Morgunblaðið - 22.03.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1987
61
VilborgÞ. Guðmunds
dóttir — Minning
Fædd 15. nóvember 1900
Dáin 11. mars 1987
Degi hallar drúpa ský
daprast fjör í fasi.
Enda lækkar óðum i
okkar stundaglasi.
Þessar staðreyndir lífsins ætla
ég að leiti gjarnan í huga okkar
sumra, sem eldri erum, þegar vinir
kveðja og langri samleið lýkur. Og
þannig var mér farið þegar tilkynn-
ingin barst um lát Vilborgar
Guðmundsdóttur, Sörlaskjóli 14 í
Reykjavík, en hún lést miðvikudag-
inn 11. þessa mánaðar í Landspítal-
anum í Reykjavík.
Vilborg fæddist að Fjalli á Skeið-
um þann 15 nóvember árið 1900,
yngst Qögurra systkina, sem nú eru
öll látin.
Vilborg var komin af kunnum
ættum, dóttir hjónanna Guðríðar
Erlingsdóttur, systur Þorsteins Erl-
ingssonar skálds og Guðmundar
Ófeigssonar frá Fjalli á Skeiðum.
Vilborg ólst upp í foreldrahúsum
ásamt systkinum sínum, Sigríði og
Erlingi, en Jóhann lést bam að
aldri. Fyrst í Fjalli, en síðar á Galta-
stöðum í Flóa, en þangað fluttist
fjölskyldan búferlum árið 1924.
Sú var tíðin, að sannleikur fólst
í hinu gamalkunna orðtæki, að
„Bóndi er bústólpi og bú land-
stólpi" og enn trúi ég, að gildi
þessara orða sé meira en margur
þéttbýlismaðurinn gerir sér ljóst eða
fæst til að viðurkenna. Þó hefur
íslenska bændafólkið of sjaldan
borið það úr býtum, sem elja þess
og þolgæði verðskuldaði, og þannig
var því einnig varið með þau Guðríði
og Guðmund. Búskaparár þeirra
voru erfið, svo ekki sé meira sagt,
eins og margra annarra á þessum
árum. Bömin urðu því að létta und-
ir, eins og þá var títt, strax og
getan leyfði og víst er um það, að
Vilborg og þau systkinin unnu for-
eldrum sínum allt sem þau máttu,
enda einkenndist kynfylgja þeirra
m.a. af dugnaði, drenglyndi og fórn-
fysi, jafnt við skylda sem óskylda.
Það fékk ég, sem þessar línur
skrifa, ríkulega að reyna þegar ég
var tekinn í fóstur af þeim Guðríði
og Guðmundi að Galtastöðum árið
1925, þá bam að aldri. Hjá þessu
mæta fólki ólst ég upp fram yfir
fermingu, eða þar til að þau Guðríð-
ur og Guðmundur urðu að bregða
búi vegna aldurs og vanheilsu og
Erlingur, sonur þeirra, tók við bú-
inu, ásamt Guðlaugu konu sinni.
Það verður seint metið sem
skyldi, að verða þeirrar gæfu að-
njótandi, þegar foreldranna nýtur
ekki lengur við, að fá að dveljast,
á þessu viðkvæmasta mótunar-
skeiði ævinnar, í forsjá slíkra, —
þessara gáfuðu og góðu fósturfor-
eldra og bama þeirra. Það vega-
nesti sem mér var lagt þar til hefur
rejmst mér ómetanlegt.
Vegna vanheilsu fóstm minnar
síðustu búskaparárin, mæddi heim-
ilishaldið mikið á Vilborgu, þar sem
eldri systirin, Sigríður, giftist
skömmu eftir að ég kom að Galta-
stöðum og fluttist í eina af uppsveit-
um Amessýslu, nánar til tekið að
Núpstúni í Hreppum.
Þrátt fyrir ærinn starfa á heimil-
inu, og utan þess stund og stund,
þegar færi gafst til að létta undir
með foreldmnum, lét Vilborg sig
ekki muna um að bæta þörfum
mínum, óskylda aðkomubamsins,
við aðrar annir, með þeirri fóm-
fysi, þeirri hlýju og þeim myndar-
skap sem eftir var tekið. Ég man
vel hvað ég var upp með mér af
fötunum sem Vilborg sneið og
saumaði á mig þegar ég hóf mína
fyrstu skólagöngu í Gaulveijabæ.
Þau vom hlý og áferðin og frágang-
ur slíkur að aðdáun vakti, eins og
reyndar annað það sem Vilborg tók
sér fyrir hendur.
Vilborg var gáfuð kona og hag-
mælt, en fór mjög dult með það,
enda ekki þeirrar manngerðar sem
flíkar sínu.
Árið 1933 giftist Vilborg FVið-
finni Vilhjálmssyni frá Hamri,
næsta bæ við Galtastaði, miklum
mannkosta- og dugnaðarmanni.
Þau hófu búskap stuttu síðar, fyrstu
tvö árin í Hafnarfirði, en síðan
reistu þau sitt framtíðarheimili í
Sörlaskjóli 14 í Reykjavík, sem ein-
kenndist af smekklegu látleysi og
framúrskarandi snyrtimennsku.
Þau Vilborg og Friðfinnur eign-
uðust eina dóttur, Guðríði Helgu,
sem býr núí Sörlaskjólinu með
manni sínum, Gunnari Grettissyni.
Þau eiga tvö böm, Lilju og Friðfinn.
