Morgunblaðið - 12.05.2000, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Loksins flokkiir - loksins formaðiir
>S|G/^ÖKjD
Gjafir vitringanna verða hvorki gull né mirra þó hann sé fæddur.
Losað úr vænum urriða á bökkum Minnivallalækjar.
Barist um
bitann
VEIÐIMENN, sem voru á bleikju-
veiðum neðst í Hvolsá og Staðar-
hólsá í Dölum fyrir skömmu, lentu
í vægast sagt spennandi viðureign
er selur hóf að elta físk sem tekið
hafði agnið og barðist fyrir lífinu.
Að sögn Þrastar Elliðasonar,
annars leigutaka svæðisins, voru
Hrafnkell Björnsson og félagar að
veiðum um helgina og þegar þeir
reyndu fyrir sér í Lóninu, neðst á
svæðinu, settu þeir í „stóran bjart-
an fisk“ sem ekki var ljóst hvort
væri hoplax eða vænn birtingur.
„Þegar þeir voru að kljást við fisk-
inn kom allt í einu selur á siglingu
og renndi sér á fiskinn sem tók
þvílíkt viðbragð að hann sleit úr
sér,“ eins og Þröstur komst að
orði. Veiðimennimir urðu því af
fiskinum en ekki fylgir sögunni
hvernig eltingarleik sels og fisks
lyktaði.
Víðast fín veiði...
Silungsveiði gengur víðast hvar
með ágætum en að vísu hefur
nokkuð dregið úr sjóbirtingsveiði á
Suðurlandi enda kominn sá tími er
birtingurinn hugar að útgöngu til
hafbeitar. í Elliðavatni er góð
veiði þessa dagana og algengt að
menn séu að fá upp í 10-15 fiska.
Helluvatnið hefur einnig gefið vel
og þar fékk einn 4,5 punda bleikju
fyrir skömmu. Það er bæði urriði
og bleikja sem veiðast nú um
stundir og fiskur er nokkuð vænn.
Bleikjuveiði í Soginu hefur
glæðst, fyrir skömmu veiddust t.d.
sex bleikjur á einum degi í Bílds-
felli og annan dag veiddust átta í
Ásgarði. Samkvæmt fréttavef
SVFR eru „vænir“ fiskar í aflan-
um en Mbl. hefur fregnað af allt
að 5 punda bleikjum. Það þarf ekki
aðkoma á óvart því í fyrra veidd-
ust upp í 7 punda bleikjur í ánni.
Góð veiði er í Minnivallalæk og
leigutakinn þar, Þröstur Elliðason,
sérstaklega ánægður með hve vel
veiðin er dreifð um ána. Af 70 urr-
iðum, sem veiðst hafa frá 1. maí,
voru 7 fiskar á bilinu 7 til 12 pund.
Niðurstöður launakönnunar kjararannsóknanefndar
Kaupmáttur jókst um
0,6% að meðaltali
LAUN hækkuðu að meðaltali um
6,0% frá fjórða ársfjórðungi ársins
1998 til jafnlengdar 1999. Vísitala
neysluverðs hækkaði um 5,4% á
sama tímabili og jókst því kaupmátt-
ur dagvinnulauna um 0,6% sam-
kvæmt niðurstöðum launakönnunar
kjararannsóknanefndar fyrir 4. árs-
fjórðung 1999. Á tímabilinu hækk-
uðu laun flestra starfsstétta um 5,1-
6,4%, en laun tækna og sérmenntaðs
starfsfólks hækkuðu um 7,1% og
laun sérhæfðs verkafólks um 8,7%.
Laun kvenna hækkuðu meira en
karla eða um 6,6% að meðaltali en
5,6% hjá körlum. Laun á höfuðborg-
arsvæðinu hækkuðu einnig ívið
meira en á landsbyggðinni eða um
6,1% á móti 5,7%.
í könnuninni voru mældar launa-
breytingar rúmlega fjögur þúsund
einstaklinga sem voru í úrtaki
nefndarinnar á báðum ársfjórðung-
um.
Fundur um barnagigt
Meðferð
hefur batnað
Jón R. Kristinsson
IGTARFÉLAGIÐ
heldur fund á
morgun í Safnað-
arheimili Arbæjarkirkju
klukkan 14.00. Til stendur
að stofna á fundinum félag
áhugafólks um bamagigt.
Jón R. Rristinsson barna-
læknir heldur fyririestur á
fundinum um bamagigt.
Hann var spurður um nýj-
ungar í lækningum á þeim
sjúkdómi.
,A síðustu árum hafa
menn fengið reynslu af lyfj-
um sem hafa reynst vel til
að halda niðri gigtareink-
ennum hjá bömum; lið-
bólgum og verkjum. Fyrst
og fremst hefur reynst vel
lyfið methotrexate sem
hefur ónæmisbælandi áhrif
á ónæmiskerfið. Það er
búið að nota þetta lyf á þriðja ára-
tug við krabbameinssjúkdómum,
en í tíu til fimmtán ár hefur það
einnig verið notað í lyfjameðferð
við liðagigt. Það hefur verkað og
hjálpað. Höfuðmálið er að greina
sjúkdóminn. Það getur verið mjög
erfitt að greina hann, sérstaklega
hjá bömum, af því að hann hagar
sér öðmvísi hjá þeim en fullorðn-
um. Liðagigt er ekki sami sjúk-
dómur hjá bömum og fullorðnum."
- Hvaða mun ur er þar á ?
