Morgunblaðið - 22.03.1987, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1987
Kveðjuorð:
Valdimar Björns-
son fv. ráðherra
Fæddur 29. ágúst 1906
Dáinn 10. mars 1987
Valdimar Bjömsson, fyrrverandi
fjármálaráðherra Minnesotaríkis,
andaðist á heimili sínu í Minneapolis
10. mars sL Hann fæddist í hálfís-
lenska þorpinu Minneota 29. ágúst
1906. Foreldrar hans voru Ingibjörg
Ágústína Jónsdóttir Hördal, sem
fædd var á Hóli í Hörðudal í Dala-
sýslu, og Gunnar Bjömsson, fæddur
í Máseli í Jökulsárhlíð í Norður-
Múlasýslu. Fluttust þau bæði
bamung til Vesturheims.
Valdimar lauk prófí frá Minneota
High School 1924, og BA-prófi frá
Háskóla Minnesotaríkis (summa
cum laude) 1930. Lærði prentiðn í
prentsmiðju föður síns og byrjaði að
vinna þar 1918 ásamt bróður sínum
Hjálmari. Varð ritstjóri Minneota
Mascot 19 ára gamall haustið 1925
og hélt því starfi áfram þangað til
Hjálmar bróðir hans lauk háskóla-
námi í hagfræði 1927. Varð aftur
ritstjóri sama blaðs 1931 til 1934.
Árið 1935 hóf Valdimar störf við
útvarpsstöð Minneapolis og St. Paul,
flutti þar þætti um daginn og veg-
inn, þingfréttir og fleira og skrifaði
jafnframt ritstjórnargreinar fyrir
Minneapolis Tribune 1937 til 1941.
Fljótlega eftir árás Japana á Pearl
Harbour gerðist Valdimar sjálf-
boðaliði og var útnefndur sem sjó-
liðsforingi, og snemma á árinu 1942
kom hann til íslands til að gerast
blaðafulltrúi bandarísku hemámsyf-
irvaldanna og gegndi ýmsum fleiri
mikilvægum störfum á þeirra veg-
um. Dvaldist hann hér á landi þar til
í desember 1946. Eftir heimkomuna
hóf hann störf að nýju við útvarp
og blaðamennsku í Minneapolis.
Hann var aðstoðarritstjóri St. Paul
Pioneer Press og Dispatch 1947 til
1950. Árið 1950 var Valdimar kos-
inn fjármálaráðherra (State Treas-
urer) og gegndi því starfi nær óslitið
til ársins 1975. Ritgerðir eftir hann
birtust í tímariti Minnesota Historic-
al Society og í bók sem gefín var út
í sambandi við 100 ára afmæli Min-
nesota 1958. Þá var hann í stjóm
Scandinavian Foundation. Hann
kom fyrst til íslands 1934 og ferðað-
ist þá talsvert um landið í tvo
mánuði, meðal annars á slóðir
frændfólks síns vestur í Dölum og
í Vopnafirði.
Valdimar var fluggáfaður og fjöl-
fróður maður. Sérstaklega kunni
hann góð skil á ættum foreldra sinna
og ýmissa annarra ætta. Hann kom
fyrst til íslands 1934 eins og áður
er getið, þá ungur og glæsilegur
maður og talaði íslenskuna reiprenn-
andi. Urðu margir í frændliði hans
undrandi á því, þar sem hann hafði
aldrei til íslands komið fyrr.
Þeir Bjömssons-bræður, Hjálmar,
Valdimar, Björn og Jón, dvöldust
hér á landi á stríðsárum, þó mis-
lengi. Sennilega verður það aldrei
skráð á blöð sögunnar hvað þeir
Vestur-íslendingar sem hér dvöldust
á stríðsárunum voru mikils virði fyr-
ir öll samskipti við bandarísku
hemámsyfírvöldin. Þar stóðu þeir
fremstir í flokki bræðumir Valdimar
og Hjálmar Bjömssynir. Ég, sem
þessar línur rita, var vel kunnugur
bræðrunum, þó sérstaklega Hjálmari
og Valdimar. Hjálmar bjó þann tíma
sem hann dvaldi hér á landi á Freyju-
götu 43 hjá föðursystur minni,
Ingibjörgu Éyjólfsdóttur, og manni
hennar, Sigurði Jóhannssyni kaup-
manni í Geysi, þar sem Valdimar
var heimagangur nær daglega. Á
heimilinu var mikið um gestakomur
vegna þeirra bræðra, bæði innlendir
og erlendir gestir, enda þeir bræður
frámunalega frambærilegir, vinsælir
og margfróðir um menn og málefni.
