Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens AL.LAR pý&UFS- \/Hýnpií> sem m Efrf oo >‘Ó6þÆ£Éeu\ %þ£tlZFA&IMEÞ \Auafleins A S/cePNUHrJ- Grettir Smáfólk UJHAT D\D SHE 5AT, MARCIE? SHE U)AS QUOTINÖ FROM IKIN65, CHAPTER 18, VERSE 26.. "BUT THERE WA5 NOT A SOUND/NO ONE ANSWERED, ANP NOT ANYONE L15TENED" PRETTY 50BTLE, MA'AM. Hvað sagði Magga? Hún var að vitna „En það heyrðist ekki hljóð; eng- í 28. kafla, 26. vers inn svaraði og enginn hlustaði." í Konungabók 1. Fremur erfitt að skilja, kenn- ari. JHov0im6IaM> BRÉF TEL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími691I00# Símbréf 691329 Ferðalög á íslandi Smáblettir til áningar við vegi Frá Sveini Ólafssyni: ÞEGAR ferðast er um landið verður fljótt ljóst, að víðast í byggðum er land girt alveg út að vegum og skurðir gjarnan við veginn, svo óvíða er svigrúm til að fara út fyrir ak- vegi til að á, eins og það hét, þegar hesturinn var aðal samgönguhjálpin. Vegargerðin hefur gert virðingar- vert átak í vaxandi mæli til að útbúa áningarstaði við vegi með traustum bekkjum og borðum. Ber að lofa þetta sem gott spor í framfaraátt fyrir ferðalanga, sem vilja „sækja ísland heim“ eins og fundið var upp nýlega að kalla innanlandsferðalög. Sá ljóður er þó á þessu, að það vant- ar að geta í róleguheitum sezt eða lagst niður aðeins frá umferðinni á skjólsömum stöðum, lautum eða geilum eða undir brekkum og notið rólegrar stundar - ekki til að tjalda endilega,- en bara njóta náttúrunnar og slappa af og kannski borða nesti með fjölskyldunni og bömunum. Slíkt er varla hægt að ætlast til að vegagerðin fari að fást við, hitt sem þegar er gert af hennar hálfu, virð- ist með allri sanngirni vera innan ramma hennar verkefna og varla rétt að ætlast til meira. Sumsstaðar eru svona möguleikar frá náttúrunnar hendi, t.d. í Grafn- ingi víða og í heiðarlöndum og t.d. í hrauninu víða við Suðurnesjaveginn og sumsstaðar við veginn vestur á Mýrum og Snæfellsnesi og sennilega víðar. - Einn staður hefur verið útbú- inn sérstaklega, að því er virðist, til svona hluta, en það er rétt þegar komið er niður brekkuna að Nesja- völlum. Þar er dálítið bílastæði við veginn og hægt að stoppa þar og komast í gróið land í skjóli undir brekkunni, og þar stoppar fólk gjarnan og slappar af. Áningarstaðirnir gleymdust Ástæðan fyrir að farið er að skrifa bréf um þetta er sú, að svo virðist, að í því mikla ferðamálaátaki, sem í gangi er til að auka ferðalög land- ans innanlands, hefir þessu, sem hér er nefnt, varla verið gefinn gaumur eða ■ komið auga á það, að því er virðist. Væri ekki tilvalið, að ferðamálayf- irvöld og t.d. ferðamálanefndir í byggðarlögum landsins litu í kring- um sig og huguðu að þessum hlutum í sínu nágrenni? - Fýrir alla ferða- menn er það mikið atriði, að þurfa ekki miskunnarlaust að flengjast langar leiðir eftir vegunum, þar sem enginn möguleiki er til að komast spölkorn út fyrir veginn og slappa af. - Minnist ég grínþáttar í útvarp- inu á sunnudegi í sumar, þar sem þetta var sérstaklega tekið fyrir. Líka var þar gert grín að tjaldað- stöðu víða og allskyns ónæði og ófriði sem þar virðist geta verið um að ræða, svo stundum var ekki hvíld- ar- eða svefnfriður. Ódýr aðstaða fyrir ferðafólk Víða hefur einmitt verið komið upp tjaldstæðum í þéttbýli og er útaf fyrir sig vel um það. Það dreg- ur t.d. að erlent ferðafólk og það fer svo í búðirnar og kaupir nesti og nauðsynjar á stöðunum. - En t.d. hjólreiðafólk, sem orðið er þó nokkuð af - auk landans - þegar hann er að ferðast um til að sjá landið sitt - myndi án efa meta það mikils, ef sumsStaðar á skjólsömum og aðlað- andi stöðum, sem liggja vel við til áningar, væru girðingar færðar lítið eitt út á einhvetjum kafla, svo þar fengist svona aðstaða fyrir ferða- fólkið. - Ferðamálayfirvöld ættu að huga að hvort ekki væri viturlegt í sumum tilfellum að semja við bænd- ur um þetta og skapa þannig þessa bættu aðstöðu. Land, sem til þessa hentar, er sjaldan beitiland eða nýti- legt til ræktunar, það eru yfirleitt spildur þar sem land gjarnan er vart nýtanlegt, nema til svona hluta. Grátlegt er að sjá á sumum stöð- um þar sem er t.d. ógirt kjarr- eða skóglendi, að sett hafa verið upp spjöld við vegina, þar sem landeig- endur banna að farið sé út fyrir veginn. - Virðist frekar að þeir ættu að leyfa þetta, og setja upp í staðinn skilti þar sem tilgreindar eru strang- ar reglur um góða umgengni og umhverfisvernd (skilja ekki eftir rusl o.þ.h.), og heitið á þegnskap ferða- manna í þessu tilliti. - Þetta ættu ferðamálayfirvöld líka að athuga og vita hvort hér er ekki möguleiki á samvinnu við landeigendurna á grundvelli gagnkvæms skilning. Þau gætu t.d. hjálpað til í samráði við umhverfisyfirvöld að hafa eftirlit á svona stöðum, sem sinnt væri af eftirlitsmönnum, sem færu um land- ið yfir sumarið (sumarvinna) og þyrftu því ekki að vera margir í slíku. En gætu gert mikið gagn hér við að halda aga á hlutunum. Þetta er hérmeð sett fram til vin- samlegrar athugunar fyrir ferðamá- lyfirvöld og aðra þá sem hafa áhuga á þeim málum. - Þetta er ekki hugs- að sem neitt áhlaupsverk, heldur að byijað væri smátt á þessu, og þá gæti þetta orðið einn af þeim kost- um, sem gerðu ísland meira aðlað- andi fyrir ferðalög bæði fyrir íslend- inga sjálfa og ferðalanga erlendis frá, - en þeir gefa okkur tekjur - og því meiri sem fleiri koma. SVEINN ÓLAFSSON, Furugrund 70, Kópavogi. Svar við opnu bréfi til SPRON í FRAMHALDI af opnu bréfí Hugo Biður sparisjóðurinn hér með Þórissonar til Sparisjóðs Reykjavík- foreldra þeirra barna og unglinga ur og nágrennis sem birtist í Morg- sem eru félagar í Start-unglinga- unblaðinu 24. september sl. vill þjónustu sparisjóðsins afsökunar á sparisjóðurinn taka fram að við þessu. útsendingu umrædds bréfs til fé- laga í Start-unglingaþjónustu Virðingarfyllst, sparisjóðsins voru gerð ákveðin SPARISJÓÐUR REYKJAVIKUR OG mistök. NÁGRENNIS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.