Helgarpósturinn - 23.07.1987, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 23.07.1987, Blaðsíða 7
eftir Garðar Sverrisson Helgarpósturinrt greindi frá því í sídustu viku ad um midjan maí 1983 heföi forseti Islands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, verid farin ad huga al- vartega aö myndun utanþings- stjórnar ef ekki tœkist aö mynda þingrœöisstjórn fyrir lok mánaöar- ins. Stjórnmálamenn heföu hins vegar oröiö fyrri til og tekist aö mynda ríkisstjórn t tœka tíö. Það sem athygli vakti í þessu sam- bandi var að þegar þetta kom til tals voru einungis 3 vikur liðnar frá kjör- degi. í sögulegu ljósi eru það mikil tíðindi að utanþingsstjórn skuli hafa komið til álita svo skömmu eftir þingkosningar. í þessu sambandi minntum við á þá hörðu gagnrýni sem Sveinn Björnsson forseti varð fyrir árið 1950 þegar hann, eftir 4 mánaða stjórnarkreppu, fór að huga að myndun utanþingsstjórnar. En af því tilefni sagði Ólafur Thors, formaður stærsta stjórnmálaflokks- ins: „Ég vil fá að hugsa mig um tvisvar sinnum hvort ég kem inn um dyrnar á þingsalnum ef hér kemur utanþingsstjórn." í Helgarpóstinum greindum við frá því að þessi hugmynd um utan- þingsstjórn hefði farið mjög leynt. Auk ráðgjafa forsetans virðast að- eins örfáir ráðamenn, embættis- og stjórnmálamenn, hafa vitað að þessi hugmynd var í gangi. Helgarpósturinn birtir í dag viðtöl við tvo einstaklinga sem blaðið hef- ur ástæðu til að ætla að þekki at- burðarás stjórnarmyndunartilrauna í maí 1983. Ennfremur birtist yfirlýs- ing sem forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, óskaði eftir að blað-' ið kæmi á framfæri. -G.Sv. ViGDÍS FINNBOGADÖTTIR KOM ALDREI TIL TALS Vegna umfjöllunar Helgar- póstsins um forsetaembættið vill forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, að eftirfarandi komi fram og birtist í blaðinu: „Það skal tekið fram að gefnu tilefni að það kom aldrei tii tals að mynda utanþingsstjórn í maí 1983." STEINGRÍMUR HERMANNSSON TÖLDUM OKKUR HAFA VIKU EÐA SVO „Ég þori nú ekki að fara með það hvort hún hafi beinlínis hótað því, en það lá í loftinu," sagði Steingrím- ur Hermannsson utanríkisráðherra þegar Helgarpósturinn innti hann álits á upplýsingum blaðsins þess efnis að Vigdís Finnbogadóttir, for- seti íslands, hefði verið byrjuð að undirbúa myndun utanþingsstjórn- ar um miðjan maí 1983, aðeins 3 vikum eftir þingkosningar. „Ég taldi liggja í loftinu að utan- þingsstjórn yrði mynduð ef okkur tækist ekki að mynda þingræðis- stjórn. Ég hef persónulega talið það vera mjög eðlilegt af forseta með tilliti til þess mjög alvarlega ástands sem var í efnahagsmálum. Á þessum tíma var enginn með umboðið. Það var umboðslaust í nokkra daga og það var þá sem við Geir Hallgrímsson komumst að nið- urstöðu um stjórnarmyndun." — En hvaö höföuö þiö langan frest? Hvaö tölduö þiö ykkur þá hafa langan frest? „Ég man það nú ekki. Við töldum okkur hafa eitthvað vikutíma eða svo.“ — 77/ aö mynda þingrceöisstjórn? „Já, við töldum það, eða til að geta sýnt fram á það að við gætum myndað þingræðisstjórn." — Veist þá hverjir áttu aö stýra utanþingsstjórn ef til kœmi? „Maður heyrði nöfn nefnd, en ég vil ekkert vera að nefna þau.“ -G.Sv. JÓN SIGURÐSSON GET EKKI NEITAÐ ÞVÍ Um áramótin 1979/80 kom myndun utanþingsstjórnar til tals sem raunhæfur möguleiki. Þáver- andi forseti íslands, Kristján Eldjárn, hafði hug á að fá þá Jóhannes Nor- dal og Jón Sigurðsson til að sitja í slikri stjórn, ef til kæmi. Vorið 1983 gegndi Jón Sigurðsson, núverandi ráðherra, embætti forstjóra Þjóð- hagsstofnunar. Helgarpósturinn taldi sig hafa sérstaka ástæðu til að spyrja hann hvort honum hafi verið kunnugt um þær hugmyndir sem uppi voru um myndun utanþings- stjórnar í maí 1983. „Ég get ekki neitað því,“ svaraði Jón. „Þá eins og stundum áður voru hugmyndir á sveimi um utanþings- stjórn." — Telur þá aö 1. jání hafi veriö vendipunktur í því sambandi? „Það liggur í augum uppi að eins og á stóð með yfirvofandi mikilli hækkun kaupgreiðsluvísitölu 1. júní var sá dagur tímamörk fyrir stjórn- armyndum, hver svo sem hún hefði orðið." Jón Sigurðsson vildi ekki ræða málið frekar. -G.Sv. HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.