Helgarpósturinn - 23.07.1987, Qupperneq 34
DAGSKRÁRMEÐMÆLI
Föstudagur 24. júli kl. 22.40
Perry Mason og nafntogaöa nunnan
(The Case of the Notorious Nun).
Þetta er ný bandarísk sakamála-
mynd og í aðalhlutverkum eru Ray-
mond Burr og Barbara Hale. Myndin
segir frá ungum presti sem fer aö
rannsaka fjármál biskupsstóls og
hefur hann unga nunnu sér til að-
stoðar. Brátt fara hagsmunaaðilar á
kreik og reyna að hindra rannsóknina
og voveiflegir atburðir taka að ger-
ast. Þá er enginn annar en Perry
Mason kallaður á vettvang og tekur
hann málin í sínar hendur.
Laugardagur 25. júlí kl. 20.40
Vaxtarverkir Dadda (The Growing
Pains of Adrian Mole). Hér er Daddi
eða einsog hann raunverulega heitir
Adrian Mole, mættur aftur á svæðið.
Daddi er kominn á mjög viðkvæman
aldur, það er gelgjuskeiðið. Lýsa
þættirnir öllum þeim vandamálum
sem því fylgja.
Laugardagur 25. júli kl. 21.25
Fyrri bíómynd kvöldsins er banda-
rísk frá árinu 1956 og ber nafnið
Svanurinn (The Swan). Myndin ger-
ist í Ungverjalandi um síðustu alda-
mót og segir frá ungri stúlku af göf-
ugum ættum sem er i þann mund að
fara að giftast krónprinsinum. Með
aðalhlutverk fara þau Grace Kelly og
Alec Guinnes. Síðari bíómyndin
hefst kl. 23.15 og er hún ítölsk.
Myndin ber nafnið Guðsþjónustunni
er lokið og fjallar um ungan prest
sem kemur heim eftir langa fjarveru
og hafa þá hlutirnir breyst mikið til
hins verra. Hann reynir að koma lagi
á hlutina en verður lítt ágengt.
Á laugardaginn verður byrjað að sýna hjá Ríkissjónvarp-
inu nýja þáttaröð um Dadda, öðru nafni Adrian Mole, og
ber hún nafnið „Vaxtarverkir Dadda". Á þessari mynd er
Daddi í faðmi fjölsky Idunnar og er glatt á hjalla hjá þeim.
Áföstudagskvöldið er á dagskrá myndin Leitarmaðurinn
og fjallar hún um mann sem leitar uppi fanga sem eru á
skilorði og hafa horfið. Þetta er aðalhetjan Stan Rivkin að
störfum og að sjálfsögðu er hann vel vopnum búinn.
Föstudagur 24. júlí kl. 23.35
Leitarmaðurinn (Rivkin, the Hunter).
Bandarísk mynd um mann sem
vinnur við það að leita að glæpa-
mönnum sem fengið hafa skilorðs-
bundinn dóm og síðan látið sig
hverfa. Hann á fatlaðan son og er
sterkt samband á milli feðganna og
þegar syninum er ógnað tekur leitar-
maðurinn til sinna ráða. Myndin er
víst sannsöguleg og í aðalhlutverk-
um eru Ron Leibman, Harry Morgan
og Glen Scarpelli.
Laugardagur 24. júlí kl. 21.15
Churchill (The Wilderness Years).
Þetta er ný þáttaröð sem stöðin ætl-
ar að fara að sýna og er hún í átta
hlutum. Þættirnirfjalla um líf ogstarf
Sir Winston Churchills og er sérstak-
lega fjallað um árin 1929-'39 þegar
Churchill var einn af fáum sem barð-
ist gegn uppgangi nasismans og
virtist framtíð hans í stjórnmálum
ekki vera mjög björt. Á eftir þættin-
um eru á dagskrá einar þrjár bíó-
myndir. Sú fyrsta fjallar um líf Earnie
Kovacs. Mynd númer tvö gerist í
New York og segir frá viðburðaríku
lífi ungs pars í borginni og síðasta
myndin er gerð eftir sögu John
Steinbecks og fjallar um miðaldra
mann sem finnst lífið vera að renna
sér úr greipum.
0
Sunnudagur 26. júlí kl. 13.30
„Eg máta sögur eins og föt". Þetta er
STODTVO
Fimmtudagur 23. júlí kl. 22.20
Fálkamærin (Ladyhawk). Þetta er
ævintýramynd sem gerist á miðöld-
um og fjallar um ungan vasaþjóf
sem hittir elskendur sem eru undir
þeim álögum að á daginn er hún
haukur en á nóttinni breytist hann í
úlf. Eini tíminn sem þau hafa til þess
að hittast er í þann mund er sólin
sest eða kemur upp. Með aðalhlut-
verk fara Matthew Broderick, Rutger
Hauer og Michelle Pfeiffer.
