Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Síða 49

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Síða 49
51 en nokkur atriði mætti benda á, sem sýna að hjer er bæði um mikið vatnsmagn og orku að ræða. Árið 1789, fann sir John Stanley, að Litli-Geysir hjá Reykjum í Ölvesi, gaus 2313 pottum af vatni á mínútu, sem svarar til 38 sek.lft. í Lýsing íslands, eftir Porvald Thoroddsen, II. 1, bls. 222 segir, að þar sem heita vatnið úr Deildartungu- hver renni í Reykjadalsá, verði hiti árinnar 81°, en Deild- artunguhver mun einhver vatnsmesti hver landsins. Vorið 1916 voru harðindi mikil á Norðurlandi; þá veitti sýslubúfræðingur Baldvin Friðlaugsson, nú bóndi á Hvera- völlum í Reykjahverfi, hveravatni á engi og þýddi þannig 1—2 m. þykt hjarn af 6 dagslátta svæði. Petta gerði hann fyrstu dagana í maí. í lok mánaðarins var engið slegið og fengust af því um 50 hestar af votu grasi, sem þar höfðu sprottið fyrir tilstyrk heita vatnsins, þrátt fyrir frost og hríðar. Pað getur tæplega verið nein smá- ræðisorka, sem kemur slíku til leiðar. (Samanber ársrit Rf. Nl. 1916 bls. 109-110). Útbreiðsla jarðhitans á íslandi er mjög mikil. í flestum sýslum landsins eru fleiri og færri heitar uppsprettur, en mest brögð eru að þessu á Suður, Suðvestur- og Vest- urlandi, en varla teljandi á Austurlandi. f sumum sveitum eru heitar uppsprettur í túninu eða við það, jafnsjálf- sagður hlutur og bæjarlækir annarstaðar. Til þess að gefa ofurlitla hugmynd um útbreiðslu jarðhitans, set jeg hjer stutt yfirlit, sem vegna ófullkominna upplýsinga getur þó tæplega orðið mjög lærdómsríkt. Umhverfis Geysir i Haukadal mun meiga telja um 10 stærri hveri og fjölda af smærri augum. í nágrenni Reykja í Ölvesi, eru 6 stórir og fjöldi smærri hvera og lauga. Pá eru og margir hverir og laugar í Laugadalnum í Biskupstungunum og viðar til og frá á Suðurlandsundirlendinu. 4*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.