Morgunblaðið - 12.05.2000, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
L V S I
G A
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
* Starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa í Breiðholti, ekki yngri en
20 ára. Vinnutími frá kl. 6.30—13.00 og aðra
hvora helgi.
Upplýsingar í síma 557 7428 og 893 7370 eftir
kl. 13.00.
FUMOIR/ MANNFAGNAÐUR
Fundarboð
Aðalfundur Taugagreiningar hf.
Aðalfundur Taugagreiningar hf. verður haldinn
á Grand Hóteli Reykjavík, fundarsalnum Há-
teigi, á 4. hæð, fimmtudaginn 25. maí 2000
og hefst fundurinn kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Fundarsetning og kosning fundarstjóra.
2. Stjórn félagsins skýrirfrá rekstri félags og
hag þess á liðnu starfsári.
3. Kosning stjórnar.
4. Kosning endurskoðenda.
5. Ákvörðun um hvernig skal fara með hagn-
að eða tap og um arð og framlög í vara-
sjóð.
^ 6. Ákvörðun um greiðslurtil stjórnarmanna
og endurskoðenda á starfsárinu.
7. Tillaga um heimild til stjórnar um hækkun
hlutafjár um allt að kr. 40.000.000 og breyt-
ing á 4. gr. samþykkta til samræmis þar
við. Lagt er til að hluthafar falli frá for-
kaupsrétti að 1/4 hlutafjáraukningarinnar
vegna kaupréttarsamninga.
8. Tillaga um 18 mánaða framlengingu á
heimild stjórnartil kaupa á eigin hlutabréf-
um í félaginu.
% 9. Tillaga um heimild til stjórnar til að gera
kaupréttarsamninga við starfsmenn félags-
ins.
10. Tillaga um breytingu á 14. gr. samþykkta
félagsins um boðun hluthafafunda.
11. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á skrif-
stofu félagsins í Ármúla 10, Reykjavík, dagana
18.—25. maí nk. milli kl. 10.00 og 15.00 og á
fundarstað.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1999, ásamt
tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða
hluthöfum til sýnis á sama stað frá 18. maí.
Reykjavík 11. maí 2000.
x Stjórn Taugagreiningar hf.
Aðalfundur
Félags tækniteiknara
Aðalfundur Félags tækniteiknara verður haldinn
á skrifstofu félagsins á 2. hæð t.h. í Hamraborg
7, Kópavogi, fimmtudaginn 25. maí nk. kl. 20.00.
Félagsmenn og nýútskrifaðir nemar velkomnir.
Sýnum samstöðu og komum saman og ræðum
m.a. framtíð félagsins.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verið velkomin!
Stjórnin.
Aðalfundur
Heilsuhringsins
verður haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn
16. maí kl. 20.00.
Að loknum aðalfundarstörfum kl. 21.00 verður
flutt erindi: Heilsan þín.
Fyrirlesari: Þorsteinn Njálsson, læknir.
Stjórnin.
Aðalfundur Rauða kross
Islands 2000
Aðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn
í Menntaskólanum á ísafirði laugardaginn
27. maí nk.
Dagskrá samkvæmt 5. grein laga RKÍ.
Stjórn Rauða kross íslands.
G ISL£'Vr,
3
Alþjóðadagur
hjúkrunarfræðinga 12. maí
ítilefni af alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga
stendur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir
dagskrá víða um land næstu daga undir kjör-
orðinu
Hjúkrun fyrir þig, alltaf, alls stadar.
Reykjavík
Dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15.00—16.30.
Hjúkrun á nýrri öld
Framtíðarsýn hjúkrunarfræðinganna Pálínu
Sigurjónsdóttur, fyrrverandi hjúkrunarforstjóra,
Þuríðar Backman, hjúkrunarfræðings og al-
þingismanns, Helgu Sifjar Friðjónsdóttur,
hjúkrunarfræðings.
Veitingar.
Akureyri
ÁAkureyri, hinn 12. maí, verður haldinn fagn-
aður hjúkrunarfræðinga á Norðurlandi eystra
kl. 20.30 á Stássinu, Greifanum.
Skagafjörður
Hjúkrunarfæðingar á Norðurlandi vestra halda
fund í Löngumýri í Skagafirði sem hefst kl.
18.00. Þema fundarins er: Hjúkrun fyrir þig,
alltaf, alls staðar.
Áfundinum verður boðið upp á ýmsan fróðleik
og holla næringu fyrir sál og líkama.
