Morgunblaðið - 09.07.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JULl 1975
7
r
Skæruhernaður
I leiðara Tímans t gær,
sem ber yfirskriftina
„Skæruhernaður," er
fjallað um nauðsyn á
breyttri vinnulöggjöf,
m.a. með hliðsjón af að-
gerðum fámennra
starfshópa, er stöðvað
geta og hafa fyrirvaralít-
ið þýðingarmiklar at-
vinnugreinar t verð-
mætasköpun þjóðarbús-
ins. Þar segir m.a
„Upp á slðkastið hef-
ur það færzt t vöxt, að
tiltölulega fámennir
stéttarhópar hafa knúið
fram launakröfur slnar
með hæpnum, eða jafn-
vel ólöglegum, verkfalls-
aðgerðum t skjóli að-
stöou sinnar til að lama
starfsemi viðkomandi
fyrirtækja og baka þeim
stórkostlegt fjárhags-
tjón. Af þeim sökum
hafa vinnuveitendur
fremur valið þann kost-
inn að samþykkja nauð-
ungarsamninga en að
láta fyrirtækin stöðvast.
Vinnubrögð af þessu
tagi eru afar óheppileg.
svo ekki sé sterkara að
orði kveðið. i þeim felst
virðingarleysi gagnvart
lögum og réttvísi, svo
ekki sé talað um virð-
ingarleysið gagnvart at-
vinnufyrirtækjunum,
sem viðkomandi aðilar
starfa hjá. Jafnframt
felst ( þeim hættulegt
fordæmi gagnvart öðr-
um launþegastéttum,
sem samið hafa um
kaup og kjör á hóflegum
grundvelli með tilliti til
erfiðrar stöðu atvinnu-
fyrirtækjanna. Er ekki ó-
eðlilegt, að þeir aðilar
hugsi með sér, að til
Ktils sé að sýna sann-
girni, ef aðrir hópar
komi á eftir og knýi fram
miklu meiri kauphækk-
anir."
Atvinnuöryggi
í hættu
Þá segir Tíminn:
„Það er svo sérkapi-
tuli, að miklir erfiðleikar
geta stafað af þvi, að
innan eins og sama fyrir-
tækis er starfsfólkið i
mismunandi stéttarfé-
lögum, og semja verður
við hvern hóp út af fyrir
sig. Þannig felst til að
mynda engin trygging i
þvi fyrir stórfyrirtæki
eins og Flugleiðir, þótt
samningar takist við
flugmenn, ef ekki næst
samkomulag við flug-
freyjur. En jafnvel þótt
samningar næðust við
báða þessa aðila, er um
fjóra aðra stéttarhópa
að ræða, sem hver um
sig gætu stöðvað rekst-
urinn, ef samningar
næðust ekki við þá. Hér
er um að ræða flug-
virkja. afgreiðslufólk á
flugvöllum og verka-
menn við bensinaf-
greiðslu, auk flugum-
ferðastjóra, sem reyndar
hafa ekki verkfallsrétt.
en hafa möguleika til að
tefja flugið með óeðli-
legum veikindaforföll-
um.
Hjá ýmsum öðrum at-
vinnufyrirtækjum er
svipaða sögu að segja,
þótt dæmið um Flugleið-
ir sé mest einkennandi (
þessum málum. Blaða-
útgefendur verða t.d. að
semja við fleiri aðila en
blaðamenn, ef blöðin
eiga að koma út. Náist
ekki samningar við
prentara stöðvast blaða
útgáfan. Sömuleiðis
stöðvast útgáfan, þótt
samningar næðust bæði
við blaðamenn og prent-
ara, ef ekki næst sam-
komulag við fólkið, sem
sér um pökkun blað-
anna.
Allir skynsamir menn
hljóta að viðurkenna, að
þetta fyrirkomulag er ó-
æskilegt og getur valdið
fyrirtækjunum slikum
skakkaföllum, að rekstri
þeirra sé ógnað alvar-
lega. Þegar við það bæt-
ist, að ákveðnir hópar
eru farnir að beita
skæruhernaði til að
beygja atvinnufyrirtæk-
in, er vissulega komið í
óefni.
Ástæða er til að taka
undir þær raddir, sem
bent hafa á nauðsyn á
endurskoðun vinnulög-
gjafarinnar. Slík endur-
skoðun er ekki aðeins
nauðsynleg fyrirtækj-
anna vegna. Ekki siður
er hún nauðsynleg
vegna launþega sjálfra.
