Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 70
70 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
M
Fiskur á grillið
Matur og matgerð
„Hvar ertu, kría?“ spyr Kristín
Gestsdóttir sem snýr sig næstum úr
hálsliðnum daglega við að skima upp í
ÞESSI fallegi, flugfimi fugl er
hér seinna á ferðinni en venju-
lega. Það er meira að segja lítið
um kríu við Skógtjömina hér rétt
fyrir vestan en aftur á móti mikið
um margæs þessa dagana þar
sem hún er að fita sig á marhálmi
fyrir ferðina yfir Grænlandsjökul
til Kanada. Svo vappar hún líka
um tún og engi og flýgur í fríðurn
flokkum um loftin blá yfir Álfta-
nesi. Margir rauðbrystingar vom
við Skógtjörnina um daginn auk
ýmissa annarra tegunda, en þar
virðist öll fuglaflóran safnast
saman á þessum árstíma, en bara
fáar kríur enn sem komið er.
Ég tók fram grillið og ákvað að
grilla fiskmeti á spjóti - hörpu-
disk og stórlúðu, en sá fiskur
hentar mjög vel til að grilla. Ekki
var veðrið gott, rigning og rok,
eiginlega kolómögulegt grillveð-
ur, en grillið stendur við eldhús-
dyrnar og auðvelt að smeygja sér
inn. Of mikil kæling verður á
grillinu við slíkar aðstæður, en
við erum íslendingar og blásum á
allar hefðir. Þegar ég kippti
spjótunum af griilinu, flugu þrjár
kríur yfir með gargi og mér
heyrðist þær segja: „Verði ykkur
að góðu.“ Þegar fiskur er grillað-
ur, hættir honum til að festast við
grind grillsins. Best er að smyrja
grindina með smjörlíki, þá festist
minna við en ef notuð er olía.
Stórlúða og
hörpudiskur á
spjóti
500 g hörpudiskur
500 g stórlúðg (eða smærri)
ferskt dill á lúðuna
fersk steinselja á hörpudiskinn
1 stór rauð papríka
200 g smáir sveppir (stærri sund-
urskornir)
2 frekar litlir rauðlaukar
1 hálfdós niðursoðinn smámaís
I hálfdás ananas í bitum
matarolía + örlítið salt til að
pensla með
3 tsk. salt
mikið af nýmöluðum pipar
safi úr 2 sítrónum (um 2 dl)
2 dl matarolía
2 skvettur tabaskósósa (má
sleppa)
Vi tsk, sykur
nokkrir grillpinnar, helst úr málmi
1. Skerið lúðuna í bita á stærð
við 2 sykurmola, afþíðið hörpu-
diskinn, ef hann er frosinn, stráið
salti og pipar yfir hvort tveggja.
2. Setjið matarolíu, sítrónu-
safa, sykur og tabaskósósu í skál
og þeytið saman. Skiptið í tvær
skálar, klippið dill út í aðra skál-
ina en steinselju í hina. Setjið
hörpudiskinn í skálina með stein-
seljunni en lúðuna í þá með dill-
inu. Látið standa í kæliskáp í 6-
12 klst. en á eldhúsborðinu í 1-2
tíma. Gætið þess að lögurinn þeki
alla bitana 3. Takið ysta lagið af
laukunum, sjóðið síðan í heilu
lagi í vatni í 3-5 mínútur, stinga
má lauknum í bolla og sjóða í ör-
bylgjuofni, kælið og skerið hvorn
lauk í fernt og losið blöðin í sund-
ur. 4. Takið stilk og steina úr
papríku og skerið í frekar litla
bita.
5. Þerrið ananasbitana og
smámaísinn með eldhúspappír og
skerið hann í tvennt. Skerið
sveppina í sundur, ef þeir eru
stórir.
6. Þræðið fisk, grænmeti og
ávexti á víxl upp á grillpinna,
helst úr málmi, hinir vilja brenna.
7. Penslið allt á spjótunum með
matarolíu.
8. Hitið grillið, setjið spjótin á
grindina, snúið þrisvar, fjórum
sinnum. Látið ekki vera á grillinu
lengur en í 5 mínútur. Berið
strax á borð, þetta er fljótt að
kólna.
Meðlæti: Heitt brauð og smjör.
« C-ViSmÍii
" Socke/frt le
■ ,, CUtrctit Jt>
Apótekin
__ GOLFBUDIN.IS
www.golfbudin.is - Email: golfbudin@golfbudin.is
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hugleiðing
GUÐMUNDUR hafði sam-
band við Velvakanda og
langaði að koma á framfæri
smá hugleiðingu. Finnst
honum að Samtök iðnaðar-
ins ættu að heita Samtök
loftbólulífsins. Það er ann-
aðhvort 30 þúsund störfum
ofmikið eðaoflítið.
Þakkir til Kexverk-
smiðjunnar Fróns
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma á framfæri þökkum
til Kexverksmiðjunnar
Fróns. Hún er dagmamma
og hefur lengi keypt Svala-
kex úti í búð og alltaf fengið
kexið brotið. Henni datt í
hug að hafa samband við
Frón og það var ekki að
sökum að spyrja. Þeir
komu strax og færðu henni
fullan innkaupapoka með
alls konar tegundum af
kexi og tóku brotna kexið
til baka. Hafið bestu þakkir
fyrir frábæra þjónustu.
