Morgunblaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1984
+
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö
andlát og útför
ÞÓRU RUNÓLFSDÓTTUR.
Ingólfur Birgisson,
Kristín Skaftadóttir,
Guölaug Runólfsdóttir,
Jóhann Runólfsson,
Ólöf Guöjónsdóttir,
Gréta Runólfsdóttir,
Ólafur Frímannsson,
Bergþóra Þorsteinsdóttir
og fjölskyldur.
Útför móöur okkar og frænku,
MARGRJETAR E. ÞORSTEINSDÓTTUR,
éöur é Vesturgötu 33,
verður gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 3. aþríl kl. 15.00.
Magnús Friöriksson, Rannveig Friöriksdóttir,
Þorsteinn Friöriksson, Guörún M. Friöriksd. Nielsen,
Oddrún Jörgensdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
GUDMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
fyrrverandi kaupmanns,
Móabarði 24, Hafnarfiröi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landakotsspitala,
eigenda og starfsfólks i Fjaröarkaup hf. og til stjórnar íþrótta-
bandalags Hafnarfjarðar.
Anna Christensen,
Hanna Petra Guömundsdóttir, Helga Guömundsdóttir,
Jónína Rós Guömundsdóttir, Bergur Jónsson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
MARSVEINS JÓNSSONAR,
Álfaskeiói 28,
Hafnarfiröi.
Sólveig Guösteinsdóttir,
Haukur Marsveinsson, Hulda Valdimarsdóttir,
Valgeróur Marsveinsdóttir, Jón Stefánsson,
Bragi Marsveinsson, Unnur Maríasdóttir,
Guórún Marsveinsdóttír, Béra Marsveinsdóttir,
Rúna Marsveinsdóttir, Gunnar Kr. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
hlýhug viö andlát og útför sonar okkar,
HLYNS EGGERTSSONAR.
Þórhildur Jónsdóttir, Eggert Á. Sverrisson.
+
Útför móöur minnar,
SOFFÍU SIGURÐARDÓTTUR,
(áöur á Skólavörðustíg 44A),
sem andaöist á Droplaugarstööum 21. mars, fer fram frá Bústaða-
kirkju mánudaginn 2. april kl. 13.30.
Soffía Smith og fjölskylda.
Soffía Siguröar-
dóttir - Minning
Fædd 29. apríl 1890
Dáin 21. mars 1984
Á morgun, 2. apríl, verður gerð
frá Bústaðakirkju útför Soffíu
Sigurðardóttur, sem lést á Drop-
laugarstöðum, dvalarheimili aldr-
aðra, hinn 21. fyrra mánaðar.
Soffía fæddist á Stokkseyri hinn
29. apríl 1890 og skorti því aðeins
rúman mánuð til að ná níutíu og
fjögurra ára aldri.
Foreldrar hennar voru hjónin
Soffía Pálsdóttir og Sigurður
Jónsson sjómaður. Systkinin voru
tíu og var Soffía elst, en varð síð-
ust til að kveðja þessa jarðartil-
veru.
Á þessum árum var oft þröngt í
búi hjá barnmörgum fjölskyldum.
Nær eingöngu varð að treysta á
sjóinn, en gæftir voru stopular og
oft fiskaðist lítið. Heimilið mun þó
ekki hafa liðið skort, enda dugnað-
ur og útsjónarsemi í hvívetna set-
ið í fyrirrúmi. Lífsbaráttan var fá-
dæma hörð og hin miklu og marg-
víslegu þægindi sem við búum við
nú óþekkt með öllu.
Það er oft á tíðum eins og erfið-
leikar efli og laði fram bestu eig-
inleika hjá fólki, sem hefur áræði
og kjark til að takast á við þá.
Framlag aldamótakynslóðarinnar
er stórt í uppbyggingu þessa lands
og þar lét Soffía sannarlega ekki
sinn hlut eftir liggja.
Soffía var vel greind og fróð-
leiksfús og hefði kosið lengra nám
en nokkra mánuði í barnaskóla.
