Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sýslumaðurinn á Akranesi Gert að skrá viöveru sína DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gefíð Sigurði Gizurarsyni sýslu- manni á Akranesi fyrirmæli um að hann mæti til vinnu sinnar á til- teknum tímum og skrái viðveru sína á stimpilkort, sem hann afhendi síðan ráðuneytinu afrit af mánaðarlega. Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu segir að þessi fyrirmæli hafi verið gefin þar sem sérstök ástæða hafi þótt til, en kvartanir um íjarvistir sýslu- mannsins hafi borist frá ýmsum aðilum. Jafnframt hefur Sigurði verið gert að skila greinargerð um mætingar sínar frá síðustu áramótum. Sigurður sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi „sálrænar eða pólitískar" ástæður að baki fyrirmæla ráðuneytisins. Hann myndi fara að þeim fyrirmælum að stimpla sig inn, en hins vegar myndi hann ekki skila umbeðinni greinargerð. Morgunblaðið/Jón Stefánsson „Ég hygg að ef könnuð eru við- horf málsmetandi manna á Akra- nesi þá muni þeim öllum bera sam- an um það að viðvera [Sigurðar] þama við embættið hafí verið ákaf- lega stopul í seinni tíð, því miður. Það er auðvitað ekki að ástæðu- lausu sem við tökum til svona að- gerða. Við teljum okkur hafa rök- studda ástæðu til að ætla að þessar ásakanir hafí við full rök að styðj- ast," segir'Þorsteinn. Sigurður sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki gera neitt veður út af því að honum hefði verið gert að skrá viðveru sína og hann myndi einungis laga sig að þeim fyrirmæl- um. „Eg mæti bara þama klukkan átta á morgnana og stimpla mig inn og stimpla mig svo út kl. 6-7 á kvöldin," sagði Sigurður og kvaðst með þessu neyddur til að hafa næturstað á Akranesi, en hann er búsettur á Seltjamamesi. Greinargerð um mætingar Þorsteinn Geirsson sagði að af tiltekinni ástæðu hefði þess jafn- framt verið farið á leit við Sigurð að hann skilaði greinargerð um mætingar sínar frá síðustu áramót- um, en Sigurður segir að slíka greinargerð muni hann ekki skrifa. „Ég hef ekki skrifað dagbók eða vinnuskýrslur frekar en aðrir sýslu- menn. Ef þeir gera kröfur um að ég skrifí vinnuskýrslur framvegis þá er sjálfsagt að skrifa þær, en ég fer ekki að skrifa svona aftur í tímann úr því að það hefur ekki verið skylda hingað til,“ sagði hann og bætti því við að hann fagnaði því að taka upp skráningu viðveru sinnar þar sem með því skapaði hann sér sönnunargagn um að hann hefði alla tíð mætt vel. Aðspurður um hvaða ástæðu hann teldi vera fyrir því að dóms- málaráðuneytið gæfí honum fyrir- JÓN Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra segir ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á aukaþingi Sambands ungra sjálf- stæðismanna ómálefnaleg. í ávarpi á þinginu, sem haldið var um helg- ina, sagði Davíð að Norðmenn hefðu ekki náð góðum sjávarútvegssamn- ingi við Evrópusambandið og þeim, sem héldu því fram, yrði ekki treyst til að semja um sjávarútvegsmál fyrir íslands hönd. Utanríkisráð- herra hefur ítrekað lýst því yfir að Norðmenn hafí gert hagstæðan sjávarútvegssamning. „Hingað til hef ég ekki heyrt ummæli af þessu tagi nema frá Eggerti Haukdal og hélt að hann hefði viðurkennda sérstöðu í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins," sagði Jón Baldvin Hannibalsson við Morg- unblaðið. „Að því er varðar sjávarútvegs- samning Norðmanna þá hef ég sagt að mitt mat sé að hann sé hagstæð- ur Norðmönnum. Ég hef jafnframt mæli um að skrá viðveru sína í starfí sagði Sigurður að svo virtist sem með því væri einungis verið að reyna að gera honum lífíð erfitt. Aðspurður um hvers vegna hann teldi svo vera sagði hann að hann vildi ekki tjá sig um „þær sálfræði- legu eða pólitísku orsakir" sem þar lægju að baki, ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands vinn- ur nú að gerð markaðsskýrslu um