Styrkur
til Kattholts
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma á framfæri þeirri til-
lögu að þeir sem væru með
ketti yrðu látnir borga
ákveðið gjald eins og þeir
sem eru með hunda og að
þetta gjald rynni óskipt tii
Kattholts.
Tapaö/fundiö
Nokia 3210 tapaðist
NOKIA 3210 GSM-sími
tapaðist við Hlemm mánu-
daginn 8. maí sl. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Eygló í síma 557-5169.
Canon-myndavél
tapaðist
CANON-myndavél í svörtu
hulstri tapaðist á annan í
páskum á skíðasvæði
Fram. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 567-
5959.
Silfurlitt
kvenarmbandsúr
tapaðist í Oskjuhlíðinni eða
nágrenni laugardaginn 22.
apríl sl. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 568-
4193. Fundarlaun.
Dýrahald
Hressir og kátir
kisustrákar
fást gefins
HRESSIR, kátir og fjör-
ugir níu vikna fress fást
gefins. Upplýsingar í síma
557-5918.
Læða fæst gefins
FJÖGURRA mánaða læða
fæst gefins á gott heimili
vegna óviðráðanlegra að-
stæðna. Upplýsingar í síma
565-5607 eða 692-9837.
Persnesk læða
hvarf að heiman
GÖMUL persnesk læða,
brúnbröndótt, hvarf að
heiman frá sér í Fléttu-
rima. Hún fer aldrei út úr
húsi. Ef einhver hefur orðið
var við hana vinsamlegast
hringið í síma 587-0766 eða
699-2728.
Morgunblaðið/RAX
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynning-
um og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Raddir framtíóar
Hvernig vitum við að það er vindur?
Afþví að hann blæs á mann.
Maður finnur það, hann blæs fast, hann er
ósýnilegur og kemst ekki ígegnum mann.
Hann kemst inní gallann minn og húfuna og
buxurnar. Börn frá Jók|aborg
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA féll allur ketill í eld,
þegar forystumenn hins nýja
jafnaðarmannaflokks, sem ætluðu
að höfða til íslenzkrar alþýðu með
nýrri og ferskri stefnu, tóku í lok
stofnfundarins að steyta hnefa og
kyrja Nallann á sviðinu í Borgar-
leikhúsinu. Hallærislegra gat það
nú ekki verið, upphaf þessa nýja
jafnaðarmannaflokks, að kyrja
þessa gömlu lummu, sem löngu hef-
ur gengið sér til húðar og minnir
ekki á neitt nema gamlar úreltar
kennisetningar krata og sósíalista.
Þegar Víkverji heyrði þetta, hugsaði
hann með sér - nú, það er alls engin
breyting!! Hvar eru mennirnir sem
kvatt hafa til stuðnings við einstakl-
ingsfrelsið og sagzt hafa skilið við
þjóðnýtingu og allar úreltar lummur
rauðliða að fomu?
Heldur var það líka dapurt að
heyra hvernig forystumenn lýstu
því, hvernig þeim hefði vöknað um
augu, þegar þessi gamli sameining-
ardraumur vinstri flokkanna rann
upp - með Internationalinn ómandi
um húsið. Hvar var nýja stefnan?
Hvar var hinn ferski andblær? Dó
hann með flokkunum, sem lagðir
vom niður um leið og hinn nýi var
stofnaður? Hvers vegna féll foryst-
an á prófinu og tók að kyrja Nallann
öllum að óvöram? Hvílík mistök.
xxx
RAUNAR hélt Víkverji að söng-
urinn í lok stofnfundarins hefði
verið mistök einhvers, sem hafið
hefði upp raust sína og viðstaddir
tekið undir algjörlega hugsunar-
laust. Svo ótrúlegt var það að við
dagsbrún nýs jafnaðarmannaflokks
skyldu menn fara í gamla farið strax
á stofnfundinum.
En svo var þó ekki - í gögnum
fundarins var dreift blaði með fyrir-
sögninni „Samsöngur í lok stofn-
fundar laugardaginn 6. maí árið
2000“ - að hugsa sér. Þar stendur
svo þessi texti, sem hér skal birtur
til þess að sýna hve framúrstefnu-
legur flokkurinn er og nýtízkulegur:
Frara, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum,
boða kúgunar ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum liði í dag -
Vér bárum fjötra en brátt við hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd,
því Intemationalinn
mun tengja strönd við strönd.
XXX
ESSI söngur var sem sagt
skipulagður út í yztu æsar.
Menn era greinilega fljótir að átta
sig á hvers konar stjórnmálaafl
menn voru að mynda við stofnun
Samfylkingarinnar. Það er varla
nýja jafnaðarmannastefnan, sem
kennd hefur verið við Tony Blair eða
aðra evrópska forystumenn nýrrar
jafnaðarmannastefnu sem sveif yfir
vötnum í ómum Nallans. Þeir hefðu
varla dottið í þessa gryfju. Annað
hvort er að mynda nýtt afl eða ekki.
Fram þjáðir menn - já, sárþjáðir í
fjötram fortíðar!?