Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Geisladrif Hljoðkort frá kr. 17.900,- ^BQÐEIND- Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 V________________/ Tíu nýjar íbúðir teknar í notkun á Sólheimum SKÓLALÚÐRASVEIT Seitjarnarness lék fyrir gesti. Grímsnesinu með yfir 80 manns, fallegt þorp, þar sem mannúð og mildi væri í hávegum höfð. í kaffisamsæti eftir vígslu íbúð- anna afhenti foreldrafélag Sólheima gjafir, síma í allar íbúðirnar og bocc- ia-sett til íþróttafélagsins Gnýs. Loks fékk hver og einn íbúi afhentan pakka með hlut sem skreyta á hveija íbúð. Selfossi - Tíu íbúðir við Undirhlíð á Sólheimum voru vígðar og form- lega teknar í notkun á sunnudag, 25. september, að viðstöddum fjölda gesta. Það voru Sigurður Guð- mundsson, forstjóri Húsnæðisstofn- unar ríkisins, og Þorvaldur Þor- steinsson, einn af eldri félögum Li- onsklúbbsins Ægis, sem lýstu íbúð- irnar formlega teknar í notkun og afhjúpuðu skjöld á hvoru húsi. „Þetta er sérstakur viðburður. Við erum að taka tíu fatlaða einstaklinga í sjálfstæða búsetu. Við getum gert þetta því hér er öli þjónusta, sem þeir þurfa, til staðar," sagði Halldór Júlíusson, forstöðumaður á Sólheim- um. íbúðirnar tíu eru hluti af upp- byggingu Sólheima. Heildarkostnað- ur við þær er 50 milljónir króna. Morgunblaðið/Sig. Jóns. IBÚÐIRNAR tíu eru í tveimur húsum við Undirhlíð á Sólheimum. Aðalverktaki var SG-einingahús á Selfossi. Á Sólheimum hefur í sumar að auki verið í byggingu verkstæðis- hús, Ólasmiðja, sem heitir eftir ein- um af velgjörðarmönnum Sólheima, Ólafi M. Isakssyni. I Ólasmiðju verð- ur trésmíðaverkstæði og vinnustofa. Um er að ræða 500 fermetra hús og er gert ráð fyrir að taka það í notkun á næsta ári. Pétur Sveinbjamarson flutti ávarp fyrir hönd framkvæmdastjórnar Sól- heima. Hann sagði að lokið væri byggingu 17 nýrra íbúða á tveimur árum. Hann heiðraði Sigurð Guð- mundsson, forstjóra Húsnæðisstofn- unar, og Þorvald Þorsteinsson í Li- onsklúbbnum Ægi fyrir velvild og vinnu fyrir Sólheima. Pétur sagði að framundan væri bygging 5-7 íbúða og að þeim framkvæmdum loknum væru allir heimilismenn á Sólheimum komnir í nýtt húsnæði á fimm árum. Auk íbúðabyggingar er að sögn Péturs framundan að ljúka við Óla- smiðju og heilsuheimili ásamt bygg- ingu 1.500 fermetra gróðurhúss. Ólasmiðja er fyrsta atvinnuhúsnæðið sem byggt er á Sólheimum. Framkvæmt fyrir 100 milljónir „Það er stolt Sólheima að geta veitt öllum vinnu við hæfi,“ sagði Pétur Sveinbjarnarson. Hann gat þess að á síðastliðnum fimm árum hefði styrktarsjóður Sólheima lagt 100 milljónir til uppbyggingar á staðnum. Þetta væri afrakstur mik- illar vinnu og framiaga velunnara heimilisins. Lionsklúbburinn Ægir ætti þar stóran hlut að máli. Pétur sagði að Sólheimar væru nú orðinn stærsti byggðakjarninn í BILDINGS- FÖRVALTNIN GEN Starfsemin í örebro er markviss og miÖstýring lítil. Skólarnir eru sjálfstæðar einingar sem bera fulla ábyrgð" á starfsemi og árangri. Starfsemin nær til fimm menntaskóla og öldungadeilda. í hverri skólaeiningu eru þróaðar fram vinnueiningar sem bera mikla ábyrgð og hafa mikil áhrif. Sem stjórnandi í einhverjum af skólum okkar munt þú bera mikla ábyrgð á því hvernig skipulag og starfsemi þróast áfram. AÐSTOÐARREKTOR AÐSTOÐARREKTOR — Karolinska skolan — Karolinska skolan er í miðborg Örebro og eru nemendur um 1.050 en starfs- menn um 100. Starísemin skiptist í þrjú svið: □ Félagsvísindasvið. □ Náttúrufræðisvið. □ Fagurfræðisvið. Við leitum að einhverjum sem er reiðubúinn að bera ábyrgð á náttúru- fræðisviðinu en í því felst: .□ Að vera í stjórn skólans og taka þar þátt í því langtímastarfi að þróa starf- semi skólans. □ Að bera daglega ábyrgð á starfsem- inni á þínu sviði. □ Að bera fulla ábyrgð á starfsmanna- haldi, fjárhag og kennslufræðilegri þróun innan sviðsins. Við förum fram á að þú hafir: □ Háskólamenntun. □ Reynslu af kennslustarfi annaðhvort innan skólakerfisins eða á öðru sviði. □ Góða hæfileika til að örva og efla samstarfsmenn þína. □ Áhuga á og getu til að gegna forystu- hlutverki og taka þátt í og leiða breytingar og þróunarstarf. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar er þér velkomið að hringja í Marianne Troselius rektor í síma 90 46 19 21 65 01 eða í Tommy Forsberg starfsmanna- stjóra í síma 90 46 19 21 61 26. Tilvísunarnúmer (Ref.nr.) Kal3/94. — Rudbeckskolan — Nemendafjöldi í Rudbeckskolan er um 900 og starfsmenn um 120. Samkvæmt skipulagi skólans skiptist starfsemin í eftirfarandi svið: □ Náttúrufræðisvið. □ Samfélagsfræðisvið. □ Fjölmiðlafræðisvið. Rudbeckskolan er einnig sérskóli fyrir heyrnarlausa og heyrnarskaddaða með áherslu á tæknimenntun. Við leitum nú að starfskrafti í nýja stöðu aðstoðarrektors sem mun bera ábyrgð á: □ Frekari menntun, fyrst og fremst fyrir tæknifræðinga. □ Verkefnamenntun. □ Upplýsingaþjónustu skólans og markaðssetningu. □ Sem aðstoðarrektor munt þú einnig vera í stjórnunarsveit skólans og starfa þar að langtímaþróun hans. Við förum fram á að þú hafir: □ Haldóða þekkingu á sviði kennslu- fræði og reynslu af fræðslustarfi. □ Góða menntun, gjarnan háskóla- menntun með hagfræðilegri eða tækni- legri sérhæfingu. □ Góða leiðtogahæfileika og áhuga á að vera í forystuhlutverki sem byggist á miklum samskiptum við aðra starfs- menn, ákvarðanatöku og fjölbreyttum verkefnum sem vinna þarf rösklega á skömmum tíma. Ef þú vilt frekari upplýsingar er þér velkomið að hafa samband við Margaretha Nordlander rektor í síma 90 46 19 21 65 61 eða Tommy Forsberg starfsmannastjóra í síma 90 46 19 21 61 26. Tilvísunarnúmer Ru 27/94. AÐSTOÐARREKTOR — Vásterplansskolan Komvux — Vösterplansskolan sér um öldunga- deildarkennslu í Örebro. Fjöldi nem-' enda er um 3.000 og fjöldi starfsmanna um 150. Starfsemin skiptist í eina skipulagsdeild og fimm kennslusvið: □ Tungumálanám. □ Náttúrufræðinám. □ Samfélagsfræðinám. □ Sænska fyrir innflytjendur. □ Verkefnamenntun. Sem aðstoðarrektor munt þú: □ Bera ábyrgð á náttúrufræðináminu. □ Bera ábyrgð á hinni umfangsmiklu ADB stefnu skólans. □ Sitja í stjóm skólans ásamt rektor, aðstgðaprektorum, skipulagsstjóra og fjármála- og stjórnsýslustjóra. □ Þú munt hafa yfirumsjón með sextán kennurum, aðstoð við nemendur, bera ábyrgð á kennslufræði og fjárhag. Við förum fram á að þú hafir: □ Háskólamenntun □ Reynslu af starfi á sviði kennslufræði og fræðslustarfi. □ Hafir góða leiðtogahæfileika og mikinn áhuga á breytingum og þróunarstarfi. □ Sért sátt(ur) við að vinna á miklum hraða og á stundum undir miklu álagi. Ef þú hefur áhuga á frekari upplýsingum er þér velkomið að hafa samband við Kristina Gullberg Bergström rektor í síma 90 46 19 21 63 34 eða Carina Hageras starfsmannastjóra í síma 90 46 19 21 62 04. Tilvísunamúmer: Komvux 32/94. SKIPULAGSSTJ ORI — Virginska skolan — Nemendur í Virginska skolan eru um 1.400 og starfsmenn um 200. Starfsemi skólans skiptist niður á 7 svið: □ Hótel- og veitingasvið. □ Barna- og tómstundasvið. □ Handverkssvið. □ Matvælasvið. □ Fjölmiðlasvið. □ Samfélagsfræðisvið. □ Verkefnamenntun. Sem skipulagsstjóri munt þú gegna mjög mikilvægu samhæfingarhlut- verki. Þú munt sitja í stjórn skólans ásamt rektor skólans og aðstoðar- rektorum viðkomandi sviða. Mikilvægasta verkefni verður að samhæfa og skipuleggja starfsemina, t.d. verkefnaskiptingu og gerð stunda- taflna. í því felst einnig að þróa fram nýjar starfs-aðferðir og kerfi sem gætu komið öðrum yfirmönnum og skipu- lagsstarfi þeirra til góða og efla starf- semina. Þú munt einnig taka þátt í skipulagsumræðu skólanna í sveitar- félaginu. Við förum fram á að þú hafir: □ Reynslu af stjórnunarstarfi innan skóla eða kennslu. □ Góða greiningarhæfileika og mikinn áhuga á að vinna öð lausn vanda- mála. □ Góða skipulagshæfileika og sam- starfshæfileika. Ef þú hefur áhuga á frekari upplýsingum er þér velkomið að hafa samband við Hans Egonsson rektor í síma 90 46 19 21 66 59 eða Ann-Kristin Norberg starfsmannastjóra í síma 90 46 19 21 62 87. Tilvísunarnúmer: Vi 49/94. Fulltrúar stéttarfélaga eru Jarl Ullenius, Skolledarna, í síma 90 46 19 21 66 26, Staffan Svedskog, LR, sími 90 46 19 21 64 03, Gösta Sundvall, Lararförbunded, sími 90 46 19 14 10 14. Þér er velkomlð að senda umsókn þína til Bildningsförvaltningen, Personalavdelningen, Box 30800,701 35 örebro. Taktu fram tilvísunarnúmer þeirrar stöðu, sem þú sækir um. Umsóknarfrestur rcnnur út 7. október. Mercuri urval

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.