FRÁ HIROSIMA TIL HÖFÐA
Á sunnudagskvöldið klukkan
23.10 verður á dagskrá Rásar eitt
þáttur sem ber nafnið „Frá Hiro-
sima til Höfða" og eru umsjónar-
menn þáttarins tveir, þeir Jón
Ólafur Isberg og Grétar Erlings-
son. Þeir höfðu eftirfarandi um
þáttinn að segja: „Þetta eru þættir
úr samtímasögunni og alls verða
þeir átta talsins. Það er ætlunin að
skipta þættinum niður í 5—6 atriði
og spila tónlist tengda efninu þess
á milli. Við byrjum árið 1945 og
má segja að fyrsti þátturinn fjalli
bara um það ár. Aðdragandi
heimsstyrjaldarinnar verður rak-
inn og lýst hvernig heimurinn leit
út í stríðslok og hvaða nýju að-
stæður höfðu skapast."
þáttur um svissneska rithöfundinn
Max Frisch en eftir hann liggja leikrit
eins og „Andorra" og „Biedermann
og brennuvargarnir". Umsjónarmað-
ur þessa þáttar er Ástráður Eysteins-
son.
Sunnudagur 26. júlí kl. 23.10
Á sunnudagskvöldið er á dagskrá
þátturinn frá Hírósíma til Höfða og er
þetta fyrsti þáttur. Þetta eru þættir
úr samtímasögunni eins og nafnið
bendir til og eru það þeir Grétar
Erlingsson og Jón Ólafur (sberg sem
sjá um þáttinn.
áir
Alla virka daga vikunnar er á dagskrá
Rásarinnar Morgunþáttur og er
hann í umsjá Kristínar Bjargar Þor-
steinsdóttur og Skúla Helgasonar.
Þetta er alveg tilvalinn þáttur til þess
að nudda stírurnar úr augunum við.
Á hverjum laugardegi er Laugar-
dagsrásin á dagskrá og er hún í um-
sjón Sigurðar Þórs Salvarssonar og
Þorbjargar Þórisdóttur að þessu
sinni. Létt blanda sem gott er að
hlusta á. ^
iBYL GJANl
Næturdagskrá Bylgjunnar er tilvalið
að hlusta á þegar maður er andvaka
eða þá ef maður er í vinnunni á nótt-
inni og eru það ýmist Bjarni Ólafur
Guðmundsson eða Ólafur Már
Björnsson sem halda vöku fyrir sér
og öðrum. Klukkan 16.00 á sunnu-
daginn er á dagskrá þáttur Ragn-
heiðar H. Þorsteinsdóttur þar sem
hún leikur óskalög hlustenda, af-
mæliskveðjur eru lesnar og upp-
skriftir eru gefnar af ýmsu góðgæti.
Siðdegisþátturinn á Stjörnunni hefst
klukkan 16.00 alla daga vikunnar og
er í umsjón Bjarna Dags Jónssonar.
Hann spilar létta tónlist úr öllum átt-
um, talar við hlustendur og leggur
fyrir þá getraunir milli fimm og sex,
þegar allir eru á leiðinni heim til sín
frá vinnu.
ÚTVARP
Af uinsœldum
SJÓlívARP
Gengin í barndóm
Það er undarlegt með vinsældir. Ég hef
aldrei almennilega skilið hvernig þær skap-
ast, sérstaklega ekki í seinni tíð. Samt eru
núorðið til sérstakir vinsældalistar sem eru
mælikvarði á þessar vinsældir sem hver og
einn á sér. Steingrímur er t.d. vinsælastur
stjórnmálamanna og ætti þess vegna með
réttu að vera forsætisráðherra. En þannig
gerist þetta ekki í stjórnmálum og þess
vegna er Steingrímur ekki lengur forsætis-
ráðherra, heldur bara utanríkisráðherra og
fólkið verður að sætta sig við að í hvert
skipti sem rætt er við forsætisráðherrann í
fjölmiðlunum þá kemur Steingrímur bara
alls ekki til dyranna eins og hann er klædd-
ur heldur bara einhver allt annar maður
sem segir bara eitthvað allt annað en Stein-
grímur var vanur að gera.
Svona er þetta ekki í poppinu. Þar velur
fólkið sjálft sinn vinsældalista og eftir hon-
um er farið og ekkert múður eða baktjalda-
makk með það. Þú hringir bara inn á ein-
hverja stöðina og segir hvaða lag þér þyki
mest í spunnið þennan daginn og hinn og
svo segir umsjónarmaðurinn allt í lagi og
lagið þitt er á listanum. Þegar lagið þitt er
komið inn á listann geturðu líka verið viss
um að þú þarft ekki að hringja aftur og
biðja um lagið því þá er búið að spila það
svo oft að það hringir örugglega einhver
annar.
