Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 35 MINNINGAR kvartaði hann yfír því að þurfa að vinna þótt stundum væri vart hundi út sigandi í kulda og trekki. Þegar ég hafði tekið þá ákvörðun að læra húsasmíðar og var í at- vinnuleit var Eggert sjálfstætt starfandi og var ekki að sökurr að spyrja. Hann útvegaði okur verk- efni það sumarið á milli skólaanna hjá mér. Aldrei fæ ég fullþakkað handleiðslu hans er hann kenndi mér fyrstu handtökin í útismíðinni. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast Eggert að vini og kom það best fram í því hve áhugasam- ur hann var um velgengni mína. Þegar við hjónin fluttumst erlendis um tíma hvatti hann mig eindregið til fararinnar og hann munaði ekk- ert um að koma akandi rúma 400 km á hraðbrautum Þýskalands er hann og fjölskylda hans dvöldu þar í sumarleyfí. Eftir að við fluttumst heim aftur hóf ég störf sem sjálfstætt starf- andi húsasmíðameistari og var hvatningin og stuðningurinn frá Eggert hreint ómetanlegur. Hann var sífellt að athuga hvort ég vildi ekki athuga um þetta eða hitt verk- efnið því að hann vissi að það ætti að framkvæmast. Þau eru ófá verk- efnin sem þannig rötuðu inn á borð til mín og er slíkur erindreki sem Eggert vandfundinn. Eitt var þó í huga Eggerts það dýrmætasta sem hver maður getur eignast en það var trúin á Jesúm Krist. Elsku Alda, Magga, Guðbjöm og Stína, megi góður Guð styrlq'a ykk- ur og blessa á þessari kveðjustund sem og um ókomin ár. Með sínum dauða’ hann deyddi dauðann og sigur vann, makt hans og afli eyddi, ekkert mig skaða kann; þó leggist lík í jðrðu lifir mín sála fri, hún mætir aldrei hörðu himneskri sælu í. Hreiðar Örn Gestsson. Kveðja frá KFUM í Reykjavik Vertu fús bæði og frár til að framkvæma allt sem þú finnur að rétt styður mál... Þessar ljóðlínur sr. Friðriks koma upp í hugann þegar ég minnist vin- ar míns, Eggerts Theódórssonar. Til hinstu stundar var hann brenn- andi í andanum og fús að leggja hveiju góðu máli lið eftir föngum. Hann gat verið óþolinmóður ef hon- um fannst aðrir svifaseinir - hvort sem var í ákvarðanatöku eða við -vinnu. Hann var ákafur en þó fyrst og fremst sannur í hveiju sem hann sinnti. Fyrir tveimur áratugum brotnaði Eggert illa í vinnuslysi við byggingu íþróttahússins í Vatnaskógi og var marga mánuði á sjúkrahúsi. Sjálf- sagt lýsir það manninum einna best að hann var varla fyrr kominn á fætur en hann fór upp í Skóg að vinna af slíku kappi að fullfrískir, yngri menn höfðu ekki við honum. Eggert var stórhuga og stundum fannst honum ekki nógu vasklega gengið fram. Um heilindi hans þurfti aldrei að efast. Fyndist hon- um eitthvað aðfinnsluvert lét hann það heyrast en var einnig óspar á hvatningu. Við í KFUM söknum góðs félaga en við kveðjum hann ekki í óvisssu heldur öruggri von eiiífs lífs. Hann sofnaði snögglega að loknum löng- um starfsdegi. Við þökkum Guði fyrir að hann skuli fá að vakna í dýrð himnanna og lifa með Drottni að eilífu. Ég kynntist fjölskyldu Eggerts á unglingsárunum gegnum Margréti dóttur þeirra Öldu. Alla tíð síðan hafa þau öll reynst