Morgunblaðið - 09.07.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLl 1975
aðstoðarmaður hans leita að leifum í skurðinum og moldarbingnum.
Áhugasamir strákar fylgjast með og gefa göð ráð. — Drengirnir, sem
fundu beinagrindina, heita: Karl Jóhann Ingðlfsson, Gunnar Þór
Adolfsson, Jóhann Albert Friðriksson, Einar Karl Jónsson og Sigurjón
Gunnarsson. Þeir eru á aldrinum II—15 ára. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.
— Beinagrind
Framhald af bls. 32
frekari rannsóknir á staðnum, þar
sem beinagrindin fannst, og
höfðu um hádegið fundið nokkur
bein til viðbötar. Eftir hádegið
komu rannsóknarlögreglumenn
aftur á vettvang og fínkembdu
nú moldina sem strákarnir höfðu
mokað upp, og grófu auk þess
meira á staðnum. Sú rannsókn
leiddi í ljós nokkrar beinaleifar
til viðbótar og sokk og alls hafa
-nú fundist þrjár byssukúlur, sem
alla'r virðast vera eins, skamm-
byssukúlur af stærðinni 45 cali-
ber.
A þessum stað, þar sem beina-
grindin fannst, voru talsverð
mannvirki á stríðsárunum, m.a.
braggar og skotæfingasvæði.
Reyndist beinagrindin liggja í
steinsteyptum stokki, sem her-
mennirnir munu hafa staðið i, er
þeir voru að skotæfingum, Kunna
byssukúlurnar að vera frá þeim
tíma, enda eru skammbyssur með
hlaupvídd 45 caliber mjög óal-
gengar hér á landi, en hafa hins
vegar verið mikið notaðar af her-
mönnum viða um heim, t.d. hafa
brezkir hermenn mikið notað
þær.
Rústir braggahverfisins og
æfingasvæðisins voru vinsælt
leiksvæði barna úr nágrenninu í
mörg ár eftir stríðslok, en íbúar
hverfisins telja að þær hafi verið
jafnaðar við jörðu og rutt mold
yfir þær um 1955. Benda því líkur
til þess, að líkið, sem beina-
greindin er úr, hafi verið grafið
þarna eftir 1955, þ.e. einhvern
timann á síustu 20 árum. Hins
vegar eru beinin talsvert fúin og
brotin og litlar leifar aðrar, nema
þrjár tölur og sokkar, hafa
fundizt og bendir það til þess, að
talsvert langt sé síðan líkið var
grafi. Það kann þó að hafa verið
fáklætt mjög og því finnist litlar
sem engar fataleifar nú.
Sá möguleiki er fyrir hendi, að
þarna hafi ekki verið grafið lík,
heldur hafi einhver lent þarna
niður í skurð og orðið úti.
Þetta mál hefur vakið mikla
undrun íbúanna í næstu húsum,
enda eru aðeins um30 metrar frá
beinagrindargröfinni að næsta
húsi við Faxaskjól. Þykir ýmsum
það furðulegt, ef einhver hefur
talið þennan stað öðrum heppi-
legri til að grafa lík.
Þá er einnig sá möguleiki fyrir
hendi, að beinagrindin hafi legið
þarna í jörðu frá því á stríðs-
árunum og sé eitthvað við-
komandi þeim hermönnum, sem
þarna höfðu aðsetur.
Rannsóknarlögreglan hefur
alla þessa möguleika í huga við
rannsókn málsins. Þó er við því að
búast, að fyrst verði reynt að
ganga úr skugga um hvort beina-
grindin sé úr íslenzkri manneskju
og hafa í þvi sambandi verið
teknar fram skýrslur um allt það
fólk sem týnzt hefur á undanförn-
um árum og áratugum án þess að
spurzt hafi til þess síðan. Þegar
fyrir liggja upplýsingar um kyn,
líklega hæð og jafnvel aldur
þeirrar manneskju, sem beina-
grindin er úr, ætti að vera unnt að
beita útilokunaraðferðinni til að
þrengja mjög þann hóp, sem til
greina kemur.
