Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Page 20
20
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986.
íþróttir
DV
Haukamir komu
mjög á óvart
- er þeir sigruðu KR-inga, 19-24
Benfica er
enn ósigrað
Benfica er nú komið með tveggja
stiga forystu í portúgölsku 1. deild-
inni. Eftir 13 umferðir hefur liðið
ekki enn tapað leik, aðeins gert
þrjú jafntefli. Um síðustu heigi
sigraði Benfica Belenense, 2-0, og
skoraði Rui Aguas bæði mörkin.
Femando Comes skoraði þrennu
þegar meistarar Porto sigfuðu
Maritimo, 4-1. Sporting Lássabon
er í 4. sæti með 18 stig. -SMJ
/
Hver verður
•Stefán Sigurðsson matsveinn afhendir Hauki verðlaun sem Brauðbær/ Óð-
insvé gaf íþróttamanni ársins hjá fötluðum. DV-mynd S
• Kalli Feldkamp.
Feldkamptil
Frankfurt
Þjálfari Bayer Uerdingen Karl
Feldkamp var í gær ráðinn þjálfari
hjá Eintracht Frankfurt og tekur
hann við liðinu þegar keppnis-
tímabilinu lýkur í vor.
Eins og fram heftir komið í DV
var Emst Köppel ráðinn þjálfari
Uerdingen í síðustu viku en hann
tekur við liðinu þegar Feldkamp
hættir en Köppel var áður aðstoð-
arþjálfari vestur-þýska landsliðs-
ins. -JKS
Haukar unnu sinn annan sigur í 1.
deild íslandsmótsins í handknattleik í
Laugardalshöll í gærkvöldi er þeir
lögðu KR-inga að velli, 24-19, eftir að
hafa haft yfir í leikhléi, 9-11.
Leikur liðanna var lítið augnayndi
en þó kom Haukaliðið vemlega á
óvart og sýndi á köflum skemmtileg
tilþrif. Skæðastir í liði Hauka vom
þeir Sigurjón Sigurðsson, sem skoraði
10/4 mörk, og Pétur Guðnason sem
skoraði 6 mörk. Þá áttu þeir Jón Öm
Stefánsson og Gunnar Einarsson (15
skot) mjög góðan leik.
KR-ingar vom afspymuslakir og
ekki hægt að nefiia einn einasta leik-
mann öðrum fremur. Konráð Ólafsson
skoraði mest eða 6 mörk og Hans
Guðmundsson 4 mörk.
Leikinn dæmdu þeir Bjöm Jóhanns-
son og Sigurður Baldursson og hafa
oftast dæmt betur. -SK
Haukur bestur fatlaðra
Iþróttasamband fatlaðra hefur út-
nefiit Hauk Gunnarsson íþróttamann
ársins úr röðum fatlaðra íþróttamanna
árið 1986.
Haukur, sem keppir í flokki
spastískra, er mjög fjölhæfur íþrótta-
maður en hann hefur náð bestum
árangri í fijálsum íþróttum, einkum
spretthlaupum og langstökki. Haukur,
sem er tvítugur að aldri, hefur verið í
stöðugri ffamför að undanfömu. Hann
vann til verðlauna á ólympíuleikum
fatlaðra 1985 og einnig síðastliðið
sumar á heimsleikum fatlaðra sem
haldnir voru í Svíþjóð.
-SMJ
• Páll Björgvinsson skoraði þrjú mörk fyrir Stjörnuna gegn Val í Höllinni í gærkvölc
Stefáni Halldórssyni og Þorbimi Guðmundssyni og skömmu síðar lá knötturinn í netii
Mikil spenna er i
og Valur deildu
- Mikill dairaðardans á lokamínútunum
„Það hefur nokkuð oft komið fyrir hjá
okkur í vetur að okkur hefur ekki tekist
að halda haus til leiksloka og klára leik-
ina,“ sagði Páll Björgvinsson, þjálfari og
leikmaður Stjömunnar, eftir að Valur og
Stjaman höfðu gert jafntefli, 22-22, í
hörkuspennandi leik í Höllinni í gær-
kvöldi.
Eftir að staðan hafði verið 4-4 eftir
nokkrar mínútur tóku Stjömumenn með
Gylfa Birgisson í broddi fylkingar foryst-
una og héldu henni en staðan í leikhléi
var 9-11. Síðari hálfleikur var æsispenn-
andi og oftast hafði Stjaman eitt eða tvö
mörk yfir. Það var ekki fyrr en staðan
var 17-17 að Valsmönnum tókst að jafiia
metin og eftir það var jafiit á öllum tölum.
Staðan var 22-22 þegar þrjár mínútur
vom til leiksloka og mikið gekk á í lok-
in. Þegar ein mínúta og sextán sekúndur
vom eftir var dæmd leiktöf og Páli Björg-
vinssyni vikið af leikvelli í tvær mínútur
og var það snarvitlaus dómur. Júlíus Jón-
asson skaut síðan ffamhjá Stjömumark-
inu þegar 32 sekúndur vom eftir. Litlu
munaði síðan að Gylfa Birgissyni tækist
að tryggja Stjömunni sigurinn þegar 5
sekúndur vom eftir en skot hans af lín-
unni úr erfiðri aðstöðu fór rétt ffamhjá.
Homamennimir Jakob Sigurðsson og
Valdimar Grímsson vom langbestir í liði
Vals en þeir skomðu 14 mörk samtals.
íþróttamaður
ársins 1986?
Fram brotnaði loks
- Þróttur sigraði Fram örugglega í blakinu, 3-0
Eins og undanfarin ár verður
íþróttamaður ársins valinn af
Samtökum íþróttafréttamanna og
verður greint frá úrslitum í hófi á
Hótel Loftleiðum 9. janúar.
DV býður nú lesendum sínum til
getraunar í tengslum við kjör
íþróttamanns ársins. Þeir sem
áhuga hafa á að vera með eiga að
raða nöfrium fimm íþróttamanna í
sæti frá eitt til fimm. í blaðinu á
morgun og næstu daga verða birt-
ir þátttökuseðlar en skilafrestur
er til 2. janúar. Dregið verður úr
réttum seðlum þann 10. janúar og
fimm bækur tengdar íþróttum
verða í verðlaun. Það er því til
mikils að vinna og um að gera að
drífa sig í að fylla út þátttöku-
seðlana.
Þróttur jók á forskot sitt á íslands-
mótinu í blaki karla með 3-0 sigri yfir
Fram, næstefsta liðinu, í Hagaskóla í
gærkvöldi. Bendir ekkert til annars
en að Þróttur haldi meistaratitlinum
sjöunda árið í röð.
Fyrstu hrinu tóku Þróttarar með
erfiðismunum naumlega 16-14 á 29
mínútum. Munurinn var meiri í ann-
arri hrinu, 15 -10, en í þeirri þriðju
brotnaði Fram-liðið loks, eftir sex sig-
urleiki í röð, og Þróttur sigraði 15-5.
Frömurum gekk illa að hemja vel
skipulagða sókn Þróttara, sem Leifur
Harðarson stýrði af sinni alkunnu
snilld.
Óvænt úrslit urðu í Kópavogi. Þar
steinlá ÍS fyrir HK.
Kópavogspiltamir bökuðu Stúd-
enta, 15-5, í fyrstu hrinu á 10 mínútum.
Liðin sneru aðeins einn hring.
fS-menn sýndu nýtt andlit í annarri.
Úr 32 mínútna baráttuhrinu fóru
HK-menn með sigur af hólmi.
„Stúdentar misstu móðinn þegar
þeir náðu ekki að vinna aðra hrinu,“
sagði HK-maðurinn Albert H.N.
Valdimarsson en þriðju hrinu tók HK,
15-6.
Stóri-Bói blokkaður
„ÍS-liðið var ekki lélegt. HK-menn
blokkuðu þá bara alveg, blokkuðu
Stóra-Bóa alveg niður. HK-liðið náði
virkilega vel saman," sagði Albert
stoltur.
Kjartan Busk var sterkastur HK-
manna en hjá ÍS var Þorvarður
Sigfusson, Stóri-Bói, mest ógnandi
þrátt fyrir hávömina.
Á Laugarvatni mættust HSK og
Víkingur.
„Við komumst í 9-2 í fyrstu hrinu
en síðan ekki söguna meir,“ sagði
Torfi Rúnar Kristjánsson, þjálfari
Skarphéðinsmanna, og var heldur
daufur í dálkinn.
Víkingar sigmðu nefhilega 3-0;
15-10, 15-6 og 15-7.
Línur em famar að skerpast á mót-
inu. Þróttur trónir á toppnum með 14
stig eftir 7 leiki. Fram og Víkingur
koma næst með 12 stig, bæði eftir 8
leiki. HK er í fjórða sæti með 8 stig
eftir 7 leiki. fS hefur einnig 8 stig en
eftir 8 leiki.
Önnur lið virðast ekki ætla að
blanda sér í baráttuna um að komast
í fjögurra liða úrslitakeppnina, sem
hefst í febrúarlok. -KMU
aciidas
adidas
SNYRTIVORUR
SPORTMANNSINS
Fást í helstu snyrtivöruverslunum
•Hart barist i leik Þróttar og Fram i blakleik