Morgunblaðið - 22.03.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1987
Jón Fríðjónsson framkvæmdastjóri fyrir framan fiskvinnslustöð Hvaleyrar h.f. við Vesturgötu i Hafnarfirði.
Hvaleyrin h.fHafnarfirði:
Kannski eru menn
bara svona
yfirfullir af bjartsýni
- segir Jón Fríðjónsson framkvæmdasljórí, en fyrirtækið var í fyrsta sinni rekið
með hagnaði sl. ár eftir margra ára sorgargöngu fyrirtækisins í eigu Hafnarfjarðarbæjar,
HVALEYRIN H.F. í Hafnarfirði
var rekin með hagnaði sl. ár,
eins og skýrt var frá í frétt Morg-
unblaðsins nýverið. Fyrirtækið
var stofnað eftir kaup nokkurra
aðila á Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar og fyrirtækisins Júní Stá
i júnimánuði 1985, en síðasta
heila rekstrarári Bæjarútgerðar-
innar og Júní Stá var rekstrar-
hallinn tæplega 113 milljónir
króna. í árslok 1984 var eiginfj-
árstaða fyrirtækjanna neikvæð
um 100 milljónir kr. Mikið fjaðra-
fok var í kringum sölu Bæjarút-
gerðarinnar og Júni Stá til
einkaaðila á sínum tíma og var
það eitt helsta kosningamálið í
Firðinum nokkru áður. Endan-
legar tölur yfir hagnað Hvaleyr-
arinnar á sl. ári liggja ekki fyrir,
þó vitað sé að niðurstaðan er
jákvæð. Þrátt fyrir þá niðurstöðu
hefur það valdið fyrirtækinu erf-
iðleikum, að engin bankastofnun
hefur treyst sér til að taka það
í viðskipti. Okkur lék forvitni á
að kanna stöðu fyrirtækisins
nánar og ræddum því við Jón
Friðjónsson framkvæmdastjóra
og eiganda eins níunda hluta
þess, en hina hlutina, átta tals-
ins, eiga fjórir eigendur Hag-
virkis h.f., þ.e. fjóra hluta, og
Samheiji h.f. á Akureyri hina
fjóra. Ennfremur var rætt við
aðila, sem gjörþekkir fjárreiður
Bæjarútgerðarinnar og Júní Stá,
eins og þær voru á sínum tíma,
og við nokkra starfsmenn Hva-
leyrar, sem unnið hafa hjá
fyrirtækinu bæði fyrir og eftir
eigendaskiptin.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og
Júní Stá verða hér eftir nefnd einu
nafni BÚH, en Júní Stá stendur
fyrir Júní, sameignarfélag með tak-
markaða ábyrgð. Tilteknar eignir
BÚH, sem seldar voru Hvaleyrinni
h.f. í maí og júnímánuði 1985, voru
togaramir Apríl og Maí, auk físk-
iðjuversins við Vesturgötu 11 til 13.
Kaupverð var 280 millj. kr., talið í
yfirtöku skulda að upphæð 201
millj. kr. og útgáfu skuldabréfa til
11 ára að upphæð kr. 79,1 millj.
kr. Við ákvörðun kaupverðs var
miðað við matsverð húss og skipa.
BÚH átti einnig togarann Júní, en
hann var seldur Hval h.f. Þessi bréf
hafa nýverið verið framlengd um
fjögur ár, þ.e. úr 11 í 15 ár.
Ytri aðstæður nú mjög
góðar
Jón sagði, að í upphafí starf-
rækslu fyrirtækisins hefði verið
áhugi á að breyta Apríl í frystitog-
ara, en ekki fengist lánafyrir-
greiðsla til þess. Þá var ennfremur
ætlunin að gera Maí upp en það
var ekki gert af sömu ástæðum.
Því hefði Samheiji h.f. skipt á tog-
aranum og togbátnum Helga S.
„Með þessu móti afsöluðum við
okkur nokkrum kvóta, en við það
varð ekki ráðið“, sagði Jón. Við
yfirtökuna var vinnslu fyrirtækisins
að hluta breytt í smápakkavinnslu.
Þá var sett upp kæld móttöku-
geymsla og lausfrystir.
Fljótlega eftir að Hvaleyrin hóf
starfrækslu árið 1985 bað undirrit-
uð Jón Friðjónsson um viðtal fyrir
Morgunblaðið. Hann svaraði því þá
til, að hann vildi ekki ræða fyrirtæk-
ið né rekstur þess, fyrr en það hefði
sýnt sig að dæmið gengi upp. Ég
minnti Jón á þessi ummæi hans og
hann svaraði því til, að þá væri ég
enn of fljótt á ferðinni. „Komdu
eftir tvö ár, þá get ég kannski full-
yrt að þetta gangi vel.“ Nánar
aðspurður um, hveiju hann vildi
þakka gott gengi fram að þessu
svaraði hann: „Það verður að hafa
í huga að ytri aðstæður eru nú
mjög góðar. Olíuverð er lágt og fis-
kverð erlendis hátt. Afsetningar-
hraði er mjög mikill. Þá gengur
útgerðin vel hjá okkur, en fyrirtæk-
ið er bæði í útgerð og fiskvinnslu,
sem skiptir verulegu máli í sam-
bandi við öflun hráefnisins. Þótt
skuldir fyrirtækisins hafi verið
miklar þá tók Hafnarfjarðarbær
hluta þeirra á sig og það má segja,
að við höfum byijað á nýju blaði,
sem BÚH hefði ekki tekist. Síðast
en ekki síst vil ég taka fram, að
við höfum geysilega gott starfsfólk,
áhugasamt og duglegt."
