg-
arspítalann er að skilið verði algjörlega á milli salerna
starfsmanna og sjúklinga. Krafan hafði áður komið fram,
en fékk byr undir báða vængi nú eftir að ónæmissjúklingar
(AIDS) komu til vistunar á spítalanum.
• ísland sigraði í C-keppni Evrópumeistaramótsins í körfu-
knattleik, sem haldin var hér á landi í siðustu viku. í æsi-
spennandi lokaleik sigraði ísland Noreg 75—72. ísland
hlaut við þetta rétt í fyrsta skipti til að keppa i B-keppni
Evrópumeistaramótsins.
• Hæstiréttur hefur fellt þann úrskurð, að hlunnindaskatt-
ur fái ekki staðist gagnvart 67. grein stjórnarskrárinnar um
friðhelgi eignarréttarins. Þetta varð niðurstaða Hæstaréttar
í máli eigenda Haffjarðarár á Snæfellsnesi (Thors-ættin)
gegn Kolbeinsstaðahreppi og Eyjahreppi.
• Kaupmáttur kauptaxta á sl. ári var 73,05 stig miðað við
100 stig 1980 og hefur ekki verið minni um tveggja áratuga
skeið, samkvæmt því sem fram kemur hjá Kjararannsókna-
nefnd.
• Ný sveitarstjórnalög hafa verið samþykkt á Alþingi eftir
miklar umræður og gagnrýni. Stærsta breytingin felur í sér
lækkun kosningaaldursins i 18 ár. Sveitarstjórnakosningar
fara fram laugardaginn 31. maí, en 14. júní í sveitarfélögum
þar sem færri en % íbúanna búa í kauptúnum.
• Enn einu sinni hefur bjórfrumvarp sofnaö á Alþingi. Aö
þessu sinni gerði frumvarpið ráð fyrir að bjórbruggun og
-sala yrði heimiluð ef slíkt yrði samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þó frumvarpið hafi sofnað hlaut það meðmæli
meirihluta allsherjarnefndar efri deildar.
• Skipverji á Bjarnarey í Vestmannaeyjum drukknaði um
síðustu helgi eftir að hafa fallið útbyrðis. Hann hét Páll Páls-
son frá Hörgsdal á Síðu í Skaftafellssýslu, 22ja ára, ein-
hleypur og barnlaus.
☆ ☆ ☆
☆ ☆ ☆
UM HELGINA
FIMMTUDAGSKVÖLD:
OPIÐ frá kl.22 - 01
Pálmi Gunnarsson mætir og syngur
nokkur lauflétt lög. Hressir dansarar
úr Dansstúdiói Sóleyjar frumflytja
æðislegan dans sérsaminn fyrir nýja
diskótekið okkar.
Óli stendur vaktina í tónabúrinu og
leikur öll vinsælustu lögin.
Hér eftir verður DISKÓTEKIÐ opið öll
fimmtudagskvöld.
☆ ☆
FÖSTUDAGS-OG
LAUGARDAGSKVÖLD:
Húsið opnað kl. 20 fyrir matargesti.
Karl Möller framreiðir Ijúfa tóna fyrir
matargesti.
Menu. Rjómasveppasúpa
Glóðarsteikt lambalæri
Triffle
Edda og Júlli skemmta matargestum
ásamt hinum frábæra Bessa Bjarna-
syni sem kemur í heimsókn.
Pálmi Gunnarsson skemmtir á mið-
nætursviðinu. Og síðast en ekki síst;
Pónik og Einar leika fyrir dansi.
í DISKÓTEKINU stendur Óli nætur-
vaktina.
Nýlenduvöruverslunin
u
STMRMYm
Starmýri 2
Verslun í alfaraleið
r''
Opið mán.—fim. kl. 9-18
Föstudaga kl. 9-19
Laugardaga kl. 10-16
Opið í hádeginu
alla daga
Allar tegundir matvöru á
mjög lágu verði.
versluriin
í alfaraleið
Starmýrl 2
S. 30420 - 30425
HELGARPÓSTURINN 31