Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ________________________SVALBARÐAPEILAM________________________ Islensku skipstjórarnir geta búist víð háum sektum og gjöldum Skipunum haldið í Tromsö fram á fimmtudag’ Tromsö. Morgunblaðið. LARS Fause aðstoðaryfírlögregluþjónn í Tromsö sem rannsakar og fer með ákæruvald í máli íslensku skipstjóranna, sem staðnir voru að meint- um ólöglegum veiðum við Svalbarða á laugardag, segir að þeir eigi yfir höfði sér háar sektir og gjöld vegna upptöku afia. Hann segir einnig að skipin Óttar Birting og Björgúlfur fái í fyrsta lagi að fara frá Tromsö á fimmtudag hafi útgerðimar þá lagt fram bankatryggingar sem krafist verði, en málið komi líklega fyrir dóm eftir tvo mánuði. Norskir íjölmiðl- ar spá því að samtals geti verið um milljónir norskra króna að ræða í sektir og upptökugjald til skipstjóranna en Lars Fause vildi ekki stað- festa að svo væri í samtali við Morgunblaðið. LARS Fause aðstoðaryfirlögregluþjónn. Nordlys Fause flaug í gær með þyrlu norsku strandgæslunnar út í strandgæsluskipið Senju til að und- irbúa yfirheyrslur í málinu og sagði skömmu áður í samtali við Morgun- blaðið að þegar togaramir kæmu til hafnar yrði sett á þá farbann og skipstjóramir teknir til yfir- heyrslu á lögreglustöð staðarins. Skiptjórunum yrði hins vegar í sjálfsvald sett hvort þeir tjáðu sig eða ekki við yfirheyrslumar. Þeir hefðu réttarstöðu grunaðra en yrðu ekki handteknir eða haldið á lög- reglustöð og framburður þeirra hefði ekki áhrif á framgang málsins á þessu stigi. Mun ekki reyna á upptöku skipa Að loknum yfirheyrslum yrðu kallaðir til matsmenn að leggja mat á verðmæti skipa, veiðarfæra og afla og niðurstaða þess mats hefði þýðingu fyrir það hver yrði fjárhæð sekta, upptökugjalds og einnig bankaábyrgðarinnar- sem krafist yrði. í reglugerð þeirri sem Norð- menn settu 12. ágúst sl., eftir að Hágangur var færður til hafnar en sleppt þar sem ekki var unnt að refsa skipstjóranum fyrir meintar ólöglegar veiðar á Svalbarðasvæð- inu, eru lögð sömu viðurlög við því að veiða á veradarsvæðinu, og í norskri efnahagslögsögu. Þar á meðal er heimilt að gera skip upp- tæk, en til þess hefur aldrei komið, hvorki í Svalbarða né í efnahagslög- sögu. Fause sagði ljóst að í þessu máli mundi ekki reyna á það ákvæði. Aðspurður um fjárhæð sektanna sagði hann of snemmt að ræða það fyrr en matsmenn hefðu lokið störf- um. Fjárhæðin væri því sem næst ákveðið hlutfall af matsvirði báts, afla og veiðarfæra en hann vildi ekki upplýsa hvert hlutfallið væri. Hann sagði að samkvæmt lögum væri refsirammi fyrir brot af þessu tagi sektir og upptökugjald en ekk- ert hámark væri á upphæðum sekta og upptökugjalda. Meðal þess sem hefði áhrif á endanlega fjárhæð væri hve mikið af afla skipanna hefði verið fengið innan vemdar- svæðisins og hve mikið í Smug- unni, en aðeins yrði refsað fyrir þann afla sem tekinn hefur verið innan verndarsvæðisins. Lestar Óttars Birtings eru nær fullar að sögn norskra fjölmiðla og í dagblaðinu Nordlys í Tromsö, er haft eftir Káre Fuglevik hjá strand- gæslunni, að strandgæslumenn hafi horft á hvort skipanna ná inn um tuttugu tonna hali, um það bil sem ferð þeirra var stöðvuð. Lars Fause sagði að eftir að matsgerð lægi fyrir, yrði hægt að setja skipstjóra og útgerð skilyrði um fjárhæð bankaábyrgða sem krafist yrði áður en skipin fengju að láta úr höfn. Hann