Eintak - 24.02.1994, Side 14
Fjármálaveldi Herlufs Clausens, sem var talinn í hópi ríkustu íslendinga, er komið að fótum
fram. Bankarnir sækja að honum og létu selja einbýlishúsið hans á nauðungaruppboði í síðustu
viku. Styrmir Guðlaugsson kynnti sér söguna á bak við ófarir Herlufs og rekur ævintýralegan
uppgang hans í viðskiptaheiminum fram að því.
Tapadar viðskipta
krafuraðfella
„bankætjórann“
i Gnotaþorpinu
Blöndubakki 10
Herluf á íbúð í fjölbýlishúsi við Blöndubakka sem metin er á tæpar
9 milljónir króna.' Eins og aðrar eignir hans er hún fullveðsett. Á
undanförnum árum hefur hann selt nokkrar fasteignir til að losa um
fé en það hefur ekki dugað til.
Herluf Clausen hefur verið einn
umsvifamesti kaupsýslumaður á Is-
landi undanfarinn áratug eða svo.
Um tíma var hann réttilega talinn
vera milljarðamæringur en nú er
staða hans slík að útlit er fyrir að
hann missi flestar sínar eignir.
Bankarnir, sem eru helstu lána-
drottnar Herlufs, þjarma nú að
honum en hann rær lífróður til að
bjarga veldi sínu frá falli.
I síðustu viku var glæsilegt ein-
býlishús selt ofan af honum á nauð-
ungaruppboði að beiðni nokkurra
lánadrottna hans, meðal annars
Búnaðarbanka íslands sem hefur
verið hans helsti viðskiptabanki.
Meginástæðan fýrir því hversu
illa er komið fyrir Herluf og fýrir-
tækjum hans er gríðarlegt tap hans
á viðskiptakröfum. Hann er í raun-
inni í sömu stöðu og bankarnir að
því leyti, enda hefur verið sagt að
hann hafi velt fjármunum á við
meðalstóran sparisjóð með lána-
starfsemi sinni.
Herluf hefur haslað sér völl víða í
viðskiptalífinu, ekki síst þó í versl-
unargeiranum. Það sem kom fót-
unum undir hann voru skamm-
tímalán til fyrirtækja sem skorti fé
til að leysa vörur úr tolli. Síðan hef-
ur hann keypt mikið af víxlum og
skuldabréfum með afföllum, auk
greiðslukortanóta. Og nú þegar
verslunin gengur vægast sagt illa og
æ fleiri geta ekki staðið við skuld-
bindingar sínar er það að koma
Herluf í koll. Þannig má segja að sú
starfsemi sem gerði hann einn af
ríkustu mönnum landsins sé jafn-
framt að knésetja hann.
Lánadrottnarnir ganga
að eigum Herlufs
Slæm staða Herlufs sést meðal
HÖFÐATÚN 10
Höfðatún 10 er veðsett að fullu en húsið er metið á tæpar 24 millj-
ónir króna.
tjá sig nokkuð um málið. Fulltrúi
eins þeirra sagði þó: „Það hafa verið
vandamál hjá Herluf."
Allar fasteignir veðsett-
ar upp í topp
Þær fasteignir, sem skráðar eru á
nafni Herlufs, eru allar veðsettar
upp í topp.
Samtals eru þær metnar á rúmar
162 milljónir króna, að meðtöldu
einbýlishúsinu við Hofsvallagötu
samkvæmt brunabótamati, sem
endurspeglar að jafnaði söluand-
virði fasteigna. Þessar eignir eru
veðsettar fýrir rúmar 154 milljónir
króna og hærra verður vart komist.
Hofsvallagata 1
Herluf Clausen keypti einbýlishúsið við Hofsvallagötu 1 árið 1988
þegar fjármálaveldi hans reis einna hæst. Þetta er eitt glæsilegasta
einbýlishús landsins, byggt af Vilhjálmi Þór, forstjóra SÍS, og er
metið á 46 milljónir króna. í sfðustu viku vaf húsið selt ofan af
Herlufá nauðungaruppboði, meðal annars
ans sem verið hefur hans
Samkvæmt heimildum EINTAKS
reyndi Herluf að selja Hofsvalla-
götu 1 á síðasta ári til að losa fé en
tókst ekki, enda eru fá dæmi um að
svo dýr einbýlishús hafi selst hér á
landi á síðustu árum, en bruna-
bótamat þess nemur 46 milljónum
króna. Honum tókst þó að selja
ýmsar smærri fasteignir en það
dugði ekki til. Á endanum brast
lánadrottna hans þolinmæði og
þeir lögðu fram beiðni um nauð-
ungaruppboð. Húsið lenti svo und-
ir hamrinum ió. febrúar síðastlið-
inn. Mikið kapphlaup varð um
eignina og buðu fulltrúar SPRON
og íslandsbanka í kapp við Kristján
Knútsson sem kom fram fyrir hönd
Sagahúss hf, sem er í eigu hans
sjálfs og Jóns Ragnarssonar, veit-
ingamanns. íslandsbanki bauð 29
milljónir króna í húsið en á endan-
um hafði Kristján betur með því að
bjóða hálfri milljón betur. Heim-
ildarmenn EINTAKS herma að
reyna eigi eftir mætti að bjarga
þessu glæsilega einbýlishúsi með
þeim hætti að Herluf leysi það til
sín frá Kristjáni þegar og ef rætist
úr fjármálum hans. Kristján verður
hins vegar að reiða fram fjórðung
LAUGAVEGUR 95.
Húsið við Laugaveg 95 er í eigu Herlufs. Það er metið á tæpar 65
milljónir og er að fullu veðsett.
annars á því að bæði Gjaldheimtan
og Fjárfestingafélagið Skandia létu
gera fjárnám í eignum hans á síð-
asta ári til tryggingar á til þess að
gera lágum skuldum. Það hefði þótt
saga til næsta bæjar fýrir nokkrum
árum ef Herluf hefði ekki getað
skrapað saman fimm milljónum til
að komast hjá fjárnámi, maður sem
gat snarað út hundruðum milljóna
til að lána fýrirtækjum með sama
og engum fyrirvara. I síðustu viku
var fjárnáminu svo fylgt effir af
sömu aðilum, auk Búnaðarbanka
Islands og Islandsbanka, en þá var
einbýlishús Herlufs við Hofsvalla-
götu 1, sem metið er á 46 milljónir
króna, selt á nauðungaruppboði.
Búnaðarbankinn hefur verið
helsti viðskiptabanki Herlufs í
gegnum tíðina og fyrst sá banki
gengur svo langt að láta selja íbúð-
arhúsið ofan af honum er greinilegt
að honum eru flestar bjargir bann-
aðar.
„Staðan er ljós eins og þú getur
séð á opinberum gögnum," sagði
Kristján Knútsson, viðskiptafé-
lagi Fferlufs, í samtali við EINTAK.
„Umtalsvert tap á viðskiptakröfum
er orsökin fyrir því hvernig komið
er. Herluf hefur verið stór í versl-
unarbransanum. Þar hefur gengið
illa og Herluf hefur farið illa út úr
því. Hann er í þeirri stöðu að berj-
ast við að leysa sína hluti. Ef við fá-
um frið vonast ég til þess að við get-
um unnið okkur út úr þessu.“
Hverja eruð þið að semja við?
„Eigendur krafnanna eru bank-
arnir.“
Tryggvi Pálsson, bankastjóri Is-
landsbanka, sagði í samtali við EIN-
TAK að staða Herlufs hefði ekkert
verið rædd í bankastjórninni. Sól-
on Sigurðsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, neitaði að tjá sig
um viðskipti bankans og
Herlufs og sagði aðspurður
að það kæmi bara í ljós
hvort bankirin færi fram
á uppboð á öðrum
eignum Herlufs sem
hann ætti veð í.
Aðrir lánadrottnar
Herlufs, sem haft var
samband við,
n e i t u ð u
14
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994