Morgunblaðið - 09.07.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JULI 1975
29
X/ELX/AKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 2—3, frá mánudegi til föstu-
dags.
% Næturflug Sunnu
Guðni Þórðarson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Sunnu, hefur
óskað eftir birtingu á þessari at-
hugasemd:
„Vegna ummæla Köru Briem,
Ægissíðu 60, um dagflug og næt-
urflug, þar sem hún réttilega
bendir á kosti þess að geta flogið
að degi til, en kvartar jafnframt
yfir því að hafa þurft að leggja af
stað heiman að frá sér kl. hálf
fimm að morgni.
Það atvik, sem hún vitnar hér
til er eina skiptið, sem þurft hef-
ur að flýta brottför vegna yfirvof-
andi stöðvunar flugs I sambandi
við yfirvinnubann flugumferðar-
stjóra. Var talið rétt að flýta þess-
ari brottför frekar en farþegar
ættu það á hættu að komast ekki
fyrr en seint og síðar meir i sólar-
landaferð sína. Annars skal það
tekið fram af gefnu þessu tilefni,
að brottfarartimi flugvélar í allar
ferðir Sunnu til Spánar, ítalíu og
Kaupmannahafnar eru kl. 10 að
morgni frá Keflavíkurflugvelli,
nema til Costa del Sol, þá er brott-
för kl. 5 síðdegis á laugardögum.
Er því dagflug i öllum Sunnuferð-
um, nema verkföll, veður eða aðr-
ar óviðráðanlegar orsakir kunni
að valda þar breytingu.
Það skal jafnframt tekið fram,
að síðan Sunna fór að nota Boe-
ing-þotur til ferða sinna fyrir
meira en ári hafa þessar þotur
flogið um 300 ferðir yfir Atlants-
hafið, en ekki komið til nema
tveggja lítilsháttar seinkana af
tæknilegum ástæðum.
Guðni Þórðarson."
0 Hví eru gæzlu-
vellir opnir
á laugardögum?
Þórður Jónsson, Grettisgötu 46,
hafði samband við Velvakanda og
fórust honum orð á þessa leið:
„Mér finnst alltof lítið talað um
þá þjónustu, sem Reykjavíkur-
borg veitir barnafólki með starf-
rækslu gæzluvallanna. Ég held,
að það sé einsdæmi á Norðurlönd-
um, að þessi þjónusta sé án end-
urgjalds.
Mér er kunnugt um það, að kon-
urnar, sem starfa við gæzlu á
þessum völlum hafa lengi reynt
að fá því framgengt, að gæzluvell-
irnir verði lokaðir á laugardags-
morgnum, en það hefur ekki tek-
izt af einhverri ástæðu.
Sjálfum finnst mér ósanngjarnt
að ætlast til þess að konurnar séu
bundnar í þessu starfi þegar flest-
ar starfsstéttir eiga frí, og nú
með naumindum að hann gat
staðið uppréttur.
Giugginn var opinn. Loftið var-
svalt, og geislar sólarinnar féllu á
hann eins og ástaratlot. Húsmóðir
I grenndinni hafði notað góða
veðrið tii að hengja þvott til þerr-
is hinum megin við gótuna. Frá
skólaporti í grenndinni heyrðust
hlátrasköll.
Leroy, sem sat yzt á járn-
rúminu, sagði:
— Ég skil enn ekki þær aðferð-
ir, sem þér beitið, herra lögregiu-
foringi, — en mér finnst eins og
mig sé farið að gruna eitthvað...
Maigret leit glaðlega á hann og
blés þykkum reykjarmekki inn f
sótargeislann.
— Þá eruð þér svei mér
heppnir, góði vinur! Sérstaklega
hvað snertir þetta mál, þar sem
aðferð mín hefur einfaldlega ver-
ið sú að vinna ekki eftir neinni
aðferð... Ef þér viljið hlýða á
gott ráð og hafið áhuga á að kom-
ast áfram skuluð þér alls ekki
taka mig til fyrirmyndar eða
reyna að draga ályktanir af því
scm þér sjáið mig gcra...