mér'sannir og traustir vinir og fyrir það vil ég þakka um leið og ég votta fjölskyld- unni samúð mína. Eggert valdi ungur að fylgja Jesú Kristi. Áhuginn og eldmóðurinn entust þangað til kallið kom. Þótt líkaminn hrömaði var andinn ávallt reiðubúinn og sálin heil og heit. Hann lifði svo sannarlega eftir hvatningu sr. Friðriks: ... láttu æskunnar ár verða ævinnar salt svo að aldregi sljóvgist þín sál. Guð blessi minningu góðs drengs. Ólafur Jóhannsson. Fleirí minmngargreinar um Eggert Theodórsson bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. t Bróðir minn og föðurbróðir okkar, HALLDÓR HÁKONARSON frá Hafþórsstöðum, Norðurárdal, sfðast til heimilis á Elli- og hjúkrunarheimilínu Grund, lést mánudaginn 26. september. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 4. október kl. 13.30. Metta Hákonardóttir, Ingibjörg Hermannsdóttir, Hákon Sigurjónsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, HARALDURSTEFÁNSSON, Háteigsvegi 48, Reykjavik, lést f Hjúkrunarheimilinu Skjóli 25. september. Jarðarförin auglýst sfðar. Jenný Magnúsdóttir, Guðlaug Haraldsdóttir, Helgi Már Haraldsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÓLAFS SKAFTASONAR, Hátúni 12, Reykjavík, og EVU SKAFTADÓTTUR, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Gunnar Skaftason og fjölskylda, Ólöf Helga Guðmundsdóttir og fjölskylda t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU B. SVEINSDÓTTUR, Suðurbraut 4, Hofsósi. Gunnar Stefánsson, Þóra Gunnarsdóttir, Garðar Ól. Schram, Sverrir Gunnarsson, Guðlaug Jóhannsdóttir, Guðlaug Gunnarsdóttir, Sœvar Einarsson, Loftur Gunnarsson, Erlendsfna Helgadóttir, Stefán Gunnarsson, Stefanfa Guðmundsdóttir, Ásdfs Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýjan hug við andlát og útför móður okkar, ÓLÍNU PÉTURSDÓTTUR. Þorsteinn Þorsteinsson, Valgerður Þorsteinsdóttir, Pétur Þorsteinsson. Lokað Vegna útfarar SVANHILDAR HJALTADÓTTUR verður afgreiðsla sparisjóðsins í Borgartúni 18 lokuð frá kl. 12.30 þriðjudaginn 27. september. Sparisjóður vélstjóra. skólar/námskeið handavinna ■ Ódýr saumanámskeið Sparið og saumið fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður kennari. Upplýsingar f síma 17356. ■ Waldorf brúðugerð Kvöld- og helg- amámskeið. Upplýsingar í síma 44637. Hildur Guðmundsdóttir. myndmennt ■ Myndlistarnámskeið Leiðbeini við ýmsar greinar myndlistar. Einnig úr efnisafgöngum. Innritun hafin í síma 611614. Björg ísaksdóttir. Bréfaskólanámskeið: Teiknun og málun 1, 2, 3 og 4, Skrautskrift, Innan- hússarkitektúr, Hýbýlafraéöi, Garðhúsa- gerð og Teikning og föndur. Fáið sent kynningarrit skólans án kostnaðar. Pantanir og upplýsingar í símum 627644 og 668333 eða póstbox 1464, 121 Reykjavík. ■ Keramik-námskeið Keramik-námskeiðin á Hulduhólum í Mosfellsbæ hefjast í byrjun október. Byrjendaflokkar og framhaldsflokkar. Uppl. í síma 666194. Steinunn Marteinsdóttir. tölvur ■ Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 688090. Tölvunámskeið sem hefjast næstu daga: ■ QuarkXPress umbrot. 