Morgunblaðið - 12.05.2000, Síða 84
MÖMEfölLESE
GoTTBÁDUMMEGIH/
«
JARK
mrn
KOMIN UT!
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: R/TSTJlSMBUS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Kristinn
Frá hátíðarkvöldverði til heiðurs pólsku forsetahjónunum. Á myndinni eru frá vinstri: Ástríður Thorarensen
.rjjgrsætisráðherrafrú, Aleksander Kwasniewski forseti Póllands, Ólafur Ragnar Grímsson forseti fslands, Jol-
anta Kwasniewska forsetafrú, og Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Gekk á pólinn
öðru sinni sér
til skemmtunar
HARALDUR Örn Ólafsson norður-
pólsfari ákvað í gær að halda af stað
áleiðis á norðurpólinn öðru sinni eftir
að hafa sigrað hann fyrstur íslend-
inga á miðvikudagskvöld. Hann rak
10 km til suðurs frá pólnum í fyrri-
nótt og ákvað að leita pólinn uppi að
nýju sér til skemmtunar og hugðist
láta vita af sér í nótt.
Haraldur sagði í símaviðtali sem
Morgunblaðið átti við hann í gær, að
norðurpólsferðin hefði verið þrískipt
og að hver hluti hennar hefði haft sín
einkenni.
í gær var ekki útlit fyrir að hægt
yrði að sækja Harald út á ísinn í dag,
föstudag, vegna slæmrar veðurspár.
Hann er hins vegar vel birgur af mat
og bíður þolinmóður eftir bakvarða-
sveitinni.
■ Er búinn/43
Verslunarmenn og SA
Samningur í augsýn
SAMKOMULAG var í augsýn í
viðræðum Samtaka atvinnulífsins
og verslunarmanna um nýjan
kjarasamning seint í gærkvöldi.
Landssamband verslunarmanna og
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
eiga þátt í viðræðunum við at-
vinnurekendur sem hafa staðið
undanfarna daga. Samningur tæki
til tæplega 30 þúsund verslunar-
manna um land allt. Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, staðfesti
við Morgunblaðið um miðnætti í
gærkvöldi að vel horfði í viðræðun-
um og hann væri bjartsýnn á
framhaldið. Undir þau orð tók Ari
Edwald, framkvæmdastjóri SA, og
taldi að saman myndi ganga í dag
eða allra næstu daga, kæmi ekkert
óvænt upp á.
Kvöldverður
á Bessa-
stöðum
FORSETI Póllands, Aleksander
Kwasniewski, og eiginkona hans,
Jolanta Kwasniewska, komu í opin-
bera heimsókn til íslands í gær.
Heimsóknin hófst með hátiðlegri
athöfn að Bessastöðum laust fyrir
hádegi en síðdegis heimsótti for-
setinn Alþingi og Höfða. Forseti ís-
ds bauð í gærkvöldi til hátíðar-
kvöldverðar á Bessastöðum til
heiðurs pólsku forsetahjónunum,
en heimsókn þeirra lýkur í dag.
■ Forsetaheimsókn/6
---------------
A
RSI semur
við ríkið
SAMNINGAR tókust seint í gær-
kvöld milli Rafíðnaðarsambands
íslands og fjármálaráðuneytisins
um nýjan samning fyrir 116 rafiðn-
aðarmenn sem starfa hjá ríkinu.
^Fundur um verkfallsboðun var
boðaður í dag, en honum hefur
verið frestað. Samningurinn gildir
til 2004, með uppsagnarákvæðum
þó, og var gerður með fyrirvara
um niðurröðun í launaflokka.
Samningur Atlantsskips
framlengdur í eitt ár
FLUTNINGADEILD bandaríska
hersins tilkynnti í gær að ákveðið
hefði verið að framlengja samninga
við Atlantsskip og Transatlantic
Lines í eitt ár, en fyrirtækin hafa
annast flutninga fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli frá því í árslok
1998.
Þessi ákvörðun er tekin aðeins
degi eftir að utanríkisráðherra ís-
lands ákvað að gera tillögu um að
fresta í eitt ár gildistöku ákvæða
um verktöku i frumvarpi um fram-
kvæmd tiltekinna þátta í varnar-
samstarfi Islands og Bandaríkj-
anna. Utanríkisráðuneytið hafði í
viðræðum við bandarísk stjórnvöld
lagt áherslu á að efnt yrði til nýs
útboðs.