Víða annars staðar verða hjúkrunarfræðingar
með dagskrá í tilefni dagsins sem auglýst er
á viðkomandi stöðum.
TILKYNNINGAR
stofnun
Kísilgúrvinnsla úr Mývatni
Mat á umhverfisáhrifum - önnur athugun
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrslur
um frekara mat og frummat á umhverfisáhrif-
um liggja frammi til kynningar frá 12. maí til
16. júní 2000 á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Skútustaðahrepps, íþróttamiðstöð
Skútustaðahrepps og Selinu, Skútustöðum.
Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags-
stofnun í Reykjavík.
Ásömu stöðum liggja einnig frammi til kynn-
ingar athugasemdir Skipulagsstofnunar við
skýrslu um frekara mat, dags. 28. apríl 2000
og svörframkvæmdaraðila við þeim, dags.
2. maí 2000. Skýrslurnar eru aðgengilegar á
heimasíðu Hönnunar hf: www.honnun.is.
Allir hafa rétttil að kynna sérframkvæmdina
og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast
eigi síðar en 16. júní 2000 til Skipulags-
stofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat
á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Lokað
Skrifstofur Framkvæmdasýslu
ríkisins verða lokaðar
frá kl. 12 á hádegi í dag, föstudaginn
12. maí, vegna afmælishátíðar FSR.
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENÐIR 562 3219
Áuglýsing um deiliskipulag
að Dyngjuvegi 9-11.
í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst niðurstaða
borgarráðs Reykjavíkur varðandi deili-
skipulag á lóðunum nr. 9-11 við
Dyngjuveg.
Deiliskipulagstillagan var auglýst lögum
samkvæmt og var hún í kynningu frá
20.11.99-24.12.99. Athugasemdafrestur
var til 07.01.00. Eitt athugasemdabréf
barst frá eigendum Hjallavegar 64, 66 og
68. Lutu athugasemdir þeirra að því að
bygging nýs húss á lóðinni nr. 11 ylli
röskun og ónæði í grónu hverfi og skyggði
á sól og útsýni. Vegna athugasemdanna
var tillögunni breytt þannig að fyrirhugðuð
húsbygging var lækkuð um 30 cm auk
þess sem byggingarreitur hennar var
færður 1 m til suðvesturs og 60 cm
norðvesturs, þ.e. fær athugasemdaaðilum.
Að auki voru leyfðar eftirtaldar breytingar á
húsinu nr. 9: nýjar svalir á austur- og
vesturhliðum hússins, stækkun á anddyri
norðurhliðar til vesturs og breyting á
tröppum á austurhlið hússins. Borgarráð
Reykjavíkur samþykkti tillöguna þannig
breytta á fundi sínum 29.02.00.
Deiliskipulagið var að því loknu sent
Skipulagsstofnun til skoðunar. Stofnunin
lagðist gegn því að birt yrði auglýsing um
gildistöku deiliskipulagsins þar sem
stofnunin taldi auglýsingu þess ábótavant.
Þrátt fyrir framangreinda afstöðu
Skipulagsstofnunar birtist auglýsing um
gildistöku skipulagsins í B-deild Stjórnar-
tíðinda þann 10.04.00. Deiliskipulagið
hefur því tekið gildi. Tilkynning um
afgreiðslu málsins og umsagnir hafa verið
sendar þeim sem athugasemdir gerðu.
Nánari upplýsingar eða gögn málsins er
hægt að nálgast á skrifstofu Borgar-
skipulags Reykjavíkur að Borgartúni 3,
Reykjavík.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
STYRKIR
Minningarsjóður
Heiðar Baldursdóttur
Stjórn Minningarsjóðs Heiðar Baldursdóttur
auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á
sviði sérkennslu, blöndun fatlaðra og ófatlaðra
barna og boðskipta. í umsókn skulu koma fram
eftirfarandi upplýsingar:
1. Greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum
þess og áætlaðri framkvæmd.
2. Áætlun um upphaf og lok verkefnis og/eða
áfanga.
3. Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
4. Aðrar upplýsingar, s.s. fyrirhuguð kynning
og nýting á niðurstöðum.
Greinargerð skilist til sjóðsstjórnar að loknu
verkefni.
Umsóknir skulu berast stjórn sjóðsins fyrir
28. maí og skal senda þær til formanns
sjóðstjórnar, Þóru Kristinsdóttur, Kennara-
háskóla íslands.