Um slíkt var auðvitað ekki að
ræða.
Árið 1909 yfirgaf Soffía
foreldrahús og flutti til Reykja-
víkur, þar sem hún bjó síðan. Á
þessum árum var ekki margra
kosta völ um atvinnu fyrir ungar
stúlkur. Fyrst fór hún í vist, eins
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Líf og dauði
Hvað átti Jesús við, þegar hann sagði: „Hver sá, sem lifir og trúir
á mig, hann skal aldrei að eilífu deyja“? Þýðir þetta, að við
munum alls ekki deyja, ef við höfum nógu sterka trú?
Nei, það er ljóst, að Jesús átti ekki við það, heldur
hitt, að dauðinn er ekki lengur óvinur, sem við þurfum
að óttast, ef við trúum á Krist. Ástæðan er sú, að fyrir
trúuðum, kristnum manni er dauðinn innganga til eilífs
lífs.
Orðin, sem þér vitnið til, eru í Jóh. 11,26. Þau eru úr
samtali Jesú við Mörtu í Betaníu. Mikilvægt er að
byggja að því, sem hann segir á undan: „Eg er upprisan
og lífið. Sá, sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og
hver sá, sem lifir og trúir á mig, hann skal aldrei að
eilífu deyja" (Jóh. 11,25— 26).
Takið vel eftir, að í fyrstu orðunum kemur fram, að
við erum ekki laus við dauðann. En Jesús heldur áfram
og segir, að dauðinn skuli ekki gera okkur mein, því að
við munum „aldrei deyja", við munum „lifa“ og það að
eilífu.
Þetta eru dásamleg sannindi. Biblían kennir, að dauð-
inn sé óvinur. Dauðinn kom í heiminn vegna syndarinn-
ar, og með því að við erum öll syndarar, munum við
einhverntíma deyja.
En fremur segir Biblían, að við séum skilin frá Guði
vegna syndar okkar, og sá dagur kemur er við deyjum og
verðum ein í eilífðinni, fjarri Guði.
En Biblían segir líka, að við þurfum ekki að óttast
dauða og dóm, því að Guð elskaði okkur og sendi son
sinn í heiminn til þess að taka í burtu brodd dauðans.
Hann dó fyrir okkur á krossinum. Hann þoldi dóm og
vítiskvöl, sem átti að verða hlutskipti okkar, af því að
hann elskaði okkur. Við getum frelsast, ef við trúum á
hann og treystum honum. Við þurfum ekki að óttast
framtíðina, af því að við vitum, að við eigum örugga
heimvon á himnum, ef við tilheyrum Kristi.
Hafið þér sett traust yðar á Krist sem frelsara yðar
og Drottin? Ef ekki, þá hvet eg yður til að snúa yður til
hans í iðrun og trú. Þá kynnist þér þeirri gleði að
horfast í augu við dauðann óttalaust, í von og trú.
+
Eiginmaöur minn,
ÓLAFURJÓNSSON
frá Brautarholli í Vestmannaeyjum,
andaöist í Landspitalanum föstudaginn 30. mars.
Sigrún Lúövíkadóttir, börn og barnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
og það er kallað. Síðan lá leiðin í
fiskvinnu og í síld í nokkur sumur.
En lengst vann hún á Hótel Borg
eða í hálfan þriðja áratug. Soffía
var harðdugleg til allra verka og
vel látin af húsbændum sínum.
Hún var ljúf í lund, glaðvær og
átti létt með að umgangast fólk.
Það vakti athygli hve hún var kvik
í hreyfingum og létt í spori. Soffía
var líka grönn og fremur lág vexti,
fríð sýnum og hárið mikið og
dökkt.
1 skemmtilegu viðtali sem
blaðamaður Morgunblaðsins átti
fyrir stuttu við Soffíu segir meðal
annars:
„En skemmtilegasta atvinna
sem ég hef haft um dagana er að
servera ... Það var nú starf sem
átti við mig. Ég var svo fljót á fæti
að hann Jóhannes á Borg þekkti
fótatakið mitt frá því að ég kom
hlaupandi fyrir hornið á apótek-
inu, en af tuttugu stúlkum vorum
við sex sem vorum í sérstöku
uppáhaldi hjá honum."