Samningar Atlantsskips og
Transatlantic Lines, sem gerðir
voru haustið 1998 að undangengnu
útboði, voru til tveggja ára með
möguleika á árlegri framlengingu í
þrjú ár. Hinn framlengdi samning-
ur gildir frá nóvember nk. til nóv-
ember 2001. Hann gerir ráð fyrir
sömu greiðslum fyrir flutningana
og komdu heim frá London eda
inarri borg í Evrópu fyrir sama verd.
Bókunarsími 569 1010
og sá samningur sem rennur úr
gildi í haust.
Stefán Kjærnested, fram-
kvæmdastjóri Atlantsskips, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
væri mjög ánægður með þessa nið-
urstöðu. Hún væri í samræmi við
það sem hann hefði átt von á. Þetta
sýndi að flutningadeild bandaríska
hersins væri ánægð með þjónustu
fyrirtækisins.
Nefnd skipuð til að
ræða um verktöku
Hann sagði fyrirtækið staðráðið í
að veita öfluga þjónustu með það
að markmiði að halda samningnum
næstu fjögur ár. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra mælti í gær
fyrir breytingartillögu við frum-
varp um framkvæmd tiltekinna
þátta í varnarsamstarfi Islands og
Bandaríkjanna. Tillagan gerir ráð
fyrir að gildistöku þess hluta
frumvarpsins sem fjallar um verk-
töku verði frestað í eitt ár. Halldór
sagði að náðst hefði samkomulag
við stjórnvöld í Bandaríkjunum um
að þjóðirnar settu á fót nefnd hátt-
settra manna til að fjalla um verk-
töku fyrir varnarliðið. Þar með
gæfist tækifæri til að ræða frekar
við Bandaríkjamenn um ýmsa
þætti þessa máls.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gangrýndu hvernig utanríkisráð-
herra hefði staðið að málum. Sig-
hvatur Björgvinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, minnti á að við
aðra umræðu um málið hefði
stjórnarmeirihlutinn fellt tillögu
sem hefði efnislega verið samhljóða
þeirri tillögu sem utanríkisráð-
herra væri nú að bera fram. Sverr-
ir Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, lagði fram tillögu
um að frumvarpinu yrði vísað frá.
Reiknað er með að greidd verði at-
kvæði um frumvarpið á morgun.
■ Samkomulag/lO
Einmuna hlýindi á norðan- og austanverðu landinu
Lerkið varð sumar-
grænt á tveimur dögum
LERKIÐ í Kjarnaskógi við Akur-
eyri hefur orðið sumargrænt á
tveimur dögum að sögn Hallgríms
Indriðasonar, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Ég
hef nokkrar áhyggjur af þessu,
það þarf ekki nema eitt gott vor-
hret til að það skemmist. Lerkið
lætur alltaf plata sig, en það gerir
birkið ekki,“ sagði hann.
Mikil hlýindi hafa verið á Norð-
ur- og Austurlandi síðustu daga og
fór hiti upp í 23 stig á Hall-
ormsstað um miðjan dag f gær.
Hitinn á Akureyri fór í 21 gráðu
svo og í Ásbyrgi.
Örlftil rigning var á Akureyri í
Morgunblaðið/Kristján
Hitamælirinn á Ráðhústorgi
rauk upp f 24 stig um miðjan
daginn í gær.
vikunni og hún ásamt nægum raka
í jörðu eftir veturinn sem og veð-
urblfðunni undanfarna daga hefur
orðið til þess að gróður hefur
injög tekið við sér. Raunar svo
mikið að lerkið í Kjarna varð sum-
argrænt á tveimur dögum.
Skógræktarfélag Eyfirðinga átti
70 ára afmæli í gær, 11. maí, og
grennslaðist Hallgrímur af því til-
efni fyrir um það hjá Veðurstofu
íslands hvernig veðrið hefði verið
á Akureyri þennan sama dag árið
1930. Þá var annað uppi á teningn-
um en nú, sjö áratugum sfðar, en
veðurlýsingin var svohljóðandi:
Norðanátt, skýjað, súld og fjög-
urra stiga hiti.
Spáð er hlýindum bæði nyrðra
og syðra um helgina.