Morgunblaðið - 12.05.2000, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG HEF loksins
tekið pólitíska afstöðu,
eftir mikla íhugun. Ég
hef líka fengið grænar
bólur af fjölmiðlaum-
stanginu í kringum
stofnfund Samfylking-
arinnar. Össur situr
kokhraustur og lýsir
-®f>ví yfir að þeir ætli
ekki að vera miklu
betri en Sjálfstæðis-
flokkurinn, bara ekki
eins slæmir. Össur vill
líka afnema kvótakerf-
ið á 10 árum, semsagt
taka 10% af útgerðun-
um á ári og bjóða út,
láta þannig „markað-
inn“ ráða verðinu. Til hamingju,
Össur! Ég held að þú og þinn
flokkur séuð jafnvel heimskari en
sjálfstæðismenn, og er þá mikið
sagt. Hvaða markaður ákvarðar
verð á kvóta þar sem meirihluti
hans er í höndum stórútgerða? Er
það ekki bara sami markaðurinn og
AEður verðlaginu núna, kvótaeig-
endurnir? Ég get svo svarið það...
Sjálfstæðisflokkurinn vill ennþá
enga breytingu. Þeir halda því enn-
þá fram að kerfið sé á heimsmælik-
varða og beri að kenna sem flest-
um. Svo lofa þeir Vatneyrar-
dóminn, sem svo óheppilega tafði
nefndina sem átti að endurskoða
kerfið um ár. Ég skil ekki hvernig
Vatneyrardómurinn gat staðið svo
illa í þessari aumingja nefnd að
þeir gætu ekki drukkið kaffi og
l&pjallað saman í heilt ár. Einn
dómaranna var jú
fyrrverandi forseta-
frambjóðandi á veg-
um Sjálfstæðisfiokks-
ins og því hlaut að
fara sem fór. Talandi
um vanhæfi...
Vinstri grænir
sóma sér vel sem
kynþáttahatarar. Ef
Sj álfstæ ðisflokkurinn
og Vinstri grænir
sætu saman í stjórn
væri löngu búið að
smala landsbyggðar-
fólki og öðrum óæski-
legum lýð í flutninga-
bíla og skjóta þá alla
saman.
Hvernig get ég hamrað vel á
Framsókn? Það eina sem mér dett-
ur í hug er hópur hrokafullra, sjálf-
umglaðra aumingja sem ráfa um og
móðga og misbjóða fólki við hvert
tækifæri. Flokkur með framtíð!
Nei, eini flokkurinn sem ég sé í
dag er Frjálslyndi flokkurinn.
Nógu fámennur til að hafa ekki
einhverja óhugsandi hálfvita ráf-
andi um fyrir sjónvarpsmyndavél-
um, svalandi sinni sýniþörf og út-
býtandi lygum og heimsku á meðal
þjóðarinnar. Þetta er eini flokkur-
inn sem hefur ekki tekist að móðga
greind mína með yfirlæti og lygum.
Fyrsti flokkurinn sem ég mun
kjósa, það er á hreinu!
Þið þarna úti sem stamið ennþá
sömu rulluna: „Já, en hann Sverrir
Hermannsson." Við ykkur hef ég
bara eitt að segja. Sverrir var
hengdur fyrir smámuni miðað við
það sem gengur og gerist í dag, og
allt vegna blóðþorsta kommanna í
landinu. Mér finnst allavegana
Laxveiðar fyrir u.þ.b. 2,5 milljónir
vera smámunir miðað við 5 millj-
óna gullklósett í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu. Það er ekki sú
staðreynd að klósettið skyldi kosta
5 milljónir, heldur að mikil-
mennskubrjálæði ráðherra vorra sé
orðið slíkt og þvílíkt, að ekkert
dugi nema gull til að taka við
hægðum þessa fólks. Talandi um
guði!!!
Þrátt fyrir öll loforð stjórnar-
flokka Islands um að nú taki betri
tímar við, því nú eigi að sinna fólk-
inu, fellur allt í sama farið þegar í
stjórnarstólinn er komið. Þjóðinni
er gleymt. Menn fara á sjálfselsku-
ferðalag og koma ekki tilbaka fyrr
en skömmu fyrir kosningar. Ég
trúi því vel þegar Össur segist til-
Kvótinn
Menn fara á sjálfselsku-
ferðalag, segír Kristján
Ragnar Asgeirsson,
og koma ekki til baka
fyrr en skömmu fyrir
kosningar.
búinn að taka við stjórnartaumun-
um í landinu. Ég trúi að allir
stjórnarflokkarnir séu tilbúnir að
taka við stjómartaumunum. Ég
bara trúi ekki að þeir ráði við það
starf sem_ þeir eru að bjóða sig
fram til. Ég vona samt að Frjáls-
lyndir verði nógu margir til þess
einhvem daginn.
