Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 7 SVALBARÐADEILAN Ráðherrar telja veið- amar óheppilegar RÁÐHERRARNIR Davíð Oddsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Þor- steinn Pálsson hörmuðu það á fundi með útgerðarmönnum í gær að skipin Óttar Birting og Björgúlfur skyldu hafa farið til veiða á Sval- barðasvæðinu. Ráðherrarnir töldu þetta óheppilegt í ljósi viðræðna við Norðmenn um fiskveiðimál, sem eiga að hefjast í næstu viku. Hins vegar sögðu þeir allir í samtölum við Morgunblaðið í gær að þeir vonuð- ust til að atburðir helgarinnar hefðu ekki neikvæð áhrif á viðræðurn- ar. Ekki hefur annað komið fram af hálfu Norðmanna en að þeir muni mæta til þeirra. Eftir því sem næst verður kom- izt, er yfirlýsing ríkisstjórnarinnar, sem Eiður Guðnason sendiherra afhenti norskum stjórnvöldum í gær, fyrsta dæmið um formleg, diplómatísk mótmæli, sem ísland afliendir öðru norrænu ríki. Töku hentifánaskips ekki mótmælt Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að yfírlýsingin tak- markist við mótmæli vegna Björg- úlfs, þar sem Óttar Birting sé und- ir hentifána. „Það er ekki okkar hlutverk að setja fram kröfur vegna skipa, sem ekki sigla undir íslenzk- um fána,“ sagði hann. Davíð Odds- son forsætisráðherra sagði að skip- veijar á báðum skipunum væru ís- lenzkir ríkisborgarar og myndu fá þann atbeina sem íslenskir sendi- fulltrúar gætu veitt þeim á erlendri grundu. Þorsteinn sagði að tilkynning rík- isstjórnarinnar um að undirbúning- ur að málssókn fyrir alþjóðadóm- stólnum í Haag þýddi ekki annað en að undirbúningur færi í gang, og það yrði fljótlega. Sérstaka ákvörðun þyrfti svo um að skjóta málinu til dómstólsins. „Undirbún- ingurinn getur tekið þónokkurn tíma, ég get ekki sagt til um hversu margar vikur eða mánuði,“ sagði hann. Óskiljanlegt að taka þessa áhættu Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði að á fundinum með útgerðarmönnum í gær hefði Davíð Oddsson forsætisráðherra lýst þeirri afstöðu ríkisstjórnarinnar að það hefði verið óheppilegt að skipin færu inn á svæðið, í ljósi þess að Islendingar væru nýbúnir að ná því fram að viðræður yrðu hafnar við Norðmenn. „Ég bætti því við að mér þætti þetta þeim mun óskiljanlegra vegna þess að um væri að ræða skip, sem þegar hefði náð fullfermi í Smug- unni og ég skildi ekki hvers vegná þessi áhætta væri tekin,“ sagði Jón Baldvin. Davíð Oddsson sagði að íslenzk stjórnvöld myndu ekki beita sér sérstaklega þótt togararnir yrðu sektaðir, en líkur eru taldar á að sekt Óttars Birtings geti orðið um 30 milljónir króna vegna mikils aflaverðmætis. „Það er ljóst að máli þessa togara verður fylgt eftir af hálfu togarans og eigenda hans. Þar sem þetta snertir alþjóðalög þá er ekki vafi á því að íslensk stjórn- völd munu veita þá lögfræðilega sérfræðiráðgjöf sem hún hefur yfir að ráða. Að öðru leyti er málið í höndum útgerðar skipsins, sem tók ákvörðun um að fara að veiða á þessum stað á þessu augnabliki,“ sagði Davíð.- Reynum samninga til þrautar Davíð sagði ljóst að atburðurinn væri ekki til þess fallinn að auð- velda embættismannaviðræðurnar við Norðmenn. „Gagnvart Norð- mönnum er það erfitt að menn skuli hafa verið að veiða á þessu um- deilda svæði nákvæmlega á þessum tíma þegar komin var glæta í við- ræðurnar. Og á móti eru atburðir af þessu tagi ekki til þess að auð- velda okkar samningsvilja. En við lýsum því yfir að við viljum leita og reyna samningaleiðina til þraut- ar. Önnur leið var ekki fær.“ Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Olögmæt aðgerð EFTIRFARANDI er texti mót- mæla þeirra, sem Eiður Guðnason sendiherra afhenti fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar í norska utanríkis- ráðuneytinu í gær. „Ríkisstjórn Islands mótmælir harðlega þeirri ólögmætu aðgerð norsku standgæslunnar á Sval- barðasvæðinu að taka þar íslenskt skip, Björgúlf EA. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bera fram form- leg mótmæli við norsk stjórnvöld vegna töku skipsins. ítrekaðar eru fyrri yfirlýsingar íslenskra stjórnvalda þess efnis að réttarstaða á hafsvæðinu við Svalbarða sé óljós og mjög umdeil- anleg að þjóðarétti. Islenskum skipum hefur verið haldið að veið- um á svæðinu án atbeina eða hvatningar íslenskra stjórnvalda og því á ábyrgð skipstjóra og út- gerðarmanna. Tvö hundruð mílna svæðið umhverfis Svalbarða og forræði Noregs þar án tillits til ákvæða Svalbarðasamningsins um jafnan rétt til auðlindanýtingar hefur hins^ vegar ekki verið viður- kennt af íslands hálfu eða af öðr- um samningsríkjum. Réttur Nor- egs til einhliða stjórnunar milli 4 og 200 mílna við Svalbarða er því afar veikur og ekki viðurkenndur á alþjóðavettvangi. íslensk stjórnvöld hafa ítrekað boðið samninga um veiðar í Bar- entshafi, sem fælu meðal annars í sér að gegn sanngjörnum kvóta þar yrðu veiðar íslenskra skipa á NTB EIÐUR Guðnason, sendi- herra Islands í Noregi, á leið inn í norska utanríkisráðu- neytið með mótmæli ríkis- stjórnarinnar í hendinni. alþjóðlegu hafsvæði takmarkaðar. Ríkisstjórnin ítrekar að fullur samkomulagsvilji er enn til staðar af Islands hálfu og bindur vonir við að þeir atburðir sem nú hafa átt sér stað trufli ekki þær viðræð- ur sem ákveðnar hafa verið 11. oktbóber nk. milli ríkjanna um sameiginleg hagsmunamál á sviði sjávarútvegs. Vegna aðgerða norsku stand- gæ'slunnar verður, jafnframt undirbúningi fyrir viðræður ríkj- anna, undirbúið af íslands hálfu að fá úr því skorið fyrir alþjóða- dómi hver sé réttarstaða samn- ingsríkja Svalbarðasamningsins. “ Blomberc 1 Frystiskápur sparar! Við bjóðun af Blombera f p i 4 gerðir /stiskápum, mginn stenst. íápur stórsparar þú birgir þig upp >egar verðið er tali nú ekki um íafa sitt eigið heimilinu. á verði sem « Blombers frystisl í heimilisnalainu, af matvælum, J: lægst, svo maður þægindin að f forðabúr á FS 300 4 stjörnu frystir. 300 lítrar búttó. Umhverfisvænt kerfi (100% CFC frfr). Orkunotkun aðeins 1,54 kWh á sólarhring. Mál: Hæð158 sm, breidd 59,5 sm, dýpt 60 sm. Verð kr. 59.900 eða 56.900 stgr. FS 250 4 stjörnu frystir. 250 lítrar brúttó. Umhverfisvænt kerti (100% CFC fr(r). Orkunotkun aðeins 1.36 kWh á sólarhring. Mál: Hæð 134 sm, breidd 59,5 sm, dýpt 60 sm. Verð kr. 52.900 eða 50.250 stgr. FS200 4 stjörnu frystir. 200 lltrar brúttó. Umhverfivænt kerti (100% CFC frír). Orkunotkun aðeins 1.18 kWh á sólarhring. Mál: Hæð117sm, breidd 59,5 sm, dýpt 60 sm. Verð kr. 49.600 eða 47.120 stgr. FS122 4 stjörnu frystir. 120 Iftrar brúttó. Orkunotkun aðeins 0,90 kWh á sólarhring. Mál: Hæð 85 sm, breidd 54,3 sm, dýpt 58 sm. Verð kr. 44.900 eða ■ 42.650 stgr. Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28 ‘ET 622901 og 622900 SONGLEIKURINN LONDON NEW YORK REYKJAVÍK UPMANNAHÖFN Elfa Gisladottlr. ióhannes Bachmann. CBBH Magnús Kjartansson. msmnmmmm Esther Helga Gudmundsdóttir. BilOU 30/9 Sýningkl. 21.30 2/10 Barnasýning kl. 15.00 2/10 ungtingasýningkl. 20.00 SÖNGSMIÐJAN A HOTEL ISLANDI Miða- og borðapantanir alla daga á Hótel íslandi |tfm í síma 687111 og hjá Söngsmiðjunni í síma 612455. [tCi Námufélagar fá 10% afslátt á Crease

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.