Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Side 2
4
3. grein*
Fjelagið vill ná tilgangi sínum með því að verja tekj-
um sínum og sjóðeignum á þann hátt, er nú skal greina:
1. Að koma á fót tilraunastöð á Norðurlandi, þar sem
gerðar verða tilraunir með garðyrkju, grasrækt, skóg-
rækt og tilbúin áburðarefni.
2. Að stuðla að þvl, að fjelagsmenn viðsvegar af fje-
lagssvœðinu geri tilraunir með áburðarefni og rœkt-
unaraðferðir eftir fyrirsögn fjelagsstjórnarinnar og i
samræmi við tilraunir aðalstöðvarinnar.
3. Að reyna helstu jarðyrkjuverkfæri og útlendar áburð-
ar- og frœtegundir og láta fjelagsmönnum i tje, jafn-
óðum og næg reynsta er fengin, upplýsingar um hvað
best reynist, og útvega fjelagsmönnum handverkfæri
til jarðyrkju, ýmsar frætegundir og trjáplöntur til
gróðursetningar, með vægu verði.
4. Að gefa hverjum, sem óskar þess, allar upplýsingar,
sem að jarðrækt lúta. Vill það þvi ætíð reyna að hafa
í sinni þjónustu menn, sem færir eru um að gefa
þessar upplýsingar. Einnig vill það láta menn ferðast
um og halda fyrirle tra um jarðrækt, til að auka á-
huga mar.na og je... ngu i því efni.
5. Að haldin sjeu vor- og sumarnámskeið árlega í aðal-
stöð fjelagsins, og fari þar fram verkleg kensla i garð-
rækt, blómrœkt, .plægingum, grasfræsáning, gróður-
setning trjáa o. fl.
4. grein.
Sjái fjelagið sjer fært að hafa verksvið sitt víðtækara,
en ákveðið er í 3. grein, getur aðalfundur tekið ákvörð-
un um það.