Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986.
íþróttir
©Georce Best
George Best
skoraði
Knattspymukappinn og glaum-
gosinn gamalkunni, George Best,
skoraði eitt mark fyrir stjömulið
Pat Jennings, markvarðarins
kunna, þegar liðið gerði jafntefli,
3-3, við úrvalslið frá N-Irlandi í
Belfast. Leikurinn var ágóðaleikur
fyrir Pat Jennings sem lék 119
landsleiki fyrir N-íra. 25 þús.
áhorfendur komu á leikinn. Terry
Gibson og Frank Stapleton skor-
uðu hin mörk stjömuliðsins. Þess
má geta að Best, sem hóf lands-
leikjaferil sinn með N-írum í sama
landsleik og Jennings, 1964, var
tekinn út af í leiknum - mjög
þreyttur. -SOS
Nicholas
á bekknum
Það er ekki pláss fyrir skoska
landsliðsmanninn Cheirlie Nichol-
as í táningaliði Arsenal sem hefúr
staðið sig svo vel að undanfömu.
Nicholas sat á varamannabekkn-
itm á Highbury sl. laugardag þegar
Arsenal lagði QPR að velíi, 3-1.
Nú em þær sögusagnir uppi að
Liverpool hafi áhuga á að kaupa
Nicholas. -SOS
Jafntefli hjá
Waterschei
Ragnar Margeirsson og félagar
hans hjá Waterschei máttu sætta
sig við enn eitt jafnteflið, þegar
þeir léku gegn Diest. Leikur átti
að fara fram á sunnudaginn, en
það varð að fresta honum vegna
þoku. Ragnar lagði upp mark
Waterschei, sem Geens skoraði, en
Claes náði að jafna fyrir Diest á
85. mín. leiksins. Ragnar lék vel
og fékk mjög góða dóma fyrir leik
sinn. -SOS
Enn sigrar
Gunde Svan
Sænski skíðagarpurinn Gunde
Svan heldur áfram þar sem frá var
horfið í fyrra í heimsbikarkeppn-
?nni í göngu. Hann hefúr nánast
verið ósigrandi í skíðagöngu í tvö
ár og sigraði í fyrstu keppni vetrar-
ins með yfirburðum. Tími Svans í
15 km göngu í Austurríki í gær
var 38 mínútur og 52,2 sekúndur
og var hann 24 sekúndum á undan
Kari Ristanen frá Finnlandi sem
var í öðm sæti. -SMJ
< 'r ■ .. ' ■ ''
Tveir frá Rangers
reknir af leikvelli
- þegar skoska félagið lék gegn Gladbach
ASi HHmarssan, DV, V-Þýskalandi;
Graeme Souness tókst ekki að
leiða sína leikmenn til sigurs gegn
Bomssia Mönchengladbach hér í V-
Þýskalandi í gærkvöldi í UEFA-bikar-
keppninni. Leikmenn Rangers vom
betri í leiknum, sem var harður og
lauk með jafntefli, 0-0. Skotamir byij-
uðu leikinn með miklum látum og
sóttu grimmt en þeim tókst ekki að
skora.
Mótlætið hljóp í skapið á þeim og
var tveimur leikmönnum vísað af leik-
velli - þeim Stuart Munro og David
Cooper. Munro, sem hafði áður fengið
að sjá gula spjaldið, fékk að sjá það
rauða á 75. mínútu fyrir að rífa kjaft.
Cooper var rekinn af velli á 87. mín-
útu eftir gróft brot.
34 þús. áhorfendur (uppselt), sáu
leikinn sem var harður. Gladbach
komst áfram á jafnteflinu þar sem fé-
lagið náði að knýja fram sigur í
Glasgow, 1-0.
•Graeme Souness lék að nýju með
Rangers.
Varamaðurinn hetja Barcelona
Atli Eðvaldsson og félagar hans hjá
Uerdingen voru afepymulélegir í gær-
kvöldi þegar þeir töpuðu fyrir Barcel-
ona, 0-2, á Spáni. Aðeins 30 þús.
áhorfendur sáu leikinn, sem var ekki
upp á marga fiska. Barcelona fékk
sautján homspymur á móti einni hjá
Uerdingen. Það var varamaðurinn
Juan Carlos Roja, 27 ára, sem var
hetja Barcelona. Hann kom inn á fyr-
ir Gary Lineker á 70. mín. og stuttu
eftir skoraði hann fyrra mark Barcel-
ona, sem vann, 2-0, með sinni fyrstu
snertingu við knöttinn. Hann bætti
síðan marki við á 79. mínútu.
Leik hætt vegna þoku
Það varð að hætta leik Inter Milano
og Dukla Prag í Mílanó eftir 80 mín.
leik vegna þoku. Þá var staðan 0-0.
Liðin verða að leika að nýju.
•Austum'ska félagið Tyrol kom
skemmtilega á óvart með því að leggja
Spartak Moskva að velli, 2-1, og
tryggja sér þar með farseðilinn í 8 liða
úrslitin. -SOS
I----------------------
! Schiister til Kölnar?
Nú em taldar miklar líkur á því
að v-þýska vandræðabamið Bemd
Schúster fari aftur til Kölnar og
leiki með því liði á næsta keppnis-
tímabili. Viðræður hafa verið í
gangi á milli félaganna að undan-
fömu en ekki borið árangur.
Félagaskipi verða að fara fram fyr-
ir næsta mánudag en þá lokar
markaðurinn í Þýskalandi.
„Ef ég leik aftur í Bundesligunni
þá verður það með Köln, það er
ömggt. Köln er eina borgin sem
ég vil búa í í Þýskalandi. Þar er
alltaf eitthvað að gerast og þar er
vinur minn Tony Schumacher,"
sagði Schúster við blaðamenn.
Schúster, sem er af mörgum tal-
inn einn hæfileikaríkasti leikmað-
ur Evrópu, hefur nú dvalist í sex
ár hjá Barcelona. Honum hefur
verið mjög uppsigað við forseta
félagsins, Jose Luis Nunez, og
þjálfarann Venables að undan-
fömu.
-SMJ
Boris varð óður
- þegar hann tapaði fyrir Lendl í úrslitum meistarakeppninnar
Ivan Lendl kenndi hinum unga Bor-
is Becker tvær lexíur í úrslitaleik
meistarakeppni tennisleikara en þar
kepptu þeir tveir til úrslita. f fyrsta
lagi það að Lendl er besti tennisleik-
ari heims og í öðm lagi að það borgar
sig að halda ró sinni á tennisvellinum.
Hin 19 ára gamli Þjóðverji var alger-
lega yfirspilaður í úrslitaleiknum og
tapaði 0-4,6-4,6-4. Þetta fór mjög svo
í skapið á Boris og skeytti hann skapi
sínu á sínu nánasta umhverfi - jafnt
dauðum hlutum sem lifandi. „Ég verð
að læra að hemja skap mitt,“ sagði
Becker eftir á og bætti við að það
leyndi sér ekki að Lendl væri bestur.
Boris hélt því þó staðfastur fram að
hann væri að draga á Lendl.
Lendl sýndi ótrúlega mikla yfirburði
í leiknum ef miðað er við að þama
áttust við tveir bestu tennisleikarar
heims. Boris réði ekkert við uppgjafir
Lendl og reyndar yfirspilaði Lendl
Boris á öllum sviðum.
Lendl fékk tæpar 9 milljónir króna
fyrir sigurinn og hefúr hann nú unnið
sér inn um 100 milljónir króna á ár-
inu. Becker fékk fjórar milljónir í sinn
hlut.
-SMJ
Beveren
græddi
peninga
Kiistján Bemburg, DV, Belgía:
Það eina sem Beveren græddi í
gærkvöldi þegar félagið tapaði, 0-1,
fyrir Torino hér í UEFA-bikarkeppn-
inni vom peningar. Beveren fékk fimm
milljónir _þar sem leikurinn var sýndur
beint til Ítalíu og 500 þús. frá belgíska
sjónvarpinu þar sem leikurinn var
sýndur beint í Belgíu. Þá komu 13.500
áhorfendur til að sjá leikinn þar sem
leikmenn ítalska liðsins vom mun
öflugri. Dossena skoraði eina mark
leiksins á 74. mínútu. Torino komst
áfram á samanlagðri markatölu, 3-1.
•Dundee United gerði góða ferð til
Júgóslavíu þar sem leikmenn liðsins
náðu jafritefli, 0-0, gegn Hajduk Split
og unnu samanlagt, 2-0. 30 þús. áhorf-
endur.
•Portúgalska liðið Guimaraes
komst einnig í 8 liða úrslitin. 20 þús.
áhorfendur sáu leikmenn liðsins skora
þijú mörk gegn engu og vinna saman-
lagt, 3-1.
•IFK Gautaborg vann ömggan sig-
ur, 4-0, yfir Gent frá Belgíu og
samanlagt, 5-0. 15.100 áhorfendur sáu
þá Magnus Johansson (45 mín.), Jari
Rantanen (50), Glenn Hysen (57) og
Peter Larsson (64) skora mörkin.
-sos
•John Stiles.
Stiles rek-
inn útaf
Sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni er gamalt og gott máltæki sem
sannast á John Stiles, syni gamla
harðjaxlsins Nobby Stiles. John,
sem leikur með Leeds United, var
rekinn af leikvelli á móti WBA nú
um helgina og var hann reyndar
þriðji leikmaðurinn sem var rekinn
af velli í þessum „hörku“leik. Svo
skemmtilega vill til að faðir Johns,
Nobby, er einmitt þjálfari hjá
WBA svo að hann gat tekið á
móti þessum 19 ára skapheita syni
sínum við hliðarlínuna. Skyldi
hann hafa verið stoltur, gamli
maðurinn? -SMJ