— Já en,.. ég sé að þér hafið f
höndunum áþreifanlegar vfs-
bendingar... eftir að.
— Einmitt. Eftir á. Eftir allt
langar mig til að biðja borgaryfir-
völd að svara því hvers vegna
gæzluvellirnir eru opnir á laugar-
dögum, þegar langflestar borgar-
stofnanir eru lokaðar."
0 Hvar eru hug-
sjónamennirnir?
Þannig spyr Svb. Sig., sem
skrifar á þessa leið:
„Fyrir nokkrum dögum var
þess minnzt, að fyrsta góðtempl-
arastúkan var stofnuð í Reykjavík
árið 1885. Minningartafla var með
viðhöfn greypt á húsið, þar sem
þessi atburður gerðist. Það er
gott, að þess sé minnzt, er til
heilla horfði í bæjarlífinu.
Sú var tíðin, að Reglan átti við
Tjörnina lftið samkomuhús, reist
af vanefnum, en áhuga hugsjóna-
manna er bæta vildu félagslif I
bænum. Framan við húsið var
hlýlegur, vel hirtur skrúðgarður
— bæjarprýði i skrautleysi
Reykjavíkur fyrri ára. Margur
æskumaðurinn naut þarna gleði-
stunda og hollra samvista við
jafnaldra og eldri félaga.
Þetta gamla, lítt ásjálega hps
hlaut að hverfa fyrir nýju skipu-
lagi og er eigi að harma það. Garð-
urinn græni varð malbikað bíla-
stæði fyrir alþingismenn af illri
nauðsyn.
Templarar fengu nýja lóð á
ágætum stað, sjálfu Skólavörðu-
holti. Þar reistu þeir veglega höll
úr gleri og steinsteypu eftir
smekk og kröfum tímans.
Þessi höll mun að mestu hafa
verið fullgerð fyrir 8—9 árum, en
næsta umhverfi hennar hefur
enn enginn sómi verið sýndur.
Þarna stendur glerhöllin, ein-
mar ' ' óhrjálegri urð, eins og
talandi tákn hirðuleysis og trassa-
skapar.
Enginn venjulegur húsbyggj-
andi hér í borg er svo aumur, að
hann hafi ekki snyrt lóð sína á
mun skemmri tima.
Hvar eru nú hugsjóna- og
áhugamenn þess ágæta félags-
skapar, er hér hóf starf fyrir 90
árum?
Getur félagsskapur, sem hafði
— og hefur enn .á stefnuskrá að
bæta og fegra mannlífið og þá
ekki sizt að laða æskufólk til sam-
starfs, unað gróðurlausri urð um-
hverfis höll sína öllu lengur?
Svb. Sig.“
0 Fljúgandi diskar
Ellen Bjarnadóttir skrifar:
„Komdu sæll og blessaður, Vel-
vakandi.
Þann 29. júní s.l. talaði Þor-
steinn Guðjónsson í útvarpið. Um-
ræðuefnið var: Hvað eru fljúg-
andi diskar, frásgnir og skýring-
ar. Þegar Heimaey var að spúa
eldi i maí 1973 var sjálfvirk
myndavél I gangi og sagði Þor-
steinn, að þegar filman hefði ver-
ið framkölluð, hefði komið í ljós
málmkenndur hlutur, sem Ieið
um loftið góðan spöl. Einnig sagði
hann, að islenzka rikið ætti film-
una. Gætir þú frætt mig á þvi,
hvort hugsanlegt væri að fá að sjá
þessa umræddu kvikmynd?
Ellen Bjarnadóttir."
Þvi miður hefur Velvakandi
ekki umbeðnar upplýsingar, en
geti einhver lesenda frætt Ellen á
þessu, mun Velvakandi birta
svarið.
HÖGNI HREKKVÍSI
1975 4 - 2/
MrNauKht
Syndieate. Inc.
k
FALMER
GALLABUXUR
EFNl: FLAUEL&DENIM
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU