Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 18
f . I 18 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ný stjórn mynduð í Danmörku Kaupniannahöfn. Reuter. SAMKOMULAG tókst um myndun nýrrar minnihluta- stjórnar undir stjóm Pouls Nyr- ups Rasmussens í Danmörku í gær. Ráðherralistinn verður birtur í dag en búist var við að flestir ráðherranna úr fráfarandi stjóm héldu stöðu sinni og stefn- an yrði að miklu leyti sú sama. Auk Jafnaðarmannaflokksins eiga Radikale Venstre og Mið- demókratar aðild að stjóminni. Nyrup Rasmussen sagði að fjárlagafrumvarp næsta árs, sem lagt var fram á þingi í ág- úst sl., yrði ekki breytt. Hins vegar boðaði hann að nýr þingforseti yrði skipaður og sömuleiðis yrði skipt um fulltrúa í framkvæmdastjóm Evrópu- sambandsirts, ESB. Þar situr Henning Christophersen fyrir hönd Dana og fer með íjármál ESB í framkvæmdastjóminni og er jafnframt varaforseti hennar. Hann er fyrrverandi leiðtogi Venstre, stærsta stjómarand- stöðuflokksins í Danmörku. Búist er við að Nyrup Rasmuss- en skipi í hans stað annað hvort Bjern Westh landbúnaðarráð- herra eða Ritt Bjerregaard fyrr- verandi félagsmálaráðherra. Talið er víst að þau fengju ekki jafn mikilvæg störf í fram- kvæmdastjóm ESB og Christop- hersen hefur gegnt. Stuðningur vinstriafla Nýja stjómin hefur á bak við sig 76 þingsæti en hægriflokk- amir þrír 83. Tveir vinstri flokk- ar sem standa utan stjómar og eiga 19 menn á þingi sam- þykktu sl. föstudag að greiða stjómarmynduninni atkvæði. Pouls Nyrups Rasmussens bíður vandasamt verkefni að sigla bil beggja á þingi, stjómarandstöðu vinstriflokka annars vegár og hægriflokka hins vegar. Völd hans ráðast af afstöðu vinstri- flokka en búist er við að hann nái samkomulagi við íhalds- flokkinn og Venstre, flokks Uffe Ellemanns-Jensens, um megin atriði efnahags- og utanríkis- stefnunnar. ERLENT Bandarískir hermenn verða tíu Haítímönnum að bana Repúblikanar knýja á um heimkvaðningu herliðsins Cap-Haitien, Washington. Reuter, The Daily Telegraph. REPÚBLIKANAR á Bandaríkjaþingi krefjast nú þess að bandaríska herl- iðið á Haítí verði kallað heim sem allra fyrst eftir að bandarískir her- menn urðu tíu haítískum herlögreglumönnum að bana í skotbardaga á laugardag. Repúblikanar hyggjast leggja fram tillögu þessa efnis á þing- inu en embættismenn Bandaríkjastjómar segja óráðlegt að ákveða strax tímamörk fyrir heimkvaðninguna. Bandaríska stjómin reyndi að gera lítið úr skotbardaganum. „Við gerðum ráð fyrir erfiðleikum, þetta var dæmigert um það sem við bjuggumst við,“ sagði William Perry, vamarmálaráðherra Banda- ríkjanna, sem fór frá Haítí nokkrum klukkustundum áður en bardaginn blossaði upp. Sam Nunn, formaður hermála- nefndar öldungadeildar Bandaríkja- þings, tók í sama streng. „Eg tel augljóst að slíkir atburðir hljóti að koma upp, þar sem við emm með þúsundir hermanna þama og mikill fjöldi heimamanna er enn vopnað- ur,“ sagði Nunn. Newt Gingrich, formaður þing- flokks repúblikana í fulltrúadeild- inni, sagði að skotbardaginn sýndi að bandaríski herinn gæti lent í sama vanda á Haítí og í Sómalíu. Hann hvatti til þess að herliðið yrði kallað heim „sem allra fyrst“ og varaði við því að bandaríska herlið- ið gæti dregist inn í átök stríðandi fylkinga á Haítí. „Þá yrði spuming- in aðeins um það hvaða hóp þorp- ara við styddum," sagði Gingrich. Perry vamarmálaráðherra sagði að bandaríska herliðið færi í fyrsta lagi úr landinu snemma á næsta ári, eftir að þingkosningar færu fram. Um 13.000 bandarískir her- menn eru nú á Haítí og gert er ráð fyrir að 1.500 bætist við á næstu dögum. Perry sagði að hermönnun- um yrði fækkað síðar og stefnt væri að því að 6.000 manna friðar- gæslulið á vegum Sameinuðu þjóð- anna, þar af 2.000 bandarískir her- menn, taki við af bandaríska herlið- inu einhvem tíma á næsta ári. Sakaðir um „grimmdarverk“ Tom Jones ofursti, yfírmaður bandaríska landgönguliðsins á Ha- ítí, sagði að skotbardaginn á laugar- dag hefði hafíst éftir að andstæð- ingar herforingjastjómarinnar hefðu tekið að storka herlögreglu- mönnum í lögreglustöð í Cap-Haiti- en. Haítískur herlögreglumaður hefði orðið æ órólegri og lyft vél- byssu sinni upp. Bandarískur land- gönguliði hefði þá skotið á manninn. „Éinn af hérmönnum okkar sá mann munda Uzi-vélbyssu,“ sagði ofurstinn. „Hann skaut á manninn og skotbardaginn hófst... Varð- andi það hver hafí orðið fyrstur til að skjóta, þá get ég ekkert um það sagt.“ Jones sagði að þótt ómögulegt væri að segja til um hver hefði orð- ið fyrstur til að hleypa af væru land- gönguliðarnar þjálfaðir í því að bregðast skjótt við slíkri ógnun. „Ég vona að hermaður okkar hafí orðið fyrstur til að skjóta," sagði hann. „Ég veit að það sem hann gerði er rétt.“ Raoul Cedras, leiðtogi herfor- ingjastjórnarinnar, sakaði banda- rísku landgönguliðana um „grimmdarverk" og krafðist þess að Jones yrði dreginn fyrir herrétt. 57% andvíg íhlutuninni Reuter Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, kvaðst harma mannfallið en bætti við að bandarísku hermenn- imir myndu bregðast við ógnunum af fullri hörku. „Æ fleiri Banda- ríkjamenn sjá að það sem við erum að gera þarna er af hinu góða og styðja lýðræði í allri Ameríku," sagði Clinton í kirkju í New York- borg á sunnudag. Samkvæmt skoðanakönnun CNN og Time, sem gerð var fyrir skot- bardagann, vom 57% Bandaríkja- manna andvíg þeirri ákvörðun að senda herliðið til Haítí. í könnun Newsweek var tæpur helmingur, eða 47%, óánægður með framgöngu Clintons í Haítí-málinu. |BÓKHALDSNÁM, 72 KLST. Markmiðiö er að verða fær um að starfa sjálfstætt og annast bókhaldið allt árið. Byrjendum og óvönum bókhaldi gefst kostur á grunnnámskeiði. Námið felur m.a. ísér: Dagbókarfærslur og uppgjör í mánaðarlok. Launabókhald, gerð launaseðla og þeir bæði hand- og tölvuunnir. Gengið er frá skilagreinum m.a. um staðgreiðslu og tryggingagjald. Útreikning skuldabréfa og tilheyrandi færslur. Lög og reglur um bókhald og virðisauka, gerð virðisaukaskýrslna. Afstemmingar. Merking fylgiskjala, gerð bókunarbeiðna. Fjárhagsbókhald í tölvu. Ilnnifalin er m.a. skólaútgáfa fjárhags- og viðskipta mannabókhalds og 30% afsláttur frá verðskrá Kerfisþróunar að 45.000 kr. Innritun er hafin. Kennt er á nýtt Windows Stólpa fjárhagsbókhald frá Kerfisþróun hf. é Tðluuskóli Reykiavíkur Borgartúni 28, sími 91-616699 Vill friðar- viðræður strax GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein, sem er stj órnmálaarm ur írska lýðveldishersins, hvatti bresku stjórnina í gær til að hefja strax viðræður um frið á Norður-írlandi. Kom það fram á fréttamannafundi í Boston í Bandaríkjunum en hann er þar í tveggja vikna heimsókn. Sagði hann einnig, að Evrópu- sambandið gæti lagt sitt af mörkum með því að miðla málum, ekki síður en Banda- rílgasljórn. more mm 10 (lisklingar kr. 1.110,- BOÐEIND Austurströnd 12 li 612061 • Fax 612081 Willy Claes verður framkvæmdastjóri NATO Dyggur Evrópusiuni og snjall málamiðlari Brussel. Reuter. SENDIHERRAR 16 að- ildarríkja Atlantshafs- bandalagsins, NATO, staðfestu í gær að þeir hefðu valið Willy Claes, utanríkisráðherra Belg- íu, til að taka við emb- ætti framkvæmdastjóra bandalagsins. Þjóðveij- inn Manfred Wörner, sem gegnt hafði emb- ættinu frá 1988, lést fyrir skömmu og hafa tveir Norðurlandamenn, þeir Thorvald Stolten- berg frá Noregi og Uffe Ellemann-Jensen frá Danmörku ásamt fleiri mönnum verið taldir koma til greina sem eftirmenn auk Claes. Claes er 55 ára að aldri, kvæntur og tveggja bama faðir, flæmsku- mælandi en talar einnig frönsku og ensku reiprennandi. Hann varð ung- ur þingmaður og ráðherra aðeins 34 ára; hins vegar tókst, honum ekki að verða forsætisráðherra þrátt fyrir mikinn metnað og tíð stjómarskipti í landinu, alls hafa 35 stjómir setið í Belgíu frá stríðslokum. Claes hefur um árabil verið einn af helstu frammámönn- um sósíalista í Belgíu og gegnt ýmsum ráð- herraembættum. Utan- ríkisráðherra hefur hann verið í tvö ár og þótti standa sig afar vel er Belgíumenn voru í forsvari fyrir Evrópu- sambandið um sex mánaða skeið í fyrra. Hann er mikill stuðn- ingsmaður evrópskrar einingar og er sagður hafa áhyggjur af því hve illa hefur gengið hjá ESB að koma sér saman um markvissa stefnu í málefnum Júgóslavíu sem var. Claes er talinn hófsamur í skoð- unum og snjall málamiðlari þótt ýmsir segi hann eiga erfítt með að þola heimsku og agaleysi. Hann er ágætur píanóleikari og hefur gaman af hljómsveitarstjóm. Samband hans við belgisku konungsfjölskylduna er náið og vakti það athygli er Fabiola drottning koma með kistu eigin- manns síns, Baldvins konungs, frá Spáni í fyrra að hún faðmaði Claes á flugvellinum við heimkomuna. Willy Claes

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.