Morgunblaðið - 09.07.1975, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLI 1975
Mcnn tala almennt um lélega
vertíð, það er tímabilið fram að
miðjum maí. Það er rétt, að
aflinn brást mjög illa hjá báta-
flotanum norðanlands, eða nær
því urn helming frá í fyrra. Um
mánaðamótin apríl — maí var
vertíðarafli norðlenzku bát-
anna 5.993 lestir á móti 10.271 á
sama tíma í fyrra. Á svæðinu
Hornafjörður / Stykkishólmur
hélzt heildaraflinn sá sami
fram að mánaðamötunum
apr./maí tæpar 98 þús. lestir'
bæði árin, en svo brást enda-
spretturinn alveg á þessu veiði-
svæði og varð 4.300 lestum
minni 1.—15. maí en hann var i
fyrra eða 8.758 lestir á móti 12.
953 lestum í fyrra á þessum
hálfa mánuði.
Austfirðingar héldu sínu.
Afli Austfirðinganna varð held-
ur rneiri fram að mánaðamót-
unum apr./maí eða 5.042 lestir
á mótí 4.604 í fyrra. Ekki hafa
Austfirðingar héldu sfnu á nýliðinni vertfð. — Myndin er úr
frystihúsi á Eskifirði.
eftir ÁSGEIR
JAKOBSSON
hressilega, að hana þarf ekki að
sanna með tölum, að afli ein-
stakra báta hefur aldrei verið
eins misjafn og nú í vetur. I
verstöðvum, þar sem topp-
bátarnir hafa náð 8—1100 lest-
um eru sumir bátar með svo til
engan afla og næsti bátur við
toppbátinn sumstaðar með
helmingi minni afla en hann.
Veiðisvæði bátanna eru
sífellt að þrengjast. Fisksælu-
bleyðunum fækkar ár frá ári og
sífellt færri bátar koma netum
sinum á þær.
og fiskvinnslu, sem vitaskuld
bætir samkeppnisaðstöðu Norð-
manna á bandaríska
markaðnum. EBE-löndin hafa
einnig tekið til við að styrkja
fiskútflutning sinn. Við erum
náttúrlega ákveðnir i að við-
halda löndunarbanninu á fersk-
fiski í Þýzkalandi. Þjóðverjar
eru auðvitað alveg að gefast
upp, þetta bitnar svo hroðalega
á þeim. Og það, sem við höfum
sagt, það höfum við sagt. Engir
„verksmiðjutogarar“ með
okkar leyfi inn i landhelgina.
Misjöfn vertíð hjá bátaflotanum
Það standa á okkur öll járn
verið birtar aflatölur Austfirð-
inga 1.—15. maí og það er ekki
víst að þær verði lakari en í
fyrra vegna smábátaflotans,
sem þar er nú kominn í gang.
Afli vestfirzku bátanna
minnkaði að heildarmagni. Var
í fyrra rúmar 16. þús. lestir en
nú tæpar 13 þús. I skýrslunni í
Mbl. 31. mai eru skuttogararnír
taldir með bátaflotanum og
þeir öfluðu miklu meira en í
fyrra. Það er enn um nokkurt
ósamræmi að ræða i sambandi
við aflaskýrslur, vegna þess að
margir vilja telja smærri skut-
togarana til báta, þar scm á
þeim eru bátakjör og þeir landa
mjög ört og stunda veiðarnar
líkt og bátar, en hinsvegar er
dálítið hæpið að nota orðið
„bát“ um þessi stóru skip. Það
er rangnefni. Merkingin í orð-
inu „bátur“ hefur að vísu færzt
stöðugt upp eftir stærðarbreyt-
ingum í flotanum, en þessi skip
eru of stór enn til að geta kall-
azt bátar í íslenzka fiskiflotan-
um. Það getur vel verið að sú
verði þróunin, að þeír verði
kallaðar trillur einhvern tíma,
en það er ekki orðið enn og þess
vegna finnst mér rétl að telja
þá til togara, hvað sem liður
skiptakjörunum, enda gerir
Fiskifélagið svo í sínum skýrsl-
um.
