Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.09.1994, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ GREIIMARGERÐ FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA herra og fará út með honum, þegar hann lætur af ráðherra- dómi. Ekki hefur beinlínis og með berum orðum verið gagn- rýnt val mitt í þessum efnum, enda hef ég eins og aðrir ráðherrar algjört sjálfdæmi um val á aðstoðarmanni. Öðru- vísi getur það ekki orðið. Meira hefur verið gagnrýnt hvort rétt hafi verið af minni hálfu að skipa aðstoðarmann minn sem formann stjómar Ríkisspítalanna skömmu fyrir síðustu áramót. Sérstaklega hefur verið bent á það að sú ráðstöfun hafi verið tvíeggjuð í ljósi nýrra stjórnsýslulaga sem gildi tóku um þau ára- mót. Efst i mínum huga við þessa ákvörðun var sú nauð- syn sem óumdeild er að ráðherra heilbrigðismála hveiju sinni hafi eigin trúnaðarmann í formennsku þessarar mikil- vægu stjórnar, þar sem milli sex og sjö milljörðum króna er ráðstafað. Aðstoðarmaður ráðherra var í því Ijósi álitleg- ur valkostur að mínu áliti. Álit lögfræðings ráðuneytisins var að þessi skipan færi ekki í bága við umrædd stjórn- sýslulög jafnvel þótt þau hefðu þá þegar tekið gildi, sem ekki var. í ljós kom hins vegar að skiptar skoðanir voru um það. Við ráðherraskipti í júní á þessu ári, sem urðu vegna brotthvarfs Jóhönnu Sigurðardóttur úr ríkisstjórn, taldi ég sjalfgefið að eftirmaður minn myndi óska breytinga á skip- an formanns eins og nokkur hefð hefur skapast um. Það hefur líka komið á daginn. Um þá breytingu er fullt sam- komulag og gagnkvæmur skilningur milli aðstoðarmanns míns og núverandi heilbrigðisráðherra. Um þau mál kom- ust þeir að samkomulagi í viðtali þeirra í milli um síðustu mánaðamót. Sjá meðfylgjandi bréf J.H.K. þar um. (Sjá frétt bls. 2 innskot Morgunblaðið). Nokkur grundvallaratriði Heilbrigðis- og tryggingamál eru þess eðlis að þau koma við daglegt líf hverrar einustu fjölskyldu í landinu beint og óbeint. Ég hef ævinlega verið stoltur af hlutdeild Alþýðu- flokksins fyrr og síðar við uppbyggingu þessa mikilvæga þáttar velferðarkerfisins. Á erfiðleikatímum í þjóðarbúinu er hins vegar erfitt um vik að auka þjónustu. Viðfangsefn- ið er helst að stemma stigu við stórauknum útgjöldum, þó án þess að grundvelli samhjálpar sé raskað. Þörfin og eftir- spurnin eftir aukinni þjónustu á sviði heilbrigðis- og trygg- ingarmála verður sennilega alltaf meiri en möguleikar þjóð- félagsins um framboð á þessum vettvangi. Erfiðara en ella á samdráttartímum, þegar eftirspumin er vaxandi en fjár- hagslegir möguleikar samfélagsins á framboði fara minnk- andi. Þetta er því vandaverk. Ég hafði áður en mér voru falin störf ráðherra lýst yfir áhyggjum mínum af því að ekki mætti of langt ganga í upptöku þjónustugjalda í heilbrigðiskerfinu. Einnig þegar ég tók við embætti heilbrigðisráðherra lýsti ég þeirri skoð- un minni að mikið lengra yrði ekki gengið í þá átt að fjár- magna heilbrigðiskerfið með þjónustugjöldum á notendur, sjúklingana sem að stórum hluta eru börn og aldraðir. Þar værum við komin að ákveðnum endimörkum. Ég vildi leita annarra leiða. Hófleg þjónustugjöld ýta á hinn bóginn óum- deilanlega undir betra kostnaðareftirlit neytandans. Það er hinn jákvæði þáttur þeirra. Þjónustugjöld geri ég sérstaklega að umtalsefni vegna þess að þau voru meðal þeirra atriða sem hvað umdeildust hafa verið í hinu viðkvæma endurmati heilbrigðis- og trygg- ingarmála. Annað mikilvægt