Ekki hlotið náð fyrir
augum banka landsins.
- Sú staðreynd, að Hvaleyrin
h.f. hefur ekki hlotið náð fyrir aug-
um banka landsins þýðir, að sögn
Jóns, mjög takmarkaða hreyfígetu.
Hann sagði m.a. að fyrirtækið stæði
frammi fyrir að gera þyrfti við tog-
arann Viði fyrir u.þ.b. 20 til 25
millj. kr., en þó að lán fengist úr
Fiskveiðisjóði þá þyrfti ábyrgð við-
skiptabanka, auk viðbótarlána.
Fyrirtækið fær einvörðungu afurð-
alán og sagði Jón stöðuna sérstak-
lega erfiða, ef framleiðslan
Miklu
mannlegra
fyrirtæki
- segir Örn Rúnarsson
formaður starfs-
mannaf élagsins.
„ÞAÐ ER gott að vinna hjá þess-
um mönnum, Nú er ekki hver
toppurinn ofan á öðrum. Þetta
er miklu mannlegra fyrirtæki.
Atvinnuöryggið var ekkert áður,
en við verðum að hafa í huga,
að nú ríkir góðæri í fiskvinnslu.
Áður var ástandið ekkert venju-
legt, allir frystiklefar fullir af
óseljanlegum fiski. Nú er allt rif-
ið út um leið. Maður veit ekkert
hvernig þetta gæti orðið ef stað-
an breyttist á ný“, sagði Örn
Rúnarsson, sem starfar i móttö-
kunni, en hann er einnig formað-
ur starfsmannafélags Hvaleyrar-
innar.
Öm sagði, að reksturinn sjálfur
væri ekki svo frábrugðin því sem
verið hefði, nema að mun færra
starfsfólk væri nú í húsinu. Hann
sagði ennfremur að það hefði ekki
svo lítil áhrif, að reksturinn á skip-
um Hvaleyrarinnar gengi vel og
væri hagkvæmur. „Þeir hafa fískað
Morgunblaðið/Árni Sœbnrg
Örn Rúnarsson formaður Starfs-
mannafélagsins
vel og ekkert komið alvarlegt fyrir.
Það skiptir ekki svo litlu máli“,
sagði hann. Hann sagði ennfremur,
að eigendur Hvaleyrarinnar hefðu
breytt ýmsu og fjárfest mikið og
reynt væri að hafa huggulegt í
kringum starfsfólkið og á vinnslu-
svæðinu.
Öryggið
meira og
vinnan stöðug
- segir Alda
Pétursdóttir
trúnaðarmaður
„ÞAÐ ER gott að vinna hérna
og það var einnig gott að vinna
hjá Bæjarútgerðinni, en á þeim
tíma var alltaf verið að segja upp
og Ioka. Öryggið er meira núna
og vinnan stöðug. Ég held að það
hafi ekki fallið úr dagur síðan
Hvaleyrin tók yfir. Og á meðan
verkfallið var um jólin og við
vorum heima þá voru okkur bor-
guð laun“, sagði Alda Péturs-
dóttir trúnaðarmaður starfs-
fólks, en hún sagðist hafa unnið
hjá Hvaleyri og áður Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar í 16 eða 17
ár.
Alda sagði að kjami starfsfólks-
ins hefði áður starfað hjá Bæjarút-
gerðinni og persónulega væri hún
mjög ánægð með stjómun fyrirtæk-
isins nú. „Ég hef þurft að leita til
forstjórans vegna mála starfsfólks
og það hefur allflest verið leyst og
við finnum velvild í garð fólksins.
Þá eru verkstjóramir góðar mann-
eslqur. Mér fannst leiðinlegt, þegar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Alda Pétursdóttir trúnaðarmað-
ur starfsfólks
Jóhann Bergþórsson, einn af eig-
endunum, sagði á fundi sem sagt
var frá í Morgunblaðinu, að Bæjar-
útgerðin hefði verið eins og félags-
málastofnun, en hann er búinn að
koma hingað og biðjast afsökunar."
Of margir
sem þurftu
aðtaka
ákvarð-
anirnar
- segir Gerður
Garðarsdóttir
verksljóri
„AÐALMUNURINN er að nú eru
ákvarðanir teknar innan fyrir-
tækisins. Það þarf ekki að leggja
allt fyrir útgerðarráð. Það voru,
held ég, of margir sem þurftu
að taka ákvarðaniraar hjá Bæj-
arútgerðinni", sagði Gerður
Garðarsdóttir verkstjóri, sem
starfað hefur hjá báðum fyrir-
tækjunum, en hún sagði, að
starfsfólkið byggi nú við mun
meira öryggi f starfi.
- Aðspurð um, á hvem hátt
starfsfólkið byggi við meira öryggi
sagði hún: „Vinnutíminn er mun
samfelldari, en því má einnig þakka
betri ytri aðstæðum. Þá er fólkið
fastráðið nú, eða frá í desember