Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ 4 pinfpuiWWill STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ. Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. GREIN ARGERÐ GUÐMUNDAR ÁRNA Stjórnmálabaráttan hér er orðin óvægnari og persónulegri en hún var um skeið. Margir telja, að árin á milli 1930 ■ og 1940 hafi verið eitt versta tímabilið á öldinni að þessu leyti. Þótt átökin á kaldastríðsárunum hafi verið hörð var það með öðrum hætti en bæði fyrir og eftir. Upp úr miðjum átt- unda áratugnum bryddaði á ný á mjög persónulegri gagnrýni á hendur stjórnmálamönnum og minnast menn áreiðanlega hins svonefnda Geirfinnsmáls frá þeim tíma og ásökunum, sem beint var að nafngreindum stjórnmálamönnum þá. Frá þeim tíma hafa við og við gosið upp mjög persónulegar og harðvítugar deilur um einstaka stjórnmálamenn. Að einhverju leyti stafar þessi persónulega og illvíga stjórn- málabarátta af þeirri opnu fjölmiðlun, sem nú er stunduð hér eins og annars staðar. En, upphafið að breyttum tímum í þess- um efnum má þó augljóslega rekja til nýrrar kynslóðar stjórn- málamanna, sem hafa notfært sér opnari fjölmiðlun í þessu skyni. Að sumu leyti hefur aukið aðhald áreiðanlega stuðlað að heilbrigðari vinnubrögðum í stjórnmálum, að öðru leyti hefur verið gengið svo nærri einkahögum fólks að eitrað hef- ur allt andrúm í samfélaginu og mættu ábyrgir fjölmiðlar taka það til íhugunar. Að undanförnu hefur Guðmundur Árni Stefánsson, félags- málaráðherra og varaformaður Alþýðuflokks, legið undir harðri gagnrýni fyrir ýmsar embættisfærslur sérstaklega í heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti en að nokkru leyti á bæjar- stjóraárum hans í Hafnarfirði. Hann tilheyrir þeirri kynslóð stjórnmálamanna, sem fyrir tæpum tveimur áratugum hóf’ þennan leik og raunar voru þeir flestir úr flokki ráðherrans, Alþýðuflokknum, sem vann stórsigur í þingkosningunum sum- arið 1978 m.a. með því að beina spjótum sínum með óvenju- lega óvægnum hætti að pólitískum andstæðingum. Nú horf- ast Alþýðuflokkur og forystumenn hans í augu við umræðu- venjur, sem þeir áttu einna mestan þátt í að skapa eða eins og sumir mundu segja, taka upp á ný. í greinargerð þeirri, sem Guðmundur Árni Stefánsson lagði fram á blaðamannafundi í gær, þar sem hann leitast við að svara þeim ásökunum, sem settar hafa verið fram á hendur honum segir.hann m.a.: „ ... það er mitt grundvallarsjónarm- ið, að stjórnmálamenn vinna fyrir opnum tjöldum, þeirra stefnumið og aðgerðir hljóta gagnrýni og undirtektir á víxl og að hlutverk fjölmiðla í nútímaþjóðfélagi sé að miðla greinar- góðum upplýsingum til almennings um þau mál.“ Morgunblað- ið leitast við að sinna þessu hlutverki í dag með því að birta greinargerð ráðherrans í heild og orðrétt mestan hluta þeirra orðaskiptá, sem fram fóru á milli ráðherrans og blaðamanna í gær, samtals á 5-6 síðum. Með þessu vill blaðið fyrir sitt leyti stuðla að því að sjónarmið ráðherrans komist að mestu óstytt til sem flestra landsmanna. Lesendur Morgunblaðsins geta þá sjálfir, hver fyrir sig, lagt eigið mat á stjórnarathafn- ir ráðherrans. Við lestur greinargerðar ráðherrans verður ljóst, að dóm- greindin hefur brugðizt honum í nokkrum málum, jafnvel all- mörgum málum. Sjálfur viðurkennir hann fyrst og fremst mistök í einu máli er varðar fyrrverandi tryggingayfirlækni. Um það segir Guðmundur Árni Stefánsson: „Að vandlega athuguðu máli viðurkenni ég hins vegar, að ekki var rétt að óska eftir starfskröftum viðkomandi einstaklings við þær kringumstæður, sem áður var lýst. Þar hefði ég átt að standa öðru vlsi að máli. Það voru mistök.“ í öðru máli er varðar upplýsinga- og kynningafulltrúa heil- brigðisráðuneytis segir ráðherrann: „Vel má vera, að ábend- ingar um of háar greiðslur fyrir þessa vinnu eigi við rök að styðjast." í báðum þessum tilvikum hefur ráðherrann breytt um afstöðu en hann hefur áður varið þessar ákvarðanir af hörku. Störf ráðherra eru vandasöm. Þeir taka í daglegum störfum fjölmargar ákvarðanir, sem orka tvímælis. En yfirleitt er þar um ákvarðanir að ræða, sem snúa að stefnumörkun eða fram- kvæmdum. Embættaveitingar hafa alltaf"verið umdeildar en á öðrum forsendum en að þessu sinni. Dómgreindarbrestur ráðherrans í stjórnarathöfnum er býsna víðtækur. Deilurnar um stjórnarathafnir Guðmundar Árna Stefáns- sonar hafa lamað Alþýðuflokkinn. Greinargerð ráðherrans hefur engu breytt um þá staðreynd. Afstaða hans til afsagn- ar leysir ekki þann vanda, sem blasir við Alþýðuflokknum og ríkisstjórninni. STJÓRMMÁL ENGIN EFI TIL AFSAGN FJÖLMARGIR fréttamenn sátu tveggja tíma langan blaðamannafu * Guðmundur Ami Stefánsson félagsmálaráð- herra kveðst engin áform hafa uppi um að segja af sér ráðherradómi og kveðst sannfærð- ur um að hann njóti stuðnings alþýðuflokks- manna til áframhaldandi setu á ráðherrastóli. Agnes Bragadóttir og Guðmundur Sv. Hermannsson sátu blaðamannafund ráðherr- ans í gær, þar sem hann leitaðist við að skýra þau atriði sem hann hefur að undanfömu sætt gagnrýni fyrir. RÁÐHERRANN byrjaði á því að rekja efnislega greinar- gerð sína um þau álitamál sem upp hafa komið í sam- bandi við embættisfærslur hans, bæði sem fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og síðar sem heilbrigð- isráðherra. Greinargerð ráðherrans er birt í heild hér annars staðar í blaðinu. Að því loknu sat ráðherrann fyrir svörum, og fara spurningar fréttamanna og svör Guðmundar Árna Stefánssonar hér á eftir: Spurning: — Er það ekki réttur skilningur, að þú sért staðráðinn í að segja ekki af þér ráðherraemb- ætti? Svar: „Það eru engin efni til þess og ég vil taka af tvímæli í því, að það hefur ekki nokkur einstaklingur beðið mig um það.“ Spurning: — Hvernig munt þú bregðast við ef forsætisráðherra knýr þig til afsagnar, eða að þínir eigin flokksmenn knýja þig til af- sagnar? Svar: „Það er ekkert í spilunum, sem kallar á slíkar vangaveltur." Spurning: — En nú segir þú 'sjálf- ur að þú hafir verið að senda for- manni flokks þíns og forsætisráð- herra skýrslu þína og þeir séu í fyrsta sinn að sjá hvað í henni er fyrir klukkustundu síðan. Hvað veist þú á þessari stundu, um hvort þeir telja að þetta séu viðhlítandi skýringar? Svar: „Það er nákvæmlega ekkert í þessum málum, sem gefur tilefni til að ætla annað, en að forsætisráð- herra og utanríkisráðherra og for- maður míns flokks, muni taka þéssa skýrslu og dæmþ á grundvelli henn- ar. Það hafa engar kröfur verið uppi um það á mínar hendur, hvorki frá forsætisráðherra, og þaðan af síður frá formanni flokksins, um að ég segi af mér á grundvelli þessara ásakana og þeirrar sakaskrár sem fram hefur komið. Eg er að leggja fram þessa skýrslu hérna, þar sem ákveðnir flokksmenn mínir hafa beð- ið um nánari skýringar. Fjölmiðlar hafa béðið um þær sömuleiðis og ég hef gert það með mjög rækiiegum hætti. Ég gef mér það, að hér hafi öllu verið svarað sem um hefur verið beðið.