ísland sem þjónustumiðstöð fýrir erlend fískiskip. Tilgangur verkefn- isins er að afla markaðsupplýsinga sem leitt geta til aukningar á sölu á vörum og þjónustu íslenskra fyrir- tækja til erlendra fískiskipa. Fram- kvæmd verður samkeppnisgreining á styrkleikum og veikleikum Islands sem þjónustumiðstöðvar samanbor- ið við erlendar hafnir. Þá verður leitast við að greina þau tækifæri sem enn eru ónýtt á þessum mark- tekið það fram að öðru máli gegndi um ísland því það væri reginmunur á því hversu mikilvægur sjávarút- vegur væri okkar þjóðarbúskap. Ég hef líka rökstutt rækilega hvernig við ættum að halda á málum á annan veg og lagt fram mat mitt á því að við hefðum sterkari samn- ingsstöðu gagnvart Evrópusam- bandinu að mörgu leyti.“ sagði Jón Baldvin. „Mér þykja þessi ummæli satt að segja ekki málefnaleg þótt þau hafi verið borin fram á málefna- þingi. Ég hlýt líka, ef þetta er spuming um traust, að benda á að sjálfur hefur forsætisráðherra lagt allt sitt traust á EES-samninginn Bifreið hafnaði í garði BIFREIÐ hafnaði í garði við Hrauntungu 4 i Hafnarfirði í gærkvöldi, þegar ökumaður missti stjórn á bifreiðinni. Að sögn lögreglu slasaðist enginn en nokkrar skemmdir urðu á gróðri og bifreiðin skemmdist lítillega. aði, og með hvaða hætti væri best að nýta þau. Samkvæmt upplýsingum frá Þor- geiri Pálssyni hjá Útflutningsráði er áætlað að vinna þetta verkefni á næstu 6 mánuðum og verklok eru því áætluð í mars 1995. Niðurstöð- um verður í fyrstu eingöngu dreift til þátttakenda í verkefninu. Að sex mánuðum liðnum frá útgáfudegi skýrslunnar fer hún hins vegar í almenna dreifíngu og sölu á vegum Útflutningsráðs. Verkefnisstjóri er Þorgeir Páls- og lofað mjög ágæti hans. Ég hef verið pólitískur verkstjómaraðili að þeim samningi frá upphafi til enda. Mér kemur því spánskt fyrir sjónir ef sá stjórnmálamaður sem á þann feril að baki þykir allt í einu ekki trausts verður, sérstaklega í ljósi þess að þingflokkur Alþýðuflokks- ins er eini þingflokkurinn á Alþingi sem hefur verið sjálfum sér sam- kvæmur frá upphafi til loka um ótvíræðan stuðning við EES-samn- inginn." Atkvæðaveiðar? Á SUS-þinginu sagði forsætis- ráðherra einnig í sömu ræðu: „Við utanríkisráðherra erum sammála Málþing umKonrad Maurer MÁLÞING á veg- um Germaniu og Goethe-stofnunar- innar um Konrad Maurer verður haldið 1. október nk. á Hótel Sögu kl. 14. Efni málþings- ins verður óútgefín ferðasaga Konrads Maurers pró- fessors. Hann ferðaðist um ísland árið 1858. Kurt Schier, prófessor frá Múnchen, fjallar um lífsstarf Maurers og Sigurður Líndal pró- fessor fjallar um réttarsögufræð- inginn Maurer. Þá mun Ámi Bjömsson, þjóð- háttafræðingur, fjalla um ferðabók Maurers útfrá þjóðháttafræðilegu sjónarmiði. Málþinginu, sem hefst klukkan 14, lýkur með pall- borðsumræðum. son, en verkefnið er unnið af Kristó- fer Frank de Fontenay útflutnings- og markaðsfræðingi. Þátttakendur í verkefninu eru Akureyrarhöfn, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Eimskip, Faxamarkaðurinn hf. Hafnarfjarðarhöfn, Hampiðjan hf., íslenskar sjávarafurðir hf., Kassa- gerðin hf., Kjötumboðið/Goði hf., Landssamband íslenskra rafverk- taka, Reykjavíkurhöfn, Samskip hf., -Skipaþjónusta Suðurlands sf. og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. um að vera ósammála um Evrópu- stefnuna. Ég skil að Alþýðuflokkur- inn taki málið upp miðað við stöðu hans nú. Mér gremst þegar því er haldið fram að málið sé „aktúelt" því að þetta er ekki mál dagsins í dag. Alþýðuflokkurinn getur hugs- að sér að ná í atkvæði frá Sjálfstæð- isflokknum og við skulum ekki láta hann gera það þótt ég geti vel hugs- að mér að Alþýðuflokkurinn -styrk- ist nokkuð.