Árið 1975 missti Vilborg mann
sinn langt um aldur fram. Síðan
dvaldi hún, við góða umönnun og
ánægju af dótturbömunum, á heim-
ili dóttur sinnar, þar til hún kvaddi
södd lífdaga eftir langvarandi van-
heilsu, en sátt og æðrulaus eins og
hennar var háttur.
Það fer ekki hjá því, að á kveðju-
stundum sem þessum höfði minn-
ingamar til þess mannlega. Hvemig
menn bregðast við er að sjálfsögðu
persónubundið og einnig háð tíðar-
andanum hvetju sinni, sem því
miður hamlar of oft, í sinni yfir-
borðskenndu flatneskju, gegn
einlægri tjáningu.
Þessum fátæklegu þakkar- og
kveðjuorðum læt ég hér lokið en
geri mér ljóst að fleira hefði mátt
og sjálfsagt átt að koma fram, sem
hollt er að minnast, eins og jafnan
þegar fjallað er um íslenska öðlings-
konu af aldamótakynslóðinni.
Vilborgar Guðmundsdóttur
minnist ég með þakklæti og
fölskvalausri virðingu fyrir allt það
sem hún var mér og mínum til
síðustu stundar.
Ég og fjölskylda mín vottum
Helgu og Gunnari og öðmm vanda-
mönnum samúð okkar.
Fríðþjófur Hraundal
Kveðja
11. mars sl. andaðist hjartkær
vinkona mín, Vilborg Guðmunds-
dóttir, eða Villa, eins og ég kallaði
hana alla tíð. Með sérstöku þakk-
læti og hlýju minnist ég hennar og
þeirra samskipta sem við áttum,
bæði fyrr og síðar. Ánægjustund-
imar, sem ég átti með henni, em
margar og ógleymanlegar. Það var
svo gott að eiga hana að vini, mega
leita til hennar, bæði í gleði og raun-
um. Hún hafi svo mikið að gefa og
var alla tíð reiðubúin að rétta hjálp-
arhönd, ef til hennar var leitað.
Ég mun ávallt muna þá vináttu
og alúð, sem ég naut hjá henni og
fjölskyldu hennar á fallegu heimili
hennar, sem stóð mér alltaf opið.
Þótt Villa sé nú fallin frá, mun
minning hennar lifa.
Ég kveð kæra vinkonu með orð-
um Valdimars Briem:
„Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt."
Klara Sigurgeirsdóttir
Blömastofa
Friöfinm
Suöurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
*3k
.w
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
t
Systir okkar og vinkona
HREFNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
fró Einhotli,
Hornafirði,
vérður jarðsungin frá Fossvogskapellu mónudaginn 23. mars. kl.
13.30.
Systkini og
Helga Hanssen.
t
Faðir okkar og fósturfaðir,
ÓLAFUR PETERSEN,
Snorrabraut 58,
lést 6. mars.
Jarðarförin hefur fariö fram.
Jóhanna Ólafsdóttir Gillette,
Elsa Petersen,
Rósa Jafetsdóttir,
Pótur Ólafsson.
t
Útför
VILBORGAR ÞURÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Sörlaskjólf 14,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. mars nk. kl. 15.00.
Helga Friðfinnsdóttir,
Gunnar Grettisson,
Lilja Gunnarsdóttír,
Friðfinnur Gunnarsson.
t
Faðir okkar og tengdafaöir,
RAGNAR VETURLIÐASON,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. mars kl.
15.00.
Þorsteinn Ragnarsson, Sigríður Hannesdóttir,
Ragna Ragnarsdóttir, Garðar Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem vottuðu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður,
tengdamóður og ömmu,
HULDU BÖÐVARSDÓTTUR,
Sólheimum 23,
Garðar Siggeirsson,
Sigrún Siggeirsdóttir,
Ómar Bl. Siggeirsson,
Kristfn Siggeirsdóttir,
Snorri Bl. Siggeirsson,
Siggeir Blöndal Guðmundsson,
Slgrun Þorlóksdóttlr,
Erla Ólafsdóttir,
Björgvin Björgvinsson,
Sigurborg Sigurjónsdóttir,
Ólafur Hafsteinsson,
Guðbjörg Magnúsdóttir
og barnabörn.
£—
t
Þökkum samúö og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
PÉTURS ÓLAFSSONAR.
Magnús Pétursson,
Ólafur Pétursson,
Soffia Pétursdóttir,
Pétur Björn Pétursson,
Borghildur Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Valdfs Björgvinsdóttir,
Lise Eng,
Gunnar Orn Ólafsson,
Inga Steinunn Ólafsdóttir,
Ólafur Haukur Johnson,
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
HEINRICHS KARLSSONAR.
Guðný Hinriksdóttir, Lúðvfk Andreasson,
Asta Heinrichsdóttir Hampton, Gene Hampton,
Haraldur Helnrichsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna
andláts og útför sonar okkar, unnusta, föður og bróður,
ÞÓRS ALEXANDERSSONAR,
Nesbala 18.
Hjördfs Guðmundsdóttir, Alexander Guðmundsson,
Hafdfs Bylgja Guðmundsdóttlr, Hjördfs Dögg Þórsdóttir
og systkini.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför drengs-
ins okkar og bróður,
SIGURBERGS SVERRIS JÓH ANNSSONAR,
Grund, Höfnum.
Jóhann G. Sigurbergsson, Þórunn Sveinsdóttir,
Helga Birna Jóhannsdóttir.