sagðist telja að þau fengju í fyrsta lagi að fara frá Tromsö á fimmtudaginn og þá yrðu skipstjór- amir jafnframt boðaðir til réttar- halda í bænum sem líklega yrðu haldin í desember. Útgerðir skip- anna hafa ráðið norska lögfræðinga til að fara með málið fyrir sína hönd hér, og Friðrik Arngrímsson héraðdómslögmaður var væntan- legur í gærkvöldi til Tromsö til að gæta hagsmuna útgerðarmanna. Til Tromsö var einnig kominn Ög- mundur Friðriksson útgerðarstjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga. * Hvað segja Tromsöbúar um veiðar Islendinga? Veiðar íslenzkra skipa í Barentshafi eru tilfínn- ingamál í Norður-Noregi. Pétur Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, er í Tromsö og ræddi við nokkra bæjarbúa um afstöðu þeirra til málsins. Nordlys ARVID Ahlquist fram- kvæmdastjóri Tromsödeildar Norges Fiskarlag. Verðum að ná sam- komulagi „MÉR finnst rétt að stöðva veiðar á fiskvemdarsvæðinu, en við verðum að ná samkomulagi um þessi mál því það stefnir í hrein vandræði," segir Jan Blikfedt, bílstjóri í Tromsö í samtali við Morgunblaðið á hafnar- bakkanum í Tromsö í gær. Hann sagðist fylgjast grannt með fréttum af fiskveiðideilu þjóðanna sem er stöðugt uppsláttarefni fjölmiðla í Norður-Noregi þó minna fari fyrir umfjöllun sunnar í landinu. Hann sagðist jafnframt fordæmaþað fram- ferði íslenskra útgerðarmanna að kaupa gamla togara í Kanada og gera út undir hentifána í Barents- hafi. „Mér finnst margt benda til þess að þessi deila eigi eftir að harðna. og þess vegna er tími til kominn að stjórnmálamenn fari að ræða saman og koma reglu á þessa hluti. Það er ekki gott að nágrannaþjóðir eigi í deilum af þessu tagi, þið talið jú gammelnorsk og nánari en það geta bræðrabönd þjóða ekki orðið.“ Blikfedt sagði ennfremur að vissu- lega virtist sér það ekki sanngjarnt að íslendingar væru eina fiskveiði- þjóðin í Norðurhöfum sem ekki fengju rétt til veiða í Barentshafí. Hann sagði jafnframt aðspurður hvort hann gerði greinarmun á veið- um á Svalvarðasvæðinu eða í Smug- unni, að hann teldi að Smugan væri í úthafinu en fiskverndarsvæðið inn- an norskra lögsögu. JAN Blikfedt bílsfjóri. Ættu að skamm- ast sín „ÍSLENDINGAR ættu að skammast sín. Það er ekki eðlileg framkoma að íslenskar útgerðir séu að kaupa gamla ryðkláfa, sem voru notaðir til að þurrka fiskimið í Kanada til að gera út við Svalbarða og í Smug- unni, “ sagði Hilmar Hansen, starfs- maður skipasmíðastöðvarinnar í Tromsö. „Norskir fiskimenn hafa nánast soltið heilu hungri til að hægt sé að byggja upp þorsk í Barents- hafi og sjötíu og átta prósent báta í Norður-Noregi hafa nú innan við fjörtíu tonna þorskkvóta. Á sama tíma hafa íslendingar ofveitt sinn fisk og í staðinn fyrir að taka afleið- ingum sjálfir, ætla þeir sér að svipta norska sjómenn lífsviðurværinu," sagði Hansen. Hann sagðist telja að enginn grundvöllur væri fyrir við- ræðum milli íslendinga og Norð- manna um málið að svo stöddu. „Það er ekki um neitt að semja.