En þá á samt ennþá eftir að
finna þann eða þá, sem stóðu fyrir
þvi, að lík væri grafið á þessum
stað og aðdraganda þeirrar
greftrunar, ef um slíkt hefur
verið að ræða.
— Neyðarlending
Framhald af bls. 32
Hann sagði, að þegar svona
bæri að höndum héldi slökkvilið-
ið sig nokkuð fjarri vélunum ef
sprengja skyldi springa. Flug-
vallaryfirvöld sæju hinsvegar um
móttöku farþeganna.
Pétur Guðmundsson, flyg-
vallarstjóri, sagði, að fyrstu við-
brögðin hefðu verið að vinna eftir
sérstakri áætlun, meðal annars að
koma farþegabílum út á völl til að
taka farþegana, og eina óhappið
hefði verið þegar kona hefði
meiðzt á fæti. Farið hefði verið
með fólkið inn í flugstöðvarbygg-
inguna, þar sem hlynnt var að því,
en sumt var mjög miður sín og
Loftleiðir hefðu tekið að sér að
koma því fyrir á hótelum í
Reykjavík.
Að sögn Sveins Eiríkssonar var
strax byrjað á því að leita í hand-
töskum, sem farþegar voru með,
en reyndar hafði flugstjórinn
verið beðinn um að sjá til þess að
allur farangur yrði skilinn eftir
inni í vélinni. Eftir það hefði verið
ákveðið að láta vélina standa yfir-
gefna til kl. 8 í morgun, en þá áttu
6 sprengjusérfræðingar frá hern-
úm að hefja leit um borð. Einnig
átti þá að flytja allan farangur
farþega í afvikna byggingu á
vellinum. Siðan átti að láta hvern
og einn ná I sinn farangur, sem
svo verður leitað í.
Ridchard flugstjóri vélarinnar,
vildi ekkert um málið segja í gær-
kvöldi.________ ________
— Isabel
Framhald af bls. 1
benzínverð um 180%, auk ann-
arra almennra hækkana á neyzlu-
vörum. Þessar ráðstafanir, auk
launaþaksins, leiddu til alls-
herjarverkfallsins.
Alvarlegustu afleiðingar alls-
herjarverkfallsins urðu í hafnar-
borginni La Plata. Þar sagði lög-
reglan að fimm manns hefðu ver-
ið myrtir og einn særður I árásum
hermdarverkamanna, sem
hugsanlega væru af pólitískum
toga.
Ákvörðunin um að aflýsa verk-
fallinu var tekin eftir tveggja
klukkustunda fund leiðtoga CGT
með frú Peron. I yfirlýsingu sam-
bandsins eru verkamenn kvaddir
aftur til starfa og lýst er stuðningi
þess við forsetann persónulega.
Þá skuldbindur CGT sig til að
verkamenn vinni einn dag auk-
reitis í hverjum mánuði til að
„leggja sitt af mörkum til að
styrkja efnahág landsins". Þessir
kaupsamningar renna út 30. maí
1976.
Síðar i kvöld varð Isabel Peron
fyrir annarri pólitískri auð-
mýkingu, er argentínska öldunga-
deildin kaus sér nýjan forseta,
sem samkvæmt reglum
mun taka við forsetaembættinu
af henni ef hún verður ófær um
að gegna því, segir af sér, veikist
eða deyr. Forseti deildarinnar er
gamalreyndur þingmaður úr
flokki Perónista, Italo Luder, 59
ára gamall sonur ítalsks inn-
flytjanda.
— Svartsengi
Framhald af bls. 2
21. 4. 1975 og er svar hitaveit-
unnar við því dags. 6. 5. 1975.
Félag landeigenda hafnaði til-
boði hitaveitunnar og setti jafn-
framt fram samkomulagsgrund-
völl með bréfi dags. 23. maí 1975.