Til gamans um það hvað Valdi-
mar hafði mikinn húmor ætla ég að
geta smáatviks sem góður vinur
okkar sagði eitt sinn af heimsókn
sinni til Valdimars á heimili hans í
Minneapolis þar sem Valdimar bauð
honum að kynna hann fyrir gömlum
Vestur-íslendingum. Gekk Valdimar
þá með honum út í kirkjugarð og
benti honum á hvar þessi og hinn
Vestur-íslendingur voru jarðaðir.
Síðast kom Valdimar til íslands
sumarið 1983. Urðum við hjónin
þess aðnjótandi að hafa þau hjónin
gesti á heimili okkar ásamt nokkrum
vinum okkar frá Freyjugötu-árun-
um. Valdimar var þá enn við nokkuð
góða heilsu, en sjóninni farið að
hraka, en stálminnið og fljúgandi
mælskan voru enn söm sem fyrr.
Var sú fleyga stund okkur öllum til
mikillar ánægju og gleði.
Valdimar Bjömssyni var sýnd
margskonar virðing í sambandi við
störf sín. Hann var sæmdur stórridd-
arakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu
1946, gerður að Riddara St. Ólafs-
orðu 1949 og 21. janúar sl. var hann
sæmdur stórriddarakrossi með
stjörnu Hinnar íslensku fálkaorðu.
Vináttu okkar Valdimars hefur
lengi staðið. Höfum við skipst á bréf-
um gegnum árin. I síðasta bréfí sem
Valdimar skrifaði mér á jólaföstu
minntist hann ýmissa atvika frá
bernskuárum sínum.
Valdimar kvæntist 20. febrúar
1946 Guðrúnu Jónsdóttur Hróbjarts-
sonar kennara á ísafirði og konu
hans, Rannveigar Samúelsdóttur
Halldórssonar. Þau hjónin eignuðust
5 börn, þau eru: Helga Bjamey,
fædd í Reykjavík 16. júní 1946,
Kristín Rannveig, fædd 10. apríl
1948, Jón Gunnar, fæddur 16. júní
1949, Valdimar Halldór, fæddur 11.
ágúst 1952, og María Ingibjörg,
fædd 12. september 1955, öll fædd
í Minneapolis.
Að lokum vil ég þakka Valdimar
trausta og góða vináttu mér og fjöl-
skyldu minni til handa í gegnum
árin.
Við hjónin sendum frú Guðrúnu
og bömunum innilegar samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu vinar míns
Valdimars Bjömssonar.
Reynir Ármannsson
Sýnir í
Gallerí Borg
DAÐI Guðbjörnsson opnaði
fimmtudaginn 19. mars sl. sýn-
ingu í Gallerí Borg við Austur-
völl.
Á sýningunni eru 35 verk; olíu-
málverk, vatnslitamyndir, pastel-
myndir og grafík, unnar á
síðastliðnum tveimur ámm.
Sýningin er opin virka daga kl.
10.00-18.00, nema mánudaga frá
kl. 12.00. Um helgar er opið frá
kl. 14.00-18.00. Sýningin stendur
til 31. mars.
Daði Guðbjörnsson ásamt einu verka sinna.
Ferðasögur mínar hafa batnað til
muna eftir að ég hóf að ferðast
með SAS'
* Hannes Guðmundsson
framkvæmdastjóri.
g er einn af þeim sem ferðast mikið
starfs míns vegna. Ég verð að geta
rJreyst einum aðila fyrir ferðaáætlun minni.
Ég vil ferðast þægilega og láta hlutina ganga
snurðulaust fyrir sig. Hratt og örugglega.
Þegar ég kem því við þá flýg ég með SAS flug-
félaginu. Þjónusta SAS er frábær. Fyrir venju-
legt fargjald flýg ég á Euro Class og nýt margs
konar fyrirgreiðslu á jörðu niðri. Ég hef aðgang
að Scanorama þjónustustöðvum á flugvellinum.
Þar býðst mér fyrsta flokks hvíldaraðstaða og ég
hef einnig aðgang að góðri skrifstofuaðstöðu þar
sem ég get haldið litla og stóra fundi. SAS tryggir
mér þægilegt ferðalag og styttir ferðalagið með þjón-
ustu og fyrirgreiðslum á áfangastöðum,' þannig að
þegar öllu er á botninn hvolft er ódýrara að fljúga með
SÁS á Euro Class heldur en að reyna að brjótast í gegn-
um fargjaldafrumskóginn á eigin spýtur“.
Þú getur hagnast á því að vera SAS farþegi. Leitaðu
upplýsinga um það hjá ferðaskrifstofunni þinni eða hjá
SAS skrifstofunni.
Efþú ferðast mikið starfs þíns vegna.
Laugavegi 3 101 Reykjavík Símar 21199 og 22299