atriði í þeim efnum er sú breyting sem gerð hefur verið í vaxandi mæli á tryggingarkerfinu og er í átt til aukinnar tekjutengingar bóta. Um þetta hefur verið deilt, þótt skilningur á nauðsyn hennar hafi vaxið. Ákveðin skref voru tekin í þá veru í minni heilbrigðisráð- herratíð. Tekjutenging almannatryggingabóta er þó einnig takmörkunum háð. Ég var fljótlega gagnrýndur harðlega sem heilbrigðisráð- herra fyrir ýmsar' spamaðartillögur sem ég lagði fram vegna fjárlagafrumvarps fyrir árið 1994. Og enda er það svo að það þrengist að sjálfsögðu um spamaðarleiðir eftir því sem samdráttur í þjóðarbúi stendur lengur yfir og höggva þarf endurtekið í sama knérunn. Flatur spamaður hjá sjúkrastofnunum umliðin ár hefur t.a.m. tekið sinn toll og margir talsmenn sjúkrahúsa á landinu segja að ekki verði lengra gengið á þeirri braut. Ein þeirra tillagna sem ég lagði fram haustið 1993 og fékk ekki brautargengi voru svokölluð heilsukort. Þrátt fyrir afdrif þeirra á síðastliðnu ári er ég enn ákveðið þeirr- ar skoðunar að ekki verði framhjá því komist að nýtt eyrna- merkt fjármagn komi inn í heilbrigðiskerfið, ef unnt eigi að vera að halda úti jafnvíðtækri og góðri þjónustu sem þrátt fyrir allt er að finna hér á landi í þessum mála- flokki. Vafalaust hefði mátt standa betur að kynningu heilsukortahugmyndarinnar á sínum tíma en lítill tími var til stefnu. En það er sama hvað tekjustofninn er kallaður, það verður ekki hjá því komist að marka heilbrigðiskerfinu tiltekinn tekjustofn, þar sem greitt er til þessa mikilvæga þáttar velferðarkerfisins í samræmi við tekjur og fjárhags- lega stöðu hvers og eins. Hugmyndin var að þessi tekju- tengdi tekjustofn skilaði 400 milljónum króna til heilbrigðis- mála á þessu ári. Annað mál sem var líka mjög í brennidepli síðastliðið haust laut að leikskólum sjúkrahúsanna. Þar voru miklar tilfínningar á ferð og ég fékk miklar ákúrur víða að fyrir mínar hugmyndir í þeim efnum. Góð sátt náðist hins vegar um niðurstöður. Vist barnanna var áfram tryggð, eins og alltaf var ráð fyrir gert, og umtalsverðum sparnaði var náð fram. Eins og stundum áður var minna gert úr farsæl- um lyktum málsins fyrir alla aðila, en átökunum sem urðu meðan á samningum um lausn stóð. í því írafári öllu er mér minnisstætt að það þótti sérstak- lega fréttnæmt, og þykir raunar ennþá því það mál hefur verið tekið upp að nýju á síðustu vikum sem eitt af „vand- ræðamálum" Guðmundar Árna, að ég hefði fremur staðið við áður gefið loforð mitt til sona minna tveggja, 8-10 ára, um að fara á handboltaleik, en að mæta til fundar með hagsmunaaðilum þessarar deilu; fundar sem ég fékk boð á með nokkurra klukkustunda fyrirvara. Þeir urðu áður en yfir lauk margir fundirnir, smáir og stórir, með hagsmunaaðilum leikskólamálsins. Þeir leiddu líka til far- sællar niðurstöðu. Handboltaferð okkar feðga stefndi því góðri niðurstöðu málsins ekki í jafnmikla hættu og tiltekn- ir fréttamenn vildu vera láta! Að spara of mikið - eða of lítið Sparnaðartillögur mínar sumar hveijar fengu kaldar kveðjur sl. haust. Ég þótti ganga of langt í sparnaði á ýmsum sviðum. En hálfu ári síðar bar svo við, að gagnrýn- israddir breyttu um hljóm og nú þótti ég ekki taka nægi- lega hressilega til hendi í spamaði í heilbrigðisráðuneyti. Meira að segja einstaklingar sem lögðust gegn sparnaðart- illögum sl. haust, fóru nú í fararbroddi og sögðu ekki nóg að gert og að heilbrigðisráðherra hefði ekki gengið nægi- lega langt. Það er vissulega rétt að fljótlega var séð á yfírstand- andi fjárlagaári að allar forsendur fjárlaga gagnvart heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu myndu ekki stand- ast. Þar kom ýmislegt til. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um að greiða út svokallaðar eingreiðslur til bótaþega almanna- tryggingakerfisins eins og launafólks almennt og sama gildi um svokallaða sex þúsund króna greiðslu, sem ríkis- stjórnin tók ákvörðun um í maí. Þessar viðbætur samsvara 300 milljóna króna viðbótarútgjöldum sem íjárlög gerðu ekki ráð fyrir. Spara átti umtalsvert í lyfjakostnaði. Frestun gildistöku lyfjalaga á Alþingi til 1. nóvember á næsta ári gegn mínum vilja, gerði þau ítrustu áform að engu. Lækkun álagningar lyfja í mars, fyrir mína tilstuðlan, í heildsölu og smásölu, var ekki farin að skila sér að gagni um mitt ár, þegar ég hvarf úr starfí heilbrigðisráðherra. Hins vegar eru bundnar vonir við það að ný heimild um samhliða innflutning lyija sem fer í framkvæmd fljótlega geti lækkað lyijakostnað umtalsvert. Ný reglugerð sem ég gaf út sem heilbrigðisráð- herra um minni lyfjaskammta svokallaðra magasárslyfja, sýrubindandi lyija, er á hinn bóginn farin að skila sér með verulega lækkandi útgjöldum, eftir því sem heimildir mínar segja. Þessu til viðbótar er rétt að geta þess að álagning lyija í helstu viðskiptalöndum okkar hefur hækkað. Þetta samanlagt hefur hins vegar gert það að verkum að lækkun útgjalda í lyfjakostnaði hefur ekki náð fram að ganga eins og vonir voru bundnar við, þrátt fyrir þessar margháttuðu aðgerða sem ég greip til. Einnig náðust ekki fram nýir kjarasamningar við sér- fræðinga eins og búist var við framan af árinu og þar með áformuð lækkun sjúkratrygginga Tryggingastofnunar af þeirfi sökum. Mikið var reynt og af hálfu ríkisins var samningum sagt upp. Vandinn er hins vegar sá að þótt Tryggingastofnun gæti formlega einhliða lækkað þessa gjaldskrá til sérfræðinga, þá er við því að búast að sérfræð- ingar innheimti eftir sem áður skv. gömlu gjaldskránni, gömlu samningunum, og mismunurinn félli beint. á sjúkl- inga. Tryggingastofnun var því í raun áfram bundin eldri samningum. Núverandi heilbrigðisráðherra hefur lýst opin- berlega að hann telji einu leiðina til að losa þessa stíflu að taka upp tilvísunarkerfi. Að vísu eru skiptar skoðanir um það hvort slíkt leiði til sparnaðar, en vissulega er nauð- synlegt með einhveijum hætti að klippa á þennan hnút. Fjármál heilsugæslustöðva eru yfirleitt í ágætu lagi víð- ast hvar. Fjármál sjúkrastofnana í dreifbýli eru það einnig, þótt nauðsynlegt sé að taka á staðbundnum vandamálum af ýmsum toga, sem mörg hver eiga rætur í fortíðinni, (Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað) og sum til orðin vegna úrskurða dómstóla (Sjúkrahús Vestmannaeyja, Sjúkrahús Suðurnesja). Málefni stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík þarf að skoða sérstaklega. Langvarandi halli á Borgarspítala og Landa- kotsspítala eru vandamál sem erfítt hefur verið að eiga við. Staða Ríkisspítala er viðunandi. Ég gaf út reglugerð um verkaskiptingu sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu þegar ég var í heilbrigðisráðuneytinu. Mál sem misserum saman hafði verið í undirbúningi og mjög skiptar skoðanir voru um. Um það náðist að lokum víðtæk og allgóð sátt milli forsvarsmanna viðkomandi sjúkrahúsa í minni ráð- herratíð eftir langar og strangar viðræður. Ég trúi því að sú