Tilboðið var í fyrsta lagi um verð-
mat landeigenda á afli þvf, sem
þarf til virkjunar fyrir sveitar-
félögin á Suðurnesjum og nam
það kr. 2 millj. mw, 41.3 mw, eða
alls 83 millj. króna. Af þessari
fjárhæð bauðst félagið til að
leggja fram til sveitarfélaganna
allt að 30 millj. króna þannig að
kaupverð þessa hluta aflsins
hefði numið 53 millj. króna I
formi útborgunargreiðslu I eitt
skipti fyrir öll.
1 öðru lagi bauðst félagið til aó
selja viðbótarafl, t.d. vegna virkj-
unar fyrir Keflavíkurflugvöll,
stóriðju, stækkun vegna sveitar-
félaganna eða annað og mat
félagið það afl á kr. 4 millj./mw í
formi útborgunargreiðslu I eitt
skipti fyrir öll. Aflþörf Kefla-
vfkurflugvallar er nú áætluð
40—45 mw.
1 þriðja lagi bauðst félagið til að
leigja hitaveitunni allt það land,
sem hún kynni að þarfnast og auk
þess að selja henni land undir
varanleg mannvirki, ef hún
óskaði þess og veita réttindi til
vinnslu á köldu vatni. Verðmats
var ekki getið í þessum þætti til-
boðsins.
Aðilar áttu nú allmarga fundi
um málefnið, en með bréfi dags.
24. júnf s.l. hafnaði hitaveitan til-
boði landeigenda.
Á fundi höldnum hinn 25. júní
s.l. náðist samkomulag með aðilj-
um um það að freista samkomu-
lags á þeim grundvelli að samið
yrði um kaup hitaveitunnar á
landi og landsgæðum, en gerðar-
dómur (matsmenn) réði þeim
atriðum til lykta, sem samkomu-
lag næðist ekki um og er þar
aðallega um verðmat gæðanna að
ræða. Er þegar unnið að drögum
samnings á þessum grundvelli og
var við það miðað, að þeirri vinnu
yrði lokið innan tveggja vikna.
— 50% aflans
Framhald af bls. 3
mest var hér um tveggja ára fisk.
Þá var líka annar togari með
minni möskva en lög gera ráó
fyrir, en líklega má kenna neta-
verkstæði því er togarinn skiptir
við um það.
— Samdráttur
Framhald af bls. 2
innflutningsgjöldum af bifreiðum
leiðir og I ljós mikinn samdrátt í
bílainnflutningi.
Skuld ríkissjóðs við Seðla-
bankann er sögð hafa aukizt um
2300 m.kr. á fyrstu fjórum mán-
uðum ársins, en hinsvegar hafi
staðan gagnvart ba’nkanum batn-
að um 900 m.kr. í maímánuði.
Aukning gjalda rfkissjóðs og
skattalækkanir bendi til
óhagstæðrar þróunar ríkis-
fjármála á næstu mánuðum, en
tekjumissir ríkissjóðs vegna
skattalækkana sé áætlaður um
2000 m.kr.
I lok skýrslu Seðlabankans seg-
ir: „Þótt heimiid til niðurskurðar
ríkisútgjalda sem nemur 3.500
m.kr. verði nýtt að fullu, og
áfengi og tóbak hafi hækkað
nýlega um 30%, sem gefur
600—700 m.kr. i viðbótartekjur,
eru horfur á þó nokkrum
greiðsluhalla hjá ríkissjóði I ár,
verði ekki gripið til frekari ráð-
stafana“.
Ábendingar
fjármálaráöuneytis
1 tilefni umræddra uþplýsinga í
riti Seðlabankans sneri blaðið sér
til fjármálaráðuneytisins og leit-
aði fregna af stöðu þessara mála
að dómi þess. Þær upplýsingar,
sem blaðið fékk í ráðuneytinu,
fara orðrétt hér á eftir.