Það er sem sé ljóst að vertíðin
hefur endað svo, að bátaaflinn
hefur minnkað um 10—15%
frá í fyrra á tímabilinu
jan./maí, þó að endanlegar töl-
ur liggi ekki fyrir. Þá vaknar
spurningin um sóknina. Var
hún meiri eða minni en í fyrra
og hverju munar?
Það er jafnan erfitt að gera
sér grein fyrir netasókninni,
þar er hvorki hægt að átta sig á
róðrafjölda né úthaldsdögum,
því að netin liggja í sjó þó að
ekki sé róið, og úthaldsdagar
segja heldur ekki alla söguna
vegna þess að nýling flotans
var mjög slæm. Þó að svo ætli
að heita um marga báta að þeir
væru við róðra, þá var það varla
nema nafnið.
Það fóru um 50 bátum færra
á loðnu en i fyrra og þeir bátar
voru í þorskfisksókninni og auk
þess kom loðnuflotinn almennt
miklu fyrr allur eða mest af
honum, inní þorskfisksóknina
en árið 1974. Það mætti því
ætla að það hafi verið all-miklu
fleiri bátar í sókninni nú en i
fyrra a.m.k. 50—60 bátum
fleira mest af vertiðinni. En
hin mikla vannýting flotans,
sem aldrei hefur verið meiri en
í vetur, gerir strik í sóknar-
dæmið. Svo mikið strik, að það
er erfitt að fullyrða að sókn
bátaflotans hafi verið öllu
meiri nú en í fyrra, en líklegt er
þó að svo hafi verið. Sóknar-
dæmið er sem sé óuppgert og
það verður hver að ímynda sér
hvað rétt er.
Sú staðreynd blasir við og svo
Fiskurinn hrekst undan
netum. á því er enginn vafi.
Þaö bjargar enn málinu, að
hann hefur ekki skilyrði til að
hrygna nema á netaslóðum, en
það er greinilegt að hann færir
sig til eftir því, sem hann getur
undan netunum. Þetta stað-
festagamlir menn, sem stundað
hafa netaveiðar alla sína ævi,
og yngri skipstjórarnir eru
flestir sömu skoðunar orðnir. í
vertíðarlokin nú var helzt að
vera með netin niðri á 100 eða
120 föðmum. Það hefði ein-
hvern tímann þótt saga til
næsta bæjar.
Enn er engin hreyfing uppá
við á verði fiskblokkar á banda-
ríska markaðnum, og nú hefur
það bætzt ofan á aðrar hörm-
ungar, að þriðja helzta sam-
keppnisland okkar á þeim
markaöi, Noregur, hefur ákveð-
ið mikla styrki til sjávarútvegs
Hins vegar kemur okkur ekki
við hvað þeir veiða í óleyfi. Það
færist áreiðanlega á langan
svartalista Þjóðverja hjá
himnaföðurnum að kúga
þannig litla smáþjóð. A sama
stað munum við hljóta umbun
fyrir staðfestu okkar. Tollar
eru miklir á freðfiski í EBE-
löndunum vegna stríðs okkar
við Þjóðverja, einnig eru miklir
tollar á rækju í þeim löndum.
Skreiðarmarkaðir eru væn-
legir, en lítið hefur verið hengt
upp i skreið, og svo urðum við
fyrir alvarlegum álitshnekki á
bezta skreiðarmarkaðnum
vegna skemmda í skreiðinni.
Spánverjar hafa hamlað inn-
flutningi á saltfiski með ýmsu
móti, innflutningsgjöldum og
tollum og siðast hreinu banni.
Ekkert útlit er fyrir að mjöl-
eða lýsisafurðir hækki á næst-
unni, og þar urðum við nú fyrir
því áfalli að helzti Iýsis-
kaupandinn varð gjaldþrota,
með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum fyrir okkur.
