Helgarpósturinn - 23.07.1987, Qupperneq 9
SUÐURLANDSSLYSIÐ VELTIR ENN UPP
SPURNINGUM VARÐANDI ÖRYGGISMÁL
SJÖMANNA
Annað sem komið hefur í ljós í
kjölfar Suðurlandsslyssins er van-
máttur opinberra aðila til að fyigjast
með öryggi í þessari atvinnugrein.
Þannig hafði Nesskip, útgerð Suður-
landsins, ekki sent þau gögn til Sigl-
ingamálastofnunar, sem fyrirtæk-
inu er skylt að senda samkvæmt
lögum.
I Helgarpóstinum fyrir þremur
vikum var greint frá því að útgerðin
hefði ekki lagt fram nýja stöðug-
leikaútreikninga vegna nýrra djúp-
ristumælinga og vegna breytinga er
hún hafði látið gera á lest skipsins.
Fleiri breytingar voru gerðar á skip-
inu, án þess að gögn um það fyrir-
finnist hjá Siglingamálastofnun.
Settar voru í skipið bógskrúfur og
vatnsþétt þil í stýriklefann, hvoru
tveggja vegna breytinga sem gerðar
voru til að auka burðargetu skips-
ins.
HAGSMUNAÁREKSTUR í
RANNSÓKNINNI?
Eftir að grein Helgarpóstsins birt-
ist lét Rannsóknarnefnd sjóslysa
framkvæma rannsókn á þili í lest-
inni sem fjallað var um í greininni.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar
liggja enn ekki fyrir.
En samkvæmt lögum er skylt að
tilkynna allar breytingar á íslensk-
um skipum til Siglingamálastofnun-
ar. Engar þessara breytinga komu
þó til meðferðar hjá stofnuninni.
Það er einnig athyglisvert að stofn-
unin gaf út hleðslumerkjaskírteini
án þess að fyrir lægju nýir stöðug-
leikaútreikningar.
,,Við viljum fá eitt eintak af teikn-
ingum af öllum breytingum sem
gerðar eru á íslenskum skipum,"
sagði Magnús Jóhannesson sigl-
ingamálastjóri í samtali við Helgar-
póstinn. „Þær breytingar sem gerð-
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS TILKYNNTI
EKKI UM FJÖGUR TILFELLI ÞAR SEM
SKEMMDIR URÐU Á SÍLDARTUNNUM UM
BORÐ í SKIPUM FÉLAGSINS. YFIRMENN
Á KAUPSKIPUM SEMJA UM MINNA
ÖRYGGI VIÐ LESTUN SKIPA. SJÓMÖNN-
UM FÆKKAR UM BORÐ Á SAMA TÍMA
OG KRÖFUR UM LESTUNARHRAÐA
AUKAST. ÞILIÐ í LESTINNI RANNSAK-
AÐ FREKAR EFTIR GREIN HELGARPÓSTS-
ar voru á Suðurlandinu voru undir
eftirliti Det Norske Veritas, sem var
flokkunarfélag skipsins. Við erum
nú búnir að gera þá kröfu til flokk-
unarfélaganna að þau sendi okkur
þessar teikningar."
Þó Det Norske Veritas hafi verið
flokkunarfélag Suðurlandsins tók
skipatæknifræðingur frá félaginu
þátt í störfum Rannsóknarnefndar
sjóslysa. Hans hlutverk var að
reikna stöðugleika skipsins og halla-
prófa systurskip þess, Urriðafoss.
Flokkunarfélög bera ábyrgð jafnt
sem útgerð og skipstjórnarmenn.
Hagsmunaárekstursem þessi hlýtur
að vera óþarfur í rannsókn á jafn
alvarlegu slysi.
„Það eru engir hagsmunaárekstr-
ar á milli Det Norske Veritas og
okkar," sagði Haraldur Blöndal, for-
svarsmaður sjóslysanefndar, er
Helgarpósturinn bar þetta undir
hann. „Verkfræðingurinn þeirra var
fenginn til að reikna út hallaprófið.
Siðan bað ég hann að yfirfara þá
reikninga sem við vorum búnir að
gera. Hann gaf tiltekið álit á þeim.
En hann tók engar ákvarðanir.
Hann lagði bara fram þessa útreikn-
inga.”
INS UM MÁLIÐ. SKIPATÆKNIFRÆÐ-
INGUR FLOKKUNARFÉLAGSINS VANN
AÐ RANNSÓKN Á SLYSINU. SKIP-
STJÓRI SIGLDI GÖTÓTTU SKIPI TIL ÍS-
LANDS OG HÉLT RÉTTINDUNUM.
GÖTÓTTU SKIPI SIGLT
TIL ÍSLANDS
Sjálf skýrsla Rannsóknarnefndar
sjóslysa er einnig athyglisverð. Eins
og fram kom í Helgarpóstinum fyrir
þremur vikum er þar lítið fjallað um
breytingar er gerðar voru á lest
skipsins. Þar er ekki getið um skort
á gögnum um skipiö hjá Siglinga-
málastofnun. Af henni má heldur
ekki ráða að rannsókn hafi farið
fram á þeim breytingum er gerðar
hafa verið á skipinu frá því það kom
til landsins. Ekki er heldur fjallað
um viðgerðir er fram fóru á botni
skipsins í Fœreyjum áður en það
sigldi til íslands og var lestað fyrir
sína hinstu ferð. Þá er ekki getið um
atvik er átti sér stað í höfninni í
Grindavík, er skipið rakst á bryggj-
una.
Af ofangreindu má sjá að ekki er
tekið nægilega hart á þessu máli.
Suðurlandið var stórt og gott sjó-
skip. Það er alvarlegt mál að það
skuli farast. Orsakir þess eru til þess
að læra af. Lög og reglur um sigling-
ar eru lítið annað en uppsöfnuð
reynsla og því er nauðsynlegt að
kanna slys sem þetta ofan í kjölinn.
Þetta leiðir líka hugann að við-
brögðum yfirvalda í kjölfar sjóslysa.
Þó mesta ábyrgðin hvíli á herðum
skipstjórnarmanna er fátítt að þeir
séu sviptir réttindum er sannast á þá
mistök. Þannig er til nýlegt dæmi
um skipstjóra er sigldi kaupskipi
sínu með gati á botninum frá Dan-
mörku til Islands. Skipið hafði tekið
niðri á Eyrarsundi, en var siglt til
hafnar í Danmörku og síðan heim til
Islands áður en skemmdir voru
kannaðar. Ef ekki reynir á þessa
ábyrgð skipstjórnarmanna mun
hún fljótlega verða að dauðum laga-
bókstaf.
Suðurlandsslysið gefur tilefni til
að fleiri atriðum varðandi öryggis-
mál sjómanna sé velt upp. Enn sem
komið er virðist þó sem eini lær-
dómurinn sem dreginn hefur verið
af þessu hörmulega slysi sé að flot-
gallar verði keyptir í öll íslensk
kaupskip. En öryggismál sjómanna
snúast að mestu um aðra þætti.
Framhaldsrannsókn Siglinga-
málastofnunar og frekari upplýs-
ingasöfnun Rannsóknarnefndar sjó-
slysa benda þó til að einhverjir þætt-
ir í öryggismálunum verði teknir til
endurskoðunar. Stéttarfélög sjó-
manna hafa hins vegar sýnt þessu
máli fálæti hingað til.
SUÐURLÁND
HELGARPÓSTURINN 9