„Við samanburð á tölum um
ríkisfjármál á fjórum fyrstu mán-
uðum áranna 1974 og 1975, ber að
hafa í huga, að jafnan er um að
ræða árstíðabundnar sveiflur i
ríkisfjármálunum, og er nauðsyn-
legt að taka tillit til þeirra í
slíkum samanburði. Þetta er
i rauninni ekki gert í
umræddri grein, og koma
þar því fram nokkuð ýktar
tölur fyrir árið í ár. Alkunnugt er,
að fjárlög ársins 1975 hækkuðu
um rösklega 60% frá árinu 1974,
og er því ekki að undra, þótt
heildartölur um gjöld og tekjur
séu hærri á fjórum fyrstu mánuð-
um ársins en á sama tímabili
1974. Utkoma ríkissjóðs það sem
af er árinu er ekki langt frá þeim
mánaðarlegu áætlunum, sem
gerðar voru fyrr á árinu í fjár-
laga- og hagsýslustofnun, og i
júnilok er greiðsluafkoman jafn-
vel betri en þar var gert ráð fyrir,
þrátt fyrir halla, sem jafnan er
mestur framan af árinu, en þá var
skuld ríkissjóðs við Seðlabankann
5.574 m.kr.
Varðandi athugasemdir í um-
ræddri grein um slæma inn-
heimtu tekju- og eignaskatts, virð-
ist sú fullyrðing byggð á misskiln-
ingi, þar sem tekjur ríkissjóðs af
þessum sköttum eru meiri við lok
april en reiknað hafði verið með,
eins og raunar kemur fram fram-
ar í þessari sömu grein.“
— Að fá’ann
Framhald af bls. 2
við veiði á aðalveiðísvæðinu í
Norðurá í Borgarfirði. Þann 1.
júlí voru komnir 608 laxar á
land úr ánni, en ekki nema 427
laxar á sama tíma í fyrra. Frið-
rik Stefánsson hjá Stangaveiði-
félaginu sagði, að vel gengi að
selja í allar ár, sem félagið væri
með á leigu, en einhver veiði-
leyfi væru eftir í Norðurá og
Grímsá í ágúst.
— Frakkar
Framhald af bls. 3
víkka sjóndeildarhring þeirra. Ég
hef stuðning íþrótta- og unglinga-
málaráðuneytisins, sem hefur
gefið mér meðmæli og ráðuneytið
hafði einnig samband fyrir mig
við íslenzka sendiherrann í Paris,
sem var mjög jákvæður gagnvart
ferð okkar hingað. Þess vegna er
ég leiður yfir skrifum sem hafa
orðið um okkur I Þjóðviljanum,
ekki sízt þar sem við vinnum sízt
meiri spjöll uppi á jöklum en
venjulegur snjóbíll."
Eins og áður sagði er náttúru-
verndarráð lítt hrifið af ferð
Frakkanna og hafði Árni Reynis-
son samband við Mbl. I gær og
sagði ráðið vilja ítreka það að
samkvæmt íslenzkum lögum er
óheimilt að aka utan vegar á Is-
landi að nauðsynjalausu og að það
lítur ferðina mjög alvarlegum
augum.
— Argentína
Framhald af bls. 15
þykir það vafasöm staðhæfing.
Eftir nám i enskum gagn-
fræðaskóla gekk Lopez í lög-
regluna og hann hitti Peron
ekki fyrr en einhverntíma
ársins 1954, er hann var tekinn
í lífvörð hans. Rega fylgdi
Peron ekki í útlegðina og var
enn liðþjálfi í lögreglunni, er
hann sagði af sér starfinu þar
árið 1962. Tólf árum síðar
útnefndi hin nýja peronista-
stjórn hann hershöfðingja, —
hækkaði hann um 16 þrep i
tignarstiga hersins.
Samkvæmt opinberri ævi-
sögu Lopez er hann maður
kvæntur og dóttir hans Norma
að nafni er gift Raul Lastriri
forseta fulltrúadeildar þings-
ins, kunnum peronista. En
nafns konu hans er hvergi getið
og ekkert um hana vitað.
