Morgunblaðið - 22.03.1987, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1987
47
I-
Tvær svartklæddar lafðir. Fawzia neitaði því harðlega að blæjan
væri tákn kúgunar.
Á meðan á samtali okkar Al-
Kindy stóð komu oft ungir menn
inn í skrifstofuna. Með skjöl til
undirskriftar, póst, til að spyija um
hitt og þetta. Allt virtist þetta
óþvingað og þekkilegt.Ég spurði
hana í lokin, hvaða augum hún liti
þá fordóma sem hún kallaði svo hjá
vestrænum konum í garð kvenna í
Múhammeðstrúarlöndum. Hún
sagði:„ Ég held það sé gott fyrir
vestrænar konur að ígrunda okkar
mál en einnig að afla sér meiri
þekkingar á þeim en oft verður
vart. Eg leyfí mér að segja að við
skiljum vestrænar konur langtum
betur en þær okkur. Og það er
fyrsta stigið að skilja. Þá kemur
að því að maður umber. Það er
nauðsynlegt fyrir hveija manneskju
að eiga til skilning og umburðar-
lyndi."
Mér flaug í hug, það sem útlend-
ur maður hafði sagt við mig einn
af ómönsku dögunum mínum:Ef ég
væri ekki klár á því, að Ómanir eru
Múhammeðstrúar menn, myndi ég
ætla þeir væru kristnir. Lífsviðhorf
þeirra og lífsfílósófía þeirra er ótrú-
lega tengd kristinni trú.“
Mér fannst orð Fawziu aðstoðar-
bankastjóra renna stoðum undir orð
hans, og eftir því sem ég átti tal
við fleiri Ómani, skildi ég altjent
hvað hann hafði verið að meina.
Texti og myndir:
Jóhanna Kristjónsdótt-
ir
ur litið á það sem sáluhjáiparatriði
að stúlka gifti sig. Kannski sums
staðar í landinu, en í þessu efni er
að verða hugarfarsbreyting. Áður
þótti það beinlínis óeðlilegt, ef
stúlka giftist ekki. En ég veit ekki
betur en sá hugsunarháttur hafi
verið víðar en hér. Og þótt breyting
sé að verða eru þær hægari en á
ýmsum öðrum sviðum. En það verð-
ur ætíð þessi spuming: hvað á að
hafa forgang? Því ekki að viður-
kenna það. Sem betur fer spyija
nú æ fleiri stúlkur þessarar spum-
ingar. Ég hef ekki töiur yfir þær
konur sem vinna utan heimilis. En
ég myndi hiklaust fullyrða að um
níutíu prósent þeirra kvenna, sem
hafa aflað sér starfsmenntunar,
vinni úti. Þær vilja í fyrsta lagi
nota menntun sína og svo hafa
heimilisástæður breytzt, lífsmátinn
allur. Mynstrið er að taka á sig
nýja mynd. Sem mér finnst að geti
orðið afar spennandi.Og við skulum
hafa það hugfast að samkvæmt
sharia- islömskum lögum - verður
stúlka aldrei neydd til að ganga í
hjónaband. Sharia á að tryggja rétt
konunnar. En auðvitað er frumskil-
yrði, að kona þekki sinn rétt. Á það
skortir víða hjá okkur, en það mun
breytast sem annað. Kvenfélögin
út um allt land vinna mikið kynn-
ingar- og fræðslustarf. Þeim var
komið á laggimar fyrir frumkvæði
súltansins og veitt til þeirra mynd-
arlega. Þau skipuleggja námskeiða-
hald, reka bamaheimili og leikskóla
og örva á ýmsan hátt konur til að
láta meira að sér kveða.“
—
WORKS
Fjölnotakerfið Works frá Microsoft er
nú að verða mest notaða forritið á Macin-
tosh. Á námskeiðinu er farið rækilega í
þá möguleika sem forritið býður upp á.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun
Macintosh.
* Ritvinnsla, æfingar.
* Gagnagrunnur, æfingar.
* Tölvureiknir, æfingar.
* Flutningur gagna á milli
þátta forritsins.
* Umræður og fyrirspumir.
LeiAbelnandi:
Guðmundur Karl
Guðmundsson
sölumaður hjá
Radíóbúðinni.
Tími: 30.-31. mars og 1.-2. aprii
kl. 18.15-21.15.
Innritun daglega frá kl. 8—22 í
símum 687590, 686790, 687434
og 39566.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
VAREFAKTA er vottorð dönsku neytendastofminannnar um
eiginleika vara, sem framleiðendur og innflytjendur geta sent
hemi tll prdfunar, ef þeir vilja, med öJnim oröum, ef þeir
þora!
EKTA DÖNSK GÆÐI MEÐ ALLT Á HREINU
- fyrir smekk og þarfir Noröuriandabúa
- gæði á góðu verði!
þorir og þolir KALDAR STAÐREYNDIR um þaö sem
máli skiptir, svo sem kæiisviö, fiystlgetu, einangnin, styrk-
leika, gangtíma og rafmagnsnotkun.
Hátúni 6a. sími (91) 24420
HRINGDUl
in skuldfærð á
greiðslukortareikninq
þinn mánaðarlega.
SIMINN ER
691140 691141