Það er annars undarlegt með vinsældirn-
ar. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað
gerðist ef tekið væri brot út úr verki eftir
t.d. Bach og það spilað aftur og aftur og svo
einu sinni enn, hvort það gæti ekki náð vin-
sældum. Eða hvað myndi verða um vin-
sældalistana ef það væri bannað að spila
lög af þeim, nema bara þegar verið væri að
kynna hvaða lög væru yfirleitt á þeim.
Kannski mætti bara lesa upp nöfnin, það
þyrfti ekki að spila lögin. Kannski þau lög
sem á listunum væru myndu þá alls ekki
halda áfram að vera vinsæl. Stundum hall-
ast ég nefnilega að því að útvarpsstöðvum
sé það nokk í sjálfsvald sett hvað verður
vinsælt og mikið spilað og mikið keypt,
sem er auðvitað annar handleggur og
kemur þeim ekkert við.
Svona fyrir utan þetta þykja mér vin-
sældalistar ágætir og Popplag í G fínt, ég
syng það stundum í bílnum...
Þrátt fyrir það að ég eigi nú að teljast til
fullorðinna verð ég að viðurkenna að ég
hef alltaf lúmskt gaman af barnaefni sjón-
varpsstöðvanna og ef ég get reyni ég að
horfa á einhvern hluta þess. Ég vil þó taka
það fram svo að það valdi nú ekki neinum
misskilningi að ég er ekki mikill aðdáandi
He-Man eða „Hetjur himingeimsins" eins
og þátturinn heitir á ástkæra, ylhýra... Það
er einn þáttur sem mér finnst standa nokk-
uð upp úr og líkast til telst hann til ungl-
ingaefnis og er það þátturinn „Unglingarn-
ir í hverfinu". Fyrir nokkru sýndi Sjónvarp-
ið þætti sem hétu „Krakkarnir í hverfinu"
og fjallaði hann um hóp af krökkum í
venjulegu millistéttarhverfi einhvers stað-
ar í Kanada og daglegt líf þeirra. Þegar sá
þáttur var á dagskrá sat ég límd við sjón-
varpstækið og fylgdist með af mikilli at-
hygli. En krakkar eldast sem annað fólk og
nú eru þessir sömu krakkar orðnir ungling-
ar og komnir í gaggó og ég fylgist með af
engu minni áhuga.
Þessir þættir fjalla um daglega lífið og
allt sem því fylgir. Þetta hljómar kannski
ekki spennandi, allavega ekki eins og þátt-
urinn „Krakkar lögregluforingjans" sem
fjallar um hóp krakka sem hjálpa lögregl-
unni við að leysa glæpamál og yfirleitt eru
þau á undan henni að finna lausnina. í raun
er þátturinn um unglingana bæði fyndinn
og „vekur mann til umhugsunar" eins og
það heitir svo fallega. Það er að vísu alltaf
„happy end" á þessum þáttum en það kem-
ur ekki að sök, allavega ekki að mínu mati.
Þessi þáttur er eina barnaefnið sem ég
horfi reglulega á en oft sé ég brot af hinu
og þessu sem verið er að bjóða krökkunum
upp á og er það misgott svona eins og ger-
ist og gengur. Ég er alltaf hrifin af teikni-
myndum og þá aðallega þeim frá Walt
Disney en vil síður horfa á þær tékknesku
sem lengi voru og eru ef til vill enn sýndar
í Ríkissjónvarpinu. Mér finnst þær heldur
slappar oft á tíðum.
Ég fjalla ekki um barnaefnið án þess að
hæla „sjónvarpsstöðinni með skoðanirn-
ar“ örlítið. Þeir hafa nefnilega komist að
því að börn læra ekki að lesa fyrr en við
fimm eða sex ára aldurinn hér á íslandi og
hafa því tekið upp á þeim sið að setja ís-
lenskt tal inn á teiknimyndirnar þannig að
krakkagreyin geti fylgst með því sem er að
gerast. Ríkissjónvarpið hefur gert þetta að
einhverju marki einnig en það er því miður
ekki allt barnaefni sem er komið með ís-
lenskt tal og vonandi að svo verði bráðum.
Ég stend í þeirri trú að allt efni sem ætlað
er börnum yngri en átta ára ætti að vera
með íslensku tali því þó að krakkarnir
kunni að lesa geta þeir ekki lesið eins hratt
og til þarf til þess að halda í við textann. Og
ef svo vill til að þeim tekst að lesa allan
textann áður en hann hverfur aftur ná þau
ekki að fylgjast með því sem er að gerast
á skerminum.
34 HELGARPÓSTURINN