Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Síða 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Síða 57
Sáðsljettur. Á yfirstandandi tímum, þegar áhuginn fyrir aukinni ræktun vex hröðum skrefum og oss er að verða það Ijóst, að ræktunin er líftaug landbúnaðarins, þá hlýtur spurs- málið um ræktunaraðferðir að vera meira lifandi heldur en nokkru sinni áður. Gamla þaksljettuaðferðin er ekki lengur tímabær, útheimtir of mikla handavinnu og getur ekki heldur átt við, nema undir sjerstökum skilyrðum. Sjálfgræðslan getur ekki heldur átt allstaðar við, er ekki nógu lifandi ræktunaraðferð, gefur of seint arð og er háð of miklu handahófsvali hvað jurtagróður áhrærir. Áhug- inn fyrir sáðgræðslu hlýtur því að vaxa með vaxandi ræktunaráhuga, og þó verður því eigi neitað, að þessi aðferð hefir, enn sem komið er, slæma annmarka. Vjer verðum að gera þær kröfur til sáðsljettanna, að gróður sá, sem vjer sáum til, sje góður til fóðurs og varanlegur. Með reynslunni höfum vjer lært að útbúa fræ- blandanir, þó af útlendu fræi sjeu, sem vel má kalla sæmilegar, gefa gott fóður óg allgóðan afrakstur, en var- anlegleiki sáðgresisins hefir verið miður góður. Þegar best hefir látið, hefir einstök tegund af sáðgresinu (há- liðagrasið) algerlega náð yfirhönd. í flestum tilfellum hefir ræktunin orðið sambland af sáð- og sjálfgræðslu og oft, er fram liðu stundir, alger sjálfgræðsla, sáðgresið dáið út. Margir telja að orsakirnar til þessa liggi í því, að sáð- jurtirnar séu of viðkvæmar fyrir veðráttu þá, er vjer eig-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.