Morgunblaðið - 28.02.1988, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
Jarðneskar leifar
tveggja biskupa
JÓN Steffensen prófessor
rannsakaði, skráði og mældi
þær jarðnesku leifar sem
fundust við uppgTÖftinn í
Skálholti. í kaflanum
Likamsleifar er að finna
lýsingu hans á tveimur
biskupum, þeim Páli Jónssyni,
d. 1211, og Jóni Vídalín, d.
1720, og fara þeir hér á eftir.
Páll biskup Jónsson
Af Páli er þessi lýsing
í sögu hans: „Páll var
vænn að áliti, fagr-
eygr ok fasteygr,
hrokkinhárr ok fagr-
hárr, limaðr vel og lítt fættr, lit-
bjartr ok hörundsljóss, meðalmaðr
at vexti ok manna kurteisastr."
Samkvæmt áætlun af beinun-
um hefur hæð Páls verið nær 169
sm þegar hann var upp á sitt
besta, en á hans dögum var með-
állíkamshæð íslendinga um 172
sm. Það má því með velvilja segja
Prentuð mynd af Jóni biskup í
Nýjum félagsritum VII. ár-
gangi.
að hann hafí verið meðalmaður á
hæð, því að liðlega XU hluti karla
á hans tímum hefur verið lægri
en hann. Páll er sagður lítt fætt-
ur, þ.e. smáfættur, og kemur það
vel heim við lengdarmálin á völu
og hælbeini, því að aðeins 6—10
af hundraði samtfðarmanna hans
voru með þessi mál skemmri en
Páll. Hvað átt sé við með vel li-
maður getur sjálfsagt verið erfítt
að skilgreina nánar, en í því ætti
meðal annars að felast að útlimir
væru nokkum veginn eðlilegir að
lengd í hlutfalli við bolinn og
væntanlega sömuleiðis hlutfallið
milli hinna einstöku hluta útli-
manna, eins og geríst á flestum.
Um fyrra atriðið verður ekki
dæmt af beinunum, en um síðara
atríðið er það að segja að sköfl-
ungurinn er tiltölulega óvenju
stuttur, svo að fáir samtimamenn
Páls hafa verið með lægra hlut-
fall milli lengdar lærieggs og
sköflungs en hann. Páll hefur því
veríð áberandi stuttur til hnésins
og handleggir frekar langir miðað
við ganglimi, og á maður bágt
með að veijast þeirri hugsun að
heldur hafí söguhöfundur „punt-
að“ upp á útlitið nema þá að hann
eigi fyret og fremst við form
handa og fóta. Hlutfallið milli
lengdar viðbeins og upphand-
leggsbeins er nokkru ofan við
meðallag og bendir til góðrar axl-
arbreiddar. Um önnur atriði í lýs-
ingu Páls verður ekki dæmt af
beinunum. Hauskúpa Páls biskups
er öll fremur fínleg og vöðvafestur
lítt áberandi. Heilabúið er neðán
við meðallag; stafar það aðallega
af því að það er mun styttra en
gerist og sérstaklega vegna lftillar
eymahæðar, svo að aðeins ein
íslensk karlmannshauskúpa er
með minni hæð. Hins vegar er
mesta breidd hennar nokkru ofan
við meðaltalið, en ennisbreiddin
er heldur neðan við meðallag.
Jón Vídalín
Af Jóni Vídalín er til prentuð
mynd. Á henni er hann sýndur
með hökutopp sem að stærð sam-
rýmist ágætlega því sem gröfín
leiddi í ljós. Enn fremur er Jón
með hárkollu á myndinni svo ekki
verður dæmt um hárprýði hans
nema óbeint. Ef athugaðar eru
Ijarlægðimar frá munni að nefrót
og frá henni að hárkollubrún, þá
er hin síðamefnda meiri á mynd-
inni en á hauskúpumyndinni er
með líku hlutfalli væri komið svo
hátt uppá hvirfílinn, að þar eru
einungis sköllóttir með hársrætur.
Nú fundust hvorki leifar höfuð-
né kynhára í gröfínni þrátt fyrir
geymd hennar á hökutoppinum.
En vegna þess hve duttlungafull
varðveisla hára var í Skálholti
mun varlegast að leggja ekki of
mikið upp úr því sem ekki finnst,
og það ber að hafa í huga að lista-
menn gera oft mikið úr enninu
þegar þeir leggja áherslu á gáfur
fyrirmyndarinnar. Vegna þess
Hauskúpa Jóns biskups séð frá
sama sjónarhomi og myndin
af honum.