Atvinnuöryggið er (
hættu, ef rekstri fyrir- I 1
tækjanna er ógnað með ’
skæruhernaði og þung-
lamalegu samninga-
kerfi. Umfram allt þarf |
þó að verða hugarfars- I I
breyting og skilningur á *
þvi, að sameiginlegir
hagsmunir eru i húfi .
bæði fyrir atvinnurek- |
endur og launþega."
Hin æskilega
aðferð
Breyting vínnulöggjaf-
ar er umræðuefni, sem .
lengi hefur verið á dag- I
skrá, en enginn virðist I
hafa þorað að taka föst-
um tökum. Hið æskileg- |
asta og raunhæfasta i .
þessu efni er, að aðilar I
vinnumarkaðarins setj- ■
ist að samningaborði
með sérfræðingum sln-
um, og semji um nýja
starfshætti i þessu efni,
sem siðar mætti lög- .
festa, ef þurfa þætti. I
Ástæða er til að ætla, að ■
skilningur sé fyrir hendi
á báða bóga um þetta
mál, ekki slzt i hópi
hinna lægst launuðu, |
sem aldrei geta haldið i
sfnum hlut óskertum
gagnvart „forréttinda-
stéttum" innan laun-
þegasamtaka, að ó-
breyttri vinnulöggjöf ■
eða samningsaðferðum. '
í þvi efni er dýrkeypt
reynsla lærdómsrik. Ef *
slik samningsleið reyn-
ist ófær, sem óreynt er, ■
verður Alþingi að gripa I
inn i með löggjöf, að I
höfðu samráði við aðila
vinnumarkaðarins, með
hagsmuni heildarinnar i
huga.
Hills er einrœnn
œvin týramaður
Bretinn Denis Hills sem Idi
Amin forseti Uganda neitar
stöðugt að sleppa úr haldi er
yfirleitt kallaður kennari eða
fyrirlesari í fréttum en er raun-
ar rithöfundur — og mikill
ævintýramaður.
Hann var skólabróðir Enoch
Powells, hins umdeilda fhalds-
manns sem enginn frýr vits, í
Birmingham á kreppuárunum
og þótti. skara fram úr honum
og öðrum jafnöldrum sínum þvi
hæfileikar hans voru margvfs-
legir og frábærir. Gamall skóla-
félagi þeirra segir að hafi ein-
hver nemandi skólans (hann
hét King Edward’s) verið tal-
inn líklegur til að verða for-
sætisráðherra með tíð og tíma
þá hafi það ekki verið Enoch
Powell — heldur Denis Hillj.
Hills er fæddur f nóvember
1913 og var fimmta elzta barn
bankastjóra þar í borg. Hann
var fyrirliði bæði í krikket- og
rugby-liði skólans, stóð sig
ágætlega á málfundum og var
fyrsta flokks nemandi sem sást
á því að hann fékk styrk til
náms við Lincoln College í Ox-
ford. Hann var orðlagður fyrir
hugrekki og skólafélagar hans
minnast þess enn að þegar þeir
voru í fótbolta og boltinn fór
upp á glerþak á brautarstöðvar-
byggingu, þá var alltaf kallað í
Denis því enginn annar þorði
að klifra upp á þakið sem var
hættuspil.
1 Oxford greip hann eirðar-
leysi, hann var áminntur fyrir
brot á skólareglum og vanrækti
námið svo hann fékk bara
þriðju einkunn. Skömmu eftir
brottfararprófið hjólaði hann
norður alla Skandinavíu og
fékk far heim með brezkum
togara. Hann ákvað að gerast
blaðamaður en fékk sér ekki
vinnu við blað f Bretlandi held-
ur í hafnarborginni Gdynia í
Póllandi þar sem hann
kvæntist pólskri stúlku sem ól
Dcnis Hills: lætur sér hvergi
bregða.
honum eina dóttur, Gillian, sem
nú er leikkona í London. Hann
hafði sýnt litla tungumálahæfi-
leika í Oxford en varð smátt og
smátt góður málamaður og tal-
ar nú sex tungumál.
Þegar heimsstyrjöldin brauzt
út flýði Hills ásamt konu sinni
frá Póllandi og af eðlilegum
ástæðum fékk hann það starf
að vera tengiliður pólskra liðs-
sveita og brezkra. Hann var að
miklu leyti í Miðausturlöndum
á stríðsárunum og barðist á
ítalíu, meðal annars í orrust-
unni um Monte Casino. Síðan
tók hann þátt í því starfi brezka
hersins að útvega flóttamönn-
um samastað og gerðist því
næst kennari, fýrst í Vestur-
Þýzkalandi og síðan í Tyrk-
landi. Þar kvæntist hann síðari
konu sinni, Ingrid, sem er þýzk
og á með honum tvö börn.
