Helgarpósturinn - 23.04.1986, Qupperneq 32
sumardagskráin gangi í garð hjá
útvarpinu. Þannig mun vera ákveð-
ið, að þeir Atli Rúnar Halldórsson
og Bjarni Sigtryggsson fréttamenn
verði með morgunútvarp í tvo mán-
uði í sumar og hyggjast þeir félagar
hafa hann á léttari nótunum. Þá
mun Hallgrímur Thorsteinsson
fv. Helgarpóstsmaður verða með
síðdegisþátt ásamt Sigrúnu Hall-
dórsdóttur, sem starfar sem skrifta
hjá sjónvarpinu. . .
H^Bftir næstu áramót, sennilega í
febrúar, er gert ráð fyrir því, að Rás
1 fiytji í nýja útvarpshúsið við Ofan-
leiti, þar sem Rás 2 hefur verið til
húsa frá byrjun og Eyjólfur Konráð
vill breyta í kartöflugeymslu. Sam-
fara flutningunum má búast við
breytingum á starfsmannaliði út-
varpsins, því eftir því sem HP heyrir
ætla sumir af rótgrónari starfs-
mönnum gufuradíósins að nota
tækifærið og hverfa frá störfum,
enda komnir með löglegar aldurs-
afsakanir. T.d. heyrðum við að
Margrét Indriðadóttir fréttastjóri
myndi senniiega hætta og einnig
Jóhannes Arason þulur. Nú þegar
eru menn farnir að velta fyrir sér
eftirmanni Margrétar, sem er vel lið-
in á fréttastofunni. Kári Jónasson
er nú varafréttastjóri og er ekki vit-
að um framtíðaráætlanir hans. Hins
vegar má búast við því, að frétta-
stjórastaðan verði eftirsótt...
l^Hins og skýrt hefur verið frá í
blöðum er víst meiningin að flytja
„krúttrnagakvöldin" frægu frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur og mun Ólaf-
ur Laufdal veitingakóngur hafa
fengið vanar akureyrskar krúttkon-
ur til að skipuleggja allt gallaríið
fyrir sig. Hins vegar höfum við
heyrt, að í tengslum við þetta krútt-
magakvöld kvenfólksins í Broad-
way verði sýning nærfatasýningar-
flokks Pan-póstverslunarinnar, sem
verður sérsniðin fyrir kvenfólkið. . .
V
ið heyrðum það á skotspón-
um, að mjög mikill ágangur alls
kyns fólks hafi verið í það að komast
í þáttinn A líðandi stundu. Hins
vegar höfðu ekki allir erindi sem
erfiði. Þó fréttum við af einum
þrautseigum, sem var að sögn langt
kominn með að gera út af við aum-
ingja Ómar Ragnarsson. Þessi
maður heitir Árni Johnsen og er
alþingismaður. Eftir allar hringing-
arnar og allt það, þá mun Árni hafa
gætt þess að vera óvart staddur úti á
flugvelli í Vestmannaeyjum, þegar
„líðandi" fólkið lenti. Og málið end-
aði náttúrlega ekki nema á einn veg
og það sá alþjóð: Árná varð að ósk
sinni. . .
■ yrst var það „Band-Aid“ plástur-
inn, svo kom „Live Aid“ fyrir hungr-
aða í Afríku og núna er það „Sport-
Aid“ sem á íslensku hefur verið lagt
út „Hlaup í kapp við tímann“, sem
eru orð að sönnu. Hlaupið er fyrir-
hugað 25. maí. Knútur Óskarsson
fór til London á dögunum vegna
undirbúnings hlaupsins, sem fer
fram um víða veröld á sama tíma,
og reyndi hann þá að ná sambandi
við hinn fræga poppara Bob
Geldof, sem skipulagði „Live Aid“
hljómleikana. Knúti tókst það, en
fékk skilaboð frá Geldof nokkrum
mínútum of seint vegna mistaka á
hótelinu. Fyrir vikið fórust þeir Bob
og Knútur á mis, en ætlunin var m.a.
að mynda þá saman í áróðursskyni
fyrir „Sport-Aid“ hlaupið hér
heima. Annars er gert ráð fyrir, að
einhvers staðar á bilinu 5—6 þúsund
manns taki þátt í hlaupinu hérlend-
is. ..
. í NÆSTU VERSLUN!
LYKILL AÐ
UÚFFENGUM RÉTTUM
32 HELGARPÓSTURINN