Það er sem sé allt á eina
bókina lært fyrir okkur nú um
þessar mundir...,„
Nýjung í starfi Skálholtskirkju:
Sumartónleikar
fjórar næstu helgar
Leikin tónverk frá 17. og 18. öld
Varað við notkun
sykursýkislyfja
UM næslu helgi verður upp tekið
það nýmæli I starfsemi Skálholts-
kirkju að halda þar hljómleika
um helgar, þar sem flutt verður
tónlist frá 17. og 18. öld. Verða
flytjendur hennar þrír, sembal-
leikararnir Helga Ingólfsdóttir
og Elfn Guðmundsdóttir og
Manucla WieSler flautuleikari.
Hljómleikarnir verða laugar-
daga og sunnudaga næstu fjórar
helgar og mismunandi efnisskrá
um hverja helgi. Dagana 12. og
13. júlí verða flutt frönsk sembal-
verk frá 18. öld, eftir Fr.
Couperin og J. Ph. Rameau — og
verða hljómleikarnir kl. 16 báða
dagana. Dagana 19. og 20. júlí
verða flutt verk fyrir tvo sembala
eftir G. Farnaby, N. Carlton, T.
Tomkins, Fr. Couperin og J.L.
Krebs. Verða laugardagstón-
leikarnir kl. 17 en sunnudagstón-
leikarnir kl. 11. Flytjendur þessar
tvær helgar verða þær Helga
Ingólfsdóttir og Elín Guðmunds-
dóttir.
Dagana 26. júlí kl 17 og 27. júlí
kl. 16 leikur Helga Ingólfsdóttir
siðan einleik á sembal, verk eftir
G. Freseobaldi Fr. Couperin og D.
Scarlatti, en síðustu helgina —
Verzlunarmannahelgina — verða
þrennir hljómleikar, laugardag-
inn 2. ágúst kl. 17, sunnudaginn 3.
ágúst kl. 16 og mánudaginn 4.
ágúst kl. 17 leika þær Ilelga Ing-
ólfsdóttir semballeikari og
Manuela Wiesler, flautuleikari þá
verk eftir Bath og Mozart.
Helga Ingólfsdóttir, sembal-
leikari, Manuela Wiesler, flautu-
leikari og Elín Guðmundsdóttir,
semballeikari.
Þess má geta, að aðgangur að
þessum hljómleikum öllum er
ókeypis og að nú getur fólk fengið
bæði gistingu og fæði í húsnæði
Lýðháskólans i Skálholti.
Washington 4. júlí — AP
BANDARlSKA matvæla- og heil-
brigðisráðuneytið mun á mánu-
dag leggja til að sykursýkistöflur
þær, sem nefnast hypoglycemics,
verði merktar með sérstakri við-
vörun, þar sem segir, að þær
kunni að auka hættu á dauða af
völdum hjartasjúkdóma, að lækn-
ar séu ekki vissir um að þær geti
komið I veg fyrir langtíma veik-
indi af völdum sykursýki, og að
kynna bcri sjúklingum áhættu þá
sem fylgir þeim og að þeir taki
þátt I ákvörðun um notkun
þeirra. Einnig leggur ráðuneytið
til að á viðvörunni segi, að töfl-
urnar skuli aðeins nota fólk, sm
ekki getur temprað blóðsykurs-
magn sitt með matarkúrum og
ekki getur notað sykursýkislyfið
insúlín. Meðal þessara taflna,
sem notaðar eru til að minnka
blóðsykurinn, eru lyfin tolbuta-
mide og phenformin.
Þess skal getið, að þegar skýrt
var frá þeim rannsóknum sem
leitt hafa til þessarar ákvörðunar
bandaríska heilbrigðisráðuneytis-
ins, kom fram í Morgunblaðinu að
notkun áðurnefndra lyfja á Is-
landi er á mun takmarkaðra sviði
en í Bandaríkjunum og er undir
strangara eftirliti en þar.
Sérstæðum
hjálmi stolið
I MBL. sl. sunnudag var greint
frá þjófnaði á skellinöðru og for-
láta ökumannshjálmi af vélhjóla-
verkstæði á Vagnhöfða aðfara-
nótt sl. föstudags. Lýsingin á
hjálminum, sem er sá eini sem
þannig lítur út, var ónákvæm.
Hjálmurinn er silfursanseraður
með gulum eldtungum.