Helgarpósturinn - 23.07.1987, Page 35
FRÉTTAPÖSTUR
Hvalamálið
Viðræðunefnd undir stjórn Halldórs Ásgrímssonar sjáv-
arútvegsráðherra, hefur að undanförnu verið í Bandaríkj-
unum til viðræðna við þarlend stjórnvöld um hvalveiðar ís-
lendinga í visindaskyni. Samkvæmt samþykkt Alþjóða
hvalveiðiráðsins eru hvalveiðar íslendinga miður æskilegar
og hefur ráðið ályktað gegn þeim. Náttúruverndarsamtök i
Bandaríkjunum hafa hótað áróðri gegn íslenskum fiskaf-
urðum og samkvæmt þarlendum lögum er forsetanum
heimilt að mæla með viðskiptaþvingunum. Það hefur komið
í ljós í þessum viðræðum að andstaðan gegn íslendingum í
bandaríska þinginu er alls ekki einróma og er staðan sú inn-
an bandariska stjórnkerfisins að utanríkisráðuneytið reyn-
ir hvað það getur til að hafa áhrif á sjónarmið viðskiptaráðu-
neytisins, sem hefur lagt til harðar aðgerðir gegn okkur.
Viðræðurnar hafa verið tviþættar, annars vegar pólitiskar
og hins vegar vísindalegar og er það mat manna að vísinda-
menn þjóðanna verði að ráða ráðum sinum áður en pólitik-
usarnir geta tekið ákvarðanir um þá hlið mála sem að þeim
snýr. Þess má geta að hvalveiðar liggja niðri hér heima með-
an á viðræðunum stendur. Norðmenn hafa sagt að þrátt fyr-
ir að gegn þeim sé rekið áróðursstríð þá hafi innflutningur
þeirra til Bandaríkjanna aukist að undanförnu en þeir veiða
hvali i ágóðaskyni og skjóta þrisvar sinnum fleiri dýr en við.
Af þessu má ráða að staða mála er óljós og jafnvel þó íslensk-
um stjórnvöldum hafi að undanförnu borist um 80.000
mótmælakort frá almenningi vestra er ekki vist að það hafi
nein áhrif.
Hafskipsmáliö
Stærsta gjaldþrotamál í sögu íslenska lýðveldisins þegar
Hafskip fór á hausinn, hefur nú tekið nýja stefnu. Sakadóm-
ur kvað upp þann úrskurð að Hallvarður Einvarðsson, rik-
issaksóknari, væri vanhæfur til að gefa út ákæru í málinu
og er því frávisunarkrafa sakborninga, forráðamanna Haf-
skips, tekin gild. Málinu var vísað frá á þeim forsendum að
bróðir Hallvarðs, Jóhann Einvarðsson, núverandi alþingis-
maður, hafi setið í bankaráði Útvegsbankans og vegna þess-
ara tengsla sé Hallvarður ekki hæfur til að gefa út ákæru i
málinu. Sem kunnugt er var frávísunarkrafa bankastjóra
Útvegsbankans einnig tekin gild á sömu forsendum, en þeir
höfðu verið ákærðir fyrir stórfellda vanrækslu í starfi. Á
sama tíma gaf Hallvarður ekki út ákæru á hendur banka-
stjórninni. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Lengi hafði
verið um það rætt að skipa yrði sérstakan saksóknara í mál-
inu en Jón Helgason, þáverandi dómsmálaráðherra, vildi
ekki gera það fyrr en að fenginni niðurstöðu dómsvaldsins
um hæfni Hallvarðs. Að auki hefur það gerst í þessu máli að
Þórður Hilmarsson, fyrrverandi fjármálastjóri Hafskips,
hefur farið fram á það við stjórnvöld að sér verði greiddar
skaðabætur úr rikissjóði vegna handtöku og gæsluvarð-
halds að ósekju. Þórður var hnepptur í gæsluvarðhald
ásamt öðrum forráðamönnum fyrirtækisins en ekki var
gefin út ákæra á hendur honum.
Skák
íslendingar eignuðust sinn þriðja heimsmeistara í skák á
þriðjudag. Héðinn Steingrímsson, 12 ára, varð þá óopinber
heimsmeistari í flokki barna yngri en tólf ára. Hann sigraði
á móti sem haldið var í Puerto Ríco, afar sannfærandi, hlaut
níu og hálfan vinning af tíu mögulegum. Allt útlit er einnig
fyrir að við eignumst Norðurlandameistara i landsliðs-
flokki eða meistaraflokki, því fyrir síðustu umferð mótsins
voru þeir Helgi Ólafsson og Margeir Pétursson efstir og jafnir.
Jóhann Hjartarson teflir nú á millisvæðamóti í Júgóslavíu
og gengur vel, hann hefur tvo og hálfan vinning eftir fjórar
umferðir, hefur gert þrjú jafntefli og unnið eina skák, en
mótið er mjög sterkt. Þeir Hannes Hlífar Stefánsson og
Þröstur Þórhallsson tefla á heimsmeistaramóti skákmanna
undir tvítugu og er Hannes þar i krafti þess að hann varð
heimsmeistari sveina á dögunum. Hann er yngsti keppand-
inn á mótinu. Þeir félagar hafa tvo vinninga að loknum
þremur umferðum, hafa tvivegis borið hærri hlut en einu
sinni orðið að lúta í lægra haldi.
Préttapunktar
• Salmonella herjar enn á landsmenn. Síöast fannst hún í
kjúklingum en nú er það svínakjötið. Nokkur fjöldi fólks
sem saman var komið á ættarmóti sýktist. Fundist hafa
samskonar sýklar í svínakjöti frá Sláturfélagi Suðurlands
og er verið að reyna að rekja hvaðan það kjöt hefur komið.
A.m.k. eitt svínabú hefur fundist, þar sem skepnurnar
reyndust hafa sýkilinn í sér.
• Smekklausir vanvitar voru á ferð í Aðalstræti aðfaranótt
föstudagsins. Þar er unnið að uppgreftri á fornminjum og
höfðu m.a. komið í Ijós 200 ára gamlar hleðslur, sem nýlokið
var við að grafa upp og hreinsa þegar fúlmennin tóku sig til
og ruddu hleöslunum um koll, rifu upp mælingarhæla og
gengu í raun berserksgang með eyðileggingu að leiðarljósi.
• Upp hefur komið mikil umræða um gróðureyðingu nú á
síðustu dögum og vikum og hefur m.a. komið i ljós að hér á
landi eyðast að meðaltali um 3 þús. hektarar gróins lands á
ári.
• Eftir tiu umferðir á SL-mótinu svokallaða, hét áður ein-
faldlega 1. deild, hefur KR tekið forystu, hefur hagstæðara
markahlutfall en Valur, en liðin hafa hvort um sig 19 stig.
Þórsarar frá Akureyri koma næstir með 18. Víðir og PH sitja
saman á botninum, hafa hlotið 7 stig. Vésteinn Hafsteinsson
setti nýverið nýtt glæsilegt íslandsmet í kringlukasti, kast-
aði kringlunni rúma 67 metra og er afrek hans það sjöunda
besta í heiminum í ár.
• Norska popphljómsveitin A-ha hélt tvenna hljómleika
hér á landi um síðustu helgi. Að auki var sveitin viðstödd
frumsýningu myndarinnar The Living Daylights, nýjustu
Bond-myndarinnar, en þeir norsku spilastrákar sömdu
samnefnt titillag myndarinnar.
• Jóhanna Sigurðardóttir, nýskipaður félagsmálaráðherra,
hefur lýst yfir að hún ætli ekki að nota sér bílafriðindi þau
sem henni bjóðast í nýju starfi.
BILALEIGAN
OS
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræöraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiöslukorta
þjónusta
Sími 688177
MYNDBAND SUMARSINS
NAFN
íöSARINNAR
Hver, í guðs nafni, kemst upp með morð?
F. MURRAY
SEAN
CONNERY
ABRAHAM
ur texti
L
Dreifinc HÁSKÓLABÍÓ
SIMI 611212
Sjónvarpsvernd 8 mánuðir
HELGARPÖSTURINN 35