Höfundur er nemi við Sam-
vinnuháskólann á Bifröst.
Öður til
frjálslyndra
Kristján Ragnar
Ásgeirsson
Kærleiksríkur agi,
ástúðlegt frelsi!
HelgaBjörk Linda
Pálsdóttir Óladóttir
í þjóðfélaginu ríkir
almennt sú hug-
myndafræði að ungl-
ingsárin einkennist af
mikilli togstreitu milli
unglinga og foreldra.
Ljóst er að þá ganga
--unglingar í gegnum
miklar andlegar og
líkamlegar breyting-
ar. Það getur því oft
verið erfitt fyrir ungl-
inginn að aðlagast
nýjum hlutverkum og
finna út hver hann er.
Hvernig unglingur
kemur út úr leitinni að
sjálfum sér fer mikið
eftir því hvemig sam-
skiptum hans við fjölskyldu sína er
háttað. Meginmarkmið með loka-
verkefni okkar frá Háskóla íslands
er að varpa ljósi á hversu mikilvæg
samskipti unglinga og foreldra em
m.t.t. sjálfsmyndar unglinga, þung-
(Jíyndis og áfengisneyslu. Gögnin sem
verkefnið byggist á era annarsvegar
spurningalistar sem lagðir vora fyr-
ir unglinga í 8., 9. og 10. bekk á öllu
landinu og hinsvegar viðtöl sem tek-
in vora við unglinga á þessum aldri.
í gegnum árin hafa verið gerðar
margar rannsóknir á sjálfsmati
unglinga og áhrifum þess á líf
þeirra. Einstaklingur, sem finnst
hann metinn að verðleikum innan
fjölskyldu sinnar og finnst hann ör-
uggur og elskaður af öðram fjöl-
skyldumeðlimum, er líklegri til að
öðlast hærra sjálfsmat. Flestir
?ræðimenn telja gott sjálfsmat vera
lykilinn að góðri félags- og tilfinn-
ingalegri aðlögun. Niðurstöður okk-
ar sýna að því meiri tíma sem ungl-
ingar eyða með fjölskyldu sinni því
hærra sjálfsmat hafa þeir. Þeir
unglingar sem talað var við era allir
sammála um að samskiptin við for-
ojdra sína séu mjög mikilvæg, þeim
nnnst gott að geta leitað til þeirra
og fundið að þeir eru til staðar. Já-
kvæð og góð sjálfsmynd virðist
skipta miklu máli um það hvernig
Uppeldi
Þó svo að foreldrar séu
ekki alltaf sammála um
hvernig unglingurinn
vinnur úr leitinni að
sjálfum sér, segja Linda
Óladóttir og Helga
Björk Pálsdóttir, er
betra að þeir taki því
með jafnaðargeði og
reyni frekar að styðja
hann.
unglingnum líður andlega og hvort
hann leiðist út í áfengisneyslu. Þeim
unglingum sem eiga góð samskipti
við foreldra sína líður betur andlega
og drekka áfengi í minna mæli. En
þeir unglingar sem eiga ekki góð
samskipti við foreldra sína eiga það
til að líða verr andlega og leiðast út í
meiri áfengisneyslu. Mai'gar rann-
sóknir sem framkvæmdar hafa verið
hér á landi hafa sýnt fram á tengsl
milli áfengisneyslu og sjálfsmyndar.
Einnig hafa rannsóknir leitt í ljós að
hægt er að setja lágt sjálfsmat í
samhengi við þunglyndi.
Með niðurstöður þessarar rann-
sóknar í huga má segja að góð sam-
skipti milli unglinga og foreldra séu
forsenda fyrir góðu sjálfsmati ungl-
ingsins, góðri andlegri líðan og
minni líkum á áfengisneyslu.