15 klst. námskeið um umbrot auglýsinga, bæk- linga og fréttabréfa fyrir Macintosh- og Windows-notendur. 3.-7. október kl. 13-16. ■ Access-gagnagrunnurinn. 15 klst. námskeið um jiennan fjölhæfa gagnagrunn fyrir Windows. 3.-7. októ- ber kl. 16-19. ■ Umsjón tölvuneta. 48 klst. hagnýtt námskeið um rekstur netkerfa. Einu sinni í viku í 16 vikur á þriðjudagskvöldum. Hefst í dag þriðjudaginn 27. september. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 688090. STJÓRNUNARFÉIAGS ISLANDS OG NÝHERJA 69 77 69 CQ> 62 1 O 66 NÝHERJI □ Tölvuskóli í fararbroddi ÖU hagnýt tölvunámskeið. Fáðu senda nýju námsskrána. ■ Tölvunámskeið - Windows 3.1. - Word 6.0 fyrir Windows og Macin- tosh. - WordPerfect 6.0 fyrir Windows. - Excel 5.0 fyrir Windows og Macin- tosh. - PageMaker 5.0 fyrir Windows/Mac- intosh. - Access 2.0 fyrir Windows. - Paradox fyrir Windows. - PowerPoint 4.0 fyrir Windows/Mac- intosh. - Tölvubókhald. - NoveU námskeið fyrir netstjóra. - Word og Excel uppfærsla og fram- hald. - Unglinganám. - Windows forritun. Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar kennslubækur fylgja öUum námskeiðum. Upplýsingar og skráning í síma 616699. Tölvuskóli Rcykiavíkur ™ Borgartuni 28. simi 616699 tónllst ■ Píanókennsla Kenni byrjendum á píanó og hljómborð. Upplýsingar í síma 619125. Sigriður Kolbeins. ■ Pianókennsla. Kenni bömum og fuUorðnum. Tónfræðikennsla innifalin. Sími 73277 þriðjud. og föstud. kl. 13-18. Guðrún Birna Hannesdóttir. tungumál ENSKUSKÓLINN Túngötu 5. ¥ Hin vinsælu 7 og 12 vikna enskunám- skeið eru að hefjast. ★ Áhersla á talmál. ★ 10 nemendur hámark í bekk. ★ 10 kunnáttustig. Einnig er í boói: Viðskiptaenska, rituð enska, umræðu- hópar, tofel-undirbúningur, stuðnings- kennsla fyrir unglinga og enska fyrir bðrn 4-12 ára. ★ Enskir sérmenntaðir kennarar. ★ Markviss kennsla í vinalegu umhvérfi. Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar í síma 25900. ýmislegt ■ Alþjóðlegir pennavinir Internat- iona! Pen Friends útvegar þér a.m.k 14 jafnaldra pennavini frá ýmsum löndum, sem skrifa á ensku. Einnig á sama hátt sem skrifa á frönsku, þýsku, spænsku og portúgölsku. 300.000 manns í 210 löndum. I.P.F., pósthólf 4276, 124 Reykjavik. Sfmi 988 18181. ■ Hver laug þessu að þér? Nám- skeið fyrir blekkta og svekkta. Lífefli - gestalt. Sálfræöiþjónusta, Gunnars Gunnarss., sími 641803. ■ Ljósheimar. Vetramámskeið Ljós- heima hefst helgina 8.-9. okt. Kennd ’ eru grunnatriði Guðspeki og að lifa and- legu lífi. Upplýsingar og skráning í sím- um 624464 og 674373. ■ Ættfræðinámskeið 5-7 vikna hefjast eftir miðjan sept. Frá- bær rannsóknaraðstaöa. Tek saman ættir og hef á annað hundrað ættfræði- og æviskrárrita til sölu. Ættfræðiþjónustan, Brautarh. 4, s. 27100 / 22275. Hlemmi 5, 2. hæð, 105 Reykjavík. Opið alla virka daga frá kl. 10-15. Simi: 91-629750. Myndsendir: 91-629752. Rafpóstur: brefask ismennt.is. Sendum i póstkröfu um allt land. tómstundir ■ Bridsskólinn Framhaldsnámskeið hefst á funmtudag- inn. Upplýsingar og innritun í síma 812607 daglega milli kl. 14.00 og 18.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.