Helgarpósturinn - 23.07.1987, Blaðsíða 19
Ástæðurnar fyrir hinum miklu
vinsældum undanfarið er kannski
að rekja til þessarar breytingar á
stíl Cray. „Mér finnst Robert Cray
vera það besta sem borið hefurvið
í blúsheiminum lengi," segir Árni
Malthíasson, tónlistargagnrýn-
andi á Morgunblaðinu. ,,Þó hann
spili ekki hreinan blús heldur
meira fönkaða svarta tónlist þá
byggir hann á gamalli blúshefð, en
með því vekur hann áhuga þeirra
sem lítið hafa aðhyllst blúsinn, en
hann fær þá til að hlusta." Og Hall-
grímur Thorsteinsson, fréttastjóri
Bylgjunnar, sem hefur spilað plöt-
ur Cray mikið í þáttum sínum tek-
ur í sama streng. „Hann spilar
skemmtilega útfært blúsrokk í
gamla stílnum, þó svo að hann
nálgist það frá annarri átt. Honum
tekst vel að sýna hversu blúsinn er
megnugur." Því Robert Cray heill-
ar popphlustendur ekki síður en
blúsaðdáendur. Hann er mjög
góður gítaristi, hefur góða rödd
sem minnir á soul-tónlistina, en
sækir efniviðinn í textana til blús-
ins. „Ég get ekki séð sjálfan mig
spila rokk og syngja um tré og því
um líkt,“ segir hann. „Aftur á móti
sr.ýst blúsinn um persónuleg sam-
skipti, elskendur og vandamál,
sem varpa Ijósi á mannlegar að-
stæður. Blúsinn hefur líka það sem
aðrar tónlistarstefnur hafa ekki,
hann er lífsstíll." Þó svo að tónlist
Roberts Cray sverji sig ekki alveg
í ætt við hinn hefðbundna blússtíl
eru ræturnar í blúsinn sterkar.
Textarnir eru dæmigerðir fyrir
blústónlistina. Þeir segja sögur og
eru persónulegir, en þó hafa þeir
aðeins breyst, í það minnsta hjá
Cray. Textarnir fjalla ekki einungis
um eigin þjáningar og persónuleg
skipbrot, heldur einnig um þján-
ingar annarra. Dæmi um það er
lagið Right Next Door, sem fjallar
um dapurleika manns sem veit að
hann hefur orsakað sársauka hjá
öðrum. í mörgum textum Cray er
að finna persónulega reynslu hans
sjálfs eins og í laginu Right Next
Door. En hann hefur líka aðlagað
textana þjóðfélagi, en sem dæmi
segir hann að margir gömlu blús-
textarnir hafi farið fyrir brjóstið á
kvennahreyfingum. Um þetta seg-
ir Cray: „Samfélagið hefur breyst,
karlmaðurinn getur beðist afsök-
unar, hann finnur til og hann getur
viðurkennt þegar hann hefur
rangt fyrir sér."
Robert Cray kvaddi sér eftir-
minnilega hljóðs á síðasta ári þeg-
ar út kom fjórða plata hans Strong
Persuader. Platan rauk upp vin-
sældalista í Bandaríkjunum, en
blústónlist hefur verið sjaldséð á
slíkum listum í áraraðir. Undanfar-
inn áratug hefur blústónlistin ver-
ið í mikilli lægð. Er nú svo komið
að talað er um endurkomu blús-
tónlistarinnar, þar sem Robert
Cray er við stjórnvölinn. Frá því að
platan kom út fyrir ári hefur vegur
Cray farið stöðugt vaxandi, og nú
í sumar hefur hann til dæmis leik-
ið á hljómleikaferðum með Huey
Lewis and the News, Tinu Turner
og Eric Clapton svo einhverjir séu
nefndir. Eric Clapton, Elvis Cost-
ello og Nick Lowe hafa einnig
nefnt Cray sem sinn uppáhalds-
lagasmið, en á nýjustu plötu Clap-
tons má einmitt finna eitt laga
Crays; Bad Influence.
Robert Cray ólst upp við blús-
tónlist manna eins og Miles Dauis,
B.B. King og Sam Cook. Hann er
fæddur í Columbus í Georgíu, en
bjó einnig um tíma á æskuárum í
Alabama, Virginíu og í Þýskalandi
þar sem hann hóf píanónám.
„Faðir minn vildi að ég yrði eins
eftir Salvöru Nordal
og Ray Charles," útskýrir Cray, „en
stuttu siðar upphófst bítlaæðið og
allir fengu sér gítar, og ég varð
einnig að fá mér einn slíkan." Þar
með hófust kynnin af gítarnum.
Birni Thoroddsen, gítarleikara
finnst Robert Cray góður og segir:
„Hann spilar á Fender Stratocast-
er gítar og spilar blús í þeim anda.
Hann hefur hreinan stíl, og ég gef
honum hiklaust fimm stjörnur."
Robert Cray var með sitt eigið
rokkband í menntaskóla en heill-
aðist fljótlega af blúsgítarleikurun-
um Magic Sam og Buddy Guy. Sá
tónlistarmaður sem hafði þó mest
áhrif á hann var Albert Collins,
sem Robert Cray sá á tónleikum
1971. „Hann breytti lífi mínu og
uppfrá því fór ég að stúdera blús-
inn fyrir alvöru," segir hann.
Hann er aðeins 33 ára og er einn
af fáum ungum blústónlistar-
mönnum sem leiða sína eigin
hljómsveit. Hljómsveit hans, The
Robert Cray Band, hefur starfað
siðan 1974 og gefið samtals út fjór-
ar plötur. í hljómsveitinni eru auk
Cray, Richard Cousin, sem hefur
verið með honum frá upphafi,
David Olson og Peter Boe. Fyrsta
plata hljómsveitarinnar var Who’s
Been Talking og var hljóðrituð
1978, en kom ekki út fyrr en 1980.
Ekki fór þó betur en svo að útgef-
andinn fór á hausinn skömmu síð-
ar og hefur því platan verið illfáan-
leg fyrr en á síðasta ári, þegar hún
var endurútgefin. Síðari plöturnar
heita Bad Influence, False Accus-
ations og nú síðast Strong Per-
suader.
Á fyrstu plötu Cray er að finna
hreinan blús að mati sérfræðinga
í blústónlistinni en á síðari plötum
hefur hann færst í auknum mæli
til fönk-stílsins þó alltaf haldi hann
tryggð við rætur blúsins. Gub-
mundur Pétursson, gítarleikari og
mikill blúsaðdáandi er sammála
því að breyting hefur orðið á tón-
list Cray. „Mér finnst hann ágætur
og sérstaklega finnst mér góðar
fyrstu tvær plöturnar hans, en
hann er orðinn of poppaður fyrir
minn smekk á seinni plötunum.
Hann þykir mjög ljúfur gítaristi og
lætur ekki mjög mikið á sér bera,
en hann er mjög góður," segir Guð-
mundur.
18 HELGARPÓSTURINN
HEIMSMYND
Metsölutímarit
v
INIÐ
MMSENDA
GÍRÓSEÐLA
38 sinnum í hverri viku*
Danmörk, Noregur og Svíþjóð taka þér ávallt opnum örmum, allt árið um kring.
Þegar um er að ræða menningarlíf, náttúrufegurð og vinalegt andrúmsloft eru fá lönd
sem taka Norðurlöndunum fram - svo mikið er víst. Taktu þér ferð á hendur,
til góðra granna, og þú munt njóta þess.
Flugleiðir halda uppi reglubundnu áætlunarflugi til fimm borga í Skandinavíu,
38 sinnum í viku.
3xBERGEN
PEX kr. 15.850
3xGAUTAB0RG
PEX kr. 17.200
17 x KAUPMANNAHÖFN
PEX kr. 17.010,
8x0SL0
PEX kr. 15.850
7xST0KKH0LMUR
PEX kr. 19.820
* Miðað er við háannatíma, júní, júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, CBBb^B^1
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. a bVVLOC/ln
FLUGLEIDIR
. fyrir þig.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100
FÆREY1AFERÐ...AF BESTU GERÐ
...meö Faranda... VIÐ HÖFUM REYNSLUNA..!
Ferdaskrifstotan
liaiandi
Vestuigötu 5. Reykjavík
V 62 24 20
HELGARPÓSTURINN 19