Til skýringar skal þess getið að
árið 1930 þegar Hótel Borg var
opnuð var ekki mikil umferð í
miðbænum snemma á morgnana.
Síðar á ævinni vann Soffía í
kaffisölunni á Aðalstræti 9, og í
meira en áratug hellti hún upp á
könnuna hjá Morgunblaðinu. Það
starf féll henni vel. Erill, umstang
og hraði var henni að skapi. Þar
eignaðist hún líka marga góða
kunningja. Hún var áttræð er hún
lét þar af störfum. Það fer þess
vegna ekki á milli mála að starfs-
dagurinn var orðinn langur.
Hinn 20. október 1918 giftist
Soffía Haraldi Jóhannessyni bíl-
stjóra. Þau eignuðust eina dóttur,
Soffíu Aðalheiði, bráðmyndarlega
og laglega stúlku. Stuttu eftir gift-
inguna veiktist Haraldur af berkl-
um og varð að fara á hæli þar sem
hann þurfti að dvelja langdvölum.
Eftir nokkur ár skildu þau.
Um það leyti sem Soffía giftist
réðst hún í það að kaupa lóð efst á
Skólavörðustíg. Það hafa trúlega
ekki margar ungu konurnar á öðr-
um tug aldarinnar lagt út í það
stórvirki að byggja yfir sig. En
það óx henni ekki í augum og allt
blessaðist þetta.
Soffía var ekki gefin fyrir breyt-
ingar, allan sinn búskap bjó hún í
húsi sínu á Skólavörðustígnum
eða í 62 ár. Aðeins tæp tvö síðustu
árin dvaldi hún á Droplaugarstöð-
um, dvalarheimili aldraðra. Þar
þótti henni gott að búa. Hún var
þakklát fyrir þá góðu umönnun og
hlýju sem hún varð þar aðnjót-
andi, ekki síst síðustu vikurnar.
Soffía Aðalheiður ólst alfarið
upp hjá móður sinni og var mjög
kært með þeim mæðgunum alla
tíð. Eftir að dóttirin giftist var
Soffía kyrr í húsi sínu, á Skóla-
vörðustíg 44a.
Maður Soffíu Aðalheiðar var
Gunnar Smith verslunarmaður,
sem nú er látinn fyrir nokkrum
árum. Þau eignuðust fjóra syni,
Karl, Örn, Gunnar og Hilmar, alla
mestu efnismenn. Gunnar Smith
reyndist tengdamóður sinni mjög
vel og var boðinn og búinn að létta
undir með henni og aðstoða á all-
an hátt er árin færðust yfir.
Barnabörnin komu nær daglega
í heimsókn til ömmu sinnar. Þótt
það væri fjarri Soffíu að gera upp
á milli dóttursona sinna var það
samt Kalli, fyrsta ömmubarnið,
sem var yndi hennar og eftirlæti,
enda var hann mjög hændur að
ömmu sinni og hjálpaði henni eft-
ir megni. Synirnir eru allir kvænt-
ir og barnabarnabörnin eru orðin
nlu.
Eiginkonur bræðranna höfðu
líka góð og náin tengsl við Soffíu,
eins og um eina stóra og samhenta
fjölskyldu væri að ræða.
Eins og að líkum lætur var oft
gestkvæmt á heimili Soffíu, enda
var hún með afbrigðum gestrisin.
Hún kunni því líka vel að hafa líf
og fjör í kringum sig.
Börn Haraldar frá síðara hjóna-
bandi komu einnig stöku sinnum í
heimsókn til Soffíu og tók hún
jafn vel á móti þeim eins og væru
hennar eigin börn. Lýsir það betur
mannkostum hennar og hjartalagi
en mörg orð.
Fyrir alllöngu kynntist ég
Soffíu. Hún og tengdamóðir mín,
Elka Jónsdóttir, voru góðar vin-