“ Aðspurður hvort hann teldi þá rétt að íslendingar einir fiskveiði- þjóða hefðu engan kvóta í Barents- hafi sagði hann: „Farið með skipin heim og þá getum við farið að ræð- ast við. Þangað til vil ég að strand- gæslan stöðvi allar veiðar hvort sem er við Svalbarða eða í Smugunni," sagði Hansen og sagðist vita að margir í Tromsö og í Norður-Noregi sem ekki hefðu kynnt sér málið hefðu vinsamlegra viðhorf til deilunnar en margir væru líka harðari en hann andstöðu við íslendinga. Réttað Islendingar fái kvóta „MÉR finnst þetta hræðilegt ástand að við nágrannaþjóðimar getum ekki komið okkur saman um þetta mál. Við erum jú norrænar bræðraþjóðir og eigum að geta leyst okkar mál með friðsamlegum hætti,“ sagði Margit Hansen grænmetissali á markaðstorginu í Tromsö í samtali við Morgunblaðið. Hún kvaðst óttast að síðustu atburðir yrðu til þess að aukin harka færðist í deiluna ef póli- tísk lausn fyndist ekki fljótlega. Og kvaðst telja rétt að íslendingum yrði veittur ákveðinn kvóti í Barentshafi en sagðist ekki vilja nefna ákveðnar tölur í þessu sambandi. „Samt verður auðvitað að gæta þess að veiðarnar verði ekki svo miklar að fiskistofnun- um verði stefnt í hættu, en ég held að það hljóti að vera hægt að fínna HILMAR Hansen starfsmaður skipasmíðastöðvarinnar í Tromsö. laus í málinu sem báðar þjóðirnar geta unað við. Ef það er rétt að ís- Iendingar einir fískveiðiþjóða í grennd við Svalbarða hafi engan kvóta í Barentshafi er eðlilegt að þið standið á ykkar,“ sagði hún. Biturð í garð íslendinga ARVID Ahlquist, framkvæmdastjóri Tromsödeildar Norges Fiskarlag, sagði að hafa yrði í huga að þótt veiðar íslendinga í Barentshafi væru nýbyijaðar ætti hörð afstaða sjó- manna í Norður-Noregi sér langa sögu. „Við verðum að líta til þess tíma þegar þorskstofninn í Barents- hafi hrundi. Til að byggja hann upp voru settar strangar reglur og fjöl- margir bátar fengu aðeins tíu pró- sent af þeim kvóta sem þeir höfðu haft. Fjölmargir misstu báta sína og jafnvel heimili á nauðungaruppboð- um og í gjaldþrotum en þetta var gert til að byggja stofninn upp og renna nýjum stoðum undir lífsaf- komu hér. Veiðar íslendingar ógna þessu skipulagi og geta gert að engu þær fómir sem fólk hér hefur fært. Mörgum finnst íslendingar líkjast þjófum sem hafa eytt eigin fé og vilja nú stela af þeim sem hafa lagt fyrir. Þetta er höfuðástæðan fyrir þeim biturleika sem einkennir við- horfið hér til veiða íslendinga í Bar- entshafi." Aðspurður hvort sanngjamt væri að Islendingar ein fiskveiðiþjóða í Norðurhöfum hefðu engan kvóta í Barentshafi, sagði Ahlquist að skyn- samleg niðurstaða í málinu hlyti á endanum að fela í sér að stjóm á nýtingu þorskstofnsins í Barents- hafi, hvort sem væri í norsku efna- hagslögsögunni, Smugunni eða á verndarsvæðinu við Svalbarða, yrði tekin undir eina stjórn. Þetta væri sami þorskurinn þótt Smugan hafi orðið útundan þegar línur hafi verið teiknaðar á kortinu. Hann sagðist hafa nokkurn skiln- ing á því að íslenskir sjómenn reyndu fyrir sér í Smugunni nú þegar afla- heimildir færu minnkandi heima fyr- ir en fyrir því væri ekkert fordæmi sem segja mætti að veitti hefðarrétt. En hann væri lykilatriði þegar kvóta í Barentshafi væri úthlutað. „Íslend- ingar hafa átt að venjast því að kvót- ar á heimamiðum væru nægilega miklir til að floti þeirra kæmist af. Þeir kvótar reyndust og háir og þótt íslendingar segjast hafa besta fisk- veiðistjórnunarkerfi í heimi, hafa ís- lenskir stjórnmálamenn ekki fylgt ráðum vísindamanna sinna. íslenskir sjómenn eru nú í svipaðri aðstöðu og Norðmenn áður. Norðmenn eru að byggja upp á eigin kostnað og það ættu íslendingar að gera en ekki ásælast mið annarra," sagði Ahlquist. MARGIT Hansen grænmetissali. ) > \ > í \ f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.