Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 2?
Tilboð
Baraks
ekki end-
anlegt
EHUD BARAK, forsætísráð-
herra ísraels, segir að tílboð
Israela um afhendingu hluta
Vesturbakkans til Palestínu-
manna sé ekki nauðsynlega end-
anlegt. Að sögn eins helsta ráð-
gjafa Baraks hefur ráðherrann
tilkynnt Yasser Arafat, leiðtoga
Palestinumanna, að ísraelar séu
opnir fyrir frekari málamiðlun-
um. Samningar þjóðanna um
Vesturbakka Jórdanar eru hluti
lokaáfanga friðarviðræðna
þeirra sem að öllum líkindum
mun ljúka með stofnun Palest-
ínuríkis. Samkvæmt tillögum
sem Israelar lögðu fram í síð-
ustu viku mun mestur hluti
landnemabyggða gyðinga á
Vesturbakkanum halda áfram
að tilheyra Ísraelsríki. Tillög-
umar gerðu ráð fyrir því að Pal-
estínumenn fengju til að byrja
með tvo þriðju hluta Vestur-
bakkans en þegar endanlegt
friðai'samkomulag yrði komið til
framkvæmda réðu þeir um 80%
en ísrael héldi eftír 20%.
Kínverjar
vara við fundi
KÍNVERJAR vöniðu á
fimmtudag Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, við því
að hitta Dalai Lama, andlegan
leiðtoga Tíbeta. Persson stefnir
að því að ræða við Dalai Lama
yfir morgunverði næstkomandi
miðvikudag. „Dalai Lama er
pólitískur útlagi sem hefur lengi
verið þátttakandi í aðgerðum
sem miðast að því að sundra
fósturjörðinni," sagði talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytis-
ins í gær. „Við erum algerlega á
móti hveiju því landi eða ráða-
mönnum í hverju því ríki eða
héraði sem bjóða Dalai Lama tU
sín eða hitta hann, í hvaða nafni
sem það er gert og óháð því
hvemig fundurinn fer fram.“
Persson ætlar þrátt fyrir
þessi skýru viðvörunarorð ekki
að aflýsa fundinum. Ef af fund-
inum verður mun Persson verða
fyrsti forsætisráðherra Svíþjóð-
ar sem hittir Dalai Lama.“
Verheugen
varar við
seinagangi
TÍMAÁÆTLUN vegna inn-
göngu nýrra aðUdarríkja í
Evrópusambandið (ESB) verð-
ur ekki tilbúin næsta haust eins
og stefnt hefur verið að nema
ríkin sýni að þau geti uppfyUt
skUyrði aðildar. Þetta sagði
Gúnter Verheugen, sem fer með
stækkunarmál innan fram-
kvæmdastjómar ESB, á
fimmtudag.
„Við bindum vonir við að geta
lagt fram, fyrir lok ársins, áætl-
un um inngöngu nýrra aðUdar-
ríkja, samkvæmt matí sem
framkvæmt verður í haust,“
sagði Verheugen en varaði jafn-
framt við afleiðingum seina-
gangs í aðildarviðræðunum. „Ef
viðræðurnar þokast ekki fram á
við á nokkrum mikilvægum
sviðum, getum við ekki lagt
neina áætlun fram.“
Viðræðumar eru einkum
vandasamar þegar kemur að
landbúnaðar- og byggðamálum,
frjálsri för launþega, samgöngu-
málum og félagsmálum.
Skoskir læknar reyna að fínna ástæðu banvæns sjúkdóms
heggst á heróínneytendur
London, Melbourne. Reuters.
SKOSKIR læknar og starfsmenn
heilbrigðiseftirlitsins sögðu í gær
að verið væri að grafast fyrir um
ástæður undarlegs sjúkdóms, sem
hefur til þessa valdið dauða átta
eiturlyfjaneytenda. I Astralíu glíma
menn aftur á móti við „hermanna-
veikina“ svokölluðu, en hún hefur
hugsanlega kostað þrjá menn lífið.
Skoskir læknar óttast að sjúk-
dómstilfellunum muni fjölga en þau
tengjast ölþsprautufíklum og heró-
ínneyslu. Á 11 dögum hafa 19
manns sýkst og þar af era átta
látnir. Sjúkdómurinn byrjar með
graftarígerð í kringum sprautuför-
in en síðan taka við öndunarerfið-
leikar og líffærabilun.
Konur í meirihluta
Talið er hugsanlegt að ástæðan
sé óhreint heróín eða menguð sítr-
ónusýra en í henni er heróínið leyst
upp áður en því er sprautað.
Merkilegt þykir að af þeim 19, sem
hafa sýkst, era 14 konur, en yfir-
leitt lenda karlmenn frekar í vand-
ræðum vegna eiturlyfjaneyslu.
Kann skýiingin að vera sú, að allir
sjúklingarnir höfðu annaðhvort
sprautað eitrinu í vöðva eða árang-
urslaust reynt að finna einhverja
æð. Konur, sem eru eiturlyfjasjúkl-
ingar, eiga oft í meiri erfiðleikum
en karlmennmeð að finna nothæfa
æð.
Hermannaveiki
í Ástralíu
I Ástralíu hafa tvær konur látist
úr hermannaveikinni og hugsan-
lega einn karlmaður. Hafði hann
sýkst en banamein hans var þó lík-
lega annað. Veikin kom upp í síð-
asta mánuði og talið er að hana
megi rekja til nýs sædýrasafns í
Melbourne. Sýktist alls 91 og þar á
meðal John Fahey, fjármálaráð-
herra Ástralíu. Var hann meðal 700
manna, sem sóttu samkomu á veg-
um Frjálslynda flokksins í sædýra-
safninu. Hermannaveikin ber flest
einkenni flensu en um 10% sjúkl-
inga látast. 1987 létust 10 manns í
Nýju Suður-Wales í Ástralíu er
veikin kom upp þar.
BRIO „heimilistilboð". aðeins í maí:
149.900 kr. stgr.
HP BRIO BA 600 er nýjasta BRIO tölvan frá Hewlett-
Packard. HP BRIO tölvurnar eru tilvaldar fyrir heimili sem
og minni eða meðalstór fyrirtæki sem þurfa hagstæða
tölvu með nýjustu tækni. Þriggja ára ábyrgð er á BRIO
tölvunum.
HP BRIO BA 600 tölvan er með nýjasta Intel örgjörvann
(Coppermine 650 MHz), með 128 Mb vinnsluminni, 15 Gb
hörðum diski og ATI 16 Mb 3D skjákorti með MPEG-
afspilun. í tölvunni er ennfremur átta ieshraða DVD spilari
(40 leshraða geisladrif), USB 56 K mótald, hátalarar og
Windows 98 stýrikerfi. 17" hágæða HP skjár fylgir tölvunni.
Tilboðsverð á HP BRIO BA 600 er 149.900 kr.stgr. Tilboðið
gildir einungis í maí eöa á meðan birgðir endast.
Kynntu þér margfalda kosti HP BRIO hjá næsta söluaðila
Opinna kerfa.
pentium*„j i n v e n t
Söluaðilar: EG Jónasson, EST, Element, Gagnabanki íslands, Penninn-Bókval, Penninn-Skrlfstofuvélar,
Samhæfni, Snerpa, TA tölvuþjónustan, TRS, Tölvubóndinn, Tölvun, Tölvuþjónustan Akranesl.