“ Jón Baldvin Hannibalsson sagð- ist neita því alfarið að um væri að ræða eitthvað atkvæðabrask af hálfu Alþýðuflokksins og vísaði í því efni til stefnuyfirlýsingar og ályktana Alþýðuflokksins. „Þetta er vandlega rökstudd stefna flokks- ins. Við [forsætisráðherra] höfum áður sagt að við værum orðnir sam- mála um að vera ósammála í þessu efni en ég tel ekki viðeigandi að gera mönnum upp annarlegar hvat- ir í málinu. Ég hef ekki gert það að því er varðar þá sjálfstæðis- menn.“ Banaslys við Sauð- árkrók ÁTJÁN ára piltur, Þórður Hólm Björns- son, til heimil- is að Smára- grund 1 á Sauðárkróki, fórst í bílslysi á laugardag- inn, þegar fólksbifreið fór út af veginum á gatnamótum Sauðárkróks- brautar og Strandvegar. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíl, sem Þórður var far- þegi í, var ekið fram úr dráttar- vél á miklum hraða að talið er. Ökumaður missti stjóm á bíln- um með þeim afleiðingum að hann valt og endastakkst út af veginum. Fjórir piltar, allir und- ir tvítugu, voru í bifreiðinni. Þórður Hólm var farþegi í fram- sæti bifreiðarinnar og kastaðist út úr henni. Hann er talinn hafa látist samstundis. Bílstjór- inn slapp svo til ómeiddur en farþegar í aftursætum voru færðir í sjúkrahús. Annar þeirra meiddist á baki. Hinn fékk að fara heim í gær. Aðeins bílstjór- inn var í öryggisbelti þegar slys- ið varð. Prófkjör Sjálfstæðisflokks Lára Margrét stefnir á 5. sætið LÁRA Margrét Ragnarsdóttir, hagfræðingur og þingmaður, stefnir á 5. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokks í prófkjöri flokksins 28. til 29. október næstkomandi. Hún varð í 9. sæti lista flokksins í síðustu alþingiskosningum og færðist í 8. sæti við brotthvarf Birgis ísleifs Gunnarssonar af þingi. Lára Margrét sagði að hart hefði verið lagt að sér að tiltaka ákveðið sæti í prófkjörinu. „Mönnum fínnst mikilvægt að menntun mín og áhugi á heil- brigðismálum nýtist flokknum sem best,“ sagði Lára Margrét. Hún er hagfræðingur með áherslu á heilbrigðismál og sjúkrahússtjómun. Lára Margrét hefur að auki starfað að utanríkismálum á kjörtímabilinu. Hún situr í ut- anríkismálanefnd og varð fyrst Islendinga kjörin formaður fastanefndar Evrópuráðsins í sumar. Póstur og sími Truflun í miðbæjarstöð SEX mínútna truflun varð á starfsemi miðbæjarstöðvar Pósts og síma um hálffjögur- leytið í gær að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur upplýsingafull- trúa fyrirtækisins. Segir Hrefna ekki ljóst af hveiju truflunin varð en símstöðvar fyrirtækis- ins eru beintengdar tölvu sem gefur skipun um að gangsetja kerfíð á ný detti það út. Hafí það dugað í þessu tilfelli eins og í öðrum slíkum þegar ekki sé um langvarandi bilun að ræða. Segir hún ennfremur að þrír af fjórum símnotendum á landinu séu tengdir við staf- ræna stöð á borð við þá sem er í Landssímahúsinu og af ein- hverjum orsökum sé þessi stöð sú eina sem detti út öðru hveiju með þessum hætti. Utanríkisráðherra um ræðu forsætisráðherra á SUS-þingi Ummælin ekki málefnaleg Formaður stjórnamefndar Ríkisspítala Biðst lausnar JÓN H. Karlsson aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Guðmundar Árna Stefánssonar, hefur beðist lausnar sem formaður stjórnar- nefndar Ríkisspítala frá og með 1. október næstkomandi. Sighvat- ur Björgvinsson heilbrigðisráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að ekki væri búið að skipa eftirmann for- mannsins en frá því yrði væntan- lega gengið áður en hann léti af störfum um mánaðamótin. Segir í bréfi, dagsettu 21. sept- ember, frá Jóni H. Karlssyni til Sighvats Björgvinssonar heil- brigðisráðherra, að lausnar sé beðist í ljósi ráðherraskipta í heil- brigðismálaráðuneyti. Einnig seg- ir að bréfritari telji eðlilegt „með tilliti til hefðar sem skapast hefur hvað varðar skipan stjórnarfor- manns Ríkisspítala" að ráðherra eigi þess kost að skipa mann að eigin vali í stöðuna. Úttekt á íslandi sem þjónustu- miðstöð fyrir erlend fiskiskip

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.