Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 9 __________________FRÉTTIR__________________ Aukaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna Aðildarumsókn að ESB hafnað á aukaþingi SUS DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, sagði á aukaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem haldið var í Kópavogi um helgina, að umsókn um aðild að Evrópusambandinu (ESB) væri ekki mál dagsins í dag og það gæti skaðað Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum ef hann tæki það á dagskrá. Fyrir þinginu lágu drög að ályktun þess efnis að verkefni næstu ríkisstjórnar væri að hefja undirbúning að umsókn um aðild að ESB. Miklar deilur urðu um drögin á þinginu en þau voru felld með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða. Þess í stað var samþykkt að hvetja stjórnvöld til að hefja markvissa könnun á þvi hvort innganga í ESB væri raunhæf og skilgreina samningsmarkmið. Forsætisráðherra sagði að sér gremdist þegar því væri haldið fram að umsókn um aðild að ESB væri á dagskrá. „Við eigum ekki að láta ESB-málið þvælast fyrir okkur í kosningum þótt andstæðingar okkar vilji að það geri það. Þetta er ekki mál dagsins í dag,“ sagði forsætis- ráðherra. Um tuttugu nefndir sömdu drög að ályktunum sem síðan voru teknar fyrir á þinginu. Mesta athygli vöktu drög málefnanefndar um utanríkis- mál en í þeim var kveðið á um að íslendingar sæktu um aðild að Evr- ópusambandinu og þannig yrði feng- ið fram í aðildarviðræðum hvaða kjör íslendingum yrðu boðin. Að slík- um aðildarviðræðum loknum yrði það síðan íslensku þjóðarinnar að ákveða í allsheijaratkvæðagreiðslu hvort samningar yrðu samþykktir eða þeim hafnað. Nokkuð var deilt um þessa stefnu í málefnanefndinni en tillaga um að fella ofangreinda klausu út var felld með þrettán atkvæðum gegn átta. Búist var við því að andstæðingar ESB-umsóknar myndu freista þess að breyta ályktuninni þegar hún yrði tekin fyrir á þingfundi. Segja má að þingfulltrúar hafi skipst í þrennt í afstöðunni til Evr- ópumálanna. í fyrsta hópnum voru þeir, sem voru atkvæðamestir í ut- anríkismálanefndinni og vildu að íslendingar sæktu um aðild að ESB á næsta kjörtímabili. í öðrum hópi voru harðir andstæðingar ESB sem vísuðu gjarnan til þeirrar skoðunar sinnar að sambandið væri „sósíal- istabatterí*1 og íslendingar væru því betur komnir utan þess. í þriðja hópnum voru síðan þeir sem vildu fara bil beggja og urðu þeir ofan á að lokum. Titringur vegna ræðu Davíðs Afgreiðsla ályktana stóð yfir all- an sunnudaginn en hlé var gert á henni síðdegis vegna ávarps forsæt- isráðherra og spurningatíma ráð- herra Sjálfstæðisflokksins. Drög að ályktun um utanríkismál var tekin á dagskrá eftir ráðherrafundinn og olli það titringi meðal áköfustu stuðningsmanna ESB-umsóknar. Höfðu þeir farið fram á að utanrík- ismálin yrðu tekin fyrir fyrst um morguninn eða fyrir ræðu forsætis- ráðherra þar sem þeir óttuðust að orð hans myndu hafa áhrif á niður- stöðu þingsins. Þingforseti og for- maður SUS töldu eðlilegra að fresta afgreiðslunni þar til síðar um daginn þar sem um væri að ræða mesta hitamál þingsins og mjög fáliðað var á þinginu fyrir hádegi. Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS, segir að stefnt hafi verið að því að taka utanríkismálin á dagskrá fyrir ráð- herrafundinn en það hafi reynst ókleift vegna þess að umræður um dagvistarmál drógust úr hömlu. Tvær breytingatillögur við utan- ríkismálaályktunina voru lagðar fram og var í þeim báðum mælt gegn aðildarumsókn. Hin fyrri var borin fram af Haraldi Johannessen, Þorsteini Arnalds og Þorsteini Dav- íðssyni, formanni Heimdallar. Tillag- an kvað á um að SUS hafnaði um- sókn um aðild að ESB að svo stöddu þar sem ekkert benti til að íslending- um væri betur borgið innan banda- lagsins en utan þess. Tillaga þessi var felld og var þá tekin fyrir „máj- amiðlunartillaga", sem borin var fram af Jóni Kristni Snæhólm, Birgi Ármannssyni og Jónasi Fr. Jóns- syni. Tillagan fól í sér að ákvæði um aðildarumsókn voru tekin úr ályktuninni en eftirfarandi setning sett inn í staðinn: „Ungir sjálfstæðis- menn hvetja íslensk stjórnvöld til að hefja markvissa könnun hvort að innganga í ESB sé raunhæf og skil- greina samningsmarkmið í hugsan- legum aðildarviðræðum." Tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, þ.á.m. greiddi Guðlaugur Þór henni atkvæði og sagði-hann við Morgunblaðið að hún væri tvímælalaust farsæl lending. Hann teldi raunar ástæðu fyrir „um- sóknarmenn" að fagna þar sem SUS hefði aldrei fyrr gengið jafnlangt í að álykta um að ESB-aðild kynni að koma til greina. Fjölmörg mál komu til kasta þingsins þótt mestum tíma hefði verið varið í utanríkismál að þessu sinni. Þingið fagnaði þeim árangri sem ríkisstjórnin hefur náð á kjör- tímabilinu og áhersla var lögð á að áunninn stöðugleiki yrði nýttur til að hefja nýja sókn til aukinnar verð- mætasköpunar í þjóðfélaginu. Hátt á annað hundrað manns sóttu þingið og urðu umræður um hin ýmsu mál nokkuð líflegar. Athygli vöktu tillögur svokallaðs útlagahóps þingsins eða umræðu- hóps um athafnir sem væru bannað- ar án þess að í þeim fælist ofbeldi. Á þinginu voru samþykktar umdeild- ar tillögur hópsins eins og afnám banns við áfengis- og tóbaksauglýs- ingum og hvatning til þess að reglur um bruggun' á léttum vínum til eig- in nota og fjárhættuspil yrðu rýmk- aðar. Tillaga um að vændi yrði leyft að fullu með almennum skilyrðum var hins vegar felld. mi^fEL Hljóðeinangrun fyrír skólprör. Nauðsynleg á allar skólplagnir. ^ HUSASMKMAN Reykjavík og Hafnarfirði. LOKAHOF TXRÓPÍDEILDARINNAR OG 1. DEILDAR KVENNA n \ laugardaginn 1. október. pmA Þriréttaður matseðill t V- \ Fjölbreytt skemmtiatriði Verðkr. 3.000,- Hljómsveitirnai SSSÓLogDELÉLÍBUIIHIJS Húsið opnað kl. 19 fyrir matargesti. Opnað kl. 23 fyrir dansleik. Forsala aðgöngumiða ú Hotellslandi alla daga. milli kl. 13-17 Verð á dansleik aðeinskr. 1.000 Sími 687111 Þarna mæta allir, í fooltantim.Í em erii Formica harðplastið er ekki aðeins slitsterkt og auðvelt í meðhöndlun, heldur áferðarfailegt. Fœst í hundruðum lita og munstra. i i . Einföld og ódýr lausn ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295 sem blæs lífi í nýja eldhúsið þitt! Kaupendur ALNO eldhúsinnréttinga fá í kaupbœti glœsilega ALNO eldhúsviftu meö tilheyrandi búnaöi sé pöntun staðfest fyrir 30. nóv. n.k. Yerömætifrá 8.500 kr. til l.jO.OOO kr. Grensásveg 8,108 Rvk. sími 814448 • fax 814428 mmffiam Loftrœstivifta að eigin vali. nmo .búdin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.