Fram að þessum tíma hafði
Hills skrifað fjölda greina í
blöð, en í Tyrklandi og síðar f
Uganda hóf hann að skrifa
bækur, sem hafa fengið lof
fyrir að vera mjög læsilegar og
afar heiðarlegar og hrein-
skilnislegar ferðalýsingar. I
ferðasögum hans frá Tyrkiandi
og Afríku er ekkert dregið
undan og þótt tiltölulega frum-
stæðar þjóðir heilli hann gerir
hann sér grein fyrir því aó sjúk-
dómar, ólæsi og eymd eru oft
fylgifiskar þeirra.
Hills er venjulega einn á ferð
og sefur alltaf í tjaldi, jafnvel í
Englandi þar sem það er talin
sérvizka, nema þegar hann
ferðast á kostnað hins opin-
bera. Þegar hann er á ferð í
óbyggðum Afrfku virðist hann
láta sér hvergi bregða þótt
hættur leynist við hvert fótmál.
Af skrifum hans að dæma er
hann einfari og treystir á
sjálfan sig.
Það sem kom Amin forseta til
að handtaka Hills og hóta hon-
um lífláti var að hann komst
með einhverju móti yfir hand-
rit næstu bókar Hills „The
White Pumpkin" þar sem Hills
fer um hann miður vinsamleg-
um orðum eins og við mátti
búast af jafnhreinskilnum
manni. Það voru einkum tvær
setningar sem Amin felldi sig
ekki við:
„Vegna Amins hefur öllum
fordómum um svarta manninn
aftur skotið upp á yfirborðið.
Hann hefur gert þjóð sinni
óleik.. . og málstað Afríku í
heild þar sem hann drottnar
eins og harðstjóri í blökku-
mannaþorpi og hefur aftur
þröngvað upp á Ugandamenn
öllum venjum undirgefni og
þrælsótta sem menn vonuðu að
frelsið grafi undan."
„Amin þykir gaman að kalla
okkur Breta njósnara. Það er
mikið til í því þar sem við,
erlendu íbúarnir, erum hvort
sem okkur líkar það betur eða
Framhald ð bls. 25.
LÆRIÐ VELRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eirigöngu á
rafmagnsritvélar. Engin heimavinna Innritun og
upplýsingar í sima
41311.
•X
;,/
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H Felixdóttir
ODYR
Úrvals heimilistæki frá stærsta
heimilistækjaframleiðanda Noregs.
KPS STAR 60
ýý Eldavél með 4 hellum
Tvöföld glerhurð fyrir ofninum.
•fr Ljós I ofni.
■íý Fylgihlutir: 2 ofnskúffur,
bökunarplötur, grind.
■jír Mál: Breidd 59,5, dýpt 60,
85 cm
■fr Verð í hvitu kr. 65.520.00
■fo Verð í karry gulu, grænu
70.560.00
■j!r 5 cm. sökkull kr. 1.665.00
■fo Bak með klukku kr 6 1 85 00
■& Grill, bretti og töng kr. 5 335.00
hæð
kr
KPS STAR 50
■fr Eldavél með 3 hellum
■fe Tvöföld glerhurð fyrir ofni.
■& Ljós í ofni
•fc Sér undir- og yfirhiti á ofni
■fe Mál: breidd 49,5, dýpt 60, hæð
85 cm.
■& Verð i hvitu 50.400.00
■& Verð I grænu, brúnu, karry gulu kr
56 950.00
■& 5 cm. sökkull kr. 1 665.00
Bak með áminningarklukku
KPS VIFTAN
■{ý Fitusla úr stálneti
☆ Fæst einnig með kolaslu og þarf
því ekki að blása út.
☆ Verð I hvitu, grænu og karry gulu
kr. 32 81 5.00
KPS KRYSTALL K 12
Uppþvottavél
•fr Ryðfrltt stál að innan
•fo 3 ryð-fríir þvottaarmar.
•fo Fjölbreytt þvottakerfi
•fo Tekur inn á sig heitt eða kalt vatn.
•fo Sérstakt sparnaðarkerfi
☆ Mál: Hæð 81,2 — 90,5 (stillan-
leg) breidd 59,5, dýpt 59,5.
KPS 270 lítra
kæli- og
frystiskápur
60 lítra frystir, 210 lítra kælir. Mál
Hæð 136, breidd 60, dýpt 65,5. Verð
í hvítu 107.775 00 verð í grænu,
karry gulu 1 1 5.080.00
KPS
250 litra kæliskápur I grænu
og karry gulum lit. kr 94.01 5.00.
Vegna hagstæðra innkaupa, getum við boðið
þetta lága verð um takmarkaðan tíma. Góðir
greiðsluskilmálar — Sendum út á landi.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A
Sími 16995.