Til þess að einstaklingurinn fái
heildstæða og jákvæða mynd af
sjálfum sér er nauðsynlegt að hann
búi við jákvæð samskipti við for-
eldra sína. Árangursríkast er að ein-
staklingurinn búi við kærleiksríkan
aga og ástúðlegt frelsi. Einnig að
samskiptin einkennist af hlýju,
gagnkvæmri virðingu og jákvæðri
uppörvun. Mikilvægt er að foreldrar
sýni þeim miklu breytingum sem
unglingar fara í gegnum á unglings-
áranum skilning. Þó svo að foreldr-
ar séu ekki alltaf sammála um
hvernig unglingurinn vinnur úr leit-
inni að sjálfum sér er betra að þeir
taki því með jafnaðargeði og reyni
frekar að styðja hann. Með jákvæð-
um stuðningi, samræðum og áhuga
foreldra á því sem unglingurinn er
að gera, getur skipt sköpum um
andlega líðan unglingsins og því
hvort hann leiðist út í áfengisneyslu
eða ekki. Með ofangreint í huga má
enn og aftur segja að málshátturinn
„lengi býr að fyrstu gerð“ eigi vel
við hvað varðar samskipti foreldra
við börn sín.
Foreldrar, verum vakandi, verum
til staðar fyrir börnin okkar.
Höfundar eru félagsfræðingar
frá Háskóla íslands.
Onýt
króna?
NÚ ER krónan enn
komin á flug. Þá er
rétti tíminn til að fjalla
um hvernig mynt okk-
ar geti notið alþjóð-
legrar viðurkenningar.
Einn möguleikinn er
að tengjast evra með
eða án inngöngu í
ESB.
Það er tæplega
nokkuð „sjálfstæði"
falið i því að vera með
vafasaman gjaldmiðil, í
litlu sveiflukenndu
myntkerfi eins og er
hérlendis. Krónan er
nú skráð svo sterk -
með handafli - að hún er með sterk-
ustu gjaldmiðlum í heimi. Stað-
reyndin er samt sú, að hvergi er
hægt að selja íslenskar krónur í
bönkum erlendis, nema með miklum
afföllum, - ef það er hægt!
Fjármagnskostnaður hérlendis er
tvö- eða þrefalt hærri en annars
staðar í heiminum. Hver hefur efni
á að borga „vísitöluálag" og 5-8 %
vexti, - eða samtals 11-19% vexti, -
á meðan sambærilegir vextir era
3-7% erlendis (enn lægri í Japan)?
Varla hafa heimilin eða fyrirtækin
efni á svona „sjálfstæði" sem skrúf-
ar verðlag upp endalaust. Það má
frekar spyrja hvort efnahagslegt
sjálfstæði sé ekki í stórhættu með
svona lélegan gjaldmiðil.
Ekki hefur tekist að afnema vísi-
tölutengingar frá peningakerfinu.
Sú staðreynd er vísbending um að
krónan sé vonlaus mynt til framtíð-
ar. Vísitölutenging sem „hækja“ á
veikum gjaldmiðli nýtur hvergi við-
urkenningar.
Erlendur gjaldeyrir hefur
streymt inn í landið síðustu misseri,
- og innflutningur og eyðsla farið
vaxandi, - m.a. vegna þess hversu
sterkt krónan er skráð. Hagnaður
lánastofnana á sl. ári ber vitni um
hverjir hafa möguleika á_að hagnast
á þessum aðstæðum. Útflutnings-
og samkeppnisiðnaður, - sem er í
reynd kjölfestan í tekjuöflun þjóðar-
innar, - og þarmeð fjárhagslegu
sjálfstæði hennar, - tapar og tapar.
Fyrirtæki sem eiga þess kost flýja
land.
Lánastofnanir mættu gjarnan
taka skýrari afstöðu í þessu máli
með útflutnings- og samkeppnisiðn-
aði (bestu viðskiptavinum sínum), -
svo veðin þeirra verði ekki verðlaus.
Gamalt bankalögmál segir að eng-
inn banki sé ríkari en helstu kúnn-
arnir hans. Þeii- sem hafa varað við
þessari vafasömu þróun síðustu
misseri hafi þakkir, - en betur má
ef duga skal. Hinir - í ábyrgðarstöð-
um - sem þegja (en vita betur) ættu
að hugleiða, - að þögn þeirra kann
að leiða til þess, að allt of seint verði
bragðist við þessari hættulegu þró-
un.
