Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ UNGLINGAR ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 49 Hvemig er að vera í 10. bekk? Björn Kristjánsson Kristján Benediktsson Valgerður Jónasdóttir Salóme Rúnarsdóttir Þ AÐ ER ágætt að vera kominn í 10. bekk, munurinn er ekki mikill á milli 8., 9. og 10. bekkjar nema val- ið er meira í 10 bekk. Ég valdi mér vélfræði og matreiðslu, stærð- fræðival og starfs- fræðslu. En ég er ekki farinn að fara í þessa tíma ennþá. Námið og lærdómurinn virðist vera svipað og í fyrra, nema það er auðvitað lögð mikil áhersla á samræmdú prófin sem verða í vor svo maður þarf að leggja aðeins meira á sig. ÞETTA er ágætt, ég var að byrja í Austurbæjarskól- anum en var í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði áður. Mér finnst meiri alvara í náminu núna, það skiptir allt meira máli í sambandi við að komast inn í fram- haldsskóla og slíkt, ábyrgðin er meiri. Valið er mjög fjöl- breytt,ég valdi starfsfræðslu, teiknun, og smíði. Ég held að kennarar komi ekkert öðruvísi framvið okkur þó við séum kom- in í 10. bekk. Ég geri heldur ekki meiri kröfur til kennaranna, bara að þeir kenni. ÞETTA ER nátt- úrlega síðasta árið í grunnskól- anum og mér finnst fínt að eiga bara þetta eina ár eftir. Það er skemmtilegt að vera elstur í skól- anum, en það fylg- ir því líka sá galli að það eru engir eldri strákar til að horfa á. Ég kviði ekki samræmdu prófunum, ég held að þau séu bara eins og önnur próf. Námsefnið hefur aðeins þyngst en ég held að 10. bekkur sé mik- ið til upprifjun á 9. bekk. MÉR finnst fínt að vera komin í 10. bekk, maður er elstur, en þetta er samt erfiðasti vet- urinn í grunnskól- anum. Eg held að ég taki námið al- varlegar en t.d. í fyrra, enda veltur á því að ná sam- ræmdu prófunum ef maður vill fara í áframhaldandi nám. Félagslífið er eins í 10. bekk og í yngri bekkjunum og það mætti auðvitað vera betra. Ætlar að baka grænar pönnukökur Nafn: Anna María Steinarsdóttir Beek. Heima: Reykjavík. Aldur: 13 ára. Hvað er það skemmtilegasta sem þú ger ir? Það er skemmtilegast að vera með öðrum krökkum og passa hunda. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Það er leiðinlegast að læra eðlisfræði og dönsku, en reyndar getur það verið gaman stundum. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar til að verða búfræðingur eða kokk- ur. Búfræðingar umgangast , mikið dýr og svo finnst mér 4 gaman að elda. Mér finnst skemmtilegast að elda pastarétti, en bráðum ætlum við pabbi að fara að elda grænar pönnukök- ur. Þær eru grænar vegna þess að það er sett spínat í þær. Getur skólinn • verið betri en hann er? Mér finnst skólinn góður eins og hann er og ég sé ekki að breytinga sé þörf. Busavíxl- ur sem tíðkuðust héma í Austurbæjarskólan- um voru bannaðar og ég er ánægð með það, mér fannst þær ljótar. Hveiju myndir þú vilja breyta í þjóðfé- laginu? Ég man ekki eftir neinu í augnablikinu sem ég vildi breyta. Hvað viltu ráðleggja þeim sem umgangast unglinga? Að vera ekki að rífast úte af öllu við unglingana, frekar að hjálpast að við að leysa málin. Hvernig er fyrirmyndarungling- ur? Fyrirmyndarunglingur drekkur ekki og reykir ekki, velur rétta vini og hugsar jákvætt um framtíðina. Réttu vinirnir eru þeir sem hvorki drekka né reykja og stríða ekki öðrum. Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? Ef ég væri ekki ég myndi ég vilja vera fræg söngkona t.d Whitney Huston eða Janet Jackson. Hver er munurinn á bolla og borði? Bolli er brothættur, hringlóttur og lítill. Borðið getur verið úr tré, með fjóra fætur og stórt. Ingólfur og Island Ingólfur og allt hans pakk oní ferðatösku stakk. Frá Noregi þau héldu burt út á hafíð slétt og kjurt. Yfír hafíð lá nú leið, leiðin var þeim ekki greið, en loks er fór að nálgast land var þar allt í hvala-bland. Árin liðu mjög svo fljótt Ingólfur hann byggði skjótt. Bærinn var í Reykjavík, en Hjörleifur var liðið lík. Á íslandi var stofnað þing á Þingvöllum var mikið lyng. Alltaf komu fleiri menn frá Haraldi þeir flúðu enn. Þingið mun þar standa enn en nýir eru stjómmálamenn. ísland er nú betra bú og þegi þú. Hrafnhildur og Rannveig Samtal milli Ara og Völu um félagslífið á Egilsstöðum Ari: „Nei, Vala, svo þú ert mætt. Hvað er að frétta af þér.“ Vala: „Eiginlega ekkert, nema það að ég lá á gjörgæslu eftir slys sem henti mig á hjólinu hennar Siggu. Þess vegna var ég ekki heima síðasta vetur, en missti ég af nokkru?" Ari: „Já, kona, synd að þú varst ekki hérna. Það var fullt af böllum, en að vísu voru sumar hljómsveitirnar ekkert æðisleg- ar en fólk fékk þá ágætis útrás við að ríf- ast við söngvarann." Vala: „Nohh, það er bara svona.“ Ari: „Það var miklu meira en þetta. Sundlaugarpartýið, kona, ég hef sjaldan séð andapollinn (sundlaugin) svona troðinn. Já, og svo var gerð heiðarleg tilraun með fýlukvöld." Vala: „Núnú, hvað var það?“ Ari: Jú, allir sem komu þóttust vera í vondu skapi en þeir sem fóru voru í vondu skapi. Þetta heppnaðist rnjög vel.“ Vala: „Bíddu nú við!“ Ari: „Þú skilur. Það eru alltaf allir í góðu skapi hérna svo við reyndum að breyta til.“ Vala: „Jú, það hlaut að vera.“ Ari: „Þetta var nú bara brot af því sem var um að vera síðasta vetur. Hei, ég þarf að rúlla, sjáumst í félagsmiðstöðinni í vet- ur.“ Valá: „Já, að sjálfsögðu. Sjáumst. Hlynur. „Smuga“ Albert Piskveiðar J Guðrnn Norsk fluga Helga Björg Smugan með Knstjan Þessi margum- talaða Smuga þar sem þeir eru j að fiskai- =o. Ég veit ekki, fiskideilan co c

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.