„Þessi sjúkdómur fer oftar í
stóm liðina í bömum; ökkla, hné-
liði og olnboga. Og af því að þetta
em einstaklingar sem era að vaxa
getur þetta haft áhrif á vöxtinn,
t.d. lengdarvöxtinn. Það getur ver-
ið erfiðara í upphafi að greina liða-
gigtina hjá bömum því aðrir sjúk-
dómar geta komið til greina, svo
sem sýkingar í liðum og bólgur
sem svömn eftir sýkingu, sem
þurfa ekki að vera gigt. Það þarf
oft töluverðan tíma til að ákveða
hvort um gigt sé að ræða.“
- Eru mörg böm sem þjást af
liðagigt á íslandi?
„Á Islandi greinast um 8 til 10
böm með liðagigt á ári. Bamagigt
hefur margs konar einkenni.
Barnaliðagigt er flokkuð í fáliða-
gigt, íjölliðagigt og í fjölkerfaliða-
gigt. I síðast talda tilvikhiu leggst
gigtin líka á önnur líffæri en liði.“
- Hvaða um batahorfur?
„Gigt getur maður ekki læknað
með lyQum, aðeins haldið einkenn-
um niðri. Það er gert með lyfjum,
sjúkra- og iðjuþjálfun og hollu líf-
emi. Einkenni gigtar geta líka
gengið til baka. Hjá bömum em
um 60-70% líkur á að þau losni við
sjúkdóminn. Miklu meiri líkur em
á að bamaliðagigt gangi til baka
heldur en gigt hjá fullorðnum.
Engin þekkt orsök er fyrir gigtar-
sjúkdómum. Þeir virðast koma
upp eftir sjúkdóma, erfið veikindi
eða andlegt álag í sumum tilvikum.
Það er líka talið að gigt geti verið
að einhveiju leyti erfðatengd en
allt þetta þarf að rannsaka betur.“
- Hvað má gera til að sjúkdóm-
urinn valdi sem minnstum skaða?
„Mikilsvert er að sjúkdómurinn
sé greindur snemma og að barnið
fái rétta meðferð eins
og best er þekkt í dag.
Höfuðmeðferðin em lyf
og fyrstu lyfin sem við
notum em væg bólgu-
hemjandi lyf, svo sem
naproxenum, ibuprof-
enum og skyld lyf. Ef
þau duga ekki leggjum
við til lyf eins og t.d.
sulfasalasinum sem hefur bólgu-
eyðandi og ónæmisbælandi verk-
un, eða methotraxate sem ég
nefndi í upphafi. Þessi lyf em gefin
saman eða sitt í hvom lagi og hafa
reynst vel til þess að halda sjúk-
dómnum í skefjum. Á síðari ámm
► Jón R. Kristinsson fæddist í
Borgarholti í Ásahreppi 26. nóv-
ember 1943. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Laugarvatni vorið 1965 og
læknaprófi frá Háskóla fslands í
júní 1972. Jón fór til fram-
haldsnáms haustið 1975 til Sví-
þjóðar og lagði þar stund á al-
mennar barnalækningar og var
erlendis til 1981. Síðan hefur
hann starfað við barnaspítala
Hringsins á Landspitalanum. Jón
er kvæntur Kristrúnu R. Bene-
diktsdóttur lækni og dósent við
H.í. og eiga þau fjögur börn.
hefur tekist að halda sjúkdómnum
það mikið í skefjum að hjá bömum
sjást varla vemlegar og varanleg-
ar fatlanir eins og áður vom stund-
um reyndin. Uti í heimi hafa lækn-
ar jafnvel gengið svo langt við afar
erfið tilfelli að framkvæma merg-
flutning til að halda sjúkdómnum í
skefjum en þessi meðferð gefur
enn óljósan árangur.“
-Erunýlyfí sjónmáU ?
„Já, en það em lyf sem ég hef
enga reynslu af þar sem við höfum
ekki notað þau á böm hér. En
segja má að ný lyf séu í farvatninu
sem verið er að reyna erlendis og
lofa sennilega góðu. Þessi lyf em
alls ekki notuð nema sýnt sé að
önnur þekkt lyf dugi ekki.“
- Hvað með aðra meðferð?
„Nauðsynlegt er að fylgjast
mjög vel með hreyfingu í liðum
gigtsjúkra barna þannig að þeir
kreppist ekki. Það er best gert af
sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum
sem læra að þekkja getu þeirra frá
upphafi og geta þannig metið
hvort þau versna eða hvort þeim
batnar hvað hreyfingu snertir.
Mjög mikilvægt er einnig að for-
eldrar séu vel vakandi og þekki
eðli þeirra vandamála sem geta
komið upp samfara bamagigt.“
-Hvaða hreyfíng er heppilegust
fyrir bam með gigtarsjúkdðm ?
„Það er mikilvægt að bamið
hreyfí sig og leiki sér; ef það fer að
draga sig í hlé og verður þreytt og
ergilegt þá er ástæða til að athuga
fæmi þess. Sund er gott en gæta
þarf þess að bömunum
verði ekki kalt því kuldi
hefur slæm áhrif á gigt
yfirleitt. Bömin þurfa
að vera vel klædd.“
- Eru böm með gigt-
arsjúkdóma mUdð vist-
uð ásjúkrahúsum ?
„Á síðari áram hefur
verið minna og minna um að þessi
böm þurfi að liggja á sjúkrahús-
um. Þau fá lyfin sín heima, em í
eftirliti á göngudeildum eða lækn-
astofum og í meðferð hjá sjúkra-
þjálfumm og iðjuþjálfum utan
sjúkrahúsa eða á göngudeildum
þeirra.“
Mikilsvert að
sjúkdómurinn
sé greindur
snemma og
rétt meðferð
notuð