Séð framan á hauskúpu Páls
Jónssonar biskups.
hversu hátt ennið er á prentuðu
myndinni mætti búast við mikilli
höfuðhæð, en hauskúpuhæðin er
mjög nálægt meðalhæð fslenskra
hauskúpna fyrir siðaskiptin. Og
ennisbreiddin er ekkert áberandi
á myndinni, og kemur það heim
við minnstu ennisbreidd hauskúp-
unnar sem er nær meðallagi þess
tíma.
Lengd og breidd hauskúpu er
ekki unnt að mæla nákvæmlega,
en áætla má þau nokkum veginn,
og sést þá að stærð heilabúsins
hefur verið nærri meðaltali Skál-
hyltinga og að breidd hauskúpu
hefur verið um 78 hundraðshlutar
af lengdinni eða Jón biskup hefur
verið meðallanghöfði.
En svo mikið sé að andlitinu á
mynd meistara Jóns, þá er það
frekar stórt, einkum svæði frá
nefrót að munni og milli kinn-
boganna, en kjálkamir eru ekki
miklir, og hakan virðist frekar
hvöss að svo miklu leyti sem um
verður dæmt vegna hökutoppsins.
Andlitið dregst því tiltölulega ört
saman niður á við. Þessir sömu
höfuðdrættir koma fram á haus-
kúpunni.
Tríó Guðmund-
ar Ingólfs-
sonar í
Heita pottinum
JASSTRÍÓ Guðmundar Ingólfs-
sonar heldur tónleika í Heita
pottinum í Duus í Fischerssundi
í kvöld, sunnudag.
Guðmundur verður eldheitur og
endumærður, en með honum í tríó-
inu eru þeir Þórður Högnason
bassaleikari og Guðmundur Stein-
grímsson trommuleikari.
(Fréttatilkynning)
Guðmundur Ingólfsson
Launabókhald
- launavinnsla
Getum bætt við okkur nokkrum fyrirtækj- •
um í launavinnslu. Sjáum um öll atriði
launavinnslunnar, s.s. útprentun launa-
seðla, ávísana og skilagreina til gjald-
heimtu og annarra stofnanna.
Upplýsingar í síma 84303 eftir
kl. 14.00 virka daga.
Eróbik - leikfimi
Heilsuræktin Sólskin, sími 46055.
Námskeið hefjast 1. mars
15% afsláttur fyrir skólafólk.
Opið hús hjá
Samhjálp
kvenna
SAMHJÁLP kvenna, sem er
stuðningshópur kvenna sem
gengist hafa undir aðgerð vegna
bijóstkrabbameins, hefur opið
hús I húsi Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 1.
| mars kl. 20.30. Hrönn Jónsdóttir
þjúkrunarfræðingur fjallar um
samband mataræðis og krabba-
meins.
Samhjálp kvenna hefur starfað
frá árinu 1979 og er elsti samstarfs-
hópurinn sem vinnur að stuðningi
við krabbameinssjúklinga. Þeir sem
hafa áhuga á málefninu eru hvattir
til að koma á þennan fund. Að er-
indi loknu verða almennar umræður
og kaffíveitingar.
(Fréttatilkynning)
Pétur Jónasson.
Gítartónleik-
ar á Kirkju-
bæjarklaustri
ÞRIÐJUDAGINN 1. mars mun
Pétur Jónasson gitarleikari
heimsækja Kirkjubæjarklaustur
og halda þar tónleika i kapell-
unni, heimsækja grunnskólann
og tónlistarskólann og leika fyrir
vistfólk elliheimilisins.
Tónleikamir hefjast kl. 21 og
verða á efnisskránni verk frá ýms-
um tímabilum tónlistarsögunnar,
jafnt innlend sem erlend.
Ferð þessi er styrkt af mennta-
málaráðuneytinu.
Leiðrétting
í FRÉTT um Landskeppni fram-
haldsskólanema í eðlisfræði, sem
birtist á föstudag, vixluðust nöfn
skóla tveggja keppenda.
Guðmundur Jónsson, var sagður
í MR en er í MS og Agni Ásgeire-
son í MR var sagður í MS. Biðst
Morgunblaðið velvirðingar á þess-
um mistökum.