Morgunblaðið - 01.04.1984, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1984
Sir Lancelot. Niöur á þilfar þess sigum við blaðamennirnir til að komast í samband við umheiminn.
A flota- og her-
æfingum NATO
var sagt að klæða okkur í hann
aftur, þyrla myndi flytja okkur til
annars skips þar sem við gætum
náð sambandi við umheiminn.
Ég ætla mér ekki þá dul að
skýra frá því í hvaða þyrlutegund-
um við flugum þarna á milli skip-
anna, en í raun myndar flotinn
eins konar byggð með aðstoð þyrl-
anna, því á nokkrum mínútum má
„hoppa" frá einu skipi til annars.
Við höfðum ekki flogið lengi frá
Fearless þegar flugliðinn í
farþegarými þyrlunnar tók fram
tóg og okkur varð ljóst að við ætt-
um að síga í því niður á þilfarið á
Sir Lancelot sem var áfangastaður
okkar. Þarna vorum við úti á reg-
inhafi fyrir norðan heimskauts-
baug í kalda og dálitlum sjó og
áttum að fara í „kaðli" niður á
ókunnugt skip. Við því var ekkert
að segja, enda ekki unnt að heyra
mannsins mál í þyrlunni fyrir vél-
argný. Ég sat næst rennihurðinni
og fór því fyrstur niður. Var vel á
móti mér tekið um borð, en heldur
þótti mér torkennilegt að þeir sem
leiðbeindu mér þar voru allir Kín-
verjar.
Sir Lancelot
Sir Lancelot er flutningaskip
breska flotans, um 4.500 lestir.
Þetta eru ekjuskip þar sem til
dæmis má koma fyrir 16 Chiefta-
in-skriðdrekum auk annarra
farartækja og um 350 landgöngu-
liðum. Um borð eru 18 yfirmenn
og 50 manna kínversk áhöfn. Var
okkur sagt að Kínverjarnir kæmu
frá Hong Kong, en þar væru starf-
andi ráðningaskrifstofur sem út-
gerðarmenn gætu hringt til og
pantað skipsáhafnir til ákveðins
tíma. Var einkennilegt að heyra
öll fyrirmæli lesin bæði á ensku og
kínversku um borð í þessu skipi.
Þarna voru einnig tveir blaða-
fulltrúar breska flotans sem buðu
okkur afnot bæði af síma og telexi,
sem tengdust MarSat-gervitungli.
Þetta var minnsta skipið sem
við heimsóttum og hið eina sem
valt að nokkru ráði. Þarna snædd-
um við hádegisverð í góðu yfirlæti
og þeir sem það vildu nutu veit-
inga á barnum, en á öllum bresk-
um herskipum eru vínveitingar,
sem eru stranglega bannaðar í
bandaríska flotanum.
Þegar sex blaðamenn höfðu lok-
ið við að senda fréttir sem urðu að
vera á ensku, væri telexið notað,
var kallað aftur á þyrluna og við
hífðir um borð. Er öruggt að þessi
krókur til að sinna skyldunum við
lesendur líður okkur seint úr
minni.
Takið
eftir
Opið
sunnudag
kl. 14—16
Mikið úrval furusófasetta
Furusófasett meö áklæöi og leöri
3 — 2 — 1og3 — 1 — 1
Verö frá kr. 12.980,-.
Góö greiöslukjör.
Frí heimsending á Reykjavíkursvæöinu.
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, sími 54343.
Þeir vöktu óskipta athygli bílarnir í Miklagarói
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM