Eintak - 24.02.1994, Page 6
Skoðanakönnun Skáís fyrir eintak
SjáHstæðisfloldqjrinn
hnininn
Drjúgur meirihluti R-listans
R-listinn fengi 62,6 prósent atkvæða og tíu
borgarfulltrúa efkosið væri í dag. Aðeins 55
pmsent þeirra sem sögðust hafa kosið Sjálf-
stæðisflokkinn í síðustu kosningum ætla að
gera það aftur.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem Skáfs gerði fyrir
eintak um helgina myndi meiri-
hluti sjálfstæðismanna í Reykjavík
kolfalla ef gengið yrði til kosninga í
dag. Af þeim sem tóku afstöðu
sögðust aðeins 37,4 prósent mundu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn en 62,6
prósent sameiginlegan lista minni-
hlutaflokkanna. Ef sætum borgar-
fulltrúa er skipt eftir þessu hlutfalli
fengi R-listi núverandi minnihluta
tíu fulltrúa en sjálfstæðismenn að-
eins fimm.
í könnuninni var leitað svara hjá
600 Reykvíkingum. Af þeim sögð-
ust 25,8 prósent styðja Sjálfstæðis-
flokkinn og 43,3 prósent R-listann.
69,1 prósent tóku því afstöðu og
sögðust ætla að kjósa annan hvorn
listann. 16,3 prósent voru óákveðn-
ir, 6,7 prósent neituðu að svara en
7,9 prósent sögðust ekki mundu
ómaka sig á kjörstað eða skila auðu.
Ef þessi niðurstaða könnunar-
innar er borin saman við úrslit síð-
ustu kosninga þá hefúr Sjálfstæðis-
flokkurinn misst meira en þriðja
hvern kjósanda sinn. f síðustu
kosningum fékk flokkurinn rétt 60
prósent atkvæða og tíu borgarfull-
trúa. Hann fær nú aðeins 37,4 pró-
sent fylgi í könnunni eða 22,6 pró-
sentustigum minna og missir
helminginn af borgarfulltrúum sín-
um, eða fimm. R-listinn fær nú
62,6 prósent fylgi en allir litlu
flokkarnir fengu ekki nema 40 pró-
sent atkvæða í síðustu kosningum.
Ef leitað er aftur til ársins 1978,
þegar sjálfstæðismenn misstu borg-
ina, þá fengu sjálfstæðismenn 47
prósent atkvæða eða rétt tæplega 10
prósentustigum meira fylgi en það
mælist í könnuninni nú.
Hér sjást niðurstöður skoðanakönnunar Skáfs fyrir EINTAK um borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Jafnframt var spurt hvaða flokk menn hefðu stutt í síðustu borgarstjórnarkosningum. Á grundvelli
þess er hægt að segja fyrir um hvert fylgið sveiflasL Á efra kökuritinu til hægri sést hvernig
stuðningsmenn R-listans kusu síðast, en á því neðra hvernig þeir, sem kusu Sjálfstæðisflokkinn,
segjast stemmdir nú.
I rfiðlega gekk fyrir Friðrik
I Karlsson að fá söngkonu
Itil að syngja lagið sitt „Næt-
ur“ í forkeppni Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Fyrst bað
hann Sigríði
Beinteins-
DÓTTUR en hún
neitaði, enda bú-
in að taka þátt í
Söngvakeppninni
tvisvar sinnum
fyrir íslands
hönd. Þá bað
Friðrik SigrÚnu
Evu ÁRMANNSDÓTTUR að syngja
lagið en hún söng einmitt með
Siggu í Söngvakeppninni árið 1992.
Hún hafði ekki áhuga og hefur líka
nóg að gera um þessar mundir í
hljóðveri með hljómsveit sinni
„Þúsund andlit". Friðrik bað Siggu
aftur og lét hún til leiðast. Búið var
að taka upp lagið með söng hennar
þegar henni snerist skyndilega
hugur. Ekki voru nema örfáir dagar
í forkeppnina og varð Friðrik að
hafa hraðar hendur til að finna aðra
söngkonu. Hann fór á fjörurnar við
Sigrúnu Evu á nýjan leik og það
varð úr að hún söng lagið. Hefði
engin fengist, hefði Friðrik þurft að
endurgreiða allt það fé aftur til Rík-
issjónvarpsins sem hann hafði
fengið til að gera lagið sem best úr
garði. Kunnugir segja að Friðrik hafi
í raun og veru verið heppinn að fá
Sigrúnu Evu til liðs við sig því njóti
lagið ekki velgengni í flutningi
Siggu gæti það komið niður á
hljómsveitinni sem þau eru bæði í...
Gólf Lukkunámunnar, spila-
stofunnar fyrir neðan Café
Romance, er lagt Ijósrituðum
fimmþúsund króna seðlum sem
lakkað er yfir. Þetta gólfefni hefur
farið mjög fyrir brjóstið á ákveðnum
embættismönnum hjá Seðlabanka
íslands. Reyndar líta embættis-
mennirnir þetta svo alvarlegum
augum að þeir hafa kært Val
Magnússon, sem rekur Café
Óperu, Romance og Lukkunám-
una, fyrir peningafölsun. Þetta byrj-
aði á því að tveir virðulegir fulltrúar
Seðlabankans komu á fund Vals og
mæltust til þess að hann setti eitt-
hvað annað á gólfin. Valur mun í
byrjun hafa tekið þessu sem hverju
öðru gríni því seðlarnir eru Ijósritað-
ir öðru megin á A4 blöð sem gólfið
er flísalagt með, stöku seðill er þó
klipptur út til að brjóta upp formið.
Seðlabankamönnunum var þó ekk-
ert gaman í huga og settu rann-
sóknarlögregluna í málið. Valur
þverskallast ennþá við að rífa Ijós-
ritin upp og málið fer því fyrir dóm-
stóla sem munu skera úr um hvort
gólfið í Lukkunámunni falli undir
peningafölsun...
Aðrir flokkar
Nýr vett-
vangur
Hvert fór fylgi
Sjálfstæðisflokksins?
Oákveðnir
Skila auðu
eða kjósa,
ekki
R-listinn
Þátttakendur í könnuninni voru
einnig spurðir hvað þeir hefðu kos-
ið við síðustu borgarstjórnarkosn-
Markús Örn Antons-
son borgarstjóri
Höium áll
undir högg að
„Við höf-
um átt undir
högg að
sækja í skoð-
anakönnun-
um en þess-
ari þróun
verður ör-
ugglega snú-
ið við,“ sagði
Markús örn
Antonsson,
borgarstjóri, þegar niðurstöður
skoðanakönnunar Skáís um fylgi
Sjálfstæðisflokksins og R-listans
voru bornar undir hann. „Á hvaða
tímapunkti get ég ekki sagt um, en
það gæti allt eins gerst nokkrum
vikum fyrir kosningar. Þetta er
nánast sama niðurstaða og komið
hefur út úr öðrum könnunum sem
gerðar hafa verið undanfarið. I
sjálfu sér hefur ekki mikið gerst síð-
an í borgarmálunum. Verið er að
setja saman listana og koma saman
málefnaskrá. Það er verið að vinna
að því hjá okkur. Eftir að það liggur
fyrir kemst fjör í þennan leik og hin
eiginlega kosningabarátta hefst.“<D
Ingibjöng Sólrnn Gísla-
dóttir alþingismaður
Hreyfíng komin
„Þessi niður-
staða staðfestir
þá tilfinningu
sem maður hefur
haft að sameigin-
legur Reykjav-
íkurlisti hefur
skapað farveg
fyrir óánægju sem er til staðar,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóraefni R-listans, þegar
niðurstöður skoðanakönnunarinn-
ar voru bornar undir hana. „Þetta
sýnir þá óánægju sem er í þjóðfé-
laginu með þær hugmyndir sem
ráðið hafa för við stjórn borgarinn-
ar og landsmálanna. Stúdentakosn-
ingar í Háskólanum á þriðjudaginn
staðfesta það líka. Það er hreyfing
komin af stað og það er eðlilegt að
fólk sjái valkost í nýjum lista.
Þetta sýnir rnanni líka að það er
raunverulegur möguleiki á því að
meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
borginni falli í vor. Það er hins veg-
ar ljóst að það dugir ekki að vinna
skoðanakannanir, það þarf að
vinna kosningar.
