Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 17 VIÐSKIPTI Orkuiðnaður KAFFIPJÓÐIR PINGA Eldsneytí framtíðar vanrækt Kaffiframleiðslu- og neysluþjóðir komu til fundar í London í gær að ræða leiðir til að koma á verðstöðugleika Dollarar hvert pund Kol eru talin verða helzta náttúruauðlind næstu aldar London. Reuter. ORKUIÐNAÐUR heims stendur fyrir miklum fjárfestingum í olíu, gasi og öðrum takmörkuðum auð- lindum, en forðast kol, sem talið er að verði aðalorkuauðlindin á næstu öld. Kol er gjöfulasta jarðefnaeldsneytið og áætlað er að birgðir af þeim geti enzt í rúmlega 200 ár miðað við núverandi framleiðslu. Birgðir þær sem eftir eru af olíu og gasi endast hins vegar aðeins í 50-70 ár að sögn Ians Lindsays í Heimsor- kuráðinu, WEC. Kol munu sjá fyrir rúmlega 30% frumorkuþarfar heimsins og verða mesti orkugjafi heims til 2010 og lengur að sögn Alþjóðaorkumála- stofnunarinnar, IEA. Ein helzta mótbáran gegn kolum er að sóðaskapur fylgi þeim, en Mike Parker, brezkur sérfræðingur í kolum, segir að kol geti verið svar- ið við vaxandi kröfum um„hrein- lega“ orku, ef meira fé verði varið til nýrrar tækni sem dregur úr mengun. Ein aðferðin er að koma fyrir síum í reykháfum orkuvera. Öll ver í Þýzkalandi sem ganga fyrir kolum hafa slíkan búnað, en hann er dýr og dregur úr afköstum. Með ann- Austurland Verslanir innsiglaðar ÞRJÁR verslanir Verslunarfélags Austurlands í Fellabæ og á Egils- stöðum voru innsiglaðar vegna tæp- lega 800.000 kr. skuldar stað- greiðslu og tryggingargjalds frá því á föstudagskvöld fram að hádegi á mánudag. Lárus Bjarnason sýslumaður segir að verslanirnar hafí verið opnaðar eftir að skuldin hafi að fullu verið greitt. Hann sagði að með aðgerðun- um væri verið að koma í veg fyrir að skuldir söfnuðust upp að nýju. Félagið hafði farið í nauðasamninga og fengið 80% niðurfellingu skulda. Skuld staðgreiðslu og tryggingja- gjalds varð til eftir samingana. Sýslumaður sagði að lengi hefði verið reynt að fá skuldina greidda og heimild væri fýrir lókun í stað- greiðslulögum. „Ef staðgreiðsla hefur ekki verið greidd innan -15 daga frá gjalddaga megi vegna álags, dráttar- vaxta og höfuðstóls loka svona versl- unum,“ vitnaði hann í lögin. FJÖLVARM fyrir t?ækur, nMi.Qa alæcur Teikniþjónustan, Bolholti 6, s. 812099. Teikniþjónustan, Bolholti 6, s. 812099. arri og fullkomnari aðferð er kolum breytt í gas. Eitt slíkt ver, sem Shell reisti, er starfrækt í Hollandi. Stöðugleiki Hagnýtt gildi slíkra orkuvera mun aukast á næstu 10 árum, þeg- ar olía og gas munu hækka í verði en verð á kolum haldast tiltölulega lágt. Að sögn Parkers þarf verð á kolum að vera um þriðjungi lægra en verð á olíu og gasi til þess að gasvæðingartækni borgi sig. Samkvæmt tölum IEA mun verð á olíu því sem næst tvöfaldast í 28 dollara tunnan 2005 og gas mun hækka álíka mikið í verði. Hins vegar er gert ráð fyrir að verð á kolum muni haldast tiltölulega stöð- ugt. Parker segir að ef fjárfest verði fyrir alvöru í hreinlegri kolatækni geti vestræn ríki flutt tækni sína til þróunarlanda þegar eftirspurn eftir orku aukist þar. „Eftirspurnin mun aukast mest í Þriðja heimin- um,“ sagði hann. IEA spáir því að eftirspurn eftir kolum muni aukast. um 2.1% á ári til 2010 og fullnægja aukinni orku- eftirspurn heimsins. Aukningin verður mest á Asíu-Kyrrahafssvæð- inu. Verð á kolum hefur haldizt stöð- ugt í 15 ár. Olíuverð hefur verið sveiflukennt í 20 ár. Olíuverð hefur sveiflazt um 130 dollara á tonn af kolum, frá 190 dollurum til 60, síð- an 1980. Verð á kolum hefur hækk- að um aðeins 20 dollara úr 50 doll- urum í 70 á tonn af kolum á sama tíma samkvæmt tölum IEA. 1914-1094 Himneskt verö! m HEKLA Laugavegi 170-174 Sími 69 56 35 Það er ótrúlegt að jafn vandaður og fallegur bíll og Volkswagen Golf skuli kosta jafn lítið og raun ber vitni. Verð frá: lelSSeOOOe"1 ÍCF® Volkswagen Oruggur á alla vegu!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.