“ Spurning: — Hvers vegna ætti það að vera? Þú skrifaðir tvær greinar í Morgunblaðið í þytjun mánaðarins, þú varst í ítarlegu viðtali við Stöð 2 og einnig í DV og reynt að útskýra nákvæmlega þessa sömu hluti, án þess að fólk hafi lagt trúnað á skýr- ingar þínar, ekki heldur samflokks- menn þínir. Þú hefur fengið stuðn- ingsyfirlýsingar frá flokksfélögum í tveimur kjördæmum, þínu eigin og bróður þíns á Austurlandi. Félag ftjálslyndra jafnaðarmanna, ung- kratar í Reykjavík og varaformaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur hafa verið mjög gagnrýnin á þig opinberlega. Er ekki augljöst að stuðningur við þig innan Alþýðu- flokksins er ákaflega rýr? Svar: „Við skulum halda til haga spurningum af þessum toga, sem eru ágætar. Þú gefur þér forsendur í þinni spurningu, þar sem þú heldur því fram að stuðningur við mig innan Alþýðuflokksins sé ákaflega rýr. Ég fullyrði hið gagnstæða. Eg fullyrði hið gagnstæða og segi það, að ég á mjög ríkan og góðan stuðning í Al- þýðuflokknum og hann fer vaxandi. Það voru ákveðnir einstaklingar inn- an flokksins, stjórn eins flokksfé- lags, sem báðu um viðbótarskýringar — hér eru þær og ég geng út frá því sem vísu að um þetta verði altæk sátt í Alþýðuflokknum og hann standist skemmdarverk.“ Spurning: — En er ekki útilokað fyrir þig, Guðmundur Árni, að ganga út frá því sem forsendu, að þessi skýrsla verði tekin góð og gild sem syndaaflausn þín? Er það ekki eins- dæmi í nútímastjórnmálasögu að ráðherra eftir svo skamma setu, sitji uppi með annan eins ávirðingalista og þú nú gerir? Svar: „Ég hef nákvæmlega farið yfir stöðu mála ... (Innskot blaða- manns: Alveg eins og þú hefur áður gert.) Það er auðvitað ekkert endan- legt til í lífínu, Agnes, ekkert frekar en það, að þínar skoðanir eru öllum lýðum ljósar, því þú hefur sem blaða- maður lýst yfir þínum persónulegu skoðunum á þessum málum, og segir að ég eigi að víkja. Þú mátt eiga þær auðvitað og ég geri engar athuga- semdir við það. Á sama hátt auðvitað vænti ég þess, að hver og einn ein- staklingur meti þau málsatvik sem hér eru rakin á málefnalegum grund- velli. Hér er farið mjög ítarlega út í þessi mál og gerð grein fyrir þeim. Það reynir auðvitað verulega á fjölmiðla í þessu landi, að gera ná- kvæmlega efnislega grein fyrir atrið- um málsins, sem mér finnst stundum að hafi ekki tekist sem skyldi. Held- ur hafi aukaatriði verið gerð að aðal- atriði og öfugt. Þess vegna segi ég það, að ef almenningur fær heillega mynd af þessum skýringum hér, þá hef ég á því trú að hann skilji og ég fái stuðning frá fólkinu." Spurning: — En nú eru það þín orð, gegn orðum annarra. Það stang- ast á í tveimur atriðum, það sem þú segir um íbúðir á vegum Hafnar- íjarðarbæjar og að þú hafir hvergi komið nálægt úthlutun þeirra, við það sem núverandi bæjarstjóri segir. Orðum hvers á að trúa? Svar: „Ég vil nú vekja athygli á því, að núverandi bæjarstjóri var ekki vinnandi á bæjarskrifstofum Háfnarljarðar á þessum tíma. Ég vísa til þeirra starfsmanna sem fóru með þessi mál. Þeir eru eftir því sem ég best veit, á sínum stað.“ Spurning: — í heilbrigðisráðuneyt- inu er greint frá því að skýrsla Hrafnkels Áskelssonar, lögfræðings, sem vann á þínum vegum ákveðið verk, sé ekki til í ráðuneytinu. Þú segir að skýrslan sé til í ráðuneyt- inu. Hvetjum á maður að trúa? Hvar er þessi skýrsla? Svar: „Ég sé nú ekki um skjala- vörslu í heilbrigðisráðuneytinu. Þessi skýrsla er til í ráðuneytinu og ég hygg, að ef þið spyijið núverandi heilbrigðisráðherra um hana, þá sé hann með liana í sínum fórum. Auð- vitað er skýrslan til í heilbrigðisráðu- neytinu.“ Spurning: — Hvers vegna er hún þá ekki aðgengileg, til dæmis fyrir fjölmiðla? Svar: „Skýrslur sem unnar eru fyrir ráðherra, sem undirbúningur að lagasetningu, þærgeta ekki heyrt undir plögg sem eiga að vera opin- ber. Skýrslan er á vísum stað og hafi hún misfarist í ráðuneytinu, þá er auðvitað hægt að fá annað eintak af henni.“ Spurning: — Margt sem þú segir í langri greinargerð þinni, hefur þú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.