Það vekur einnig athygli mína að
það eru fleiri óákveðnir í þessari
könnun en í þeim fyrri."©
Árni Sigfússon
borgarfulltmi
Verðum að
snúa þessu við
„I mínum huga er nokkuð ljóst
hver staðan er,“ sagði Ámi Sigfús-
son, borgarfulltrúi, þegar niður-
stöður skoðanakönnunarinnar
voru bornar undir hann. „Ég tel að
staðan sé svona, útlitið á þessum
tímapunkti sýnir okkur hvert verk-
efnið er framundan. Við verðum að
snúa þessu við. Ég meðtek þessar
niðurstöður og tel ekki ástæðu til
að rengja þær.“0
Sigrún Magnúsdóttir
oddviti R-lista
Hef fundið
þetta í borgar-
sálinni
„Niðurstaðan er í sama anda og
úr öðrum skoðanakönnunum sem
gerðar hafa verið undanfarið og ég
er ánægð með að hún staðfestir
fylgið við okkur,“ sagði Sigrún
Magnúsdóttir, oddviti R- listans. „-
Þetta staðfestir enn og aftur sem
maður hefur fundið í borgarsál-
inni, að borgarbúar vilja breytingu
og lýðræðislegri stjórnarhætti.“ O
Vátryggingafélagið Skandia og Fasteignamiðstöðin deila um skyldutryggingu
fasteignasölunnar sem bæta á tjón vegna mistaka
Skandia telur sig ekki bóta-
skytt vegna meintra mistaka
Einn af viðskiptavinum Fast-
eignamiðstöðvarinnar hf. leitaði til
vátryggingarfélagsins Skandia fyrr í
þessum mánuði þar sem hann taldi
sig eiga rétt á bótum vegna meintra
mistaka fasteignasölunnar. Skandia
vísaði málinu frá sér á þeim for-
sendum að Gísli Gíslason, löggilt-
ur endurskoðandi og annar leyfis-
hafa Fasteignamiðstöðvarinnar,
væri ekki tryggður hjá þeim en
hann hafi gengið frá þeim kaup-
samningi sem um ræðir. Fasteigna-
miðstöðin stendur hins vegar í
þeirri meiningu að Gísli falli undir
tryggingu fasteignasölunnar hjá
Skandia.
Þess skal strax getið að ekki hefur
verið sýnt fram á að Fasteignamið-
stöðin hafi gert mistök í umræddu
tilviki. Sú spurning vaknar hins
vegar hvort skyldutryggingum fast-
eignasala sé háttað í samræmi við
lög og reglugerðir. Viðskiptavinir
fasteignasala eiga að geta gengið út
frá því sem vísu að ef þeir gera mis-
tök þá séu þeir tryggðir fyrir því
tjóni sem kann að hljótast af þeim.
I reglugerð um löggildingu og
tryggingaskyldu fasteignasala er
skýrt tekið fram að fasteignasali
skuli leggja fram tryggingu til
greiðslu kostnaðar og tjóns sem
viðskiptavinir þeirra gætu orðið
fýrir. Ef þetta ákvæði er ekki upp-
fyllt fá menn ekki löggildingu
dómsmálaráðuneytisins til að ann-
ast fasteignaviðskipti.
Sigurður Þóroddson, löggiltur
fasteignasali, er leyfishafi ásamt
Gísla, fyrir hönd Fasteignamið-
stöðvarinnar. Hann er tryggður hjá
Skandia og starfsfólk Fasteigna-
miðstöðvarinnar þar með. Hann
lítur svo á-að Gísli falli undir þá
tryggingu þar sem í reglugerðinni
segir að þar sem tveir eða fleiri fast-
eignasalar reki fasteignasölu undir
sama firmanafni teljist þeir fúll-
nægja tryggingaskyldunni með
kaupum á einni sameiginlegri
tryggingu. Þessi háttur er hafður á
hjá mörgum fasteignasölum enda
væri dýrt að tryggja alla löggilta
fasteignasala á þeirra vegum þar
sem þeir eru allt að fjórir hjá hverri
þeirra.
Þórður Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri vátryggingasviðs
Skandia, segir að trygging Sigurðar
nái yfir þá starfsmenn sem gefnir
hafi verið upp þegar tryggingin var
tekin. „Við höfum ekki annað í
höndunum en að Sigurður Þór-
oddsson hafi óskað eftir tryggingu
fyrir sig sem fasteignasala og starfs-
fólk sitt. Þessi trygging nær ekki yf-
ir aðra fasteignasala þannig að við
lítum svo á að Gísli Gíslason sé
ekki tryggður hjá okkur.“
Gísli benti hins vegar á að hann
hefði ekki fengið löggildingu sem
fasteignasali án þess að ráðuneytið
hefði fengið staðfestingu á trygg-
ingu hans. Því hljóti að vera um
misskilning hjá Skandia að ræða.
Haft var samband við Jón Thors
hjá dómsmálaráðuneytinu vegna
þessa máls. „Við höfum litið svo á
að þessar tryggingar dekki alla þá
starfsmenn sem starfa á stofunni.
En það má eflaust deila um þetta
tilvik."
Er sú fasteignasala ólögleg sem
hefur ekki tryggingu sem nœr yfir
alla starfsmenn hénnar?
„Hún fullnægir ekki skilyrðum
sem gilda um þessa starfsemi.“ 0
6
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994