Morgunblaðið - 22.03.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1987
Sagnfræði, grín
og spenna
Nýir sjónvarpsmyndaflokkar á Stöð 2 oghjá
Sjónvarpinu bjóða uppá alltfrá fjölskyldugríni
til útbreiðslu vestrænnar siðmenningar.
Sjönvarp
Arnaldur Indriðason
Undanfarið hafa fjórir nýir
sjónvarpsmyndaflokkar hafíð
göngu sína hjá Sjónvarpinu og
Stöð 2. Þar af er einn breskur
heimildamyndaflokkur, einn
amerískur spennumyndaflokkur,
þýskur grínmyndaflokkur,
amerískur fjölskyldu-gaman-
myndaflokkur og í kvöld hefur
göngu sína hjá Sjónvarpinu sá
fimmti en það er frönsk smáþátta-
röð í fjórum hlutum um frönsku
skáldkonuna Gabrielle-Sidonie
Colette (1873-1954).
Colette var frægust skáld-
kvenna í Frakklandi á sinni tíð. í
hálfa öld gladdi hún stóran og
þakklátan hóp lesenda — flestar
konur — með sínum frumlegu og
mjög persónulegu skáldsögum og
frásögnum. Hún sótti hugmyndir
í æskuminningar sínar og náttúr-
una. Mikið af verkum hennar voru
sjálfsævisöguleg og nokkur þeirra
voru fílmuð, þeirra frægast er
sjálfsagt Gigi. Myndaflokkurinn
er einmitt byggður á endurminn-
ingum hennar. Hún skrifaði:
„Hvorki óttinn við almenningsálit-
ið eða annað getur komið í veg
fyrir að ég festi þessar línur á
blað, sem kannski verða gefnar
út einhvem daginn. Hvers vegna
skyldi ég ekki skrifa það sem ég
veit um sjálfa mig, það sem ég
reyni að fela, það sem ég bý til
og það sem ég get aðeins giskað
á.“
Leikstjóri og annar handrits-
höfundur smáþáttaraðarinnar er
Gérard Poitou en með hlutverk
Colette fara Clémentine Amour-
oux á yngri árum og Macha Meril
á efri árum.
Og frá Frakklandi til Banda-
ríkjnnna. Tveir menn í amerískri
sjónvarpsgerð eru þekktir fyrir
að fara sínar eigin leiðir þegar
þeir búa til spennuþætti og þeir
heita Michael Mann og Steven
Bochco. Þættir þeirra beggja hafa
verið sýndir hér á landi og eru
sýndir hér núna. Mann er heilinn
á bak við Miami Vice (Undir-
heimar Miami) en Bochco stendur
á bak við HiII Street Blues (Verð-
ir laganna) og nýjustu spennu-
þættina á Stöð 2, LA Law
(Lagakrókar), sem sýndir eru
ruglaðir á sunnudagskvöldum.
Ferill Stevens Bochco hefur
ekki verið neitt sérlega stórbrot-
inn eftir að hann varð frægur
fyrir HHI
Street Blues. Árið 1983 gerði
hann þætti um homaboltalið (Bay
City Blues), sem voru teknir af
dagskrá eftir nokkrar slappar vik-
ur og í mars árið 1985 var hann
rekinn frá Hill Street Blues-þátt-
unum eftir misklíð sem kom upp
á milli hans og yfirmannanna hjá
MTM Enterprises, sem kostuðu
þættina.
En nýjasta þáttaröð Bochco,
LA Law, var fmmsýnd með hvelli
hjá NBC-stöðinni í haust er leið.
Sögusviðið í henni er lögfræði-
stofa í Los Angeles og einkennast
þættimir nokkuð af fyrri verkum
Bochos; stór leikarahópur, margir
söguþræðir í gangi í einu, persón-
umar sýndar jafnt í einkalífi og
starfi og öllu hæfilega blandað
saman með gamni og alvöru eins
og Richard Zoglin, sjónvarpsrýnir
vikuritsins Time komst að orði
um þættina í blaði sínu.
Með helstu hlutverk í þeim fara
Harry Hamlin (sem nú má sjá í
Leiksnillingi Sjónvarpsins), Rich-
Macha Meril í hlutverki Colette
á efri árum.
Franz Xaver Kroetz í hlutverki
slúðrarans í Kir Royal.
Steve Bochco, heilinn á bak við
Lagakróka.
ard Dysart, sem leikur Leland
McKenzie forstjóra lögfræðistof-
unnár, Corbin Bemsen, Jimmy
Smits og Jill Eikenberry svo ein-
hverjir séu nefndir. Leikstjóri er
Gregory Hoblitt.
Fjölskyldukómedíur (og fjöl-
skylduþættir yfirleitt) hafa alltaf
verið með vinsælla sjónvarpseftii
og eftir að Fyrirmyndarfaðir með
Bill Cosby leit dagsins ljós og sló
allt annað út, hefur framleiðsla
slíkra þátta margfaldast og ýmis
tilbrigði (t.d. geimálfurinn Alf)
reynd á þeim. Who’s the Boss
(Hver á að ráða), sem Sjónvarpið
sýnir klukkan 19.00 á miðviku-
dögum, er ein af þessum §öl-
skyldukómedíum sem fylgt hafa
í kjölfarið á Cosby og er með
gömlu góðu Löðurdrottninguna
Katherine Helmond (Jessica Tate)
í einu af aðalhlutverkunum.
