Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986.
Neytendur_____________
Stórhættulegir
lampar í unvferð
Kynnið ykkur merkingar á rafmagnsvönim
„Algengt er að í verslunum séu
boðnir til sölu lampar og önnur raf-
magnstæki sem líta vel út en uppfylla
ekki á nokkum hátt þær öryggiskröf-
rs
Þessi viðurkenningarmerki eru frá
Norðurlöndunum, Frakklandi og Vest-
urÞýskalandi, en þessi lönd eru hátt
skrifuð og talin i fremstu röð i heimin-
um hvað snertir prófun raffanga.
Opnunartími
verslana
í desember
Heimilt er að hafa verslanir opn-
ar á laugardögum í desember sem
hér segir:
13. desember kl. 18.00,
20. desember kl. 22.00,
Þorláksmessu til kl. 23.00,
aðfangadag til kl. 12.00.
Versianir má hafa opnar mánu-
daga til fimmtudaga til kl. 18.30
og föstudaga til kl. 21.00.
-A.BJ.
ur sem gerðar eru til raffanga. Þetta
eru oft eftirlíkingar af þekktum og
viðurkenndum vörum sem óprúttnir
framleiðendur selja síðan langt undir
verði upphaflega hlutarins," sagði
Guðbjartur Gunnarsson, fulltrúi hjá
Rafinagnseftirliti ríkisins, á fundi er
nýlega var boðað til í Rafinagnseftir-
litinu.
Öll raíföng sem hér eru í notkun eru
eftirlitsskyld þótt ekki sé skylda að
prófa þau öll í raffangastofhuninni. I
þeim flokki eru t.d. lampar til heimilis-
nota, en hér á landi eru fjölmargir
lampar sem geta beinlínis verið stór-
hættulegir á heimilum manna.
Nefha má alls kyns skrautlampa,
sem sérstaklega eru ætlaðir fyrir böm,
lampa sem eru svo léttir að þeir detta
við minnstu snertingu og jafnvel án
hennar og auk þess lampar sem svo
illa er gengið frá að þeir geta bráðnað
af hita perunnar.
Máttlaust eftirlit
Á vegum Rafmagnseftirlits ríkisins
starfar svokölluð raffangaprófun sem
við höfum raunar sagt áður frá hér á
Neytendasíðunni. Þar starfa fimm
manns við að prófa öryggisbúnað allra
raffanga sem eru flutt til landsins og
eru prófunarskyld. Að aflokinni próf-
un gefur stofhunin leyfi til þess að
viðkomandi vara sé merkt með merki
stofhunarinnar.
Starfsmönnum hennar er svo ætlað
að fylgjast með því að ekki séu í versl-
unum hér rafmagnsvörur sem em
hættulegar mönnum og að öryggis-
búnaður heimilistækja sé í fullkomnu
lagi.
Það er seinlegt verk að prófa raf-
magnstækin. Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Guðnasonar, hjá raffanga-
prófuninni, getur það tekið allt að
hálfan mánuð fyrir einn mann að prófa
þvottavél áður en vélin fær viður-
kenningarmerki Rafmagnseftirlitsins.
Innflytjendur rafmagnstækja þurfa
að sækja sérstaklega um að fá að nota
merki Rafmagnseftirlitsins og þá á
ákveðið raffang sem hlotið hefur við-
urkenningu RER. Nokkrir innflytj-
endur notfæra sér þetta en alltof fáir.
Hér á landi em einnig nokkuð sér-
stakar aðstæður því innflytjendur em
mjög margir og er þar jafhvel um fólk
að ræða sem alls ekki er með verslun-
arfyrirtæki. Haft hefur verið samband
við Rafmagnseftirlitið til þess að fá
upplýsingar um innflytjanda tækja
sem hafa bilað og vantar varahluti í.
Þá hefur komið í ljós að tækið fór
aldrei í gegnum raffangaprófunina og
seljandann og væntanlega innflytj-
andann hvergi að finna.
Það er því aldrei of brýnt fyrir fólki
að athuga vel sinn gang og kaupa
helst ekki rafmagnstæki nema af við-
urkenndum raftækjasölum og láta
ekki blekkjast af lágu verði eingöngu,
sagði Guðpbjartur.
Ýmsar merkingar á rafföngum
Á rafmagnsvörum sem keyptar em
til heimilisins eða rafiföngum, eins og
það heitir á máli fagmanna, em ýmsar
merkingar sem nauðsynlegt er fyrir
neytendur að kunna skil á. Þar má
t.d. sjá hvaða einangrun er í tækinu,
hve stóra pem er óhætt að nota ef um
lampa er að ræða og fleira í þeim dúr.
Sum tæki em með viðurkenningar-
merki frá raffangaprófun framleiðslu-
landsins, en slíkum merkingum er
ekki óhætt að treysta í blindni. Nýlegt
dæmi um norskar þvottavélar sem
hingað vom fluttar og vom með merki
norsku raffangaprófunarinnar. Inn-
flytjandinn var búinn að flytja 700
vélar til landsins þegar skoðun lauk í
Rafmagnseftirlitinu en skoðunin
leiddi í ljós að breyting hafði verið
gerð á vélinni eftir að hún hafði verið
skoðuð í Noregi og nú uppfyllti hún
ekki íslenskar öryggiskröfur.
Ef engar merkingar um pemstærð
er að finna á lampa er fólki eindregið
ráðlagt að kaupa ekki lampann. Hús-
bmnar hafa orðið af völdum ótraustra
borðlampa. Af 330 húsbmnum sem
urðu í Danmörku árið 1984 mátti rekja
40 til raffanga.
Starfsmenn raffangaprófunarinnar
sýndu mjög ótraustan loftlampa sem
seldur var í verslunum hér fyrir nokkr-
um árum. Lampinn var eftirlíking af
öðrum og fullkomnari loftlampa. í
fljótu bragði litu lampamir eins út en
vom mjög ólíkir þegar betur var að
gáð. Fyrir það fyrsta var öryggishlífin
á bak við pemna alltof lítil og var
botninn, sem var úr plasti, brunninn
í sundur áður en prófuninni lauk. Þá
var merkt hámarksperustærð á lamp-
ann en sú merking var neðan á honum
þannig að þegar búið var að festa
lampann upp í loftið var ekki hægt
að sjá þá merkingu. Fleira var athuga-
vert við þessa lampategund og vom
þeir umsvifalaust teknir úr verslunum.
En starfsmenn raffangaprófunarinn-
Vonandi þekkir enginn snúrudraslið sem Sæmundur heldur á í vinstri hend-
inni af eigin raun. En þetta hefur verið notað sem útiljósasería. Hún á að
vera vatnsvarin og frágengin eins cq r,ú sem hann hefur í hægri hendi.
Kannski gætu ömmur fallið fyrir þessum lömpum sem ætlaðir em í barnaher-
bergið. Þeir em stórhættulegir og geta hæglega valdið íkveikju þegar barnið
fer að hnoðast með lampana, jafnvel uppi í rúmi og undir sæng. Lamparnir
em þar að auki valtir og geta hæglega dottið í gólfið og brotnað.
DV myndir-Brynjar Gauti
ar em störfum hlaðnir við að prófa
raftæki og geta því ekki sinnt nægi-
lega vel eftirlitsskyldu sinni í verslun-
um. Neytendur verða því sjálfir að
vera á verði gagnvart hættulegum
rafmagnsvörum.
Hættulegar jólavörur
Mikið af rafmagnsvörum em notað-
ar einmitt í kringum jólin. Er því
sérstök ástæða til að vara fólk við að
nota aðeins viðurkennd rafföng. Látið
gera við það sem er bilað eða kaupið
hreinlega nýtt. Margir em með sam-
settar jólatrésseríur, sem geta verið
hættulegar, að ekki sé nú talað um
útiseríur sem verða að vera vatns-
þéttar.
Það em allt aðrar aðstæður hér á
landi en t.d. í suðlægum löndum en
algengt er að sólarlandafarar komi
með alls kjms lampa og tæki heim í
fartaski sínu. Er sérstaklega varað við
slíku.
Þá er talin ástæða til þess að vara
við „snjóhúsunum" sem margir búa
til. Peran sem er inni í „húsinu" verð-
ur að vera vel varin þannig að hún
hiti ekki umhverfið. Húsið verður
einnig að vera staðsett þannig að óvit-
ar fari ekki að hnoðast með það.
Árlega berst fjöldi umsókna um við-
urkenningu raffanga. Árið 1985 bámst
1659 umsóknir. Þar af vom 1409 sam-
þykktar en 250 var synjað um viður-
kenningu. Það þýðir þó alls ekki að
vonlaust sé að flytja þau rafföng til
landsins, heldur verður að bæta úr
þeim ágöllum sem em við öryggis-
búnað tækjanna. -A.BJ.
Starfsmenn Rafmagnseftirlitsins sýndu ýmis rafföng sem ekki uppfylla kröf-
ur um öryggisbúnað hér á landi. Starfsmennirnir eru frá vinstri Magnús
Guðnason og Guðbjartur Gunnarsson.
1965
Huernig afgreiddar
Land F j ö 1 d i umsókna % tíamþ . tíynjað tíamþ. % Synjað %
1sland 74 4,46 72 2 97,3 2,7
DanmÖrk S4 3,25 48 6 88,9 11,1
F inriland 3 1 1,87 3 1 - 100,0 -
Noregur 39 2,36 3 9 100,0 -
SvlþjóS 48 2,89 44 4 91,7 8 . 3
Austurriki 22 1 , 33 19 3 86,4 13,6
B e I g í a 46 2,78 43 3 93,5 6,5
BreLland 7 4 4,46 62 12 83,8 16,2
F r ak klarid 200 12,06 152 48 76,0 24,0
Holland 65 3,92 48 17 7 3,8 26,2
lriand 6 0,36 6 - 100,0
ttalía 130 7,83 95 3 5 73,1 26,9
Júgóslaula 3 0, 18 1 2 33 , 3 66,7
l’or Lúgal 12 0,7 2 12 - 100,00 -
Kúmenla 1 0,06 - 1 - 100,0
tíouélríkin 4 0,24 3 1 7 5.0 25,0
Spánn 67 4,04 38 29 56,7 43,3
tíuiss 12 0,72 12 ~ 100,0 _
A-Þýs kalarid 1 0,06 1 - 100,0 _
U-Þýs kaland 702 42,31 622 80 88,6 11.4
Bandaríki N.A. 20 1,21 18 2 90,0 10,0
Brasilla 1 0,06 1 100,0 -
Horig Kong 6 0,36 5 1 83 , 3 16,7
Japan 22 1,33 22 100,0 -
Kiria 4 0,24 4 100,0 . -
Kórea 4 0,24 2 2 50,0 50,0
Sirigapore 3 0, 18 2 1 66,7 33 , 3
Taiwan 8 0,48 7 1 87.5 12, 5
Samtals 1.6b9 100,0 1409 250 8 4,9 15, 1
Þama er skiptingin á þe-im umsóknum sem bárust og voru afgreiddar árið 1985.