Á árunum 1962—65 átti
Lopez Rega eignaraðild að litlu
útgáfufyrirtæki, sem gaf út
bækur um stjörnuspeki, —
margar eftir hann sjálfan. 1
einni þeirra „Alfa og Omega“,
segir hann frá því er Gabriel,
erkiengill, vitjaði hans í svefni.
Þegar Isabella Peron kom í
heimsókn til Argentínu árið
1965 var Rega settur lífvörður
hennar. Var það upphafið að
sambandi þeirra, sem haldizt
hefur æ siðan, — þvi að hann
fór með henni til Madrid, þegar
hún hvarf þangað aftur og gerð-
ist þar einkaritari Perons.
Við valdatöku Perons í
Argentínu á ný var honum
launuð átta ára dyggileg
þjónusta sem einkaritara hers-
höfðingjans með því að skipa
hann í embætti félagsmálaráð-
herra. Það er býsna áhrifa-
mikið því að undir það heyra
gildir sjóðir, svo sem eftir-
launasjóðir, happdrætti og veð-
málasjóðir ríkisins. Þegar
Peron féll frá skipaði Isabella
Rega persónulegan ráðgjafa
sinn og einkaritara og fékk hon
um það verkefni að samræma
störf ráðuneytisins, — sem
jafngilti í raun embætti for-
sætisráðherra. Eftir því sem
ljósar hefur komið fram hver
völd Rega innan stjórnarinnar
hafa verið, hefur andstaðan
gegn honum magnazt og nýlega
lét morgunblaðið „La Opinion"
sem telzt óháð stjórnmálasam-
tökum, að því liggja að hann
væri viðriðinn starfsemi hægri
sinnaðra morðsveita, sem kalla
sig „bandalag argentínskra
andkommúnista" og gefið er að
sök að hafa átt hlutdeild i
meira en 500 pólitískum
morðum í Argentínu á síðasta
ári. (Reuter).
— Fiskeldi
Framhald af bls. 2
inum og væru þeir að láta rann-
saka hverskonar seiði það væru.
— I haust ætlum við okkur svo
að setja nokkuð af smáufsa í eldi
hjá okkur, og það verður gaman
að sjá hvernig hann dafnar, en
engin reynsla er af ufsaeldi hér,
og því er ekki að vita hvernig það
heppnazt en vi.ð höfum hug á að
rækta fleiri tegundir sagði
Bergur.
— Valsmenn
Framhald af bls. 31
um, sem við fengum, sagði Haf-
steinn.
— Við erum orðnir ýmsu vanir hér
á Akranesi og þó svo að við vonuð-
umst eftir að fi Bayern Mtinchen
eða lið af svipuðum gæðaflokki I 1.
umferðinni þá verðum við bara að
taka þessu, sagði Kristján Sveinsson
I Knattspyrnuráði Akraness, er við
ræddum við hann I gær. — Við erum
ekkert farnir að ræða hvað við ger-
um, hvort við leikum heima og
heiman, eða báða leikina á öðrum
hvorum staðnum, en andstæðingar
okkar frá Kýpur eru ekki sterkir svo
við ættum að hafa mikla möguleika
á að komast I aðra umferð keppn-
innar sagði Kristján.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 12
lega er það að segja að hann verð-
ur aldrei meiri né betri en undir-
staðan.
Það er því miður of sjaldan að
fræðimenn hrista af sér slenið, gá
til lofts og hyggja að hvar þeir
standa. Sagnfræðin er í raun og
veru íslenskust allra fræðigreina,
gömul og rótgróin með þjóðinni
og gæti þar af leiðandi verið hætt-
ara við stöðnun en öðrum og yngri
greinum, eða er ekki svo? Varnar-
orð Björns Þorsteinssonar eru
hins vegar tímabær með hliðsjón
af öllum okkar menntamálum. Og
að öllu samanlögðu er hressandi
blær yfir þessari Sögu, þökk sé
ritstjórunum, þeim Birni Sigfús-
syni, nafna hans Teitssyni og Ein-
ari Laxness.
Erlendur Jónsson.