Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 43 FÓLK í FRÉTTUM Nafnastríð og fjölmiðlafár WOODY Allen er ævareiður um þessar mundir vegna þess að fyrrverandi sam- býliskona hans, Mia Farrow, hefur breytt nöfnum barna þeirra eftir að slitnaði upp úr sambandi hennar og Allens með miklum látum og fjölmiðlafári á sínum tíma. Mia hefúr enn ekki breytt nöfnum barnanna á lögformlegan hátt, en er hins vegar farin að kalla sex ára gamlan son þeirra Seamus, en hann heitir réttu nafni Satc- hel. Þá hefur hún í rúmt ár kallað Dylan, hina átta ára gömlu kjör- dóttur þeirra, Elizu, en Mia ásak- aði Allen um að hafa beitt hana ofbeldi árið 1992. Allen hefur ekki haft neitt samband við Dylan upp á síðkastið, en hann heldur áfram að kalla soninn Satchel og gagn- rýnir Miu harðlega fyrir nafn- breytinguna. MIA Farrow og Woody Allen með Satchel t.v. og Dylan á meðan allt lék i lyndi árið 1988. Naomi Campbel 1 skapand listamaður? ► OFURFYRIRSÆTAN Naomi Campbell kemur víða við um þessar mundir. Hún hefur nýlega sent frá sér skáldsögu, Swan, og þessa dagana er hún að senda frá sér sinn fyrsta geisladisk sem heitir Baby Woman. Fyrirsætan er nú á sex vikna ferðalagi um Evrópu til kynningar á diskinum og skáldsögunni. Margir hafa efast um að Campbeli hafi sjálf skrifað skáldsöguna, og nýlega viðurkenndi starfsmaður lijá út- gáfufyrirtækinu Heineman, að það hafi verið kona að nafni Caroline Upcher sem hafi skrifað söguna eftir að útgáfufyrirtækið hafði samið við Campbell. Hin 24 ára gamla fyrirsæta fékk eft- ir þvi sem sögur herma sem svar- ar fjórtán milljónum króna í fyr- irframgreiðslu fyrir söguna, sem er spennusaga um, jú einmitt, ofurfyrirsætu. Talsmaður fyrir- sætunnar segir að með útgáfu bókarinnar og geisladisksins hafi hún loksins fengið tækifæri til að skapa eitthvað sjálf. Hvað þátt Caroline Upcher i gerð sög- unnar varðar segir talsmaðurinn að Campbell hafi átt mestan þátt i að búa til söguþráðinn og móta persónurnar i bókinni, en hann bendir jafnframt á að algengt sé að gefnar séu út bækur sem svo- kallaðir „draugahöfundar" skrifi eins og gert hafi verið í þessu tilfelli. Heiður himinn ►TOMMY Lee Jones fer með hlut- verk herfor- ingja í kvik- myndinni Blue Sky sem nýlega var frum- sýnd í Bandaríkj- unum, en myndinn fjallar um fjölskyldulíf herforingja í bandarískri herstöð á sjöunda áratugnum. Þunga- miðja myndarinnar er hin tilfinn- ingalega bælda eiginkona her- foringjans, en með hlutverk hennar fer Jessica Lange og þyk- ir hún fara á kostum í mynd- inni. Þá þykir Tommy Lee sjálfur standa sig með mestu prýði í myndinni. - kjarni málsins! Off nú er haxin tvöfaldur! Veröur hann 100 milljónir? Grilljónauppskrift Emils: 1. Skundaðu á næsta sölustað íslenskrar getspár. 2. Veldu réttu milljónatölumar eða láttu sjálfvalið um getspekina. 3. Snaraðu út 20 krónum fyrir hverja röð sem þú velur. 4. Sestu í þægilegasta stólinn í stofunni á miðvikudagskvöldið og horfðu á happatölurnar þínarkrauma í Víkingalottó pottinum í sjónvarpinu. 5. Hugsaðu um allt það sem hægt er að gera fyrir 100 milljónir. Verði ykkur að góðu!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.