Það er margreynt hérlendis að
vaxtahækkun virkar ekki á
„þenslu". Vaxtahækkanir hafa oft-
ast skrúfað verðlag upp. Skýringa
er hugsanlega að leita í smæð mynt-
kerfisins og séríslenskum aðstæð-
um. Sumir lántakendur eiga þess
ekki kost að hafna lánsfé hverjir
sem vextir era. í öðru lagi leiðir
veik eiginfjárstaða íslenskra fyrir-
tækja til þess að fyrirtækin verða að
velta öllum auknum kostnaði af sér,
- beint út í verðlagið aftur. Þriðja
skýringin er svo hugsanlega sú að
menn vita að myntin er ótraust og
stunda því spákaupmennsku í fast-
eignum og fleiri sviðum. Er til
kennslubók í hagfræði sem segir að
vaxtahækkun virki á þenslu, - í litlu
myntkerfi, - með handstýrðu gengi,
- sem nýtur ekki trausts?
Sjávarútvegur - evra og ESB
Hvað varðar íslenskan sjávarút-
veg - evra og ESB - er aðalatriði
málsins það að gjaldmiðill sá sem
sjávarútvegur fær greitt í við sölu
gjaldeyris - njóti alþjóðlegrar viður-
kenningar. Þetta er að-
alatriði málsins. Sé
þetta ekki mögulegt -
nema þá að taka upp
evru með því að sækja
um inngöngu í ESB, -
þá er spurning hvort
ekki er tímabært að
hefja þá umræðu um
hvort það sé ekki bara
lausnin. Komið hefur
fram að íslensk skip
myndu veiða hér að
mestu leyti. Þótt ESB
skip fengju að veiða
hér eitthvert lítilræði
(einhver þúsund tonn
af einhverju t.d. kol-
munna og karfa) - hvað með það?!!
Islensk skip veiða í erlendri lögsögu
- og kaupa fyrirtæki og kvóta er-
lendis. Hvers konar tvöfalt siðgæði
er það, að við eigum að fá að veiða í
smugum - og kaupa fyrirtæki í sjáv-
Gjaldmiðlar
Ekki hefur tekist að af-
nema vísitölutengingar
frá peningakerfinu.
Kristinn Pétursson
telur þá staðreynd
vísbendingu um að
krónan sé vonlaus mynt
til framtíðar.
arútvegi erlendis eins og við viljum,
- en erlendir aðilar megi ekki eiga
neitt í sjávarútvegsfyrirtækjum
hérlendis?!
Hugsanlega höfum við nú tæki-
færi til að vera á undan Norðmönn-
um til að þreifa á viðræðum við
ESB. Af hverju reynum við ekki -
Islendingai’, - að semja um að við
höfum forys'tu í sjávarútvegsmálum
innan ESB? Ef við reynum ekki að
þreifa á þessu núna, - þá má allt
eins búast við því að Norðmenn
hlaupi í skarðið, - semji um inn-
göngu fyrir sig, - og taki forystu í
sjávarútvegsmálum innan ESB. Þá
verður kátt í höllinni í EES, - ís-
land og Lichtenstein - með Norð-
menn hinum megin við borðið!
Er ekki staðreyndin sú að við er-
um komin 90% inn í ESB með því
að taka yfir flest öll lög og sam-
þykkja þau í Alþingi skv. EES
samningi? Samþykkt þessara laga
hefur fleytt okkur stór skref fram á
við á mörgum sviðum t.d. hvað varð-
ar samkeppnislöggjöf. Er það sem
eftir er ekki bara svipað og að sam-
eina sveitarfélög, - gangur nútím-
ans - stærri og hagkvæmari eining-
ar? Auðvitað myndu fylgja því
einhverjir gallar að við tækjum upp
evra með því að sækja um aðild að
ESB, - en eru þeir gallar ekki að
verða lítilvægt smáatriði, - miðað
við þann risastóra galla sem er há-
gengi, háir vextir og sívaxandi við-
skiptahalli sem gæti farið í 100
milljarða?
Hvers vegna sætta íslensk fram-
leiðslufyrirtæki sig við að skipta á
erlendum gjaldeyiú - í verðlausar
krónur? Era svona þvinguð „við-
skipti" ekki keimlík því þegar við
létum danska einokunarverslun
selja okkur maðkað mjöl, - á fullu
verði? Þeir sem neyddir eru til að
skipta erlendum gjaldeyri í krónur
geta svo aftur fengið krónur lánaðar
með svimandi háum vöxtum, - vísi-
töluálagi og uppsprengdu verðlagi á
flestum nauðsynjum. Kjami málsins
er að við þurfum að fá alþjóðlega
viðurkenndan gjaldmiðil sem fyrst,
- ef ekki með evra, - þá með öðram
alþjóðlega viðurkenndum hætti.
Höfundur er framkvæmdastjóri
útflutningsfyrirtækis.
Kristinn Pétursson