reglugerð og sá grundvöllur verkaskiptingar sem þar er lagður muni þegar til lengri tíma er litið spara umtals- verða fjármuni og koma í veg fyrir ný útgjaldatilefni í sjúkrahúsarekstri á höfuðborgarsvæðinu án þess þó að dregið sé úr þjónustu. í þeirri reglugerð er gerð ítarleg grein fyrir hlutverki hverrar sjúkrastofnunar fyrir sig. Það mun koma í veg fyrir að offramboð verði í sérgreinum lækninga, þannig að mörg sjúkrahús bjóði upp á sams konar þjónustu á afmörkuðum sérsviðum læknisfræðinnar. Hafa skal það sem sannara reynist Því hefur verið slegið upp í fréttum að 1700 milljón króna framúrakstur hafi verið í heilbrigðisráðuneytinu þá sex mánuði sem ég sat þar sem heilbrigðisráðherra. Hér er verulega hallað réttu máli. í fyrsta lagi er verið að vísa til nýtilorðinna tillagna ráðuneytisins vegna fjáraukalaga haustið 1994 og miðast vitaskuld við afkomu ársins alls. Verður hér farið yfir þessi mál, þessar 1700 milljónir, lið fyrir lið, þannig að öllum megi ljóst vera hver raunveru- leiki þessa máls er. Fjárvöntun lífeyristrygginga telst 400 milljónir. Þar af vegna áðurgreindra eingreiðslna, 300 milljónir. Önnur hækkunarþörf skýrist með fjölgun lífeyrisbótaþega og fjölg- unar rétthafa vegna heimildarbóta. Fjárvöntun sjúkratrygginga telst 800 milljónir. Þar veg- ur hækkun lyfjakostnaðar mest, eða 300 milljónir. Ástæð- ur þessa hafa áður verið raktar. Lækkun lyfjakostnaðar náðist ekki fram um 250 milljónir. 120 milljón króna sparn- aður í lækniskostnaði ekki heldur vegna þess að samning- ar náðust ekki við lækna, eins og vonir stóðu til og áður er getið. Ennfremur er Ijóst að sú tímabunda fækkun vitj- ana hjá læknum, sem varð vegna upptöku þjónustugjalda fyrir nokknim misserum, er ekki lengur veruleiki. Vitjunum hefur fjölgað og kostnaður aukist að sama skapi. Kostnað- ur af hjálpartækjum hefur aukist. Lækkun gjaldskrár sem ég setti vegna röntgenrannsókna mun hins vegar skila tugmilljóna króna sparnaði. Lækkun gjaldskrár vegna rann- sókna náði ekki fram að ganga, en fullbúnar voru tillögur um útboð eða einhliða ákvörðun um lækkun hennar á borði ráðherra, þegar ég fór úr ráðuneytinu í júní. í allar þær aðgerðir sem tilgreindar voru í forsendum fjárlaga var farið eða þær voru á lokastigi undirbúnings hvað varðar sjúkratryggingar, þegar ég hvarf úr stóli heil- brigðisráðherra. Sumar skiluðu árangri, aðrar ekki. Það er ekki nýtt. Afkoma sjúkratrygginga tekur á hveiju ári mið af ástandi mála í þjóðfélaginu hverju sinni, hvað sem beinum aðgerðum stjómvalda líður. Það hefur þannig ver- ið alla tíð. Samtals fjárvöntun Ríkisspítala (52 milljónir), Borgar- spítala (240) milljónir og St. Jósefsspítala Landakoti (100 milljónir), er talin 392 milljónir króna og skýrast af uppsöfn- uðum hallarekstri umliðinna ára, ofáætlun sértekna, van- metnum lífeyrisgreiðslum og hækkun launa vegna nýrra kjarasamninga, sem vegur þyngst. Fjárhagsvandamál stóru sjúkrahúsanna eru ekki ný af nálinni og hafa verið viðvar- andi um langt árabil. Fjármálum þeirra er ekki stýrt með beinum hætti úr heilbrigðisráðuneyti. Þau vinna sjálfstætt samkvæmt forsendum fjárlaga. Á hinn bóginn hafa for- svarsmenn þeirra ítrekað hin síðustu ár kvartað yfir of naumum fjárframlögum á íjárlögum. Þannig var það einn- ig á þessu fjárlagaári. Sjúkrahúsið á Akranesi er með umtalsverðan uppsafnað- an halla frá undanförnum árum. Nærri 30 milljir króna. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þarf að standa skil á þremur milljónum vegna skaðabótamáls. Fjórðungssjúkra- húsið á Neskaupstað glímir við uppsafnaða vanda sem nær mörg ár aftur í tímann og er nærri 25 milljónum króna. Sjúkrahús Vestmannaeyja þarf að standa skil á 30-40 milljónum króna vegna greiðslu fyrir bakvaktir vegna dóms sem féll á þessu ári. Sjúkrahúsið á Suðurnesjum þarf að standa skil á sex milljónum vegna skaðabótamáls. Víðihlíð í Grindavík glímir við tíu milljóna króna rekstrarhalla. SÁA vantar 17,2 milljónir og Hlaðgerðarkot 2,8 milljónir vegna ákvarðana Alþingis í desember 1993 að heimila þessum aðilum ekki gjaldtöku og jafnframt var þá gefið vilyrði um aukafjárveitingu af þeim sökum haustið 1994. Að þessu öllu samanlögðu er því Ijóst, að það er gjörsam- lega fráleitt að bera þær sakir á mig sem heilbrigðisráð- herra að framúrakstur, eins og það er nefnt, hafi verið upp á 1700 milljónir króna. Staðreyndin er sú að þegar þessi tala er skilgreind og skoðuð eins og hér að framan, þá skýrist langstærsti hluti þessarar fjárhæðar af ákvörðunum Alþingis, ríkisstjórnar, uppsafnaðs vanda frá fyrri árum, niðurstöðu dómsmála, nýrra kjarasamninga og áhrifa um- hverfisins, fjölgun bótaþega, aukinnar eftirspurnar eftir læknisþjónustu og fleiru. Þetta eru atriði sem allir fyrri heilbrigðisráðherrar hafa þurft að glíma við og er ekki á þeirra færi að breyta. Svo var einnig um mig. Til samanburðar vil ég einnig rifja upp að á umliðnum fjórum árum hafa upphæðir fjáraukalaga (nú nefnt framú- reyðsla) til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins ver- ið með eftirfarandi hætti: Fjáraukalög: 1993 ...................,..........................1.843.200, (Atv.l.trygg.) .........................(1.150.000) G.Á.S. ráðherratími júní-desember S.B. ráðherratími janúar-júní 1992 ..............................................1.945.400 (Atv.l.trygg.) ........................... (709.000) S.B. ráðherra 1991 ...............................................1.383.700 (Atv.I.trygg.) ............................ (80.000) S.B. ráðherra maí-desember G.Bj. ráðherra janúar-maí 1990 ...............................................1.541.000 (Atv.l.trygg.) inneign .....................200.000 G.Bj. ráðherra Alhir tölur eru á verðlngi hvers árs og því í raun hærri v. fyrri ára. Þessar tölur sýna augljóslega að erfitt hefur verið í gegn- um áranna rás að áætla nákvæmlega útgjaldaþörf heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins þegar fjárlög eru af- greidd. Þessar tölur sýna líka, að nettófjárvöntun heilbrigðisráðu- neytis að áliðnu hverju fjárlagaári, sem birtist í fjáraukalög- um, er eftirfarandi, þegar atvinnuleysistryggingarsjóður hefur verið dreginn frá (hann er nú vistaður í félagsmála- ráðuneytinu): 1993: 693 milljónir. 1992: 1.236 milljónir. 1991: 1.303 milljónir. 1990: 1.545 milljónir. 1989: 1.870 milljónir. Almennt fullyrði ég því, að miðað við áðurnefndar kringumstæður voru fjármál heilbrigðisráðuneytisins full- komlega viðunandi þegar ég hvarf úr heilbrigðisráðuneyt- inu. Ymsar aðgerðir mínar í heilbrigðisráðuneytinu, sem vonandi munu tryggja til lengri tíma þennan grundvöll velferðarkerfisins, hafa ekki hlotið mikla umfjöllun, því þótt sparað sé og hagrætt í heilbrigðismálunum, þá miðar samt mörgum mikilvægum málum fram á veg. Ég nefni örfá dæmi: Samkomulag ríkis, borgar og Hringskvenna um byggingu og fjármögnun nýs barnaspítala Hringsins á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.