Úr myndaflokknum Hver á að ráða?
i
Harðsnúið lið i Lagakrókum; Corbin Bemsen, Harry Hamlin og
Jimmy Smits sitjandi.
Þáttaröðin er um einstæðan föð-
ur, Tony Micelli (Tony Danza),
sem tekur að sér heimilisstörfin
hjá kaupsýslukonunni Angelu
Bower (Judith Light) og hugsar
um son hennar og dóttur sína í
leiðinni.
Helmond leikur Mona Robin-
son, mömmu Angelu, og þess má
geta að hún hefur verið útneftid
til Golden Globe-verðlauna fyrir
hlutverkið.
Og frá Bandarikjunum til Vest-
ur-Þýskalands. Kir Royal er að
vísu frægur franskur fordrykkur
en það er líka heitið á flunkunýj-
um þýskum gamanmyndaflokki á
Stöð 2 sem, eins og segir í kynn-
ingu, sýnir okkur á gamansaman
hátt inní heim „Forréttindastétt-
arinnar“ þýsku. Þættimir era
sýndir ruglaðir á laugardags-
kvöldum og snúast um slúð-
urdálkahöfundinn Baby
Schimmerlos, en hann er einn af
þessum sem fólk fyrirlítur en les
alltaf. Hann skrifar um hástéttar-
fólkið í Miinchen, ijármálamenn,
stjómmálamenn, listamenn og
ieikara, nýríka og moldrka, sem
helst vilja alltaf vera að sjá naf-
nið sitt á prenti í tengslum við
hvað sem er — bara ef það er
rétt stafað.
Kir Royal segir frá hinum ólík-
ustu málum allt frá uppgangi og
hnignun gervidiplómats til auðugs
iðnjöfurs utan af landi, sem tekst
að kaupa sig inn í samkvæmislífið
í Munchen, heittelskandi móður
slúðrarans og sveitastúlkunnar
sem verður drottning á fjarlægri
eyju og gerir vafasama samninga
í opinberri heimsókn.
Leikstjóri og höfundur grínsins
er Helmut Dietl, sem þekktur er
fyrir störf sín við sjónvarp í
Þýskalandi. Með aðalhlutverkið
fer Franz Xaver Kroetz.
Og frá afþreyingunni í fróðleik-
inn. Heimildarmyndir era oft með
besta efni sjónvarpsins og einn
athyglisverðasti heimildarmynda-
flokkur, sem sýndur hefur verið
í lengri tíma, er Triumph of the
west (Vestræn veröld); ferðalag
sagnfræðingsins John Roberts um
heiminn í leit að upprana og út-
breiðsiu vestrænnar menningar
og hvemig hún varð það sem
hann kallar fyrstu heimsmenning-
una. Flokkurinn er í 13 þáttum
og sýndur á þriðjudagskvöldum.
Þar er ýmislegt að finna, sem
unnendur heimssögulegs fróðleiks
ættu ekki að láta framhjá sér fara.
Inntakið í hugmyndum Roberts
er þetta: Á tuttugustu öldinni
hafa vestræn menningarsamfélög
verið að gliðna í sundur. Heims-
veldi hafa lagst af, nýlenduveldin
hafa bakkað heim að eigin landa-
mæram og áhrif landa í Vestur-
heimi á meðal Sameinuðu
þjóðanna fara þverrandi með til-
komu nýrri og smærri landa. En
þrátt fyrr minnkandi völd og
umsvif Evrópu i heimsmálapólitík
hefur menning álfunnar hvar-
vetna markað djúp spor; áhrif
vestrænnar siðmenningar um all-
an heim era sterkari en nokkum
tímann áður.
Sem dæmi nefnir Roberts að
þeim milljarði manna sem byggir
Kína er stjómað eftir hugmynda-
kerfi nítjándu aldar þýska heim-
spekingsins Karls Marx og hinni
miklu fólksmergð á Indlandi er
stjómað eftir fijálslyndum lýð-
ræðishugmyndum sem rætur eiga
að rekja til Evrópu en ekki Ind-
lands, svo aðeins fátt eitt sé nefnt.
Hvemig gat þetta gerst? Hveijar
era rætur þessarar menningar.
Þetta era spumingar sem sagn-
fræðingurinn Roberts spyr sjálfan
sig og leitar svara við í mynda-
flokknum.
Og eins og títt er um mynda-
flokka af þessari tegund ferðast
sögumaður um alla heimsbyggð-
ina og kemur víða við í mannkyns-
sögunni allt frá Karlamagnúsi til
Maó formanns, Konstantíns og
Gandhis, Lúters og Múhammeðs,
Marx og Jesú Krists. Roberts er
mikilsvirtur breskur sagnfræðing-
ur og býsna kunnur af verkum
sínum en hann hefur skrifað m.a.
um frönsku byítinguna, sögu Evr-
ópu og mannkynssögu. Hann er
nú forstöðumaður Merton College
í Oxford.
Þess má að lokum geta að tveir
athyglisverðir þættir hefjast hjá
sitthvorri sjónvarpsstöðinni innan
skamms. Hjá Sjónvarpinu hefst
bráðlega breski gamanmynda-
flokkurinn Já, forsætisráðherra
(Yes, Prime Minister) með þeim
Paul Eddington og Nigel Haw-
thome í Downing-stræti 10 og
bandarísku fjölskylduþættimir
Family Ties (FJöIskyldubönd) með
kvikmyndastjömunni Michael J.
Fox, úr myndinni Aftur til fram-
tíðar, í aðalhlutverki.
í_____ ..— mii mifciu i & i ^ ^ ^ t